Fréttablaðið - 04.04.2002, Qupperneq 16
16
FRÉTTABLAÐIÐ
4. apríl 2002 FIMMTUDAGUR
Höfum breytt, bætt og aukið vöruúrvalið
Við erum 2ja ára
afsláttur 4.-6. apríl
Allir sem versla fyrir 15.000 krónur eða
meira fá veiðiteyfi á Vatnasvæði Lýsu!
S: 588-6500 • www.tax-a.is
ATVINNUHUSNÆÐI
TIL SÖLU EÐA LEIGU
Kaplahraun, 225 fm 14,3 m.
Suðurhraun, 200 fm.
Akralind 2 300 fm.
Miðhraun 15,5 m. góð eign
fyrir fjárfesta
Hvaleyrarbraut, 140 fm 12 m.
Fullbúin kælum og búnaði f.
matvælavinnslu.
Lækjamelur, 1.560 fm. 60 m.
Gnoðarvogur, 62 fm. 6 m.
Glæsileg skrifstofa c. 60 fm +
sam. Til sölu eða leigu. Efsta
(9.) hæð í Stóra Turni, Kringl-
unni. Útsýni yfir alla R.vík.
V.14 m.
Flatahraun 90 fm. V 7,9 m.
Austurstræti, 500 fm. 180 m.
Skipholt, 200 fm. Leiga.
Lyngháls, 2.100 fm. Leiga.
Brautarholt, 560 fm. Leiga
Fyrirtæki. Mikið úrval á skrá.
Gistiheimili
Sólbaðsstofur
Bifreiðav. Bílapartasala.
íbúðahótel
Matsölustaðir.
Framköllunarþjónusta
Verslanir.
Heildsölur.
Bifreiðaverkstæði
Kaffi- og veitingahús
Skemtistaðir.
Blómaverslun.
Salurinn í Kópavogi:
Flytur verk
ólíkra tímabila
tónlist Unnur Fadila Vilhelms-
dóttir heldur píanótónleikar í
Salnum í kvöld kl. 20.00 Þar flyt-
ur hún verk eftir Beethoven,
Chopin og Prokofieff. Verkin á
efnisskránni eru öll mjög ólík,
enda fulltrúar fyrir ólík tímabil
tónlistarsögunnar. Sónatan ópus
31, nr. 3 eftir Beethoven er verk
fullt af gáska og húmor. Ballaða
nr. 4 í f-moll eftir Chopin er róm-
antískt verk, þar sem tvö and-
stæð stef ganga í gegnum miklar
breytingar. Píanósónata nr. 8 eft-
ir Prokofieff er samin á tímum
seinni heimsstyrjaldar og þykir
bera þess vitni.
Unnur Fadila Vilhelmsdóttir
hóf nám í píanóleik sjö ára gömul
í Barnamúsíkskóla Reykjavíkur
og hóf að því loknu nám við Tón-
listarskólann í Reykjavík. Hún
lauk píanókennaraprófi 1990 og
einleikaraprófi ári síðar. Þá hóf
hún framhaldsnám í Bandaríkj-
unum og lauk þaðan doktorsprófi
í píanóleik haustið 1997. Eftir að
hún fluttist heim til íslands frá
Bandaríkjunum hefur hún verið
virk í íslensku tónlistarlífi. Unn-
ur kennir nú við Tónlistarskóla
Kópavogs. ■
UNNUR FADILA VILHELMSDÓTTIR
Unnur hefur hlotið ýmsa námsstyrki, m.a.
frá The American Scandinavian Founda-
tion, University of Cincinnati og Námustyrk
Landsbanka íslands.
Grófarhús:
T • f V f *
JLjoo íynr
Palestínu
uóðalestur Hópur ljóðskálda hefur
tekið sig saman um að lesa ljóð til
stuðnings palestínsku þjóðinni.
Lesturinn fer fram í Grófarhúsi og
hefst klukkan 20. Meðal höfunda
má nefna Ingibjörgu Haraldsdóttur,
Þorstein frá Hamri og Óskar Árna
Óskarsson. ■
X
2002^
Miðstjórnarfundur, sveitar-
stjórnarráðstefna ogstjórn-
málaskóli Framsóknarflokksins
Borgartúni 6, Reykjavík, 5.-7. apríl 2002
Föstudagur 5. apríl
Miðstjórnar-
fundur
17:00
17:15
18:00
18:45
20:00
22:00
Setning
Ræða Halldórs
Asgrímssonar,
formanns Fram-
sóknarflokksins
Sveitarstjórnar-
kosningar 2002
Matarhlé
Almennarumræður
Fundarslit
Laugardagur 6. apríl
Sveitarstjórnar-
ráðstefna
Á róðstefnunniverður
fjallað um kosningastarf
Framsóknarflokksins í
komandi sveitarstjórnar-
kosningum.
