Fréttablaðið - 20.07.2002, Blaðsíða 11
LAUGARUDAGUR 20. júlí 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
11
Frakkar hafa ráðið nýjan knattspyrnuþjálfara:
Santini ráðinn
landsliðsþjálfari
Opna breska
meistaramótið:
Vallarmet
á Muirfield
GOLF Skoski kylfingurinn Colin
Montgomerie setti vallarmet á
Muirfield golfvellinum á Breska
opna meistaramót-
inu í gær, öðrum
degi mótsins, þegar
hann lék á 64 högg-
um sem er 7 högg-
um undir pari. Sá
árangur heldur hon-
um enn inni í keppn-
inni um titilinn „Þetta er mikið
betri árangur en í gær og ég er
himinlifandi yfir þessu. Nú verð
ég bara að halda mínu striki,"
sagði Montgomerie í gær. ■
KNATTSPYRNA Jacques Santini, hef-
ur verið ráðinn landsliðsþjálfari
Frakka og tekur hann við af Roger
Lemerre sem var rekinn fyrr í
mánuðinum eftir að liðið þurfti að
sætta sig við lélegasta árangur
síðustu heimsmeistara á HM í
knattspyrnu. Forseti franska
knattspyrnusambandsins, Claude
Simonet, sagði í gær að Santini
væri ætlað að endurbyggja frans-
ka landsliðið eftir hneykslið á
HM, þar sem liðið hvorki vann
leik né skoraði eitt einasta mark.
Santini er fimmtugur að aldri
og lék áður með franska liðinu
Saint-Etienne. Hann var valinn úr
hópi fjögurra sem komu til greina
í starfið. Hinir þrír voru Raymond
Domenech þjálfari ungmennaliðs
frakka, Philippe Troussier fyrr-
verandi landsliðþjálfari Japana
og Rene Girard sem var aðstoðar-
þjálfari hjá Lemerre.
Santini sem þjálfaði Lyon á
síðasta keppnistímabili þegar
þeir unnu frönsku 1. deildina,
sagðist í gær vera fullur eftir-
væntingar að takast á við verk-
efnið. ■
JACQUES SANTINI
„Ég er mjög spenntur að takast á við verkefn-
ið og er sannfærður um að mér takist að rifa
liðið upp úr lægðinni," sagði Santini i gær.
LANCE ARMSTRONG
Armstrong heldur gulu treyjunni sem efsti
maður heildarkeppninnar. Fátt virðist geta
komið í veg fyrir sigur hans fjórða árið í röð.
Tour de France
hjólreiðakeppnin:
Góð staða
Armstrong
tour de france Eins og við var að
búast hefur hinn þrítugi Texasbúi
Lance Armstrong nú forystu eftir
hinn erfiða 12. áfanga Tour de
France hjólreiðakeppninnar.
Armstrong er sigurvegari keppn-
innar síðustu þrjú árin. Tveir síð-
ustu áfangarnir hafa verið fjalla-
leiðir en á þeim þykir Armstrong
afar öflugur. Eftir sex klukku-
stunda stífar hjólreiðar í Pyrenea-
fjöllunum kom Armstrong einni
mínútu á undan næsta manni í
mark. „Ég þekki þessa fjallaleið
mjög vel, hún er í næsta nágrenni
við heimili mitt,“ sagði Arm-
strong eftir að hafa nánast sprett
upp á topp. Hann býr hluta ársins
í Gerona á norður Spáni. Hann
vildi ekki vera of sigurviss eftir
keppnina í gær og sagði, „Það eru
enn eftir erfiðir áfangar og ekkert
útilokað að við verðum fyrir ein-
hverjum áföllum. Annars var
þetta sigur liðsheildarinnar, liðið
okkar stóð sig frábærlega." ■
Formúlan er mikill
slagur um tækni
Michael Schumacher gæti tryggt sér heimsmeistaratitil í Formúlunni um helgina. Sverrir
Þóroddsson Formúlufrömuður, segir þetta ekki síður keppni um bestu bílana en ökumennina.
kappakstur Ellefta Formúlu eitt
keppni ársins fer fram í Frakk-
landi á sunnudag. Þjóðverjinn
Michael Schumacher, hefur unnið
sjö þeirra, Rubens Barrichello
samherji hans í Ferrari liðinu eina
og David Coultard og Ralph
Schumacher, bróðir Michaels,
eina hvor. Ökumenn eru tveir og
tveir saman í liðum. Ef
Schumacher vinnur um helgina
og hvorki félagi hans Barrichello
né Juan Pablo Montoya í BMW
Williams liðinu, verða í öðru sæti,
verður hann heimsmeistari í
fimmta sinn og jafnar þar með
met Argentínumannsins Juan
Manuel Fangio, frá því um miðja
síðustu öld.
Sverrir Þóroddsson „formúlu-
frömuður" er eini íslendingurinn
sem hefur tekið þátt í Formúlu
keppni. „Þó Williams-liðið sé mjög
gott er Schumacher er líklega
*
SVERRIR ÞÓRODDSSON
Sverrir æfði kappakstur í Bretlandi og á
Ítalíu í sex ár meira og minna frá árinu
1964. „Ég vil endilega að ungir menn á fs-
landi fari að láta eitthvað að sér kveða i
íþróttinni."
bæði mesti ökumaðurinn og á
besta bílnum, sem er mjög vel
heppnaður hjá Ferrari, ekki síst
vegna dekkjanna en Bridgestone
þykja þau bestu í dag.“ Sverrir
segir menn á vegum bílaframleið-
endanna stöðugt vera að vinna að
endurbótum á bílunum sem eru
aðeins tveir í keppni hverju sinni,
en þrír til fjórir til vara. „Willi-
ams-fyrirtækið er til dæmis með
400 manns í vinnu á vöktum við að
endurbæta bílinn og 350 manns
sem aðeins vinna við mótorinn.
Það er hvergi eins mikill slagur
um tækni eins og í þessari grein
enda velta sum fyrirtækin um 30
milljörðum á ári.“ Sverrir segir
bílana tekna alveg í sundur eftir
hverja keppni, skipt um hluti og
síðan setta saman aftur. Einnig er
skipt um mótor eftir hvert sinn,
líka eftir tímatökuna degi fyrir
keppnina sjálfa. „Það eru um 60
mótorar til taks fyrir þessa tvo
bíla og þetta er alveg hrikalega
dýrt.“
En telur Sverrir að
Schumacher tryggi sér titilinn um
helgina?
SPENNA I FRAKKLANDI
Úrslitin í Formúlunni geta ráðist f
Frakklandi á morgun þannig að hugsanlegt
er að Schumacher hampi bikarnum.
„Það getur allt gerst. Ferrari
liðið er sigurstranglegt en ég á
allt eins von á að Montoya fari
með sigur af hólmi. Hann er
geysilega áræðinn ökumaður, eins
og reyndar Schumacher líka. Það
er munurinn á þeim bestu og hin-
um miðlungs að þeir hika aldrei,
þeir eru svo agressífir í ná-
vígjum," segir Sverrir að lokum.
bryndis@frettabladíd.is
Hvernig er annað hægt? NÓGT
NÝJARVÖRUR DAGLEGA! opið alladagaki. 12-19
POPP-ROCK og HEIMSTÓNLIST - fjölbreytt flóra
TÖLVULEIKIR í úrvali - Dreamcast, Playstation, Gameboy ofl.
DVD myndir °9 myndbönd - kvikmyndir og tónlist
\