Fréttablaðið - 22.04.2002, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 22.04.2002, Blaðsíða 6
6 Heimilisblaðið 22. til 28. apríl 2002 Brauðvél kemur að góðum notum Það er ekki amalegt að geta bak- að sitt eigið brauð. í Byggt og búið fæst brauðvél sem auðveldar fólki að baka sitt eigið brauð. ís- lenskar leiðbeiningar fylgja með ásamt uppskriftum. ■ NYBAKAÐ BRAUÐ Hægt er að bæta ýmiskon- ar góðgæti í brauðið til að bragðbæta það svo sem sólþurrkuðum tómötum. Vill einhver gefa mér þvottavél? Birgitta Birgisdóttir þvær þvottinn sinn hjá mömmu sinni. Mig vantar rosalega þvotta- vél,“ segir Birgitta Birgis- dóttir, verslunarkona með meiru. Birgitta leigir í miðbæ Reykjavíkur ásamt vinkonu sinni. Húh á ekki þvottvél og þarf því að burðast með þvottinn til foreldra sinna. „Það er rosa- lega mikið vesen og ef það er einhver sem vill gefa mér þvottavél er ég tilbúin að taka við henni,“ segir Birgitta hlæj- andi. ■ BIRGITTA BIRGISDÓTTIR Er verslunarkona sem leigir ( miðbæ Reykjavíkur. Bjartsýni og svartsýni Kúnígúnd við Laugaveg hefur á einstaklega fallega blómavasa. hafið samstarf við fyrirtækið Fuglarnir kallast Bjartsýni og Örefoss frá Svíþjóð og býður upp Svartsýni. ■ FALLEG HÖNNUN Bjarsýni og Svartsýni. Amerískar 1 / -m / luxusdýnur Tilboð HILMAR ÞÓR BJÖRNSSON Ef húsin í Frostaskjólinu væru húsgögn yrðu þau antikmunir framtiðarinnar að mati Hilmars. Eins og sam- lynd fjölskylda King - Queen size 20-30% afsl. Alþjóðasamtök chiropractora mæla með King Koil- heilsudýnunum Rebhjan Skiþholti 35 * Sími: 588-1955 Málarar - Múrarar - Píparar - Smiðir Dúkarar - Rafvirkjar - Ræstifæknar Vertu í góðum höndum! Eitt númer - 511 1707 www.handlagirm.is handlaginn@hand!aginn.is Húsin í Frostaskjóli eru hönnuð af arkitektunum Dagnýju Helgadóttur, Guðmundi Kr. Guð- mundssyni og Ólafi Sigurðssyni í samkeppni arkitekta um hús sem skyldu mynda þyrpingar í anda skipulags sem kallað hefur verið „lág þétt íbúðabyggð“. í hverri þyrpingu eru lítil einbýlishús og raðhús sem mynda heillegt sam- ræmt svipmót. Aðkoma að húsun- um er um innigarð þar sem er leiksvæði barna og útivistarsvæði fullorðinna. Við hvert hús er lítill einkagarður sem er mjög sér. „Hér er viðfangsefnið ekki bara lífið í húsunum heldur einnig, lífið milli húsanna," segir Hilmar Þór. Grunnmyndir húsanna eru mismunandi og taka mið af þörf- um nútímafjölskyldu. Eldhús og stofur eru á jarðhæð og á annarri hæð eru svefnherbergi og fjöl- skylduherbergi. Yfir húsinu miðju er stór þakgluggi þar sem dagsbirtan flæðir niður um báðar hæðirnar og tengir þær saman. Ofanljósið gerir það einnig að verkum að húsið virkar stærra og flæði rýmanna er sýnilegra en ella. „Ytra byrði húsanna einkenn- ist af látleysi og sjarmerandi naumhyggu sem á eftir að gera það að verkum að þau falla seint úr tísku eða upplifa ljótleikatíma- bil. Til þess að auka tilfinninguna fyrir rými í þessari þéttu byggð, hefur verið valinn hvítur litur á húsin. Á hurðum og gluggum eru mismunandi frumlitir og lands- lagsarkitektar hafa aðlagað sam- eiginlegu svæðin að þörfum íbú- anna. Þetta skapar fjölbreytni milli þyrpinganna," segir Hilmar. „Það vekur athygli að ekki hefur verið gerð tilraun í þessum dúr í Reykjavík síðan þetta var byggt. í raun hefur orðið afturför í skipu- lagi hér undanfarin mörg ár, sem jaðrar við hugmyndafræðilega niðurlægingu," segir Hilmar. Hilmari er tamt að hugsa um hús eins og manneskjur. „Þau geta verið, hógvær, glaðleg, tignarleg, öguð, virðuleg, tillitssöm, lítillát kurteis og falleg. Þau geta líka verið frekleg, tillitslaus, uppá- þrengjandi, illileg, þunglyndisleg, Húsaþyrpingar við Frostaskjól eru að mati Hilmars Þórs Björnssonar arkitekts með athyglisverðustu íbúðarhúsum borgarinnar. ljót og þar fram eftir götunum. Þau hús sem hér eru til umfjöllun- ar eru ekki eins og sjálfstæðir ein- staklingar heldur eins og harm- ónísk fjölskylda sem býr í sátt og samlyndi. Hver einstaklingur fær notið sín án þess að skyggja á ann- an. Þetta eru afburðagóð hús og skipulagshugmynd sem vert er að þróa áfram. Þessi hús eiga eftir að halda þokka sínum og reisn um langa framtíð. Það væri óskandi að skipulagsyfirvöld hristu af sér slenið og gæfu framsæknum nú- tímalegum hugmyndum tækifæri f borgarskipulaginu." ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.