Fréttablaðið - 19.04.2002, Page 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
19. apríl 2002 FÖSTUPAGUR
FRETTABLAÐIÐ
Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson
og Jónas Kristjánsson
Fréttastjórar: Pétur Gunnarsson
og Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavlk
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Slmbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Plötugerð: iP-prentþjónustan ehf.
Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf.
Fréttaþjónusta á Netinu: Vlsir.is
Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf-
uðbotgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn
greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins I stafrænu fonmi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
BRÉF TIL BLflÐSINS~[
Fjöll og dalir í galdraríkinu Oz
1995
Oz.com er stofnað í Bandaríkjun-
um. Fyrirtækið er afsprengi fimm
ára gamals íslensks fyrirtækis í
eigu Skúla Mogensen og Guðjóns
Más Guðjónssonar, sem sérhæfði
sig í margmiðlun og þrívíddargraf-
ík. Fyrirtækið tók þátt í sýningu í
Tókýó og í kjölfar hennar tókst að
safna 8 milljóna dollara hlutafé.
Fjárfestarnir voru erlendir, frá
Japan og Tævan. Varan sem Oz er
að þróa er kölluð Oz Virtual sem
gerir fólki kleift að ferðast um Net-
ið í þrívíddarumhverfi. Viðskipta-
hugmyndin byggist á að dreifa hug-
búnaðinum ókeypis og ná sem allra
mestri markaðshlutdeild. Fréttirn-
ar af þessari fjárfestingu beindu at-
hyglinni að fyrirtækinu hér á landi.
Ári síðar gafst íslenskum fjárfest-
um færi á að leggja pening í fyrir-
tækið og tóku því fegins hendi.
1998
Kynnt eru verkefni sem byggja á
þrívíddartækni. Fyrirtækið á í sam-
starfi við Finna um að endurgera
hluta Helsinkiborgar í þrívídd. Þá
er fyrirtækið einnig í samstarfi við
örgjörvafyrirtækið Intel og Whitn-
eylistasafnið í New York. Þar er um
að ræða notkun á þrívíddartækni
Oz. Fyrirtækið var með fleiri járn í
eldinum því gerður var samningur
við sænska símarisann Ericsson
sem metinn var á einn milljarð
króna. Sá samningur var vegna
nýrrar vöru sem Oz var að þróa. Sú
nefndist Ipulse og var ætlað að
tengja saman símkerfi og Netið.
_____________________Eorsaga
Fyrirtækið Oz hefur þurft að draga saman
starfsemina. Mikið tap varð á síðasta ári.
Erfitt er fyrir fyrirtæki í þessum geira að afla
áhættufjármagns. í byrjun þróaði fyrirtækið
þrivíddarhugbúnað fyrir netið, en núverandi
söluvara þeirra er á sviði samskiptatækni.
1999
í mars er boðið út hlutafé og kaupa
Fjárfestingabanki atvinnulífsins og
Landsbréf hlut í fyrirtækinu fyrir
rúmar 500 milljónir króna. Með
fylgir að þetta sé síðasta útboð Oz
áður en það verði skráð I Banda-
ríkjunum. Af þeirri skráningu hef-
ur ekki orðið. Ipulse-hugbúnaður-
inn er kynntur og skrifstofa opnuð í
Svíþjóð. Ericsson keypti 19% hlut í
Oz. Ákveðið var að draga úr þrí-
víddarþróun innan fyrirtækisins og
JÓNAS SKRIFAR:
einbeita sér þess í stað að þróun
samskiptatækninnar.
2002
Samningur Ericsson og Oz rennur
út og fyrirtækið dregur saman
seglin. Búið er að loka skrifstofum í
Stokkhólmi og flytja höfuðstöðv-
arnar til Kanada. Starfsemi fyrir-
tækisins er á sviði samskiptatækni
þriðjukynslóðar farsíma. Oz er
hvergi skráð á markaði. ■
1 INNHERJAR |
Húsið hans
Krumma
Félagi af Holtinu skrifar:
Hvernig er það eiginlega með
vinstrigræna í Borgarstjórn
Reykjavíkur? Hafa þeir ekkert
þarfara að gera en láta undirsáta
sína ofsækja viðurkennda
heimsfræga listamenn í Reykja-
vík, sem bornir eru og barn-
fæddir innan borgarmarka? Það
er meira en hægt er að segja um
flesta þá sem stjórna borginni
enda löngu einsýnt að Akurnes-
ingar, Flóafífl og aðrir sveita-
menn hafa þar öll ráð í hendi sér.
