Fréttablaðið - 20.07.2002, Blaðsíða 6
FRETTABLAÐIÐ
20. júlí 2002 LAUCARDAGUR
17. - 20. október og 7. ■ 10. nóvember
Prag
Verð á manrt i tvibvn ; ", r.c ur
Innifalið: Flug. gistiug á City Cunre * * *
nieö murgnnverði. flugvallarskattnr
og islensk fararstjórn.
3., 10. og 25. október
14., 21. og 28. nóvember
31. október - 4. nóvember*
Dubíin
Verð á mann í tvibýli í 3 nætur
44,195i„
Verð á mann í tvíbýli í 4 nætur’
Innifalið: Flug, gisting á Bewleys ***
með morgunverði, flugvallarskattar
og íslensk fararstjórn.
3.. 10. 17., 24. og 31. október
7., 21. og 28. nóvember
Glasgow
Verð á mann í tvibýli i 3 nætur
41.815,„
Innifalið: Flug, gisting á Holiday Inn ****
með morgnnverði, flugvallarskattar
og íslensk fararstjórn.
www.plusferdir. is
HMðasmára 15 • Sími 535 2100
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra:
Náttúruverndarlögin
tryggja almannarétt
náttÚruvernd „Náttúruverndar-
lögin eru nýleg og menn vilja sjá
hvernig þau reynast, rétt eins og
gerist við alla lagasetningu. Menn
standa nú frammi fyrir þeirri
spurningu hvort náttúruverndar-
lögin frá 1999 reynist vel eða
ekki. Það er ágætt þegar við fáum
ábendingar eða athugasemdir og
sjálfsagt að skoða allt slíkt.
Akvæði laganna um almannarétt
eru hins vegar skýr og eiga að
tryggja rétt almennings til farar
um landið og dvöl þar í lögmætum
tilgangi," sagði Siv Friðleifsdóttir,
umhverfisráðherra.
Flokksbróðir hennar, Ólafur
Örn Haraldsson hvatti hana til að
huga að endurskoðun náttúr-
verndarlaga á komandi haust-
þingi, einkum ákvæða sem snúa
að almannarétti. Ólafur Örn sagði
landeigendur æ oftar loka löndum
fyrir umferð almennings og benti
á dæmi af Vestf jörðum og Austur-
landi. Þar hefði vegum verið lokað
með lásum og för almennings heft
um óbyggða og óræktaða en afar
fallega dali.
„Almannarétturinn_ er mjög
víðtækur í náttúruverndarlögum
en háður takmörkunum að ein-
hverju leyti á eignarlandi. Ef við
fáum upplýsingar um að almanna-
réttur sé ekki virtur, er um brot á
lögunum að ræða. Ef fyrir liggur
að ákvæðin um almannarétt eru
ekki nógu skýr eða að þau tryggja
rétt almennings ekki eins og til
SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR,
UMHVERFISRÁÐHERRA
Almannaréttur tryggður með nýsamþykkt-
um Náttúruverndarlögum.
var ætlast, þá er eðlilegt að skoða
breytingar á þeim,“ sagði Siv
Friðleifsdóttir. ■
E1 Nino er góðar
fréttir á Islandi
Hlýsjávarstraumurinn E1 Nino veldur því að dregur úr ansjósuveiðum við Suður-Ameríku.
Framboð á mjöli minnkar og verð hækkar. Góðar fréttir fyrir uppsjávarfyrirtækin ef vel
veiðist hér við land.
mjölfraivileiðsla E1 Niflo mun láta
á sér kræla undir lok árs, ef
marka má vísindamenn. E1 Niflo
er hlýsjávarstraumur sem hefur
þau áhrif að
ansjósa sem veidd
, uarð er í miklum mæli í
,. 9 Perú °8 1 Chile
f'skimjöli og jeitar á önnur mið,
verð hækkaði. þar sem erfiðara
er að veiða hana.
Vísindamennirnir spá því nú að
straumurinn verði í meðallagi eða
undir því. Síðast þegar E1 Niflo lét
á sér kræla var hann talsvert
kröftugur. Þá varð skortur á
fiskimjöli og verð hækkaði. Atli
Rafn Björnsson hjá greininga-
deild íslandsbanka segir að þetta
séu góðar fréttir fyrir mjölút-
flutning íslendinga. Fleiri þættir
hafi þó vissulega áhrif á afkomu
greinarinnar.