10:00 Setning
12:00 Matarhlé
18:30 Róðstefnuslit
Sunnudagur 7. apríl
Stjórnmála-
skóli
Nómskeiðfyrirfram-
bjóðendur flokksins í
sveitarstjórnarkosning-
unum 2002.
09:00 Setning
16:30 Skólaslit
Nánari upplýsingar á skrifstofu Framsóknarflokksins í síma 540 4300.
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Gagnrýna ímynda-
mótun Qölmiðla
Breski listahópurinn Crash fagnar fimm ára afmæli sínu á Islandi
með sýningu í Gallerí Skugga.
myndlist Breski listhópurinn Crash
fagnar um þessar mundir fimm
ára afmæli sínu og efnir af því til-
efni til yfirlitssýningar um starf-
semi sína i Gallerí Skugga í
Reykjavik og opnar hún í kvöld kl.
20. Á sýningunni er að finna graf-
ísk hönnunarverkefni sem Crash
hefur birt m.a. í tímaritum og á
veggspjöldum í því skyni að gagn-
rýna ímyndamótun fjölmiðla með
þeirra eigin aðferðum. Anna Jóa,
umsjónarmaður Gallerís Skugga,
segir ástæðu komu þessara lista-
manna hingað til lands vera að
tímaritið Sleaze Nation ætli að
vera með umfjöllun um Reykjavík
í næsta tölublaði. Tveir meðlimir
Crash, þeir Scott King og Mark
Worley, starfi einmitt hjá tímarit-
inu. King sé listrænn stjórnandi
og Worley sé einn ritstjóra. Þess
má geta að blaðið hlaut nýlega
hönnunarverðlaun breskra tíma-
ritaútgefenda fyrir bestu forsíðu
og besta hönnunarverkefni. Anna
Jóa segir Sleaze Nation vera jað-
artímariti sem gefið sé út í Bret-
landi fyrir ungt fólk og njóti mik-
illa vinsælda. „Það má segja að
þetta sé meiriháttar uppákoma
því það er stór hópur fólks sem
hingað kemur. Má nefna tvo
hljómsveitarmeðlimi Earl Brutus
sem ætla að sjá um tónlistina við
opnuna í kvöld til kl. 22 og á eftir
efnir Crash til afmælisfagnaðar á
vínveitingahúsinu Sirkus."
Crash varð til á krá í King's
Cross í Lundúnum í janúar árið
l’M IftílTH STUPID
EITT VERKA CRASH
Á sýningunni er að finna grafísk hönnunar-
verkefni sem Crash hefur birt m.a. í tíma-
ritum og á veggspjöldum
1997. Markmið hópsins er að
skapa andófsrödd gegn ráðandi
viðmiðum í breskri auglýsinga- og
fjölmiðlamenningu. í verkum sín-
um nýtir hópurinn sér aðferðir og
ímyndir fjölmiðlanna og leitast
þannig við að gagnrýna fjölmiðl-
ana innan frá. Crash hefur m.a.
haldið myndlistarsýningar í ICA,
staðið fyrir námskeiðum og ýms-
um uppákomum, en hefur auk
þess hannað plötuumslög fyrir
Propellerheads og Pet Shop Boys,
og annast hönnun fyrir Malcolm
McLaren.
Scott King sýndi nýlega í Bar-
CHE EÐA CHER
Meðal þátta sem Crash hefur beint gagn-
rýni sinni að er hin svonefnda „gaura-
menning" (New Lad Culture), sem birtist
m.a. í fjölda tímarita sem hafa unga karl-
menn að markhópi sínum.
bican Center í London auk þess
sem hann heldur reglulega fyrir-
lestra um ímyndamótun í fjölmiðl-
um í listaskólum. Matt Worley
skrifar greinar í Modern Reiew og
The Guardian. Hann kennir sögu
við University of Reading og hef-
ur gefið út bók um kommúnista í
Bretlandi. „Þetta eru flottir gaur-
ar,“ segir Ánna Jóa, og „það er
engin spurning að Reykjavík er
mjög heit erlendis og þessi uppá-
koma hér er einn liður í þeim vin-
sældum."
koibrun@frettabladid.is
FIMMTUDAGUR
4. APRÍL
FUNDUR
SAFNAÐARSTARF
12.00 Þekkingarsetur heldur hádegis-
verðarfund á Ský á Crand Hótel í
dag undir yfirskriftinni Islenskur
kfsildalur. Fundarstjóri er Guðfinna
S. Bjarnadóttir, rektor Háskólans í
Reykjavík.
