Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.05.2002, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 07.05.2002, Qupperneq 8
8 FRÉTTABLAÐIÐ 7. maí 2002 ÞRIÐJUDAGUR „Er martröðinni lokið?“ FRETTABLAÐIÐ Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Gunnar Snnári Egilsson og Jónas Kristjánsson Fréttastjórar: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavik Aðalsími: 515 75 00 Sfmbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf. Plötugerð: iP-prentþjónustan ehf. Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf. Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf- uðborgat5væðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins f stafrænu formi og f gagnabönkum án endurgjalds. sueddeuíschc „Og nú? Er martröðinni lokið?“ spyr leiðarhöfundur þýska dag- blaðsins Siiddeutsche Zeitung. Hann segir að fjölmiðlar í Frakk- landi hafi allir sem einn keppst við að fordæma Le Pen. Af fjölmiðlun- um að dæma hafi ekki mátt ráða annað, en að ein skoðun ríkti í land- inu. Leiðarahöfundurinn bendir einnig á, að fyrirfram hafi öllum verið ljóst að Le Pen yrði ekki for- seti Frakklands. Áhrifanna af ár- angri hans eigi hins vegar eftir að gæta enn um hríð í frönskum stjórnmálum. „Jafnvel þótt Þjóð- ernisfylkingin komist inn á þing í júní, þá ber að vona að endi hafi verið bundinn á framtíð Le Pens kosningunum á sunnudaginn." 1*1 NANt'lAL l'IMI-IS Leiðarahöfundur Financial Times segir að sigur Jacques Chiracs í for- setakosningunum sé óneitanlega mikill léttir. Samt sé ekki rétt að slaka á. „Að sjá þetta marga franska kjósendur fylkja sér að baki aldraðs lýðskrumara sem er á móti innflytjendum og hefur ekki upp á neina heilsteypta efnahags- stefnu að bjóða ætti ennþá að hljóma sem hávær viðvörunar- bjalla hjá öllum evrópskum stjórn- völdum.“ Frakkar verði auk þess sjálfir að taka niðurstöður kosning- anna sem viðvörun. Frakkar þurfi ____________________Eoisaga Forsetakosningunum í Frakklandi lauk með þvi að Jean-Marie Le Pen tapaði, svo sem vitað var fyrirfram. Sigri Chiracs er fagnað i öllum heistu dagblöðum Evrópu. Illur grun- ur læðist þó að sumum leiðarahöfundum. að sýna örlitla auðmýkt áður en þeir fara að segja öðrum lýðræðisríkj- um í Evrópu, svo sem Þýskalandi og Austurríki, til syndanna fyrir daður sitt við hægri öfgaflokka. í leiðara danska dagblaðsins Jyllandsposten er tekið undir þetta. Leiðarahöfundurinn segir að valda- stéttirnar í Evrópuríkjum verði að gæta sín á því að einoka ekki í hroka sínum hina lýðræðislegu um- ræðu. „Lýðræðið virkar greinilega því aðeins, ef tjáning skoðana held- ur sig innan strangt afmarkaðra landamæra, sem valdastéttin tekur að sér að skilgreina. Enginn áhugi er á umræðu, nema allir hafi sömu skoðun." Leiðarhöfundurinn segir að þama megi greina „fyrirlitningu á almenningi og áhyggjum hans, ekki síst varðandi málefni innflytj- enda. Það gengur ekki til lengri tíma litið.“ ■ | BRÉF TIL BLAÐSINS] Tímabærir bakþankar Haukur Brynjólfsson skrifar ITréttablaðinu þ. 2. maí, efast Björgvin Guðmundsson um að verkalýðsforingjunum sé hollt að vera sjálfkrafa áskrifendur að peningunum okkar. Þetta er tíma- bært umhugsunarefni og spurning er hvort við ráðum einhverju um þetta fjárstreymi, slík er fjarlægð- in orðin milli f jöldans í félögunum og stjórnenda þeirra. Hvað hefur verkalýðsforustan helst verið að fást við undanfarin ár ? Fasteigna- kaup? Að tapa fé úr lífeyrissjóð- um? Fyrir utan rauðustrikahitasótt síðustu mánuða hefur helst heyrst frá ASÍ þegar þar á bæ virðist hafa komið upp ótti við að aðrir væru að gera það gott