Fréttablaðið - 04.04.2002, Page 8
FRETTABLAÐIÐ
4. apríl 2002 FIIVIIVITUDAGUR
íslömsk ríki ósammála um skilgreiningu hryðjuverka:
ísrael líkt við
nasistaríki
FRÁ RÁÐ-
STEFNUNNI f
MALASÍU
Farouk
Kaddoumi, ut-
anríkisráðherra
Palestínustjórnar
(t.v.) á tali við
dómsmálaráð-
herra Indónesíu.
Sendiherra
Palestínumanna
í Malasiu fylgist
með.
ERLENT
Breskum læknum hefur tekist
með genameðferð að lækna
18 mánaða dreng af lífshættuleg-
um sjúkdómi, sem kom í veg fyr-
ir að ónæmiskerfi hans þróaðist.
Þetta er talið fyrsta dæmi þess
að genameðferð beri árangur í
lækningaskyni, að sögn BBC.
600 kíló af kókaíni fundust í
gær við höfnina í Salerno á
suðurhluta Ítalíu. Höfðu eiturlyf-
in verið falin inni í gámi sem
hafði að geyma marmara sem
verið var að flytja frá Venesúela.
Dow Jones-hlutabréfavísitalan
féll um 115 stig, eða um 1,1%
í viðskiptum gærdagsins á Wall
Street. Lokagengið var 10,198
stig.
kuala lumpur. ap Samtök íslamskra
ríkja slitu í fyrradag tveggja daga
ráðstefnu sinni um hryðjuverk án
þess að komast að samkomulagi
um skilgreiningu hryðjuverka.
Ríkin mótmæltu því hins vegar að
tengja baráttu Palestínumanna
gegn hernámi ísraels við hryðju-
verk.
Mahathir Mohamad, forsætis-
ráðherra Malasíu, lagði til að
hryðjuverk yrðu skilgreind sem
árásir á almenna borgara. Þar á
meðal teldust árásir palestínskra
sjálfsvígsmorðingja. Mahathir
sagði sjálfsvígsmorðingjana vissu-
lega hafa mikilla harma að hefna.
Engu að síður væri ekki hægt að
réttlæta árásir á almenna borgara
„hversu göfug sem baráttan er.“
Fulltrúar Palestínumanna og
ríkja í Mið-Austurlöndum sögðust
ekki geta fallist á þetta. Sjálfs-
morðsárásirnar spretti upp úr þeir-
ri örvæntingu sem ríkir meðal
Palestínumanna. Hún stafi af þeim
hryðjuverkum sem ísrael beitir á
herteknu svæðunum.
„Þetta er Helför Palestínu-
manna,“ sagði Farouk Kaddoumi,
utanríkisráðherra í heimastjórn
Palestínumanna. Hann líkti aðferð-
um ísraela við framferði þýskra
nasista gegn gyðingum á sínum
tíma. „Við þurfum stuðning al-
þjóðasamfélagsins til þess að koma
í veg fyrir að ísraelskir nasistar
drepi Palestínumenn.“
Þessi tillaga olli deilum og ráð-
stefnunni lauk án þess að sam-
komulag tækist um skilgreiningu
hryðjuverka. ■
Mannslátið í Hamraborg:
Óljóst
um atvik
lÖcrecla Ekki er enn ljóst hvað
olli dauða manns, sem fannst lát-
inn í íbúð í Hamraborg í Kópavogi
sunnudaginn 10. mars. Að sögn
lögreglu er málið í rannsókn, en
krufning leiddi í ljós að maðurinn
lést af völdum innvortis áverka.
Maður á fertugsaldri og kona á
sextugsaldri hafa verið í gæslu-
varðhaldi í þrjár vikur vegna
málsins, en gæsluvarðhaldið
rennur út í næstu viku. Að sögn
lögreglu er reiknað með því að
óskað verði eftir framlengingu á
gæsluvarðhaldinu. Rannsókn
málsins miðar ágætlega, en enn er
óljóst um atvik og ekki komnar
niðurstöður úr tæknirannsókn. ■
PLÁNETURNAR
Næst munu Júplter, Mars, Satúrnus,
Merkúr og Venus raða sér upp fyrir jarðar-
búa í september árið 2040.
