Fréttablaðið - 04.04.2002, Qupperneq 9
FIMMTUPAGUR 4. apríl 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
9
Áfram reynt að gefa Keikó frelsi
en útgjöld skorin niður við trog:
Keikó verður að láta
50 milljónir duga í ár
vísindi Rekstrarkostnaður vegna
háhyrningsins Keikós verður í ár
aðeins fjórðungur þess sem hann
var í fyrra, eða um 50 milljónir
króna í stað 200 milljóna.
Samdrátturinn er samhliða
því að helsti fjárhagslegi bak-
hjarl Keikós, bandaríski auðkýf-
ingurinn Craig McCaw, er að
hverfa frá verkefninu. Að sögn
Halls Hallssonar, talsmanns sam-
takanna Ocean Futures, verður
þó áfram reynt að veita Keikó
frelsi. Árangurinn í fyrra bendi
til að ekki sé útilokað að það tak-
ist.
„Bandaríkjamennirnir eru
einbeittir í að halda verkinu
áfram og það munu aðrir taka
upp merkið. Samtökin skuld-
bundu sig til að annast velferð
skepnunnar svo lengi sem hún
lifir. Sá ásetningur er algjörlega
óhaggaður. En frá í haust höfum
við verið að minnka umfang
verkefnisins," segir Hallur.
BARNADEILD LANDSPÍTALANS
or
13E BARNADEILD
„Það er erfitt að saka fólk um eitthvað sem menn vita ekki með vissu. Það er ægilegt
vopn ef því er misbeitt," segir Jóhannes Gunnarsson, lækningaforstjóri Landspítalans.
Trúnaður vík-
ur fyrir grun
um ofbeldi
Lækningaforstjóri Landspítalans segir heil-
brigðisstéttir ekki eiga að hlífa sér við því að til-
kynna grun um ofbeldi gegn börnum. Þreföld-
un varð í tilkynningum í fyrra eftir að upp
komst að spítalinn hafði látið undir höfuð
leggjast að upplýsa yfirvöld um óútskýrt hand-
leggsbrot átta mánaða gamallar stúlku.
barnavernd Jóhannes Gunnars-
son, lækningaforstjóri Landspít-
alans, segir að á spítalanum hafi
verið hert mjög á öllum vinnu-
reglum vegna tilkynninga um
grun um ofbeldi gegn börnum.
Það hafi verið gert eftir að í ljós
kom að spítalinn hafði ekki upp-
lýst barnaverndaryfirvöld um
átta mánaða telpu með óútskýrt
handleggsbrot.
Litla stúlkan kom með óút-
skýrt handleggsbrot á Landspít-
alann 13. febrúar í fyrra. Jóhann-
es segir að eftir að uppskátt varð
um málið nokkrum mánuðum eft-
ir að stúlkan kom til meðferðar, í
lok maí, hafi verið haldnir fundir
með lykilmönnum á slysadeild og
barnadeildum:
„Það var skerpt á því að menn
hlífðu sér ekki við því að tilkynna
um mál sem vekja grunsemdir.
Við munum herða á þessu með
beinskeyttari starfsreglum sem
menn hafa fyrir augunum hér
innanhúss. Börnin eiga að njóta
vafans,“ segir Jóhannes.
Jóhannes segir mál litlu
stúlkunnar hafa leitt til þess að
tilkynningum frá spítalanum um
hugsanlegt ofbeldi hafi fjölgað
mikið. í Fréttablaðinu í gær sagði
einmitt frá því að f jöldi slíkra til-
kynninga hefði þrefaldast í
Reykjavík í fyrra.
Tilkynningar um grun um of-
beldi gagnvart börnum hafa ver-
ið afar fáar hérlendis miðað við
víða annars staðar. Jóhannes seg-
ir þó að menn hafi ekki ályktað af
því að börn hér væru síður beitt
ofbeldi en börn í öðrum löndum.
Ástæðan væri skortur á árvekni.
„Það vita það allir sem vilja vita
að börn eru beitt meira eða
minna óhóflegu valdi í öllum
samfélögum," segir hann.