samanber m.a. íhlut- un forvígismanna ASÍ í samninga kennara í fyrra, er hótað var als- herjar ófriði á vinnumarkaði ef komið væri um of til móts við kennara að mati ASÍ. Fyrir nokkrum mánuðum lýsti framkvæmdastjóri ASÍ því yfir á opinberum fundi að ekki væri ástæða til að hækka skattleysis- mörk, en þau eru nú við 67.467 kr. mánaðarlaun fyrir einstakling með fullan persónuafslátt. Fram- kvæmdastjórinn sagði á sama fundi að í seinustu samningum hefði verið lyft grettistaki til hækkunar lægstu launa, en þau eru 90.000 kr. á mánuði. Af þeirri upphæð greiðast 9.455 kr. í skatt. Þetta blessar ASÍ og virðist helst hafa áhjfggjur af því að launþegar utan ASÍ nái of langt í sinni kjara- baráttu ! Það er sannarlega rétt hjá Björgvin að þessu fólki er ekki hollt að vera sjálfkrafa áskrifend- ur að peningunum okkar. ■ Snýst um prinsipp ekki prósentur ól(k sjónarmið Stjómum ekki niðurstöðunni „Þarna erum við með eitt verð- mætasta svæði landsins út frá náttúruverndarsjónarmiðum,“ segir Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, formaður Landverndar. „Á sínum tíma var gerður samningur við gamla Náttúruverndarráð sem nú er Náttúruvernd ríkisins, um að inní friðlandinu mætti koma uppi- stöðulón, ef það myndi ekki rýra náttúruverndargildi svæðisins að mati Náttúrverndarráðs. Hefði ekki verið eðlilegt að Landsvirkjun myndi byrja á því að vinna með Náttúruvernd að því að skoða hvaða áhrif þetta hefði á friðland- ið, áður en ráðist er í þessa stóru og dýru matskýrslu. Landsvirkjun ræðst í þessa skýrslu og gerir mat- ið sjálf, eins og lög um umhverfis- mat kveða á um. Auðvitað er mark- miðið með skýrslunni að réttlæta framkvæmdina. Það væri óeðlilegt að framkvæmdaaðili færi í jafn dýra og viðamikla framkvæmd og matskýrsl- an er, ef hann ætlaði sér ekki að réttlæta fram- kvæmdina. Þetta þykja mér ekki góð vinnubrögð. Mér finnst málið snúast um prinsipp. Menn eru að tala um prósentur af frið- lýstu landi. Uppistöðulónið sjálft er á stærð við Mý- vatn. Miðað við vinnuferlið er spurning hvort ekki sé hægt að fá niðurstöðu um að óhætt sé að virkja Gullfoss, Geysi og vera með efnisvinnslu í þjóðgarðinum á Þingvöllum. Mér finnst að menn ættu að vinna saman og koma sér saman um þetta. Unnið er að rammaáætlun á vegum ríkis- Matsskýrsla um umhverfisáhrif vegna Norðlingaöldu- veitu er komin út. Uppistöðulónið mun teygja sig inn á friðlýst svæði. Skýrslan er unnin samkvæmt þeim lög- um og reglum sem gilda um mat á umhverfisáhrifum. ÓLÖFGUÐNÝ VALDIMARS- DÓTTIR stjórnarinnar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma. Fyrstu niðurstöður liggja fyrir í lok þessa mánaðar. Það hefði verið eðlilegt að menn biðu eftir þeim nið- urstöðum, til þess að geta skoðað málið í víðara sam- hengi. Ef menn eru að setja sér lög og prinsipp, þá eiga menn að fara eftir þeim. Við getum ekki friðlýst land og byrjað svo á því á því að ganga á svig við reglur. Það fárán- legast er þó eins og gerðist með matskýrsluna um Kárahnjúka- virkjun, að þó sérfræðingar meti umhverfisáhrif framkvæmdar umtalsverð, hefur það í sjálfu sér ekkert gildi ef ríkisstjórnin er hlynnt framkvæmdinni." ■ „Þetta mat er öðruvísi, en annað mat á umhverfistá- hrifum sem unnið hefur verið,“ segir Guðjón Jóns- son; verkfræðingur hjá VSÓ sem hafði umsión með matsskýrslunni. „Ástæðan er sú að það er til svo mik- ið af náttúrufarsrannsókn- um um þetta svæði. Það liggja fyrir milli 40 og 50 skýrslur sérfræðinga um umhverfisáhrif. Við fylgjum reglugerðinni um mat á umhverf- isáhrifum. Þar er listi sem segir hvað eigi að koma fram í umhverf- ismatinu. Þeir