Fréttablaðið - 20.07.2002, Side 22

Fréttablaðið - 20.07.2002, Side 22
FRÉTTABLAÐIÐ 20. júlí 2002 LAUCARDACUR 1 MEÐ SÚRMJÓLKINnT rjár konur, dökkhærð, rauðhærð og ljóshærð unnu saman á skrif- stofu. Yfir- maður þeirra, kona, hætti alltaf snemma á daginn að vinna. Einn daginn ákváðu konurnar þrjár að gera slíkt hið sama og fara strax á eftir yfirmanninum. Sú dökkhærða fór heim í garðinn sinn, sú rauðhærða á barinn en ljóskan fann eigin- manninn uppi í rúmi með yfir- manninum þegar hún kom heim. „Þetta var alveg frábært,“ sögðu bæði sú dökkhærða og rauðhærða daginn eftir. „Gerum þetta aftur í dag.“ „Kemur ekki til mála,“ sagði ljóskan. „Það munaði engu að það kæmist upp um mig.“ ■ Ný stelpa klukkan 17:53 að verður mikið um dýrðir hjá Bryndísi Jakobsdóttur á morg- un en þá verður hún 15 ára og það er ekki svo lítið. Bryndís er dóttir tónlistar - og listamannanna Jak- obs Frímanns Magnússonar og Ragnhildar Gísladóttur: „Ég held alltaf upp á afmælið mitt og reyni þá að gera eitthvað skemmtilegt," segir Bryndís sem er þó ekki al- veg búin að skipuleggja morgun- daginn. „Ætli ég bjóði ekki krökk- um heim og svo tjillum við og dönsum,“ segir hún. Bryndís var að ljúka sam- ræmdu prófunum frá Hagaskóla í vor og vinnur nú við garðyrkju í Hljómskálagarðinum beint fyrir neðan heimili föður síns sem er á Bjarkargötu. í haust stefnir hún á menntaskólanám í Menntaskólan- um við Hamrahlíð en þangað ætla flestir kunningjar hennar: „Ég valdi Hamrahlíðina því þar getur maður lokið svonefndu IB - námi til stúdentsprófs á aðeins þremur árum. Þar er kennt á ensku en ég vil vera sem best und- irbúin fyrir háskólanám því ég ætla út og draumurinn er að læra dýralækningar í Oxford," segir Bryndís sem er mikill dýravinur Afmæli Bryndís Jakobsdóttir verður 15 ára á morg- un og stefnir á dýralækningar í Oxford. og á einn kött. „Ég átti líka hamst- ur en hann dó. Það var kettinum að kenna,“ segir hún. Þegar Bryndís var yngri var mikið lagt í afmælisveislur henn- ar og eru þær flestar henni ógleymanlegar; hlaðborð og tert- ur og gestir úr öllum áttum. Þannig vill hún líka hafa það. Og það er ekki lítið mál að verða 15 ára: „Þá breytist allt. Klukkan 17:53 verð ég alveg ný stelpa. Ég hlakka til,“ segir Bryndís. ■ BRYNDÍS JAKOBSDÓTTIR Vill tjilla og dansa á afmælisdaginn. | IVIEN NINGARSKOKK f FÓLK í FRÉTTUM KVIKMYNDIN About a boy í Háskólabíói. Einhver besta kvikmynd sem ratað hefur í kvik- myndahús hér á landi svo árum skiptir. Hugh Grant ný- klipptur og betri. Sjaldan heyrst annars eins hlátur í kvikmynda- húsagestum. Handritshöf- undar og aðrir sem að mynd- inni koma hafa augljóslega gengið í smiðju til Woody Allen - og slá honum næstum því við. Tónlistin er meira að segja frábær. GOTT að hita upp fyrir mynd- ina í Vesturbæjarlauginni þar rétt hjá. Veitir ekki af fyrir hláturinn sem í vændum er. Besta eimbað á landinu og bað- verðirnir langt frá því að vera heimaríkir eins og brenna vill við í öðrum laugum. DAGSKRÁNA má svo enda með því að grípa í spil með þeim sem ykkur þykir vænst um. Samræður taka oft óvænta á ánægjulega stefnu yfir