Jóhannes minnir á að heil-
brigðis starfsmenn þurfi að gæta
trúnaðar gagnvart skjólstæðing-
um sínum, líka þeim sem leiti að-
stoðar fyrir börn sín. En þó
starfsmenn séu vanir að gæta
trúnaðar þá segi barnaverndar-
lögin að þagnarskyldan víki fyrir
tilkynningarskyldunni.
„Þetta er dauðans alvara. Það
er erfitt að saka fólk um eitthvað
sem menn vita ekki með vissu.
Það er ægilegt vopn ef því er
misbeitt," segir Jóhannes.
Aðspurður játar Jóhannes að
oft hugleiði menn hvort þeir sem
beita börn ofbeldi komi þeim
ekki undir læknishendur næst
þegar þörf krefur ef læknar til-
kynna yfirvöldum um grunsemd-
ir sínar. „Þetta getur verið tví-
eggjað. Menn eru að vega þetta
og meta með sjálfum sér. Það
eiga þeir ekki að gera lögin eru
alveg skýr,“ segir Jóhannes.
gar@frettabladid.is
KEIKÓ
Framlag til umönnunar Keikós hefur dregist saman um 75% milli ára. í fyrfa nam rek-
strarkostnaður Keikóverkefnisins 200 milljónum króna en aðeins 50 milljónum í ár.
Hallur segir enn ekki ákveðið
hvort Keikó verði áfram í Kletts-
vík eða flytjist að Stykkishólmi.
Óli Jón Gunnarsson, bæjar-
stjóri í Stykkishólmi, segir unnið
að því að Keikó komi þangað.
Hann telur fréttirnar af McCaw
ekki hafa áhrif á það.
„Það stóðu ekki til nein pen-
ingaframlög af okkar hálfu. Ég
reikna með að þessi félagsskapur
leysi þessi mál. Við höfum sam-
þykkt að hann fái að koma hing-
að. Hins vegar er verið að útfæra
það nánar, til dæmis varðandi
vegagerð," segir Óli Jón. ■
INNLENT
T Terkalýðsfélag Vestfjarða varð
V til í gær með sameiningu sex
verkalýðsfélaga. Sameiningin var
samþykkt í almennri atkvæða-
greiðslu. Verkalýðsfélag Vestfjarða
mun leysa af hólmi Skjöld á Flat-
eyri, Vörn á Bíldudal, Brynju á
Þingeyri, Baldur á ísafirði, Verka-
lýðsfélag Hólmavíkur og Sjó-
mannafélag Álftfirðinga. Jafnvel
er talið að fleiri félög muni ganga
til liðs við hið nýstofnaða félag.
Formaður þess er Pétur Sigurðs-
son.
Vinstri hreyfingin - grænt fram-
boð mun bjóða fram í Árborg.
Þetta kemur fram á vefnum Sudur-
land.net. í samtali við vefinn segir
Þorsteinn Ólafsson, dýralæknir á
Selfossi, að málin muni skýrast á
næstu viku eða svo.
Lög um fangelsi endurskoðuð:
Vinnu Ijúld fýrir haustið
lög Unnið er að endurskoðun laga
um fangelsi og fangavist. Ráð-
herraskipuð nefnd sem í eiga sæti
Þorsteinn A. Jónsson, forstjóri
Fangelsismálastofnunar, Björg
Thorarensen, prófessor, og Bene-
dikt Bogason héraðsdómari, vinna
að gerð nýs frumvarps. Að sögn
Þorsteins stefnir nefndin að því að
þeirra vinnu verði lokið fyrir haust-
ið.
Núverandi löggjöf er frá árinu
1988. Þorsteinn segir verulega rétt-
arþróun í þessum málum síðan þá
og því hafi verið ráðist í endurskoð-
un laganna. Hann vildi ekki tjá sig
um hvaða greinum verði breytt og
hverjar verða óbreyttar. Fjölmarg-
ar reglugerðir fylgja lögunum um
fangelsi og fangavist og sagði Þor-
steinn að sumum þyrfti væntanlega
að breyta en öðrum ekki. ■
FANGELSIÐ SKÓLAVÖRÐUSTÍG
Lög um fangavist eru í endurskoðun.
SENDING
AF SIDON
GALLABUXUM
3.990.-
'f:
"ÍiltS’
SSMmimimi
ÍSSilsas*?*-;:';1
Krinalunni - Laugavegi 95 - Smáralind