Fréttablaðið - 04.04.2002, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 04.04.2002, Blaðsíða 11
FHVMVITUDAGUR 4. apríl 2002 FRÉTTABLAÐIÐ n Ríkið kaupir Gljúfrastein 21. apríl: Laxnessetur rís í Mosfellsbæ menningarsetur Bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ hafa ákveðið að reisa sérstakt Laxnessetur til heiðurs nóbelsskáldinu. Jóhann Sigurjóns- son, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, sagði að full samstaða væri um málið í bæjarstjórn, en ekki væri búið að ákveða hvar setrið • yrði reist. Bærinn hygðist einnig verja rúmum 4 milljónum í ár til að minnast 100 ára afmælis Halldórs Kiljan Laxness. Jóhann sagði að upphaflega hefði ætlunin verið að hafa Laxnes- setrið á Brúarlandi og að áætlaður kostnaður við það hefði verið um 80 milljónir króna. Nú væru hins vegar hugmyndir um að reisa sér- stakt hús við Hlégarð eða Gljúfra- stein, en kostnaður við það væri ekki ljós. Ef húsið risi við Hlégarð yrði það einnig nýtt undir aðra menningartengda starfsemi eins og t.d. bókasafn og tónlistarskóla. Ef það yrði byggt í námunda við Gljúfrastein myndi það eingöngu hýsa verk Halldórs, ljósmyndir og annað tengt hans störfum. Að sögn Jóhanns hefur hug- myndavinna í tengslum við bygg- ingu setursins verið unnin í nánu samstarfi við fjölskyldu Halldórs. Fulltrúar bæjarins hefðu m.a. farið til írlands með nokkrum úr fjöl- skyldunni til að kynna sér svipuð setur helguð írsku skáldunum James Joyce og Bernard Shaw. Ríkið hefur ákveðið að kaupa Gljúfrastein af fjölskyldu Laxness. Jóhann sagði að ekki væri að fullu ljóst hvers konar starfsemi yrði þar en ein af hugmyndunum væri að útbúa þar safn tengtu heimilis- lífi skáldsins. Nóbelsskáldið hefði orðið 100 ára 23. apríl. Bæjarfélagið hyggst minnast tímamótanna með ýmsum hætti og verða m.a. sérstök hátíð- arhöld þann 21. apríl. Bærinn hefur auk þess samþykkt að styrkja þáttagerð um skáldið og verja tæp- um tveimur milljónum króna í göngustígagerð við Gljúfrastein. Jóhann sagði að skáldið hefði notið þess að ganga um sveitina og til stæði að opna tvær gönguleiðir í Mosfellsdalnum og merkja þær með fræðsluskiltum. Annars vegar væri um að ræða gönguleið upp með Köldukvísl að Helguseli undir Grímannsfelli og áfram að bíla- stæði við túnfótinn í Bringum. Hins vegar gönguleið frá Gljúfra- steini að Mosfelli, framhjá Laxnesi að Guddulaug á landamerkjum Laxness og Minna Mosfells og áfram að Mosfelli. trausti@frettabladid.is JÓHANN SIGURJÓNSSON Bæjarstjórinn segir fulla samstöðu um málið í bæjarstjórn. Enn ekki Ijóst hvar setrið verður. Flóabandalagið: Fjárhagur 30% félags- fólks hefur versnað viðhorfskönnun Yfirgnæf- andi meirihluti félags- manna í aðildarfélögum Flóabandalagsins vill að þau haldi áfram að leggja höfuðáherslu á hækkun lægstu launa. Um 85% þeirra telur að fræðsla og starfsmenntun skili sér í betri kjörum. Athygli vek- ur að 30% telja að fjárhags- staða sín sé lakari en fyrir þremur árum vegna verð- Keflavíkur og nágrennis. Úrtakið var um 1.290 félags- menn. í könnuninni kom einnig fram að konur leggja meiri áherslu á hækkun lægstu launa en karlar. Þessi áhersla á hækkun lægstu launa eykst með aldri. Þá vilja yngri félagsmenn yfir- leitt leggja meiri áherslu á prósentuhækkun launa á meðan eldri félagsmenn SIGURÐUR BESSASON Um 17 þúsund félagsmenn eru í hækkana a vöru og þjon- Eflingu - stéttarfé- vilja fremur sja kronutölu- lagi sem er lang- fjölmennasta fé- lagið innan Flóa- bandalagsins. ustu. Hins vegar eru 42% félagsmanna á því að fjár- hagur þeirra hafi batnað á sl. þremur árum. Þetta kemur m.a. fram í viðhorfskönnun sem Gallup gei’ði fyrir Eflingu - stéttarfélag, Verkalýðsfélagið Hlíf. og Verkalýðs- og sjómannafélag hækkanir. Yfir 55% félags- manna Eflingar búa í eigin húsnæði, 18% í leiguhús- næði og 25,8% í foreldra- húsum. Þá vii’ðist yfirgnæfandi fé- lagsmanna sem hafa leitað til skrifstofa stéttarfélaganna vera ánægðir með þjónustu þeiri’a. ■ HÓTEL VALHÖLL Loks sér fyrir endann á deilum um Hótel Valhöll. Ríkið kaupir umdeilt hús: 200 milljónir fyrir Valhöll kaup Ríkissjóður keypti Valhöll á Þingvöllum fyrir 200 milljónir króna í gær auk lóðarréttinda og annarra tilheyrandi réttinda. Seljandi er Hótel Valhöll ehf. og var samið um að andvirðið gangi til greiðslu á áhvílandi veðskuld- um. Með kaupunum var einnig felldur niður málarekstur vegna ágreinings um eignarréttindi á staðnum. Ekki hefur verið ákveð- ið hvað verður um eignina. Und- anfarin ár hafa staðið miklar deilur um húsið og þá sérstak- lega um klósettaðstöðu sem ríkið lét reisa við hótelið. ■ STUTT Maður á fimmtugsaldri féll af þaki Viðeyjarstofu um eitt leytið í gær. Maðurinn féll átta metra og meiddist við það á báð- um fótum og handlegg. Var hann talinn handleggsbrotinn. Hann var fluttur í land með Viðeyjar- ferjunni og síðan á slysadeild. Forsætisnefnd hefur samþykkt að leggja til að Alþingi kjósi sjö manna nefnd þingmanna sem kanni með hvaða hætti sé best að tryggja að umfjöllun um þingmál, störf þingnefnda og annarra þingstarfa byggi alltaf á réttum og bestu fáanlegum upp- lýsingum. Nefndinni er einnig ætlað að kanna hvort slíkar regl- ur séu í gildi hjá öðrum þjóð- þingum. Samþykktin var gerð að tillögu þingflokks Vinstri- hreyfingarinnar - græns fram- boðs sem var óánægur með að hafa ekki fengið að vita tímanle- ga af því að Norsk Hydro gæti ekki staðið við tímamörk sem höfðu verið sett. Okkar vinsælu saumlausu T-shirí Nærbuxur G-string Litir: hvítt, svart, hi Mikiö úrval n fyrir fermingai Sendum í póstl KNICKER Laugavegi 62 simi: 55 KNICKERBOX Vor / sumar 2002 Ertu búinn aö sjá úrvalið hjá okkur? Kjaftfull búð af nýjum vörum. Nýtt Mix and Match bikinitoppur 3.099 Mix and Match bikiniboxer 2.799 Mikiö úrval sundfata ICKERBOX Kringlunni sími: 533-4555

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.