Fréttablaðið - 04.04.2002, Blaðsíða 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
4. apríl 2002 FIIVIIVtTUPAGUR
HÁSKÓLABIO
___HAGATORGl • SlHI S30 1919 ■ STÆRSTA SÝNIHGARTJAID LAHOSIHS_
I hiimir snær guðnason l'TO.
Sýnd kl. 5 og 10.30 Sýnd kl. 4, 7 og 10
IbEAUTIFUL MIND kl.7og9J0| |au kl. 101
AMELIE kl. 5.451 |PETER PAN kl. 5
SIDEWALKS OF NY kTÖ] ÍARNE AARHUS kl. 6,8 og 10.301
smnfíR^ bíú
GCOoiby /oorTíhx' sfM« 544 0000 • www$marab;o.)s
miTlMC MACHlNI
|ET kl. 5.30, 8, Og 10.30 | íiill
jPÉTUR PAN m/ísl. talí kl. 4 og 6 | |^|t| Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 vit 356
|SNOW DOCS kl. 4Í61 gjjj ÍBEAUTIFUL MIND 5.30, 8 og 10.40 |
|AL1 kl. 8 og 10.10 [COLLATERAL DAMAGE kL 81
FRÉTTIR AF FÓLKI
Lou Pearlman, maðurinn sem
bjó til Backstreet Boys og
N*Sync, hefur verið sýknaður
af ákærum um
að brjóta lög um
vinnu barna. Það
var móðir
tveggja pilta úr
sveitinni Take 5,
sem floppaði illa,
sem kærði Pe-
arlman. Hún
sagði að þeir
hefðu verið látnir vinna langt
fram yfir löglegan vinnutíma
barna. Kærunni var vísað frá
vegna skorts á sönnunargögn-
um.
Breski leikarinn Dudley
Moore hefur verið lagður til
hinstu hvílu. Hann var jarðaður
í kirkjugarði ná-
lægt heimili
hans í New Jers-
ey þar sem hann
lést. Aðeins um
30 vinir og
vandamenn voru
viðstaddir at-
höfnina, en lög-
reglan sá til þess
að halda blaðamönnum og ljós-
myndurum fjarri. Moore lést á
miðvikudaginn í síðustu viku
eftir áralanga baráttu við sjald-
gæfan heilahrörnunarsjúkdóm.
MAiARiNNJHt
Bagiarl»nd 1 • Kópavcui - Simi. 5«1 3500
BILLY WILDER LATINN
Óskarsverðlaunaleikstjórinn Billy Wilder,
sem m.a. gerði myndirnar „Some like it
hot" og „Sunset Boulevard", lést á dögun-
um. Hann var 95 ára að aldri.
Nú styttist í nýja Oasis plötu
og því ætti það að koma
fáum á óvart að kjafturinn á
Liam Gallagher
sé kominn á
skrið. Nú réðst
hann á íslands-
vinina í The
Strokes. Hann
sagði einu
ástæðu þess að
þeir gerðu
svart/hvít mynd-
bönd vera að þeir litu út eins og
bólugrafnir lúðar í lit. Næst tók
hann strákana í Starsailor fyrir
og kallaði þá „vælukjóa“. Hann
sagði að The Hives minntu sig
helst á The Monkees. Hann
baunaði einnig á Rolling Stones,
og kalla þá letingja sem ekki
nenntu að gera plötur lengur.
Eina unga bandið sem hann
sagði að þyrðu að rokka heitir
Black Rebel Motorcycle Club
en þeir hafa verið að hita upp
fyrir Oasis á tónleikum.
Jennifer Lopez hefur náð
samkomulagi í máli sem hún
höfðaði vegna myndbandsupp-
töku af henni í
ástarleik sem
eigandi Death
Row Records
fullyrti að hann
hefði undir
höndum.
Jennifer lagði
inn kæru þegar
kauði sagðist
ætla að koma myndbandinu á
framfæri á Netinu. Um leið og
málið var komið í hendur lög-
fræðinga sagði kauði að allt tal
um kynlífsmyndband væri bara
uppspuni. Þau tíðindi þykja lík-
legast mikil vonbrigði fyrir
netverja.
STIG1á5.&
[-=i Handrið
GRIDehfDalbrekku 26, Kópavogi
slml 5641880 www.grid.is
Meira pláss,
meiri styrkur
I fyrradag var brotið blað í íslenskri útvarpssögu þegar fyrsta tal-
málsrásin, eingöngu byggð á fréttum, spjalli og sporti, fór í loftið. Ut-
varp Saga 94,3, er því stöðugt með puttann á púlsi þjóðarsálarinnar.
HALLCRÍMUR THORSTEINSSON
Að störfum, en hann er með þætti á milli kl.14 og 16, alla virka daga.
