Fréttablaðið - 19.04.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTABLAÐIÐ
KIÖRKASSINN
Fylgjendur lögleiðingar
vændis hér á landi eru
I nokkrum minnihluta.
Gildandi lög meina
fólki enda ekki að selja
blíðu sína, heldur ein-
ungis að þriðji aðili
hafi hag af vændinu.
Á að lögleiða vændi hér
á landi?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
43%
57%
Spurning dagsins í dag:
Hefur þú samúð með heilsugæslulækn-
um i launadeilu þeirra?
Farðu inn á vísi.is og segðu I
þina skoðun —
____________
VAXTABYRÐIN VAR PUNG
„Það er auðvelt að slá um sig með stórum
tölumsagði Margeir Pétursson á aðal-
fundi Lyfjaverslunarinnar I gær.
Lyfjaverslun Islands:
Átöká
aðalfundi
aðalfundur „Hluthafar töpuðu á
fjórum mánuðum 1.700 milljónum
króna á þeirri ákvörðun meirihluta
stjórnar að selja hlutabréf okkar í
Delta hf.,“ sagði Grímur Sæmund-
sen, stjórnarmaður £ Lyfjaverslun
íslands, á aðalfundi félagsins í gær.
Hann sagði þessa ákvörðun í besta
falli aulaskap en í versta falli víta-
vert kæruleysi.
Grímur tók til máls eftir að
skýrsla stjórnar var flutt og sagði
síðastliðið starfsár ár mikilla hörm-
unga. Smærri hluthafar hafi verið
hlunnfarnir og valdataka meiri-
hluta stjórnar á hluthafafundi síð-
asta sumars hafi unnið félaginu
mikið ógagn.
Margeir Pétursson, stjórnarfor-
maður, sagði að vaxtakostnaður fé-
lagsins hafi verið mikill og eigin-
fjárstaðan slæm. Ekki hefði verið
hægt að fara í hlutafjárútboð vegna
markaðsaðstæðna og málaferla.
Því hefði legið beint við að nýta
hagnað bréfa Delta til að bæta
skuldastöðuna þar sem kaupendur
voru til staðar fyrir svo stórum
—4----
Verðbólguvísitala EES:
Ársverð-
bólgan mest
hérlendis
efnahacsmál Verðbólga var
hvergi meiri á Evrópska efna-
hagssvæðinu á tímabilinu mars
2001 til mars 2002 en hér á landi.
Verðbólga á tímabilinu mældist
9,lprósent á íslandi. Þar á eftir
kom írland með 5,1 prósent verð-
bólgu. Minnst var verðbólgan í
Noregi 0,4 prósent og í Bretlandi
1,5 prósent, að því er segir £ til-
kynningu Hagstofu íslands.
Þrátt fyrir þetta var verðbólga
£ mars sl. undir meðaltali á EES-
svæðinu. Samræmd visitala
neysluverðs i EES-ríkjum hækk-
aði um 0,5 prósent frá febrúar til
mars, meðan vfsitalan fyrir ísland
hækkaði bara um 0,4 prósent á
sama tima. ■
l»-ÖGREGLUFRÉTTIR|
'T'æplega fimmtugur karlmaður
x hefur í Hæstarétti verið
dæmdur til að greiða 4,7 milljóna
króna sekt í ríkissjóð fyrir að hafa
ekki staðið skil á 2,7 milljóna
króna virðisaukaskatti á árunum
1994 til 1999. Greiði hann ekki
sektina innan fjögurra vikna bíður
hans þriggja mánaða fangelsi.
2
19. apríl 2002 FÖSTUPAGUR
Flóttamannabúðirnar í Jenín:
Hj álparstarfsfólk
er þrumu lostið
NÁLYKTIN ER STERK
ísraelskur hermaður bar klút fyrir vit sér í flóttamannabúðunum í Jenín. Palestínumenn og
hjálparstarfsfólk hefur gengið á lyktina til að finna lík hinna látnu undir rústunum.
ienín. ap Terje Röd-Larsen, sendi-
fulltrúi Sameinuðu þjóðanna í
Mið-Austurlöndum, sagði ástand-
ið í flóttamannabúðunum í Jenín
„hryllilegra en orð fá lýst“. Hann
krafðist þess að alþjóðleg mann-
úðarsamtök fengju óheftan að-
gang að búðunum.
