Fréttablaðið - 19.04.2002, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 19.04.2002, Blaðsíða 1
Jarðgerðartankur FRÉTTABLAÐIÐ heill mannvinur bls 22 Minna sorp! FUUTNIN6ATÆKNI Súöarvogi 2, Reykjavík Simi 535 2535 NETIÐ Varar við ályktunum bls 4 Kistan opnar á vísir.is bls 4 75. tölublað - 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Föstudagurinn 19. apríl 2002 FÖSTUÐAGUR Geta ekki gert grein fyrir 70 milljónum Ríkisendurskoðun gerir alvarlegar athugasemdir við rekstur Sólheima í Grímsnesi. Formaðurinn segir alrangt að skýringar vanti. FJflRMÁL Ýmsar brotalamir hafa verið á fjármálastjórn Sólheima í Grímsnesi samkvæmt drögum að skýrslu Ríkisendurskoðunar um reksturinn. Stjórnin getur ekki gert grein fyrir um 60 til 70 millj- ónum króna sem stofnunin fékk frá ríkinu síðustu tvö ár og voru ætlaðir til þjón- ustu við fatlaða. Margrét Frímannsdóttir, þingmað- ur sem situr í fulltrúaráði „Peningum fyrir fatlaða eytt í delluverkefni" —«— Sólheima, sagði það grafalvarlegt ef fjármunir frá ríkinu hefðu far- ið í annað en þjónustu við fatlaða. Pétur Sveinbjarnarson, for- maður framkvæmdastjórnar Sól- heima, sagði alrangt að stjórnin gæti ekki gert grein fyrir fjár- raunum frá ríkinu. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um innihald draganna. Stjórnendur Sólheima fengu drögin í hendurnar í síðustu viku og hafa óskað eftir frest til að fá að skila athugasemdum. Rík- isendurskoðun mun í dag ákveða hversu langan frest þeir fá. Aðalfundur fulltrúaráðs Sólheima er um aðra helgi og sagði Margrét mikil- vægt að skýrslan yrði til- búin fyrir hann. „Það er fráleitt annað en að skýrslan liggi fyrir fundinum,“ sagði Margrét. „Menn hljóta að vilja ræða niðurstöðurnar á hon- um.“ Pétur sagðist efast um að stjórnin yrði búin að skila inn at- hugasemdum fyrir aðalfundinn. Björn Hermannsson, fyrrver- andi framkvæmdastjóri Sólheima, sagði að það kæmi sér ekki á óvart að Ríkisendurskoðun gerði alvar- legar athugasemdir við rekstur Sólheima. Hann hefði sjálfur ver- ið rekinn eftir nokkurra mánaða starf einmitt vegna þess að hann hefði bent stjórnendum Sólheima á ýmsa vankanta í bókhaldinu. Fjármunir ætlaðir fötluðum hefðu verið nýttir í uppbyggingu í ferða- þjónustu, gistiheimilis og vist- menningarhúsi. „Það hefur verið sparað og sparað á fatlaða fólkinu,“ sagði Björn. „Peningum sem ætlaðir voru fötluðum hefur síðan verið eytt í einhver delluverkefni." trausti@frettabladid.is VETTVANGURINN MINNTI OÞÆGILEGA A 11. SEPTEMBER HEILSUGÆSLA Læknar á landsbyggðinni hífa meðaltalið upp segja borgarlæknar. Launahæsti heilsugæslu- læknirinn árið 2000: 1.150 þúsund á mánuði kjaramál Meðallaun 173 heilsu- gæslulækna árið 2000 voru 7,3 milljónir króna samkvæmt skýrslu Ríkisendurskoðunar. Þetta jafn- gildir tæplega 610.000 krónum á mánuði. Sá launahæsti var með 1.150.000 á mánuði. Á listanum yfir 200 launahæstu læknana voru 35 úr heilsugæslugeiranum. Háls-, nef- og eyrnalæknar höfðu það best, fengu að meðaltali 14,3 milljónir. Sá launahæsti úr þeirra hópi var með tæpar 30 milljónir. Almennt hækkuðu laun lækna um 25% umfram neyslu- verðsvísitölu frá 1993 til 2000. Jón Steinar Jónsson, heilsu- gæslulæknir í Garðabæ og stjórn- armaður í Félagi íslenskra heimil- islækna, segir launin hafa fylgt al- mennri þróun í þjóðfélaginu frá ár- inu 2000. Afnám sérgreiðslna fyrir vottorð sé það eina sem breyst hafi til hins verra. Hann segir að líta verði til þess að laun innan heilsu- gæslustéttarinnar séu mjög mis- munandi. Læknar á landsbyggð- inni hífi meðaltalið upp. Helsta krafa heilsugæslulækna er að þeir fái frelsi til að reka sínar eigin stofur. Jón sagði ólíklegt að læknar sætti sig við