Fréttablaðið - 04.04.2002, Qupperneq 23
TIL HAMINGJU, ISLENDINGUR,
MEÐ FYRSTU TALMÁLSRÁSINA
Útvarp Saga 94,3 býöur upp á dagskrá sem er eingöngu byggö á fréttum,
spjalli og sporti.
Þekktir stjórnendur stýra gagnrýnni, pólitískri og þjóöfélagslegri umræöu
um allt þaö sem efst er á baugi hverju sinni, auk umfjöllunar um íþróttir
og fjölda beinna útsendinga frá íþróttaviöburöum.
■ Sigurður G. Tómasson
er með hlustendum Útvarps Sögu 94,3 alla virka daga milli kl. 9 og 11.
Sigurður og þjóöarsálin áttu um árabil samleið í íslensku útvarpi og því er kærkomið að þjóðin
láti í sér heyra hjá Sigurði að nýju. Sigurður stjórnar umræðum um þjóðmálin og kallartil sín fólk
sem hefur eitthvað til málanna að leggja og gefur hlustendum kost á að taka virkan þátt í
umræðunni.
■ Ingvi Hrafn Jónsson
fylgir eftir fréttum á Hrafnaþingi í hádeginu alla virka daga.
Ingva Hrafn þarf vart að kynna. Hann var á sjónvarpsskjám þjóðarinnar á uppgangstímum þess
miðils og stjórnaði helstu fréttastofum landsins, og fáir komast með tærnar þar sem hann hefur
hælana þegar kemur aö fréttum og fréttaskýringum. Ingvi Hrafn mun á Hrafnaþingi fjalla um
helstu mál til kl. 13 virka daga í kjölfar frétta frá fréttastofu Stöðvar 2 kl. 12.
Ingvi Hrafn verður í loftinu frá og með 15. apríl en þangað til stjórna fréttamennirnir Róbert
Marshall og Árni Snævarr Hrafnaþingi.
■ Hallgrímur Thorsteinsson
er á dagskrá Útvarps Sögu 94,3 alla virka daga milli kl. 14 og 16.
Hallgrimur er einn af frumkvöðlum á íslandi í því sem kallast dægurmálaútvarp og hefur verið
lengi að. Hann skoðar málin frá öllum hliðum og fjallar um þau með sínum sérstaka hætti svo
eftir verður tekið.
Alla daga eru fluttar fréttir frá fréttastofu Stöövar 2.
Daglegur Viðskiptaþáttur á dagskrá Útvarps Sögu 94,3 kl. 16-17. Stjórnandinn, Hermann
Guðmundsson, fjallar um allar hliðar viöskiptalífsins á faglegu máli.
Þór Bæring Ólafsson flytur hlustendum Útvarps Sögu 94,3 ítarlegan íþróttapakka alla virka daga
milli 17 og 18.30.
Einnig verða ýmsir sérþættir um íþróttir, t.d. box, veiði, Formúlu 1, golf og hesta.
Sportið verður á dagskrá alla laugardaga kl. 13-18.30.
Alla virka daga eru sérþættir sem taka á ýmsum málum, hver með sínum hætti. Neytendamál,
málefni húseigenda, sjávarútvegsmál, stjórnmál og margt fleira sem er í brennidepli.
FRÉTTIR, SPJALL OG SPORT