Fréttablaðið - 20.07.2002, Blaðsíða 2
2
FRÉTTABLAÐIÐ
20. júli 2002 LAUGARPAGUW
INNLENT
Enn er vika í það að ljóst verður
hvort Ámi Johnsen áfrýjar
dómi Héraðsdóms í máli sínu til
Hæstaréttar. Jakob R. Möller, lög-
fræðingur Áma, segir að ákvörð-
unin muni ekki liggja fyrir fyrr en
í næstu viku.
Skipulagsstofnun hefur sam-
þykkt lagningu 400 kv Sultar-
tangalínu 3. Engin þriggja leiða
sem lagðar eru til er talin hafa um-
talsverð óafturkræf umhverfisá-
hrif þó ein leiðanna valdi veruleg-
um sjónrænum áhrifum nærri
Gullfossi og Háafossi.
Greiðslur úr Ábyrgðarsjóði
launa fyrri helming ársins
nemur 314 milljónum króna sam-
kvæmt fréttum Stöðvar 2. Verði
útgjöldin jafn mikil það sem eftir
er árs verður sett met í útgjöldum
sjóðsins.
LEITAÐ AÐ SÖNNUNARGÖGNUM
Carla del Ponte fundaði með forseta
Júgóslavíu, utanrlkisráðherra og innanríkis-
ráðherra I von um betri aðgang að gögnum.
Del Ponte í Júgóslavíu:
Leitar frekari
sönnunar-
gagna
belgrad. ap Carla Del Ponte, aðal-
saksóknari Alþjóðadómstólsins í
Haag.þrýsti í gær á júgóslavnesk
stjórnvöld um betra samstarf við
dómstólinn þegar hún fór í stutta
heimsókn til Belgrad.
Del Ponte fundaði með Vojislav
Kostunica, forseta Júgóslavíu, og
fór fram á bættan aðgang dóm-
stólsins að gögnum um valdaferil
Slobodans Milosevic, fyrrum for-
seta Júgóslavíu sem hefur verið í
haldi dómstólsins frá því á síðasta
ári. í kjölfarið lyfti varnarmálaráð
Júgóslavíu leynd af hluta skjala
þeirra um forsetatíð Milosevic.
Ponte og samstarfsmenn hennar
vonast til að finna gögn um að
Milosevic hafi fjármagnað stríðið í
Bosníu með fjárframlögum úr
sjóðum júgóslavneska ríkisins. ■
SMÁTT
Norskur maður, búsettur í
Reykjavík, var tekinn í
vörslu lögreglunnar í gær eftir
að hafa orðið uppvís að þjófnaði
úr verslunum í bænum. Talið er
að hann hafi gerst fingralangur
víðar um landið áður en hann var
stöðvaður á Akureyri.
Fánar blöktu við hún víða á
Austfjörðum í gær í kjölfar
undirritunar viljayfirlýsingar um
byggingu álvers í Reyðarfirði.
Minni var kætin við skála á há-
lendinu þar sem landverðir flögg-
uðu í hálfastöng. Sjónvarpið
greindi frá.
Argentínskur ísbrjótur náði í
gær til þýska rannsóknar-
skipsins Magdalena Oldendorff.
Þýska skipið hafi verið fast í ís-
breiðu við suðurskautslandið í
rúman mánuð. 18 skipverjar voru
enn í þýska skipinu en 89 höfðu
verið fluttir á brott í þyrlu.
Hundruðum fluga var aflýst á
Ítalíu í gær þegar starfs-
menn í flugsamgöngum lögðu
niður störf til að mótmæla fyrir-
ætlunum stjórnvalda um að brey-
ta vinnulöggjöf landsins.
Dómsmálaráðherra ísraels
hefur tilkynnt að flytja megi
ættingja þeirra sem gert hafa
sjálfsmorðsárásir af Vesturbakk-
anum á Gazaströndina hafi þeir
hvatt til árásarinnar eða tengst
hryðjuverkum. Palestínumenn og
mannréttindahópar hafa mót-
mælt ákvörðuninni.