Sjaldgæf sjón á vestur-
himni í lok apríl:
Fimm
plánetur
raða sér upp
stjörnufræði Ef vel er að gáð má
um þessar mundir sjá pláneturnar
Júpíter, Mars og Satúrnus raða
sér upp á vesturhimni þar sem
þær mynda næstum beina línu.
Samkvæmt útreikningum stjörnu-
fræðinga munu Merkúr og Venus
bætast í hópinn rétt undir lok
þessa mánaðar. Einkar sjaldgæft
mun vera að fimm plánetur „komi
saman“ með þessum hætti.
Fréttastofa AP hefur eftir banda-
rískum stjörnufræðingum að
sambærileg uppröðun fimm
pláneta muni eiga sér stað í sept-
ember árið 2040, júlí 2060 og októ-
ber 2100. Þeir segja þó að stað-
setning hópsins verði hagstæðust
fyrir almenna stjörnuáhugamenn
núna.
Sagt er að allir sem hafa tök á
að fylgjast með vesturhimninum
að næturlagi geti séð pláneturnar
í lok apríl með berum augum án
sjónauka. Skömmu eftir atburð-
inn, í kringum 5. maí, munu Ven-
us, Mars og Satúrnus svo mynda
lítinn þríhyrning áður en leiðir
skilja. Sama þrenning mun koma
saman aftur í ágúst 2010. ■
Alþingi og þingnefndir
beittar blekkingum
Vinstri grænir gagnrýndu Valgerði Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, harðlega
á Alþingi í gær. Hún var sögð hafa leynt efnahags- og viðskiptanefnd upplýsingum um af-
stöðu Norsk Hydro til tímaáætlana varðandi Reyðarál. Talsmenn Samfylkingar tóku ekki
undir gagnrýni á Valgerði.
VALCERÐUR SVERRISDÖTTIR
Valgerður sagðist ekki myndu láta gagnrýni pólitískra andstæðinga
á sig fá og sagðist hafa fundið mikinn meðbyr við stjórnvöld á
opnum fundi á Reyðarfirði i fyrradag.
alþingi „Alþingi hefur verið
blekkt," sagði Ógmundur Jónas-
son, þingflokksformaður Vinstri
grænna, í upphafi þingfundar á
Alþingi í gær. Hann gagnrýndi
Valgerði Sverrisdóttur, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, fyrir að
hafa ekki upplýst efnahags- og
viðskiptanefnd með viðunandi
hætti um stöðu Reyðarálsverk-
efnisins vegna þess að „hún hafi
lifað í voninni" um að úr málum
rættist hjá Norsk
Hydro. „Sú af-
staða ráðherra að
réttlætanlegt sé
að leyna Alþingi
og nefndum þings-
ins upplýsingum
er ámælisverð og
vítaverð," sagði
Ögmundur.
Valgerður
Sverrisdóttir
sagðist ekki hafa
leynt þingið upp-
lýsingum. „Á
þessu stigi taldi ég
ekki líklegt að fyr-
irtækið héldi því
til streitu að standa ekki við áætl-
anir,“ sagði hún og benti á að svo
seint sem 18. mars hafi verið haft
eftir starfsmönnum Norsk Hydro
að engar ákvarðanir hafi verið
teknar um að breyta út af tímaá-
ætlunum. Valgerður sagðist hafa
greint þinginu frá jafn skjótt og
skýr svör fengust hjá Norsk
Hydro. „Það er háttur ábyrgra
stjórnmálamanna að kanna við-
kvæm mál til hlítar áður en farið
er með þau í opinbera umræðu og
þannig var það í þessu tilfelli,"
sagði hún.