12.00 Dr. Annadís G. Rúdólfsdóttir fé-
lagssálfræðingur verður með rabb
á vegum Rannsóknastofu í
kvennafræðum við Háskóla ís-
lands í Norræna húsinu. Fyrirlest-
urinn ber yfirskriftina "Ungar
mæður".
20.00 Ný dögun stendur fyrir opnu húsi
í safnaðarheimili Háteigskirkju í
kvöld. Allir velkomnir. Ókeypis að-
gangur - frjáls framlög
20.00 Hópur Ijóðskálda hefur tekið sig
saman um að lesa Ijóð til stuðn-
ings palestinsku þjóðinni og fer
lesturinn fram í Grófarhúsi,
Tryggvagötu 15, í kvöld og er öll-
um opinn.
10.30 Á vegum Fella- og Hólakirkju er
helgistund er alla fimmtudögum í
Félagsmiðstöðinni Gerðubergi.
Þar er lögð áhersla á biblíulestur
og rýnt í texta næsta sunnudags.
Kaffiveitingar eru í boði í lok
stundarinnar.
FÉLAGSSTARF
14.00 Einmánaðarfagnaður verður
haldinn á vegum félagsstarfs
eldri borgara i Kópavogi í Gjá-
bakka, Fannborg 8, í dag. Þar
verður upplestur, söngur og leið-
beint í hannyrðum. Vöfflur seldar
á staðnum. Allir velkomnir. Ekkert
þátttökugjald.
10.00 Félag eldri borgara í Hafnarfirði,
Hraunseli, Flatahrauni 3. Pútt
verður í dag í Bæjarútgerð
kl. 10.00 til 11.30. Glerskurður
kl. 13.00 og félagsvist kl. 13.30.
UPPISTAND
KVIKMYNDIR
22.30 Filmundur sýnir í Háskólabíói
myndina "Arne í Ameríku:
Hasarmynd", þar sem fylgst er
með ofurhuganum Arne Aarhus
og félögum hans á ferðalagi í
Bandaríkjunum.
22.15 Radíusbræðurnir Steinn Ármann
og Davíð Þór verða með uppi-
stand á ísafold Sportkaffi í kvöld.
Miðaverð er 1.000 kr. Húsið opn-
ar kl. 20.00.
LEIKHÚS
20.00 Borgarleikhúsið sýnir Fyrst er að
fæðast í kvöld á Nýja sviðinu.
Uppselt
20.00 Stúdentaleikhúsið sýnir nýtt,
íslenskt leikverk, Upprisa
holdsins í Stúdentakjallaranum.
TÓNLEIKAR_____________________________
20.00 Á Fimmtudatgsforleik Hins húss-
ins leika í kvöld hljómsveitirnar
Fake Disorder, Citizen ioe og
Herógiymur. Tónleikarnir eru
haldnir á Loftinu, Pósthússtræti
3-5. og standa til kl. 22.30. Að-
gangur er ókeypis. 16 ára aldurs-
takmark er á og skylda að sýna
skilríki við innganginn.
20.00 Unnur Fadila Vilhelmsdóttir verð-
ur með píanótónleika í Salnum,
Tónlistarhúsi Kópavogs, í kvöld. Á
efnisskrá eru verk eftir Beethoven,
Chopin og Prokofieff.
21.00 Gítarleikarinn Ragnar Emilsson
leikur á djassklúbbnum Múlanum
ásamt hljómsveit sinni í kvöld. Múl-
inn hefur aðsetur i Kaffileikhús-
inu, Hlaðvarpanum, Vesturgötu 3.
Leikin verður frumsamin tónlist eft-
ir Ragnar með áhrifum úr ýmsum
áttum, m.a. úr rokki og ECM-djassi.
Meðleikarar eru Birkir Freyr
Matthíasson trompet, Kristinn
Agnarsson trommur og Þorgrímur
Jónsson kontrabassi.