Fréttablaðið - 22.04.2002, Síða 2
2
Pottar í 20 ár
Pottasett frá Eva-Trio fæst í
Kúnígúnd en þessi sett hafa
fengist í versluninni frá því hún
hóf rekstur fyrir um 20 árum.
Reynslan er því afar góð.
POTTAR FRÁ EVA-TRIO
Pottarnir eru með góðri
hitaleiðni en köldum
handföngum.
Pottarnir eru með 6,2 milli-
metra þykkum botni og góðri
hitaleiðni, en köldum handföng-
um. Pottana má setja í upp-
þvottavél. ■
LISTAKONAN.
Eðvaldína með útskorin listaverk úr tré, ámálað postulin og bútasaumsteppi og -púða, og
allt hefur hún gert þetta sjálf
V æri kannski á leið
í myndlistarnám
Eðvaldína Kristjánsdóttir er 89
ára gamall unglingur sem und-
anfarin 17 ár hefur mætt nánast
alla virka daga í Gerðuberg, þar
sem hún þjónar listagyðjunni. Eð-
valdína hefur meðal annars lagt
stund á tréskurð, saumaskap og
málun, og virðist jafnvíg á allt
sem hún kemur nálægt. „Núna er
ég að orkera," segir Eðvaldína, og
blaðamaður verður að játa fá-
fræði sína og fá nánari útskýr-
ingu. „Ég er að búa til blúndur á
dúka og vasaklúta," segir hún og
blaðamaður sýpur hveljur af að-
dáun, svo fallegt er handbragðið.
„Mér þótti mjög gaman að tré-
skurðinum, en á orðið erfitt með
það út af höndunum," segir Eð-
valdína. „Ég á þrjár klukkur og
tvö barómet sem ég hef gert,“ en
mikil ásókn er í listaverk Eðvald-
ínu sem gefur þau frá sér næstum
jafnóðum. „Það var h'ka gaman að
mála vatnslitamyndir, ég hafði
aldrei komið nálægt því áður,“
segir hún, „og mér fannst æðis-
lega gaman að mála á postulín."
IJ o ni
rnTTp
Þeir eru fallegir mun-
irnir sem Eðvaldína
Kristjánsdóttir hefur
unnið undanfarin ár,
og ekki skrýtið að þeir
renni út eins og
heitar lummur
Ég væri trúlega á leið í myndlist-
arnám ef ég væri yngri,“ segir
hún hlæjandi. Eðvaldína er úr
Dölunum og bjó þar allan sinn bú-
skap eða þar til hún missti mann
sinn árið 1984. Ilún á þrjár dætur
og mörg barnabörn sem eru að
vonum stolt af listmunum ætt-
móðurinnar. „Uppáhaldið mitt
væri trúlega bútasaumsteppi og
púðar sem ég hef gert,“ segir Eð-
valdína, og veitir blaðamanni góð-
fúslegt leyfi til að mynda lista-
verkin. „En ég hef gaman af þessu
öllu saman,“ segir þessi failega
kona að lokum. ■
Heimiiisblaðið_____________ _______22. til 28. apríl 2002
Hús í spænskum stíl
Björn Sæbjörnsson á sér draumahús á tveimur hæðum.
Draumahúsið mitt er gott ein-
býlishús á tveimur hæðum,“
segir Björn Sæbjörnsson, versl-
unarmaður í Brynju á Laugaveg-
inum. Hann segir að bílskúr verði
endilega að fylgja og ekki sé
verra að húsið sé vel rúmgott, hátt
til lofts og vítt til veggja. „Ég sé
fyrir mér að svefnherbergin verði
á neðri hæðinni en uppi séu góðar
stofur, eldhús og tómstundaher-
bergi.“ Björn myndi vilja hafa
húsið í spænskum stíl og húsgögn- hátt til lofts
in þung og dökk. „Á gólfunum Björn vill hafa húsgögnin þung
eiga að vera flísar og parket." ■ og ° '
Stikkfrí þegar hún
sest í ruggustólinn
i|Doáhajds
Gamall ruggustóll sem mamma
keypti þegar hún var ungling-
ur er í miklu uppáhaldi. Stóllinn
er til í endurminningunni frá
barnæsku meðal annars á mynd-
um,“ segir Sigurbjörg Þrastar-
dóttir, blaðamaður og ljóðskáld.
Hún segir stólinn hafa verið lán-
aðan á heimili ömmusystur sinnar
þar sem hann hafi verið til
margra ára og að lokum hafi hann
endað hjá sér.
„Mér finnst stóllinn fallegur en
ýmsir hafa komið með athuga-
semdir. Hann er skræpóttur og er
það í samræmi við litadýrðina sem
ræður hjá sjálfri mér til dæmis við
val á fötum. Ég þverneita að skipta
honum út fyrir einhverja smartari
stóla sem vissulega myndu fara
betur við nýja sófann." Eina af
meginástæðunum segir Sigurbjörg
vera þá að gott sé að hugsa í stóln-
um. Grundvöllur fyrir hugsun sé
að vel fari um fólk. „í stólnum þarf
ekki að gera neitt annað en viljinn
segir til um, hvort heldur að lesa,
hugsa, horfa á sjónvarp eða skrifa.
Það fylgja stólnum engin líkamleg
átök. Þegar sest er í hann er maður
stikkfrí. Það er algjört aukaatriði
hversu lítið eða mikið fagurfræði-
legt gildi hann hefur.“
Sigurbjörg hefur getið sér gott
orð sem ljóðskáld. Hún segist alltaf
vera að semja meðfram öðru. Þá |
hafi hún verið að vinna að ýmsum |
smærri verkefnum, meðal annars |
á vegum Listahátíðar. „Við erum §
ellefu konur sem semjum ljóð und- g
ir áhrifum höggmynda Sigurjóns |
Ólafssonar. Sýningin verður sett |
upp í Listasafni Sigurjóns og geta |
sýningargestir hlustað á ljóðin um “
leið og þeir skoða verkin. Þetta er
mjög spennandi." ■
Sigurbjörg Þrastar-
dóttir eignaðist ruggu-
stól sem mamma
hennar keypti þegar
hún var unglingur.
SIGURBJORG ÞRASTARDOI IIK
„Ég þverneita að skipta ruggustólnum út fyrir einhverja smartari stóla sem vissulega
myndu fara betur við nýja sófann."
Heimsþekktu
leirvörurnar
Verið velkomin f Lágmúlann
ttm / /J
Nú á tilboði með lH»HMHafslætti
mm