„Ég held ég geti talað fyrir
munn allra í sendinefnd Samein-
uðu þjóðanna, að við erum þrumu
lostin," sagði hann meðan hann
gekk innan um rústir húsanna þar
í gær. „Bara að sjá þetta svæði,
það lítur út eins hér hafi orðið
jarðskjálfti. Og nályktin leggur af
mörgum stöðum hér, þar sem við
stöndum."
Um það bil 14.000 manns búa í
flóttamannabúðunum í Jenín.
ísraelski herinn hefur bannað
fólkinu að fara út úr húsi sólar-
hringum saman.
Röd-Larsen segir það ótrúlegt
að „hernámsveldi skuli halda uppi
útgöngubanni og halda hluta al-
mennra borgara í þjáningum dag
eftir dag. Þessu verður að linna,“
sagði hann.
í flóttamannabúðunum í Jenín
urðu bardagarnir harðastir í hern-
aði ísraels á hendur Palestínu-
mönnum. ísraelsher hélt þaðan í
gær. ■
UNNIÐ VIÐ LÖNDUN
Margt bendir til þess að þorskur og ýsa séu að koma sterk til baka eftir niðursveiflu.
Þorskstofninn
er á uppleið
Botninum náð í niðursveiflu þorsksins. Horfir til betri vegar. Háð því
að veiðum sé stillt í hóf samhliða sæmilegri nýliðun. Tillögur um
heildarveiði í maí - júní.
hafró Jóhann Sigurjónsson, for-
stjóri Hafrannsóknarstofnunar,
segir að margt bendir til þess að
botninum sé náð í
þeirri niðursveiflu
Þá eru vís- þorsks sem verið
bendingar um hefur á undanförn-
að ýsustofn- um árum miðað
inn sé að taka við bráðabirgða-
við sér. niðurstöðu í nýaf-
—♦— stöðnu togararalli.
Þá bendir heildar-
vísitalan til þess að stofninn sé á
uppleið. Þótt 2001-árgangur af
þorski sé mjög lélegur eru fjórir
árgangar þar á undan í meðal-
lagi. Það sé mjög mikilvægt fyrir
veiðistofninn. Hann minnir á að á
áratug þar á undan komu lélegir
þorskárgangar í röðum. Á hinn
bóginn hafa menn áhyggjur af
aldurssamsetningu þorskstofns-
ins þar sem lítið virðist vera til af
eldri fiski. Hann telur því að
ástand þorskstofnsins horfi al-
mennt til betri vegar ef tekst að
stilla veiðunum í hóf samhliða
því að nýliðun verði áfram sæmi-
leg.
Forstjóri Hafró segir að það
séu einnig vísbendingar um að
ýsustofninn sé að taka við sér.
Þótt það sé ekki enn komið í veið-
anlegt horf bendir margt til þess
að hún komi sterkt út í togararall-
inu. Hann segir að það sé hins
vegar of snemmt að segja til um
niðurstöður þessara rannsókna á
veiðistofn þorsks og hugsanlega
ráðgjöf um leyfilega heildarveiði
á honum á næsta fiskveiðiári. í
því sambandi bendir hann á að úr-
vinnsla gagna úr torgararallinu sé
ekki lokið auk þess sem menn séu
í miðju netaralli. Hins vegar sé
gert ráð fyrir því að endanlegar
tillögur Hafró til sjávarútvegs-
ráðherra muni liggja fyrir um
mánaðamótin maí - júní, eða eftir
einn og hálfan mánuð. Á þessari
stundu sé því ekkert hægt að
segja til um það hvort þorskkvót-
inn verði aukinn eða ekki frá þvi
sem er á yfirstandandi fiskveiði-
ári. í ár er leyfilegt að veiða alls
um 190 þúsund tonn af þorski.
grh@frettabladid.is
20 milljarða eignarhlutur
Arður Baugs af Arcadia 300 milljónir
UPPGJÖR Breska verslunarfyrir-
tækið Arcadia, þar sem Baugur er
stærsti einstaki hluthafinn með 20
prósenta eignarhlut, sýndi 8 millj-
arða króna hagnað í hálfs árs upp-
gjöri sem birt var í gær. Hagnað-
ur fyrir skatta og óregluleg gjöld
hækkaði um 59,5 prósent milli
ára. Hagnaður hlutabréfa hefur
tvöfaldast á tímabilinu.
