Fréttablaðið - 19.04.2002, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 19.04.2002, Blaðsíða 22
FRÉTTABLAÐIÐ SAGA DAGSINS 19. APRÍL Arið 1943 gerðu gyðingar í Var- sjá uppreisn gegn þýska her- námsliðinu. Uppreisnin hófst með því að skotið var á þýska hermenn sem ætluðu að tæma gyðinga- hverfið í Varsjá. Hauganessfundur, mannskæð- asta orrusta á íslandi, var háð árið 1246 í Blönduhlíð í Skagafirði. Þar áttust við Brandur Kolbeins- son og Þórður kakali og féllu um 100 manns. A' rið 1917 var Leikfélag Akur- eyrar stofnað sem áhugaleikfé- lag en það hefur rekið atvinnuleik- hús síðan 1973. A' rið 1954 klæddust fermingarbörn hvít- um kirtli í fyrsta sinn og var það á Akureyri. Er þetta talið upphaf þeirrar hefðar. 22 19. apríl 2002 FÖSTUDACUR Þurrkari í tilefni dagsins að liggur nú ekkert sérstakt fyrir hjá mér í dag. Það má kannski segja að ég haldi upp á daginn með að kaupa mér þurrk- ara. Það er stórt skref fyrir svona „kolaeldavélarmanneskju" eins og mig,“ segir Elísabet Brekkan. Það má ef til vill segja um Elísa- betu að hún sé „kolaeldavélar- manneskja" á fleiri sviðum, en hún er ein örfárra samtímamanna sem ekki notar GSM síma. „Mér finnst eins og fólk sé kannski svo ofboðslega stressað, það heldur að það sé að missa af einhverju. Ég hef reyndar tvisvar eignast svona síma en báðir voru þeir horfnir innan viku því börnin mín langaði að nota þá. Þetta skiptir mig hins vegar engu máli.“ Elísabet, sem lærði leikhús- fræði og leiklistarkennslu í Sví- þjóð, hefur stýrt þremur leikhóp- um með börnum í vetur, tveimur í Námsflokkum Reykjavíkur og einum blönduðum íslenskum og erlendum börnum. Hún segist merkja miklar breytingar í starfi sínu á nokkrum árum, samfara aukinni farsímanotkun. „Það er varla hægt að byrja að gera nokkurn skapaðan hlut þá hringir síminn hjá þeim. Mér virðist eins og símarnir séu einhvers konar skjöldur þeirra sem eru haldnir svokallaðri „torgfóbíu", finnst erfitt að standa einir einhvers staðar úti á víðavangi og vera ekk- Persónan Elísabet Brekkan fagnar 47 ára afmæli sinu í dag og tekur stórt skref i átt til tæknivæðingar. ert að gera. Svo finnst mér óþol- andi þessi farsímanotkun í bílum, það er oftast ekki svo mikið í húfi.“ Elísabet og maður hennar Þorvaldur Friðriksson á frétta- stofu útvarpsins, eiga þrjú börn á aldrinum 18 til 24 ára. bryndis@frettabladid.is ELÍSABET BREKKAN Elísabet hefur auk leiklistar- kennslu og stjórnunar útvarps- þátta kennt sænskar bókmennt- ir í Háskóla íslands. TÍMAMÓT FÓLK í FRÉTTUM Margir mæla hart gegn ríkisá- byrgð á láni deCODE þessa dagana. Sá sem hefur ekki sparað stóru orðin er Pétur Blöndal, al- þingismaður Sjálfstæðis- flokksins. Á Vefþjóðviljan- um er minnt á að þó þessi þingmaður bendi á hver út- gjöldin gætu oröið ef allt fer á versta veg þá hafi hann ekki alltaf staðið svo fast gegn útgjaldaþenslunni. Til dæmis studdi hann lög um fæð- ingarorlof mcð bros á vor sem fela í sér margra milljarða króna útgjaldaaukningu á hverju ári um öll ókoniin ár! Frelsismaðurinn greiddi líka atkvæði gegn lög- leyfingu ólympískra hnefaleika þó sá gjörningur kosti skattgreið- endur ekki neitt. JARÐARFARIR_____________________________ 10.30 Pétur Auðunsson, Hrauntungu 6, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju. 13.30 Baldvin S. Ottósson, aðalvarð- stjóri, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju. 13.30 Óli Halldórsson, Hátúni 10, verð- ur jarðsunginn frá Fríkirkjunni. 13.30 Júlíanna Símonardóttir frá Siglu- firði, Álfaskeiði 55, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni I Hafnarfirði. 