Aðförin að Hrafni Gunnlaugs-
syni bítur nú höfuðið af
skömminni og var hún þó ærin
fyrir. Afhverju má þessi valin-
kunni listamaður ekki hafa sína
eigin lóð eins og honum sjálfum
sýnist í friði fyrir möppudýrum
borgarinnar? Hefur húsið hans
Krumma eitthvað minni sjarma
en beitningaskúrarnir við Ægi-
síðuna? Laugarnesið er hvort eð
er mestan part einn stór órækt-
argarður sem bíður þess að
verða grafinn út af fornleifa-
fræðingum. Nær væri að selja
túristum rútuferðir að heimili
Krumma, til að sýna svart á
hvítu hvernig einstaklings-
hyggjan fær að blómstra á Is-
landi, - í skjóli en ekki skugga
borgaryfirvalda í Reykjavík. ■
Gjáin víkkar ört
Ný skoðanakönnun í Bandaríkjunum og Evrópu
sýnir, að viðhorf kjósenda til alþjóðamála hafa
þróast í gagnstæðar áttir í þessum tveimur heims-
hlutum síðan George W. Bush tók við völdum í
Bandaríkjunum. Með sama framhaldi verða alger
vinslit milli þessara gömlu bandamanna.
Bandaríkjamenn styðja fsraelsmenn, en
Evrópumenn styðja Palestínumenn. Bandaríkja-
menn telja, að írak, íran og Norður-Kórea myndi
öxul hins illa, en Evrópumenn telja ekki vera sam-
band þar á milli. Bandaríkjamenn vilja ráðast á
írak, en Evrópumenn vilja það ekki.
Þar á ofan telja Evrópumenn, að svokölluð bar-
átta Bandaríkjanna gegn hryðjuverkum sé knúin
eiginhagsmunum og auki hættuna á hryðjuverkum
á Vesturlöndum. Þeir telja, að Bandaríkin stundi
einstefnu, taki ekkert tillit til bandamanna sinna og
ráðist raunar á þá með tollum og höftum.
Skarpur munur er milli meirihluta og minni-
hluta í öllum þessum tilvikum. Skilaboð kjósenda
eru því skýr. Þeir hvetja landsfeður sína til að gefa
ekki eftir í ágreiningsefnum Evrópu og Banda-
ríkjanna. Stjórnmálamenn beggja vegna hafsins
munu græða pólitískt á að víkka gjána.
Þessi viðhorf endurspeglast á ráðstefnum, þar
sem bandarískir og evrópskir sérfræðingar ræða
málin. Bandaríkjamenn telja Evrópumenn vera úti
að aka án skilnings á hættunni. Þeir telja, að
Bandaríkin þurfi ekki lengur evrópska banda-
menn, sem séu bara með japl og jaml og fuður.
Evrópumenn telja, að hryðjuverk eigi sér rætur
í forsendum, sem ekki læknist með hernaði. Þeir
telja hirðina kringum Bush forseta vera æðikolla.
Þeir vilja, að Evrópa leggi stóraukna áherzlu á
innra samstarf og eigin hermál og svari viðskipta-
þvingunum Bandaríkjanna fullum fetum.
Ekki sízt eru Evrópumenn ákaflega ósáttir við,
að Bandaríkin eru kerfisbundið farin að neita að
taka þátt í fjölþjóðlegum sáttmálum og stofnunum.
Hæst ber þar nýja stríðsglæpadómstólinn í Haag
„í alvöru erfarið að tala um, að nýtt
bandalag sé að rísa milli Bandaríkjanna,
ísraels og Rússlands, sem öll eiga í höggi
við skœruliða. Það verði stutt
ríkjum á borð við Kina og Tyrkland ... “
og staðfestingu Kyoto-bókunarinnar um mengun
loftsins, hvort tveggja evrópsk baráttumál.
Með sama áframhaldi gefast báðir aðilar upp á
Atlantshafsbandalaginu, sem hingað til hefur verið
helzta tákn Vesturlanda. Á sama tíma og tíu ríki
Austur-Evrópu eru um það bil að ganga í bandalag-
ið er það sjálft búið að fá eins konar heilablóðfall af
völdum ágreinings í gamla kjarnanum.
í alvöru er farið að tala um, að nýtt bandalag sé
að rísa milli Bandaríkjanna, ísraels og Rússlands,
sem öll eiga í höggi við skæruliða. Það verði stutt
ríkjum á borð við Kína og Tyrkland, sem vilja
stunda ríkisrekin hryðjuverk gegn undirokuðum
minnihlutaþjóðum á borð við Tíbeta og Kúrda.
Evrópskir kjósendur, stjórnmálaskýrendur og
sérfræðingar telja Evrópu ekki eiga heima í slík-
um félagsskap. Breið samstaða er í Evrópu um að
hafna þeirri heimssýn, sem komst til áhrifa í
Bandaríkjunum við valdatöku George W. Bush og
að hafna einhliða aðgerðum Bandaríkjanna.
Á næstu fundum Atlantshafsbandalagsins, þar á
meðal í Reykjavík í maí, verður með orðskrúði
reynt að breiða yfir þá staðreynd, að framtíð
bandalagsins er orðin ótrygg. ísland flækist inn í
deiluna vegna viðskiptahagsmuna sinna í Evrópu
og varnarhagsmuna í Bandaríkjunum.
