Fréttablaðið - 19.04.2002, Page 6
FRÉTTABLAÐIÐ
SPURNINC DACSINS
19. apríl 2002 FÖSTUPAGUR
Er vorið komið?
„Já, er það ekki. Ég myndi segja það."
Karl Guðmundsson, verktaki.
Ófrjósemisaðgerðir:
Rannsakað
enn frekar
alþinci Unnur Birna Karlsdóttir,
sagnfræðingur, sem vann skýrslu
um ófrjósemisaðgerðir á árunum
1938-1975 fyrir heilbrigðisráðu-
neytið að beiðni Þórunnar Svein-
bjarnardóttur, þingmanns Sam-
fylkingar, hefur verið fengin til að
ráðast í frekari rannsóknir á mál-
inu. Er henni m.a. ætlað að fara
yfir vafasama framkvæmd lag-
anna og gera grein fyrir ástæðum
mikils muns á ófrjósemisaðgerð-
um karla og kvenna. Frá þessu
greindi Jón Kristjánsson, heil-
brigðisráðherra, við umræður um
skýrsluna á Alþingi í gær. ■
Skýrsla OECD:
Skattbyrði
óvíða lægri
skattkerfi Samkvæmt nýrri
skýrslu OECD er skattbyrði
tekjuskatta einstaklinga óvíða
lægri en á íslandi, segir í vefriti
fjármálaráðuneytisins. Þetta á
sérstaklega við fjölskyldur með
börn, en skattbyrði einstaklinga
er einnig vel undir meðallagi
OECD-ríkjanna.
í skýrslunni kemur fram að
skattbyrðin eykst í takt við hækk-
andi tekjur sem eðlilegt er miðað
við uppbyggingu tekjuskattskerf-
isins hér á landi að mati fjármála-
ráðuneytisins. ■
ELDUR
Tilkynnt var um reyk í fyrir-
tækinu íslakki á Smiðjuvegi
11 í Kópavogi um klukkan 4.30 í
fyrrinótt. Þegar slökkviliðið kom
á staðinn var enginn eldur en
töluverður reykur kom frá hit-
unartæki. Húsið var reykræst og
að sögn lögreglu voru engar
skemmdir aðrar en reyk-
skemmdir.
Uppfylling við Ánanaust:
Komið til móts
við óskir KR
skipulag Gert er ráð fyrir að íbú-
um á svæði Knattspyrnufélags
Reykjavíkur fjölgi úr 7.300 í 9.200
eða um 26% á næstu 20 árum.
Vegna þessa hefur stjórn KR ósk-
að eftir því við borgaryfirvöld að
aðstaða íþróttafélagsins verði
bætt.
Borgaryfirvöld hafa tekið já-
kvætt í þær óskir og sagði Stefán
Hermannsson borgarverkfræð-
ingur að samkvæmt nýju aðal-
skipulagi væri gert ráð fyrir æf-
ingasvæði fyrir KR á uppfyllingu
við Ánanaust. Upphaflega hefði
ætlunin verið að hafa þar 900
íbúða byggð en þeim hefði nú ver-
ið fækkað í 600 til 700 til þess að
skapa rými fyrir íþrótta- og úti-
vistarsvæði, sem yrði á móts við
Keilugranda og Rekagranda.
KR-ingar hafa komið sér upp
æfingasvæði við Starhaga og
gerðu athugasemd við að í nýju
aðalskipulagi væri það sýnt sem
helgunarsvæði A-V flugbrautar
Reykjavíkurflugvallar. Stefán
sagði að það breytti í raun engu.
KR-HEIMILIÐ
Það hyllir undir að aðstaða félagsins
mun batna.
Haft hefði verið samráð við Flug-
málastjórn áður en KR-ingum
hefði verið heimilað að tyrfa
svæðið og þeir þyrftu ekki að
flytja sig þaðan. ■
Umferðarljós:
Rándýr
myndavél
eyðilögð
lögregla Myndavél á umferðar-
ljósum við Sæbraut var eyðilögð í
fyrrinótt. Að sögn lögreglu gæti
tjónið numið milljónum króna.
Starfsmaður Öryggismiðstöðv-
arinnar sá þegar verið var að eyði-
leggja myndavélina og tilkynnti
það til lögreglu. Lögreglan náði
fljótlega manni um tvítugt og færði
hann í fangageymslur. Ekki er vitað
hvað manninum gekk til en ljóst að
tjónið er mikið enda myndavéla-
búnaðurinn mjög dýr. Ekki er vitað
hvort maðurinn var einn að verki. ■
Vilja ræða úrgang á
Heiðarfjalli við Powell
Eigendur Heiðarfjalls vilja fá fund með utanríkisráðherra Bandaríkjanna vegna úrgangs frá
Bandaríkjaher. Mál þeirra gegn Bandaríkjunum var dómtekið fyrir nær hálfu ári en dómur er
enn ekki fallinn. Þórshafnarhreppur styður kröfur um hreinsun Qallsins.
umhverfismál Eigendur Heiðar-
fjalls á Langanesi óska eftir fundi
með Colin Powell, utanríksráð-
herra Bandaríkjanna, eða aðstoð-
armönnum ráðherrans þegar
hann kemur til ís-
lands í maí til að
sitja fund NATÓ-
ríkja. Björn Er-
lendsson, einn
landeigendanna,
segir viðbrögð við
beiðninni vera já-
kvæð þó henni hafi
enn ekki verið
svarað formlega.