Talsmenn Vinstri grænna og
Sverrir Hermannsson, formaður
Frjálslynda flokksins, sögðu for-
—♦—
Össur Skarp-
héðinsson tel-
ur ábyrgðina á
óljósri og
ónógri upplýs-
ingagjöf liggja
hjá Norsk
Hydro og
kvaðst vera
með óbragð í
munni eftir
viðskiptin við
þá.
—♦—.
sendur Kárahnjúkavirkjunar
brostnar og því ætti að taka um-
ræðu um virkjunina af dagskrá
að sinni. „Það var rætt um það á
sínum tíma að engar ákvarðanir
yrðu teknar um virkjun fyrr en
kaupandi raforkunnar væri í
hendi. Hann er ekki í sjónmáli,"
sagði Ögmundur Jónasson. Sverr-
ir Hermannsson sagði virkjun
útilokaða við ríkjandi aðstæður.
Forystumenn Samfylkingar-
innar tóku ekki undir gagnrýni
Vinstri grænna á störf Valgerðar.
Össur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar taldi ábyrgð-
ina á óljósri upplýsingagjöf liggja
hjá Norsk Hydro og kvaðst vera
með óbragð í munni eftir við-
skiptin við þá. „Það hefur ekki
verið og á ekki að vera verkefni
Alþingis að finna fjárfesta fyrir
verkefni af þessu tagi og leggja
mat á þá,“ sagði Bryndís
Hlöðversdóttir, þingflokksfor-
maður Samfylkingarinnar, sem
sæti á í iðnaðarnefnd þingsins.
Hún taldi að óvissa um þátttöku
Norsk Hydro hefði engu breytt í
meðförum iðnaðarnefndar á
frumvarpi ríkisstjórnarinnar um
virkjun Kárahnjúka.
oli@frettabladid.is
OGMUNDUR JÓNASSON
Ögmundur telur samningsstöðu þjóðarinnar um raforkuverð til
stóriðju gagnvart erlendum fjárfestum vonlausa verði ráðist í virkj-
un án þess að verkefni og orkuverð liggi fyrir áður.
Biskup á Norður-írlandi:
Segir af sér vegna
kynferðisbrota prests
belfast. ap Einn vinsælasti biskup
á Norður-írlandi hefur sagt af sér
og viðurkennt að hafa ekki gert
nóg til þess að koma í veg fyrir að
prestur í biskupsdæmi hans-
fremdi kynferðisbrot á börnum.
Brendan Comiskey biskup
sagðist hafa reynt að hafa hemil á
prestinum, Sean Fortune, en án
árangurs. Presturinn stytti sér
aldur 1999, skömmu áður en rétt-
arhöld yfir honum áttu að hefjast.
Hann hafði verið kærður fyrir 66
kynferðisbrot gegn drengjum
undanfarna tvo áratugi.
Fórnarlömb prestsins hafa
haldið því fram að Comiskey hafi
vitað lengi um afbrot Fortunes, en
ekki gert neitt í því. Comeskey
viðurkenndi í gær að hafa vitað af
þeim, en ekki gert nóg til* að
stöðva prestinn. ■
BRENDAN COMISKEY
Biskupinn sagði af sér í gær, degi áður en
sýna átti í sjónvarpi heimildarmynd um
kynferðisbrot prests í hans biskupsdæmi.
INNLENT
Astþór Magnússon, fyrrum
forsetaframbjóðandi, hefur
sent frá sér áskorun í nafni
samtakanna Friðar 2000 þar
sem hann skorar á Ólaf Ragnar
Grímsson, forseta íslands, að
hefja án tafar alþjóðlegt friðar-
starf undir merkjum forseta-
embættis. „Hafi forsetinn ekki
kjark til þess að standa upp úr
hóglífinu á Bessastöðum og
standa við kosningaloforð sitt
um að beita sér í embætti í
friðarmálum, á hann að segja
af sér embætti strax í dag,“
segir í áskoruninni.