Viðhorf fólks á íslandi til alþjóðamála eru líkari
viðhorfum í Evrópu en í Bandaríkjunum. Því er lík-
legt, að ísland lendi að lokum Evrópumegin við
hina miklu og víkkandi gjá í Atlantshafinu.
Jónas Kristjánsson
Samsæri
Sýnar
Innherjum á viðskiptaspjall-
þræði visis.is brá í brún yfir
fréttum af hækkun á áskriftar-
verði Sýnar. „Sé tekið dæmi af
þeim sem aðeins eru með Sýn þá
hækkar áskrift þeirra mest, eða
um 500 krónur á mánuði, og fer
gjaldið í 3.990 krónur. Hlutfalls-
lega nemur sú hækkun rúmum
14%.“ Viðbrögðin láta ekki á sér
standa. „Skandall. Þetta er orðið
alltof mikið fyrir fólk,“ segir
einn og bendir á að líka þurfi að
greiða af RÚV. Þetta er eins og
að nefna snöru í hengds manns
húsi, því nú fer umræðan að snú-
ast um Ríkisútvarpið og afnota-
gjöldin. „Ég heyrði það ein-
hverju sinni að tekjur af afnota-
gjöldum rétt dygðu til að reka
innheimtudeildina," er lagt í
púkkið og stungið uppá að af-
notagjöldin verði kölluð inn-
heimtugjöld. Umræðunni er snú-
ið að hækkun Sýnar. Þar vísar
einn á stjórnmálavefinn, þar
sem sett er fram mögnuð sam-
særiskenning um að Norðurljós-
armenn séu að reyna að setja
þrýsting á ríkisstjórnina útaf
rauða strikinu til að þvinga
stjórnvöld að taka ákvarðanir
um RÚV. Innherjar slá sjaldnast
hendinni á móti góðri samsæris-
kenningu.
Innherjar eru umræðuvettvangur á
vefnum visir.is.
Hitachitilboö
HITACHI
POWER TOOLS
HJÓLSÖG C7U
1150W, 185mm sagarblað
Tilboð 19.995 kr
HITACHI
POWER TOOLS
HLEÐSLUBORVEL DS13DV2
taska og tvær rafhlöður fylgja
Tilboð 24.795 kr
HUSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
Brúsi eða taska fylgir frítt með á meðan birgðir endast
LEIÐRÉTTING
FORDÓMALEYSI
OG UMBURÐAR-
LYNDI
Ég hef í huga mín-
um leitað mjög víða,
að vísu kannski ekki
mjög opnum huga, en ekki fundið
nokkurn skapaðan hlut sem gæti
verið okkur til hagsbóta í því
sambandi.
Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, um
hvort eitthvað jákvætt fyrir íslenskan
sjávarútveg gæti fylgt ESB-aðild. Á blaða-
mannafundi 18. apríl.
EKKI SAMA HVAÐAN GOTT
KEMUR
Þessi hugmynd kemur frá fjár-
málaráðherra þannig að við erum
vongóð um að hún nái fram að
ganga.
Brynjólfur Stefánsson, formaður Stúd-
entaráðs Háskóla íslands, um afnám virð-
isaukaskatts af bókum. Fréttablaðið,
18. april
MARY POPPINS
EVRÓPUUMRÆÐ
UNNAR
Eina vopn mitt í
þessari baráttu er
Evrópusambands-
regnhlífin sem Val-
gerður Bjarnadóttir gaf mér. Ég
flagga regnhlífinni nú við hvert
tækifæri enda er hún orðin póli-
tískt baráttutæki.
Kolbrún Bergþórsdóttir Evrópusinni.
DV, 18. apríl.
FRÁ, FRÁ, KÁRA LIGGUR Á
Frumvarpið um ríkisábyrgð við
deCODE var rifið út
úr nefndinni í gær-
kvöld gegn mjög
hörðum mótmælum,
vegna þess að þetta
mál er einfaldlega
óunnið.
Ögmundur Jónasson. DV, 18 apríl.
FÁTT ER SVO MEÐ ÖLLU ILLT
Ef ég fer nú í tugthúsið fyrir
ólöglega innheimtu vottorða-
gjalda verður huggun harmi gegn
að hitta þar væntanlega fyrir lög-
fræðing TR til að rif ja upp gamla
daga þegar hann stakk upp á
þessari innheimtu.
Ólafur Mixa, heimilislæknir.
Morgunblaðið, 18. april.
STOPPAÐ TIL AÐ PISSA
Hagvöxturinn verð-
ur minni eða
kannski enginn á
þessu ári og margir
hafa kannski gott af
því að kasta mæð-
inni í því ástandi, en
við munum síðan stefna áfram
upp á við í þeim efnum m.a. með
þeim áformum sem framundan
eru á sviði virkjunarmála, og ým-
issa nýjunga hér í atvinnumálum
á íslandi.
Geir Haarde, fjármálaráðherra.
_____________________Alþingi, 17. april.
LEIÐRÉTTING
Opnun íþróttahallarinnar í
Grafarvogi hefur verið
frestað til kl. 16.45 á sumardag-
inn fyrsta.