Fréttirnar af E1 Niflo urðu til
þess að mjölframleiðendur
minnkuðu framboð og verð
hækkaði. Atli Rafn segir að
ákveðin hætta sé á því að þegar
verðið hækki mikið að fiskeldis-
fyrirtæki sem eru stærstu kaup-
endur að fiskimjöli og lýsi auki
hlut sojamjöls og jurtaolía í fóðr-
inu. Mjölverð er sögulega hátt
um þessar mundir og því ekki
víst að svigrúm til hækkunar sé
mjög mikið.
Mikill uppgangur var hjá ís-
lensku uppsjávarfyrirtækjum á
árunum 1997-1998 en þá var E1
MIKIL LOÐNA
Horfur á mjöl og lýsismörkuðum eru góðar. Einkum ef El Nino lætur á sér kræla. Verð á mjölmörkuðum er gott um þessar mundir.
Nino í hámarki. Á þeim tíma
jókst notkun á jurtaafurðum í
fiskeldi. Reynslan af því var ekki
nógu góð og eldisfiskar reyndust
viðkvæmari fyrir sjúkdómum. Sú
reynsla kann að valda því að þol
framleiðenda gagnvart verð-
hækkunum verði meira. Atli
Rafn bendir á að erlendis hafi
mörg fiskeldisfyrirtæki brugðist
við sveiflum með kaupum á fiski-
mjölsverksmiðjum. Greininga-
deild
íslandsbanka hefur bent á að
heppilegt væri að fækkar fiski-
mjölsverksmiðjum hér á landi og
auka hagkvæmni. Atli Rafn segir
Samherja vera í lykilaðstöðu í
þeirri þróun. Fyrirtækið hafi ný-
lega keypt hlut bæði í Síldar-
vinnslunni og SR mjöli. Hann seg-
ir jafnframt að ef hagrætt verði í
greininni, veiði haldist góð og E1
Niflo láti á sér kræla sé bjart
framundan hjá uppsjávarfyrir-
tækjum.
haflidi@frettabladid.is
I fremstu röð hvað varðar upplýsingatækni:
100 nýjar tölvur í
grunnskóla Garðabæjar
SAMNINGUR
UM TÖLVU-
KAUPIN UND-
IRRITAÐUR
Ætlunin að
Grunnskólar
Garðabæjar verði
áfram í fremstu
röð hvað varðar
upplýsingatækni
og notkun henn-
ar í skólastarfi.
skólamál Bæjarstjóri Garðabæjar
og forstjóri Nýherja skrifuðu ný-
lega undir samninga um kaup og
leigu á 97 nýjum tölvum fyrir
grunnskóla Garðabæjar ásamt þjón-
ustu og nánu samstarfi á sviði upp;
lýsingatækni innan bæjarins.YÍ
grunnskólum Garðabæjar er lögð
mikil áhersla á að nýta upplýsinga-
tækni í öllu skólastarfi. Allir kennar-
ar hafa fartölvu til afnota og eiga
kost á að sækja námskeið í upplýs-
ingatækni. Á síðasta ári voru keypt-
ir fartölvuvagnar sem hægt er að
nota í öllum kennslustofum sem
þýðir að hægt er að nota tölvurnar
við kennslu í ólíkum námsgreinum.
Nýju tölvurnar eru framhald á þess-
ari tölvuvæðingu skólanna.
Tölvurnar eru nýttar við kennslu
allt frá 1. bekk og upp í 10. bekk. All-
ir kennarar skólanna eru í raun
tölvukennarar og markmiðið er að
tölvur verði sjálfsagt hjálpartæki
við nám og kennslu í flestum náms-
greinum. Með tölvukaupunum nú er
stefnt að því að viðhalda þeirri stöðu
sem Grunnskólar Garðabæjar hafa
náð á undanförnum árum sem skólar
í fremstu röð hvað varðar upplýs-
ingatækni og notkun hennar í skóla-
starfi. ■
ORDRETT
CÓÐUR
BISSNESS
Ég verð að fara
fram á hundruð
milljóna í
skaðabætur því
það er sá skaði
sem ég verð
fyrir.
Ásgeir Davíðsson, Geiri á Maxim's.
Fréttablaðið, 18. júlí.
EKKI BEST EIGIN SKROKKI?
Við vitum sjálfar að kremið virk-
ar en það er miklu skemmtilegra
að heyra það frá konum úti í
þjóðfélaginu.
Kristín Pálsdóttir um fullnægingar-
kremið Viacreme. DV. 18. júlí.
I ATHUGASEMD I
au mistök urðu í blaðinu í
gær að birt var gömul auglýs-
ing frá Rafkaup þar sem auglýst-
ur var afsláttur af öllum vörum.
Slíkt var ekki í boði í gær og er
beðist velvirðingar á mistök-
unum.