Baugur fær 300 milljónir í arð
á þessu ári. „Vaxtagreiðslur
Baugs vegna lána sem voru tekin
vegna kaupa félagsins i Arcadia
eru svipaðar þeirri fjárhæð sem
félagið fær í arð nú,“ sagði Jón
Ásgeir Jóhannesson, forstjóri
Baugs. Hann segir ánægjulegt að
skuldir hafi lækkað um nær 25
milljarða króna og góður hagnað-
ur nú staðfesti þá trú sem Baugur
BAUGUR Á MEIRIHLUTA f BRESKU VERSLUNARFYRIRTÆKI
Baugur lagði I ítarlega vinnu við áreiðanleikakönnun I byrjun árs á Arcadia. „Sú vinna hef-
ur ekki dregið úr trú okkar á fyrirtækinu og mun Baugur halda áfram að leita leiða til að
hámarka arðsemi á eignarhlut slnum," sagði Jón Ásgeir, forstjóri Baugs.
hefur haft á fyrirtækinu.
„Markaðsverð Arcadia-bréfa
hefur stigið hratt síðustu vikurn-
ar og er eignarhlutur Baugs nú
um 20 milljarða króna virði. Virði
hlutarins hefur aukist um tæpa 3
milljarða í apríl,“ sagði Jón Ás-
geir. ■
Þingmenn um
Greiningarstöðina:
Fjársvelti
ómannúðlegt
alþingi „Það er með ólíkindum
hvað það vefst fyrir ráðherrum og
ríkisstjórn að leysa þetta mál,“
sagði Jóhanna Sigurðardóttir,
þingmaður Sam-
fylkingar, við ut-
andagskrárum-
ræðu um vanda
Greiningar- og
ráðgjafarstöðvar á
Alþingi. Jóhanna
sagði ómannúðlegt
og óskynsamlegt
að halda stöðinni í
fjársvelti þegar 30
til 40 milljóna
króna viðbótar-
framlag nægði til
að gjörbylta
rekstri stöðvarinnar. Hún gagn-
rýndi að launakjör starfsmanna
stöðvarinnar væru slakari en byð-
ist hjá sveitarfélögum sem leiddi
til mikils atgervisflótta.
Páll Pétursson, félagsmálaráð-
herra, sagði að verið væri að vinna
að lausn á vanda stöðvarinnar.
Hann hefði ákveðið að óska eftir
viðbótarframlagi á fjáraukalögum
og hafin væri úttekt á faglegri og
fjárhagslegri stöðu Greiningar-
stöðvar. Sagðist hann binda vonir
við nýja stjórn stöðvarinnar sem
tekur við í næsta mánuði. ■
1 EFNAHAGUR |
Hagnaður Sorpu á síðasta ári
var tæpar 40 milljónir króna.
Tekjur á árinu voru um milljarð-
ur króna. Árið 2000 var hagnaður
fyrirtækisins rúmar 57 milljónir.
Handbært fé frá rekstri voru um
100 milljónir króna.
Afkoma Allianz:
Undir vænt-
ingum
afkoma AllianFtilkynnti í gær að
afkoma ársins 2001 væri einungis
helmingur þess sem spáð var.
Hagnaður félagsins var 1,6 millj-
arðar evra en áður áætlaði fyrir-
tækið að vera með hagnað upp á 3
milljarða evra. Hagnaður Allianz,
sem rekur trygginga- og banka-
þjónustu, var 3,5 milljarðar evra
árið 2000. Verri afkoma í fyrra
stafar meðal annars af kröfu um
1,5 milljarða evra greiðslu í kjöl-
far árásanna á Bandaríkin 11.
september 2001. ■
VIÐSKIPTI T
Nokia, sem er leiðandi í heim-
inum í sölu á farsímum, spáir
að söluaukning á sviði fjarskipta
verði minni en áætlað var. Það
dró úr bjartsýni á fjarskipta-
markaði í morgun. Talsmenn fyr-
irtækisins segja sölu farsíma
verða minni í öllum heimsálfum
vegna veikari efnahagsforsenda.
Hlutabréf Nokia lækkuðu í verði
í gærmorgun eftir nokkra hækk-
un síðustu daga. Þetta kemur
fram á vef Financial Times.