Akureyrarbær dæmdur til að greiða bætur:
5 milljónir fyrir
pómsmál Héraðsdómur Norð-
urlands eystra dæmdi Akureyrar-
bæ í gær til að greiða starfsmanni
sínum 4,8 milljónir króna í bætur
þar sem dóminum þykir sýnt að
konunni hafi verið mismunað í
launakjörum á grundvelli kyn-
ferðis. Þessu til viðbótar er bær-
inn dæmdur til að greiða eina og
hálfa milljón í dómskostnað og
málskostnað sækjanda.
Konan starfaði sem deildar-
stjóri á félagssviði frá 1988 og
fékk greitt samkvæmt samningi.
Konan krafðist þess síðar að fá
greidd laun í samræmi við þá sem
KRISTJÁN ÞÓR
JÚLÍUSSON
Bæjarstjórinn telur
líklegt að dóminum
verði áfrýjað. Um sé
að ræða háar fjár-
hæðir.
störfuðu við
sambærileg
störf. Dómurinn
tók undir þá
kröfu. Trygg-
ingafræðingur
var fenginn til
að meta muninn
á launum kon-
unnar og deild-
artæknifræð-
ings. Niðurstaða
hans var sú að
það munaði
4.797.482 krón-
um.
misrétti
Þetta er í annað skipti sem Ak-
ureyrarbær tapar máli þar sem
kvenkyns starfsmaður telur
brotið á sér launalega vegna kyn-
ferðis.
Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri, sagði í gær að sér þætti
líklegt að bæjarstjórn myndi
áfrýja dómnum. Hvort tveggja
mætti gera athugasemdir við
röksemdafærslur dómsins og
eins vöknuðu efasemdir um hæfi
dómarans sem kvað upp dóminn
en hann hafi setið í bæjarstjórn
þegar samningurinn var gerð-
ur. ■
Sætanýting Flugleiða:
Betri en í
fyrra
FARPEGAFLUTNiNGAR Farþegum sem
áttu erindi til íslands eða frá ís-
landi fjölgaði um 9,3 í júní, en þeim
sem fljúga yfir Norður-Atlantshaf-
ið um ísland fækkaði um 26,0%.
Farþegum í millilandaflugi Flug-
leiða fækkaði í heild um 7,6 % í
júní í samanburði við sama mánuð
á síðasta ári. Þeir voru 141.407 nú
en voru 152.976 í júní 2001. í júní
minnkaði sætaframboð Flugleiða
um 15,2% og seldir sætiskflómetr-
ar um 9,9%, sem leiddi til þess að
sætanýting var í mánuðinum 5,0
prósentustigum betri en í júní
2001. Hún var 84,4% í júní í ár, en
79,4% á síðasta ári. ■
Gjörólík túlkun á niður-
stöðu Fjármálaeftirlits
Niðurstaða Fjármálaeftirlitsins í máli SPRON er sú að heimilt sé að kaupa hlut stofníjáreigenda
á yfirverði. Stjórn SPRON túlkar aðrar niðurstöður þannig að yfirtöku sé hrundið. Fimmmenn-
ingarnir líta á hana sem grænt ljós á viðskipti. Tekist verður á um málið á fundi 12. ágúst.
viðskipti Niðurstaða Fjármála-
eftirlitsins í málefnum SPRON
eru túlkuð með gjörólíkum
hætti af aðilum málsins. Niður-
staða eftirlitsins er að heimilt sé
að eiga viðskipti með stofnfjár-
hluti í SPRON á hærra verði en
endurmetnu nafnverði. Sú nið-
urstaða er óyggjandi og er að
mati Jóns Steinars Gunnlaugs-
sonar, lögmanns fimmmenning-
anna, sigur í málinu. Guðmund-
ur Hauksson, sparisjóðsstjóri
segir að með niðurstöðunni sé
yfirtökutilraun Búnaðarbank-
ans hrundið. Stjórn SPRON hef-
ur boðað til fundar stofnfjáreig-
enda 12. ágúst næstkomandi.
Þar verða þessi mál tekin fyrir.