Landeigendurn-
ir hafa lengi krafist
þess að
Bandaríkja-
menn þrífi
eftir sig
gríðarlegt
-♦ magn af úr-
gangi sem skilinn var eftir
á Heiðarfjalli þegar rad-
arstöð hersins var lögð
niður. Bandaríkjamenn
neita allri ábyrgð í málinu
með vísan til samnings við íslensk
stjórnvöld frá árinu 1970 um við-
skilnaðinn á Heiðarfjalli. Þar
komi fram að íslenska ríkið beri
ábyrgð á radarsvæðinu. Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra
hefur hins vegar sagt hér í Frétt-
blaðinu að ríkið hafi engar skyld-
ur í málinu.
Landeigendur draga gildi
samningsins í efa enda hafi þeir
enga aðild átt að honum. í samn-
—>—
Landeigend-
urnir stefndu
forseta, utan-
ríkisráðherra
og varnar-
málaráðherra
Bandaríkjanna
fyrir Héraðs-
dóm Reykja-
víkur í fyrra-
haust. Málið
var tekið til
dóms í nóv-
ember sl. en
enginn dómur
er enn fallinn.
ingnum sé þess utan kveðið á um
að ríkið taki við „betrumbótum"
sem gerðar hafi verið á svæðinu.
Sú skilgreining geti ekki átt við
eitruð spilliefni og annan úrgang
sem ógni lífríki Heiðarfjalls, m.a.
miklum vatnsbólum.
Landeigendurnir stefndu for-
seta, utanríkisráðherra og varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna fyr-
ir Iléraðsdóm Reykjavíkur í
fyrrahaust. Enginn þeirra þriggja
né nokkur annar mætti fyrir dóm-
inn af hálfu Bandaríkjanna. Málið
var tekið til dóms í nóvember sl.
en enginn dómur er enn fallinn.
Þórshafnarhreppur styður
landeigendur á Heiðarfjalli.
Hreppurinn hefur ítrekað sent
sendiráði Bandaríkjanna bréf, síð-
ast fyrir rúmum mánuði, og beðið
Bandaríkjamenn að axla ábyrgð á
gerðum sínum á Heiðarfjalli.
Svarið hefur ávallt verið það
sama; samið hafi verið við íslensk
stjórnvöld um yfirtöku svæðisins
með öllu sem því fylgdi.
„Mér skilst að Bandaríkja-
menn séu að hreinsa til eftir sig á
þeim spildum sem þeir hafa verið
á hér og þar í heiminum. Ef svo er
teljum við okkur eiga einhvern
rétt í þessu máli,“ segir Björn
Ingimarsson, sveitarstjóri Þórs-
hafnarhrepps.
gar@frettabladid.is
HEIÐARFJALL
Bandaríski herinn skildi eftir sig geysilegt magn af allra handa úrgangi þegar radarstöð hersins var lögð niður
á Heiðarfjalli. Landeigendurnir sitja uppi með þessa arfleifð því hvorki íslensk né bandarísk stjórnvöld vilja
gangast við því að bera ábyrgð á hreinsun fjallsins.
tmhusgogn.is
Tóbaksfyrirtæki brýtur blað:
þægilegir sófar
sem erfitt er að yfirgefa
Mán.-Fös. 10.00-18.00 ■ Laugard. 11.00-16.00 • Sunnud. 13.00-18.00
W
TM - HUSGOGN
Síðumúla 30 - Sími 568 6822
- œvintýri líkust
Hættir að nota
orðið „light“
heilsa Bandaríska tóbaksfyrir-
tækið Star verður fyrst í greininni
til að hætta að nota orðin „light“
og „ultra-light“ á sígarettupökk-
um sínum. Ákvörðun fyrirtækis-
ins, sem hefur reyndar aðeins 1%
markaðshlutdeild í Bandaríkjun-
um, kemur í kjölfar fjöldamál-
sókna á hendur tóbaksrisunum
þremur, Philip Morris, R.J.
Reynolds og Brown & Williamson.
Lögfræðingar í 11 fylkjum krefj-
ast milljarða í skaðabætur fyrir
hönd skjólstæðinga sem segjast
hafa verið blekktir til að trúa því
að svonefndar léttar sígarettur
séu heilsusamlegri. Þeir segja að
rannsóknir sýni að þær séu síst
betri en hefðbundnar sígarettur. ■
Star
Sckntific, æ
htc. 1 Jm
%
V
A New Stttndttrd
Qf fosptMXÍbility...
VÖRUMERKI STAR
^rstir í samfélagi tóbaksframleiðenda til