útvarp „Ég hef talað fyrir þessu
innan veggja þessa fyrirtækis í
mörg ár,“ segir Hallgrímur
Thorsteinsson, einn af þrem
framlínumönnum Útvarps Sögu.
„Reynslan er fyrir hendi annars
staðar. Svona frétta- og talmáls-
stöðvar þar sem tónlist er víðs
fjarri eru alla jafna í efstu sæt-
um í hlustendakönnunum er-
lendis. Ef hugmyndin er fram-
kvæmd vel, þá ætti hún að gera
sig.“
Fyrir utan bakgrunnstónlist
og kynningarstef er ekki leikin
mínúta af tónlist. Ekki nema í
þeim undantekningum sem ver-
ið er að fjalla um hana sérstak-
lega. Stöðin er í loftinu allan sól-
arhringinn, en á næturnar er
efni dagsins endurflutt.
Hinir tveir framlínumennirn-
ir eru Hrafn Jónsson, sem fylgir
eftir fréttum á Hrafnaþingi í há-
deginu alla virka daga, og Sig-
urður G. Tómasson, sem er í
loftinu alla virka daga á milli kl.
9 og 11. Ingvi Hrafn er reyndar
ekki mættur til leiks enn, þar
sem hann er að hlaða batteríin
og liðka málbeinið í Flórída.
„Við erum allir að sinna þjóð-
málaumræðunni. Við tölum sam-
an á hverjum degi, erum í stöð-
ugu sambandi í gegnum tölvu-
póst og síma. Þannig verður
samfella í allri umfjöllun og
menn því ekki að endurtaka sig.“
Yfir daginn fara um fimm
klukkustundir í sportið, klukku-
stund í sérfræðiþætti og aðrar
fimm í þjóðfélagsumræðuna.
„Fimm tíma þjóðmálaum-
ræða á hverjum degi er náttúru-
lega feykilega mikil yfirferð.
Það er kosturinn við þetta. Við
höfum auka tíma þar sem tón-
listin tekur ekkert pláss. Þar á
móti kemur líka að við blöndum
hlustendum inn í umræðuna.
Þannig að þegar upp er staðið þá
finnst mér ég persónulega ekk-
ert fá neitt meiri tíma til þess að
fjalla um einstök mál en ég hafði
á tónlistarstöðvunum. En þetta
er sterkur miðill, vegna þess að
plássið er mikið.“
Hallgrímur segir að hlustend-
um sé boðið að leggja orð í belg
við hvert málefni og að oft komi
það verulega á óvart hvað fólk í
þjóðfélaginu hafi til málanna að
leggja.
„Við tökum þannig upp hluti
sem fara fram hjá öðrum miðl-
um. Vegna þess að við erum í svo
nánu sambandi. Það er mín
reynsla á svona framtaki að allt í
einu dúkkar upp mál sem verður
stórt og mikið með þjóðinni. Mál
sem hefur kannski blundað í
fermingarveislum og svoleiðis.
Þetta eru kannski mál sem hafa
ekki verið í fjölmiðlum. Umfjöll-
unarefnin taka því mið af þessu
eðli stöðvarinnar. Þannig erum
við að spegla, en vissulega erum
við líka að vekja athygli á ein-
staka málum út frá eigin brjósti.
Mál sem okkur þykir ástæða til
þess að fjalla um, nákvæmlega
eins og aðrir miðlar," segir Hall-
grímur að lokum.
biggi@frettabladid.is
Anna Kournikova:
Styrktaraðilinn
óánægður
SVID5UÓS Rússneska tennisstjarn-
an Anna Kournikova, sem líkleg-
ast er þekkt fyrir flest annað en
hæfni sína á vellinum, hefur feng-
ið afar leiðinlega tilkynningu frá
styrktaraðila sínum Adidas. Þeir
eru greinilega orðnir leiðir á því
hversu erfitt stúlkan á með það að
vinna leiki sína. í tilkynningunni
sögðu þeir henni að ef henni færi
ekki að ganga betur á vellinum,
myndu þeir minnka peningaflæð-
ið til hennar. Anna hefur hingað til
verið ein tekjuhæsta tenniskona
heims, þrátt fyrir að hafa aldrei
sigrað á móti á ferli sínum. Hún
hefur tekið þátt á um 100 mótum
hingað til.
Kournikova hefur hæst farið í
8. sæti styrkleikalistans en er nú
fallin í 66. sætið. Anna virðist hafa
meiri áhuga þessa dagana á
kærasta sínum, Enrique Iglesias,
og því að gerast leikkona en að
koma sínum fyrsta gullpeningi í
verðlaunskápinn. ■