Stjórn SPRON segir fimmmenn-
ingana og Búnaðarbankann
vekja væntingar hjá stofnfjár-
eigendum sem ekki standist lög.
Jón Steinar segir stjórnina
segja hvítt, svart og svart hvítt.
Ef eitthvað er eru menn
hvassyrtari eftir úrskurð en
fyrir.
Niðurstaða Fjármálaeftirlits-
ins er sú að tryggja verði þann
90% hlut sem er utan stofnfjár-
eignar við slík viðskipti. Verði
að fara fram endurmat á verð-
mæti sjóðsins við hlutafélaga-
væðingu. Verði það verðmat að
byggja á stöðu eignarhalds og
forsendum í rekstri við breyttar
aðstæður. Telur Fjármálaeftir-
litið að í tilboði fimmmenning-
anna felist vísbending um heild-
arverðmæti. Stjórn SPRON
túlkar þessa niðurstöðu þannig
að verði tveir milljarðar greidd-
ir fyrir stofnfjárhlutinn sem er
10% komi til 18 milljarðar fyrir
afganginn. Jón Steinar Gunn-
laugsson telur þessa túlkun frá-
DEILUR MAGNAST
Túlkun aðila deilunnar I SPRON er jafnvel ólíkari eftir niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins en hún var fyrir.
Boðað hefur verið til fundar stofnfjáreigenda í ágúst.
leita. Fjármálaeftirlitið telji að
nýtt verðmat þurfi að fara fram,
en upphæðirnar séu út í hött.
Það verðmat verði að vera í
samhengi við mat á sambærileg-
um fyrirtækjum.
Fjármálaeftirlitið felst ekki á
að fundur stofnfjáreigenda geti
beint því til stjórnar að hún stan-
di ekki gegn framsali. Hvert er-
indi verði að afgreiða útaf fyrir
sig. Jón Steinar segir þessa nið-
urstöðu ekki koma á óvart. Það
hafi legið fyrir að vafi væri um
þetta atriði. Fjármálaeftirlitið
tekur ekki endanlega afstöðu til
málsins í álitinu, en segir að end-
anleg niðurstaða ef eftir henni
verði leitað, muni byggjast á því.
Páll Gunnar Pálsson, forstöðu-
maður Fjármálaeftirlitsins vildi
ekki tjá sig um ágreiningsatriðin
á þessu stigi málsins.
haflidi@frettabladid.is
Baugur og Jim Schafer
Vísa fullyrðingum forstjórans á bug
viðskipti Forsvarsmenn Baugs
vísa á bug yfirlýsingum Jim
Schafer, fyrrverandi forstjóra
Bonus Stores. Forsvarsmenn
fyrirtækisins segja ástæður
brottrekstrar Schafer vera að
hann stofnaði ásamt öðrum fyr-
irtæki sem keypti innréttingar á
uppboðum og seldi þær síðan
Bonus Store. Tryggvið Jónsson
forstjóri Baugs og stjórnarfor-
maður Bonus Stores segir þessi
viðskipti í hæsta máta óeðlileg.
DEILT UM BROTTREKSTUR
Forsvarsmenn Baugs vísa ásökunum Jim
Schafer á bug. Þeir segja hann hafa brotið
trúnað með því að hagnast á viðskiptum
þar sem hann sat báðum megin borðsins.
í - m v.: li'-
1 SBBiiB
Schafer hefur haldið því fram
að Jón Ásgeir Jóhannesson,
stjórnarformaður Baugs hafi
vitað um fyrirtækið. Þessu vísar
Jón Ásgeir á bug. Hann segist
fyrst hafa vitað af því þegar
Tryggvi hafi sagt sér frá því í
mars síðastliðnum. Tryggvi seg-
ist ekki hafa vitað um viðskipti
fyrirtækisins við Bonus Stores
fyrr en í maí.
Tryggvi segir að fullyrðingar
Schafers um að reynt hafi verið
að slá ryki í augu hlutafa með
því að láta líta út fyrir að fyrir-
tækið gangi betur en raun er séu
rangar. Áætlanir fyrirtækisins
standist og sé engin ástæða til
að gera breytingar á þeim. ■