Fréttablaðið - 20.07.2002, Blaðsíða 13
20. júlí 2002 LAUGARPAGUR
FRETTABLAÐIÐ
u
REGnBOGinn
Sýnd kl. 4.30, 6.30, 8.30 og 10.30
UNFAITHFUL
STAR WARS
kl. 5.20
Synd kl. 6, 8 og 10
kl. 8 og 10.10
SPIDERMAN
kl. 5.30
kl. 8 og 10.30 j jPANlC ROOM
DClDolby JOOJ..... THx
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10
í SVÖRTU
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10
jVAN WILDER kl. 2, 4, 6, 8 og 10
á lífi. Livia
Soprano, móðir
Tonys, var ein af
lykilpersónum
fyrstu þáttanna.
Leikkonan Nancy
Marchand, sem
fór með hlutverk
hennar, lést eftir
aðra þáttaröðina.
Skosku snillingarnir í Belle og
Sebastian hafa undirritað
samning við Rough Trade fyrir-
tækið. Hljómsveitin er sú stærs-
ta sem hið nýstofnaða Rough
Ti-ade America hefur gert samn-
ing við í Bandaríkjunum. Belle
og Sebastian eru nú á hljóm-
leikaferð í Evrópu og vinna þess
á milli að gerð nýrrar plötu. Stu-
art Murdoch, úr hljómsveitinni,
segir að tími hafi til kominn til
að reyna eitthvað nýtt. Útgáfan
Jeepster and Matador hafi hent-
að hljómsveitinni vel, en nú hafi
verið tími til kominn að reyna
eitthvað nýtt.
Angelina Jolie er búin að
sækja formlega um skilnað
við Billy Bob Thornton. Hún
lagði fram tilheyrandi gögn fyrir
rétti í Los Angeles á miðviku-
dag. Parið hefur verið gift í tvö
ár. Þau ættleiddu nýverið ellefu
mánaða gamlan dreng Maddox
frá Kambódíu. Jolie sótti um
skilnað sama dag og viðtal birt-
ist við hana í US Weekly. í við-
talinu ræddi hún erfiðleikana í
hjónabandi þeirra hjóna. Þær
fréttir fóru sem eldur í sinu um
heimsbyggðina.
Pierce Brosnan verður fyrir-
mynd James Bond í nýjum
tölvuleik sem fyrirtækið Elect-
ronic Arts setur á
markað í haust.
Leikurinn ber
heitið James
Bond 007: Night-
Fire. Hann gerist
á tíu mismunandi
stöðum um heima
og geima. f hon-
um bregður fyrir
ýmsum óþokkum eins og vera
ber auk þess sem Bond stúlkur
úr gömlum James Bond mynd-
um verða á sveimi. „Við erum
rnjög spenntir yfir því að fá Pi-
erce með í lið með okkur til að
ná sannri Bond stemmingu,“
segir fulltrúi fyrirtækisins.
Lil’ Kim segir að nýja platan
hennar verði ekki eins kyn-
ferðisleg og sú síðasta sem bar
einmitt heitið
Notorious KIM.
Söngkonan er
þegar búin að
semja sjö lög fyr-
ir nýju plötuna.
Hún segir að lög-
in séu sambland
af poppiog r og b
tónlist. Lil’Kim
segir að hún vilji meiri fjöl-
breytni. „Ég er skemmtikraftur,
ég er breytileg og ég er nógu
skapandi til þess að vera hæf til
að gera alls konar tónlist."
B-mynda-
sumarið
ógurlega
I Hollywood róa menn núna óspart á mið hinna
hallærislegu en óborganlegu B-mynda. Hinar
furðulegustu skaðræðisskepnur vekja jafnt hlát-
ur sem ótta bíógesta. Nýju B-myndirnar eru
hins vegar alls ekki ódýrar í framleiðslu.
los ANCELES. ap f eina tíð voru
ódýrar og frekar hallærislegar
bíómyndir kallaðar B-myndir.
Margar þeirra höfðu um leið eitt-
hvað við sig, sem heillaði hörð-
ustu kvikmyndaaðdáendur. Nú
eru menn í Hollywood að gera út
á þann markað.
Kvikmyndasumarið í Banda-
ríkjunum einkennist nefnilega
þetta árið mjög af rándýrum bíó-
myndum, sem líkjast mest gömlu
B-myndunum.
Þetta eru myndir á borð við
„Attack of the Clones",
„Crocodile Hunter og „Scorpion
King“ þar sem skaðræðisskepnur
á borð við geimverur og stökk-
skiptinga af ýmsu tagi koma
mjög við sögu.
Þeir sem búa til þessar mynd-
ir gera sér fulla grein fyrir því að
þær eru hallærislegar og njóta
ekki mikillar virðingar. Þeim er
líka nákvæmlega sama. Það sem
heillar fólk við þessar dýru B-
myndir er einmitt hvað þær taka
sig lítt alvarlega.