13.30 Jóhanna Arndis Stefánsdóttir, Hringbraut 89, Keflavík, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju. 13.30 Vígnir H. Benediktsson, múrara- meistarí, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju. 14.00 Einar Ottó Jónsson, dvalarheimil- inu Höfða, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju. 14.00 Halldór Pólsson, Faxabraut 75, Keflavík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju. 15.00 Guðmundur Einar M. Sölvason, vélstjóri, Skólabraut 3, Seltjarnar- nesi, verður jarðsunginn frá Sel- tjarnarneskirkju. 15.00 Magnús Aldan Magnússon, Hrafnistu í Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðar- kirkju. BARNSFÆÐING________________________ Hjálmar, Þór og Elías eignuðust litla systur, 8. apríl. Stúlkan var 3.720 g og 51,5 cm. Foreldrar þeirra eru Sigurbjörg Þorláksdóttir og Guðmundur Hjálm- arsson. AFMÆLI_____________________________ Elisabet Brekkan er 47 ára í dag. ANPLÁT_____________________________ Guðmundur Ágústsson, frá Hróarsholti í Flóa, lést 14. apríl. Útförin hefur farið fram. Ragnar Þórðarson, stórkaupmaður og lögfræðingur, lést 17. apríl. Halldóra Sigfúsdóttir, frá Hofströnd, lést 16. apríl. Sigurður Halldórsson, Dvergholti 8, Mosfellsbæ, lést 16. apríl. Margrét Pétursdóttir, Lindarsíðu 4 Akureyri, lést 15. apríl. Arnór Valdimar Jónsson, lést 14. apríl. WYTT kredit- KORTA-j TIMABIL ROSOR IKEA er opfa Virka daga kl. 10-18.30 Laugardaga kl. 10-17 Sunnudaga kl. 12-17 JÓN MÚLI ÁRNASON Jón Múli vann lungann af starfsævi sinni hjá Ríkisútvarpinu. Ófáa morgna bauð hann landsmönnum góðan dag á sinn sérstæða og vinalega hátt. djalfstæður og heill mannvinur Jón Múli Árnason verður kvaddur í Salnum í Kópavogi á morgun. Það er táknrænt fyrir mann sem var sjálfum sér samkvæmur og stóð fast á sínu fram til hins síðasta. Jón Múli Árnason, tónskáld og útvarpsmaður, lést þann 1. apríl og verður kvaddur í Saln- um í Kópavogi á morgun, laugar- dag. Jón Múla þarf vart að kynna svo hugstæður er hann fólkinu í landinu. Frá 1946 starfaði hann hjá Ríkisútvarpinu og þýð rödd hans hljómaði hverju manns- barni daglega allt til ársins 1985. Jón Múli var ekki síður þekktur fyrir tónlistina sem var honum sannkölluð ástríða. Jazz var hans tónlist og þeir eru ófáir sem kynntust jazzinum og lærðu að meta hann fyrir tilstilli Jóns Múla. Deleríum búbónis og Járn- hausinn samdi hann með bróður sínum Jónasi auk fjölda annarra söngva og laga. „Jón Múli kom inn í líf mitt þegar ég var þrettán ára gamall og hafði mikil áhrif á mig,“ segir Pétur Gunnarsson blaðamaður, stjúpsonur hans. „Ilann kom fram við alla eins og jafningja, ekki síst börn. Mig gerði hann að jazzista á viku og fyrir áhrif frá j honum var ég stalínisti framund- I ir tvítugt. Jón Múli var mikiil mannvinur, sjálfstæður og heill. j Kátina og gieöi cinkenndi fas hans og húmor hans var skemmtilegur. Aldrei lagði hann illt orð til nokkurrar mann- eskju.“ Pétur minnist hans sem mikils meinlætamanns sem átti ekki í vanda með að láta á móti sér ef því var að skipta. „Hann var sjúklingur mörg síðari ár og lengdi vafalaust líf sitt með að borða hvoi’ki kjöt né fisk og forð- ast það sem honum var ekki hollt. Égér afar stoltur af honum og þakklátur fyrir að hafa fengið að alast; upp og mótast undir hans hafidleiðslu." Jón Múli Árnason var fæddur í Múla í Vopnafirði í mars 1921. Hann nam við Menntaskólann í Reykjavík og stundaði nám í for- spjallavísindum og lauk prófi í efnafræði frá Háskóla íslands. Jón stundaði einnig nám í hljóm- fræði og trompetleik í Tónlistar- skóla Reykjavíkur og söngnám hjá Pétri Jónssyni ópersöngvara. Jón var þríkvæntur en eftilif- andi eiginkona hans er ' Ragn- heiður Ásta Pétursdóttir. Jón Múli á fjórar uppkpmnar dætur og þrjú stjúpbörn. Kveðjuathöfnin í Salnum hefst kl. 17.30. c

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.