annað en að ráðherra gangi að kröfum þeirra. ■ ÍÞRÓTTIR Allir spila á morgun SÍÐA 10 Gert út frá Brussel funpur Stjórnmálafræðiskor HÍ efnir til hádegisfundar í Árnagarði, stofu 201, í tiiefni útkomu bókar sem f jallar um íslenskan sjávarút- veg og Evrópusambandið. Á fund- inum mun Úlfar Hauksson, höfund- ur bókarinnar, kynna helstu niður- stöður rannsóknarinnar og dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor við skorina, mun and- mæla. Hörður Torfa og Laxness tónleikar Hörður Torfa heldur út- gáfutónleika í kvöld í íslensku óp- erunni í tilefni af nýja diskinum hans, Söngvaskáldi. Á þessum diski leikur hann eigin lög við ljóð Hall- dórs Laxness en diskurinn er gef- inn út í tilefni af aldarafmæli skáldsins. VEÐRIÐ í DAG REYKJAVÍK Austan 8-13 m/s og rigning með köflum. Híti 5-10 stig. VINDUR ÚRKOMA HITI ísafjörður O 5-8 Skúrir Qu> Akureyri O 8-13 Skýjað Qio Egilsstaðir O 3-11 Súld Q7 Vestmannaeyjar O 8-13 Skúrir 08 Önnur umferð úrslitakeppni hanpbolti Átta liða úrslitakeppni í handknattleik karla heldur áfram í kvöld. FH og Haukar eigast við í Kaplakrika, Þór og Valur í Höllinni á Akureyri, ÍR og Afturelding í Austurbergi og KA og Grótta KR í KA-heimilinu. Markaðssetning þjóðríkis fyrirlestur John A. Quelch, pró- fessor við Harvard-háskóla, flytur erindi um mikilvægi markaðssetn- ingar þjóðríkis nú á tímum þegar mörg fyrirtæki eru alþjóðaleg en ekki bundin tilteknu þjóðriki. Fyr- irlesturinn verður í stofu 101, Lög- bergi, og hefst kl. 12.00. IKVÖLPIÐ í KVÖLDj Tónlist 16 Bíó 14 Leikhús 16 íþróttir 10 IVIyndlist 16 Sjónvarp 20 Skemmtanir 16 Útvarp 20 „Það var rykmökkur yfir öllu og pappírar flugu um allt. Fólk var skelfingu lostið og hélt að um hryðjuverk væri að ræða," segir Ásgeir Ingason sem staddur var í grennd Pirelli-byggingarinnar. Skelfing greip um sig þegar flugvél flaug á háhýsí í Mílanó: ST0RSYNINGIN NOKKRAR STAÐREYNDIR UM FRÉTTABLAÐIÐ Hvaða blöð lesa 25 til 39 ára íbúar á höfuð- borgarsvæð- inu á föstu- dögum? Meðallestur 25 til 39 ára á föstudögum samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup frá mars 2002 66,3% 58,4% «o «0 RJ <u J3 .D ro c 1 •0» O £ 2 70.000 eintök 70% fólks les blaðið MEÐALLESTUR FOLKS A ALDRINUM 25 TIL 80 ARA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,7% SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP I MARS 2002. Ottuðust að um hryðju- verk væri að ræða FLUG5LYS „Hér nötraði allt og skalf. Við héldum öll að sprengja hefði sprungið og að hryðjuverk hefði átt sér stað,“ segir Ásgeir Inga- son, grafískur hönnuður, sem vinnur á skrifstofu í grennd við Pirelli-háhýsið í Mílanó sem flug- vél flaug á í gær. Að minnsta kosti sex létust og 60 særðust þegar lít- il flugvél af Piper-gerð flaug á bygginguna, sem er eitt tákna Mílanó, laust fyrir sex í gær. Stjórnsýsla Lombardi-héraðs hef- ur aðsetur þar. Flestir voru farnir úr vinnu þegar atvikið átti sér stað. Marcello Pera, þingforseti öldungadeildar ítalska þingsins, lýsti því strax yfir að „líklega" væri um hryðjuverk að ræða. Sú fullyrðing var strax dregin til baka og er talið nær öruggt að um slys hafi verið að ræða. Flugmað- urinn, sem var 75 ára gamall Svisslendingur, sendi frá sér neyðarkall og sagðist eiga í erfið- leikum með lendingarbúnað. Sjón- arvottar sögðu vélina hafa verið í ljósum logum þegar hún skall á byggingunni. Ásgeir segir að fólk í byggingum í grennd við háhýsið hafi allt hlaupið út á götu. „Síðan fylltist allt af lögreglum og sjúkrabílum." Hverfið var rýmt af lögreglunni og skapaðist að sögn Ásgeirs mikið umferðaöng- þveiti í Mílanó. ■ Matur 2002 19.-21. apríl Opnuð í dag

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.