„Ég sækist alls ekki eftir virð-
ingu. Mig langar til að skemmta
mér,“ segir Ellory Elkayem, leik-
stjóri og meðhöfundur myndar
sem heitir „Eight Legged
Freaks" og fjallar um risa-
kóngulær sem gæða sér á íbúum
smábæjar í eyðimörkinni. „Ég lít
á það sem hrós að henni sé líkt
við B-myndirnar,“ segir Elka-
yem.
B-myndirnar gömlu fengu
nafnið vegna þess að þær voru
gjarnan sýndar á eftir dýru og
vinsælu myndunum, með stóru
stjörnunum sem drógu fólk í kvik-
myndahúsin. Þá tíðkaðist að sýna
tvær myndir á einu kvöldi og fólk
sat undir því eins og ekkert væri.
ÞESSI KÓNGULÓ ER VARLA KOMIN A
BERJAMÓLeikarinn Rick Overton virðist
ekkert hafa áttað sig á því að risakónguló
er að athafna sig á þaki lögreglubílsins
hans. Úr myndinni „Eight Legged Freaks".
GLÍMT VIÐ KRÓKÓDÍLA f LEÐJUNNI
Ævintýramaðurinn Steve Irwin tekst þarna
á við krókódíl í myndinni „The Crocodiie
Hunter: Collision Course".
Eftir að þessi hefð lagðist að hef-
ur nafnið samt áfram loðað við
ódýrar bíómyndir.
B-myndirnar bera oft furðu-
lega og frekar fáránlega titla á
borð við „The Killer Shrews“,
„Teenagers from Outer Space“
eða „Creatures from the Haunted
Sea“.
Þær taka sig reyndar misjafn-
lega alvai'lega. Sumar eru gegn-
sýrðar fáránleikahúmor, eins og
gamanmynd Tim Burtons „Mars
Attacks" frá 1996 eða hin óborg-
anlega „Attack of the Killer Tom-
atoes“ frá 1978.
En meira að segja Star Wars,
ein vinsælasta og arðbærasta
kvikmyndaröð sögunnar, var með-
al annars gei'ð til heiðurs gömlu
hallærislegu geimmyndunum þar
sem stundum mátti sjá böndin
sem geimskipin héngu í. ■
David Beckham:
Hafnaði hlutverki
í kvikmynd
fólk Fótboltaleikarinn David
Beckham hefur hafnað hlutverki í
kvikmyndinni Red Light Runners.
Fregnir höfðu borist af því að hann
ætlaði að leika leigumorðingja í
myndinni. Hið rétta er að honum
var boðið hlutverk í myndinni, en
hann hafnaði því.
Talsmaður aðstandenda kvik-
myndarinnar segja, að þrátt fyrir
að hlutverkið sem honum var boð-
ið hafi verið mjög lítið, þá hafi
hann ekki viljað taka þátt í kvik-
myndinni.
Hún er framleidd af Michael
Mann, sem lék í Reservoir Dogs,
og leikur hann í myndinni. Madsen
er búinn að ná í annan fótbolta-
kappa til að leika í kvikmyndinni,
Vinnie Jones. Hann er orðinn þaul-
vanur kvikmyndaleikari eftir leik í
nokkrum bíómyndum, þar á meðal
kvikmyndum Guy Ritchie, Lock,
Stock and Two Smoking Barrels og
Snatch.
Madsen er staddur í Bretlandi
um þessar mundir til að safna fé til
framleiðslu myndarinnar. Hann
þarf að tryggja sér átta milljónir
punda fyrir 15. ágúst, og hefur
þegar tryggt sér tvær. Spui'ningin
er hvort það að orða Beckham við
myndina hafi verið sniðug brella
til að vekja athygli á verkefninu? ■
ALLTAF SVALUR
David Beckham hefur ekki áhuga
á kvikmyndaleik, að minnsta kosti
ekki í augnablikinu.
Guy Ritchie:
Tekur ráðin
af Madonnu
fólk Guy Ritchie stóð uppi í hárinu
á sinni heittelskuðu ektakvinnu
þegar hún fór fram á
að klipping myndar
þeirra „Swpt Away“
yrði endurskoðuð.
Ritchie er leikstjóri
myndarinnar og
hafði því síðasta orð-
ið þrátt fyrir að
Madonna sé þekkt
fyrir annað en að láta
ráð yfir sér. Krafa
Madonnu kom fram
vegna þess að myndinni var ekki
sérlega vel tekið af áhorfendum á
nokkrum forsýningum.
Madonna leikur aðalhlutverkið í
myndinni og hafði treyst á að slá í
gegn sem kvikmyndaleikkona í
henni. Guy lætur sér hins vegar
f+átt um finnast og er kominn á
fullt í vinnu við næstu mynd sína. ■
GUY RITCHIE
Veldur greini-
lega hlutverki
sínu.