þættir sem þurfa að koma fram í matinu eru skoðaðir og vegnir. Það fyrsta sem við ger- um er matsáætlun. Hún er síðan lögð fyrir Skipulagsstofnun. GUÐJÓN JÓNSSON Stofnunin fylgist með því að í þeirri áætlun séu allir þeir þættir sem þeir telja að séu nauðsynlegir fyrir mat á umhverfisáhrifum. Svigrúm þess sem gerir matið tak- markast því af þeim skilmálum sem eru settir og Skipulagsstofn- un hefur eftirlit með. Við sem ger- um skýrsluna erum ekki sérfræð- ingarnir, heldur byggjum við hana á gögnum þeirra sérfræðinga sem rannsakað hafa svæðið. Við veg- um og metum þær niðurstöður sem við erum með í höndunum. Vinna þær samviskusamlega og setja þær inn í þessa skýrslu. Við vinnum engar sjálfstæðar rann- sóknir, heldur er þetta samantekt á frumgögnum. Það er óréttmætt að halda því fram að við getum stjórnað niðurstöðunni. Skipulags- stofnun myndi ekki samþykkja áætlunina ef hún er ekki sam- kvæmt reglum. Eftir áætl- unina kemur svo mats- skýrslan. Við leggjum drög að henni fyrir Skiplags- stofnun sem fer yfir hvort hún sé í samræmi við mats- áætlunina. Hvort við séum að gera það sem við sögð- umst ætla að gera. Þeir leita út til umsagnaraðilla. Síðan er matsskýrslan lögð fram og fer í dreifingu til umsagnaraðila. Þá hefst þetta opna ferli, þar sem hægt er að gera athugasemdir við mats- skýrsluna. Þetta er sambærilegt kerfi við það sem tíðkast í löndun- um í kringum okkur. Það er barna- skapur að halda því fram að fram- kvæmdaaðili geti búið eitthvað til í þessu ferli." ■ Sandnes Mandarin sölustaðir um land allt heildsöludreifing www.tinna.is Tinna ehf • sími 5654610 INNHERJAR Hverjir ráða málefnum aldraðra og öryrkja? Fátækt og loforð Sjálfstæðis- manna í borginni um að bæta kjör öryrkja og aldraðra eru til- efni heitra umræðna meðal inn- herja á stjórnmálaþræði visis.is. Upphafs maður umræðunnar bendir á að aldraðir og öryrkjar = þurfi að borga 38,4% skatt af tekj- £ um yfir 68 þúsund krónum, meðan g fjármagnstekjuskattur sé aðeins | 10%. „Ég minnist þess ekki að £ Björn B hafi gert neitt í að breyta § þessu á meðan hann var í ríkis- 3 stjórninni sem hefði nú átt að vera | hægur vandi en svo þykist hann bera hag þessa fólks mjög fyrir brjósti í borginni. Ég minnist þess ekki að Björn B hafi gert neitt í að breyta þessu á meðan hann var í ríkisstjórninni sem hefði nú átt að vera hægur vandi en svo þykist hann bera hag þessa fólks mjög fyrir brjósti í borginni." Svarið lætur ekki á sér standa. Innherja ofbýður sá málflutning- ur að Birni Bjarnasyni sé kennt um allt slæmt sem gerist. „Allt honum að kenna að ríkisábyrgðin var samþykkt, allt honum að kenna að öryrkjar og ellilífeyris- þegar hafa það ekki nógu gott, allt honum að kenna að þorskurinn er geldur og horaður! Hvernig væri að r-lista stuðningsmenn myndu hætta þeirri vitleysu að ásaka Björn Bjarnason um allt sem illa fer hér á landi“ Þessu er auðvitað ekki látið ósvarað. „Björn er í framboði fyrir D-listann. D-Listinn er við völd í lands- málum. Völd í landsmálum gefa tækifæri á að gera vel við ör- yrkja. Hvers vegna þetta hróp- andi ósamræmi í stefnuskrá D- listans í borginni annarsvegar og landsmálum hins vegar?" Þessu er svarað með því að benda á að málefni öryrkja og aldraðra heyri undir Félagsmálaráðuneyt- ið og þar sitji Framsóknarmaður. Heilbrigðisráðuneytið heyri einnig undir Framsóknarflokk- inn. Þá er bent á að fjármála og forsætisráðuneyti séu ráðuneyti Sjálfstæðisflokks. „Eru þeir ekki allsráðandi hvað varðar skatta- mál og fjármál ríkisins?" er spurt að lokum. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.