spilum. Sérstaklega eftir að rökkva tek- ur. Veitingar vel þegnar. Góða skemmtun. It’s not a bomb but it’s fragile," sagði G. John Pizzey, aðstoðar- forstjóri Alcoa, þegar hann af- henti Valgerði Sverrisdóttur, iðnaðarráðherra, og Friðriki Soph- ussyni forstjóra Landsvirkjunar gjafir í ráðherra- i bústaðnum í gær- morgun. Gjafirn- ar voru forláta blómavasar. Skömmu áður hafði fyrsta spurning Ólafar Rúnar Skúladóttur, fréttamanns Sjón- varps, eftir undirritun viljayfir- lýsingar um 200 milljarða fram- kvæmdir, verið „Getum við feng- ið að vita hvað er í pökkunum?" Svo sem komið hefur fram styttist í það að víkingaskipið íslendingur komi aftur til lands- ins, nú með heimahöfn í Reykja- nesbæ. Ýmsum þykir við hæfi að skipið skuli sigla þangað í örugga höfn til hins nýja bæjarstjóra Árna Sigfússonar. Árni var ávallt mikill áhugamaður um íslending meðan hann sat í borgarstjórn í Reykjavík og áhugi hans ekki nýtilkominn. Því sé við hæfi að maður sem studdi dyggilega við bakið á ævintýrinu í upphafi skuli leiða það til lykta. Katrínu Jakobsdóttur, múr- verja, þykir stjórnendur Rík- isútvarpsins og þeir sem ákvarða stofnuninni fjármagn ekki standa sig sérlega vel þessa dagana. Hún grætur að Spegillinn, Fréttaauki á laugardegi og Auð- lindin hafi öll orðið niðurskurði að bráð. Sérstaklega sé söknuður að Speglinum sem hafi líklega verið besti fréttaskýringaþáttur sem hafi verið boðið upp á hér- lendis. Enda hafi hann að nokkru leyti verið farinn að stela áhorfi frá Stöð 2. Nokkuð sem útvarps- þættir gera ekki oft. Leiðrétting Að gefnu tilefni skal tekið fram að innrétt- ingarnar sem forstjóri Bonus Stores var að selja sjálfum sér tengjast ekki á neinn hátt Innréttingum Skúla Magnússonar. PERSÓNAN Varpar kúlu, glímir og semur ljóð Jóhann Guðni Reynisson, upplýsingastjóri í Hafnarfirði, hefur verið ráðinn sveitarstjóri Þingeyjarsveitar. Jóhann Guðni Reynisson, upp- lýsingastjóri Flafnarfjarðar- bæjar, tekur við starfi sveitar- stjóra í Þingeyjarsveit 15. ágúst. „Ég hlakka gríðarlega til, ég veit alveg í hvaða paradís ég er að fara,“ segir Jóhann Guðni, en hann er kunnugur sveitinni síðan hann kenndi um þriggja ára skeið við Fram- haldsskólann á Laugum. Ann- ars er Jóhann Guðni innfæddur Hafnfirðingur. „Ég fæddist á elliheimilinu Sólvangi,” segir hann skellihlæjandi. „Ég hef verið hér nánast óslitið síðan að slepptum þessum þremur árum fyrir norðan." Jóhann Guðni hefur mikinn áhuga á íþróttum og hefur verið liðtækur í hinum ýmsu greinum. „En ég er sko aðallega „kúluvarpari", segir hann og biður um að það sé sett í gæsalappir. „Ég atti til dæmis kappi við bæjarstjórann á Húsavík um daginn og vann. Nú ætla ég að skora á hann á hér- aðsmóti HSÞ í ágúst.“ Jóhann Guðni fæst ekki til að gefa upp hversu „langt“ þeir félagar vörpuðu kúlunni, en hann hefur líka komið nálægt handbolta, fótbolta og frjálsum og er að byrja að fóta sig í golfinu. „Nú, að ógleymdu því að ég prófaði glímu undir leiðsögn Arngeirs Friðrikssonar í Reykjadal og aldrei að vita nema við tökum upp þráðinn. Jóhann Guðni er hæfileikaríkur ungur maður og er í þann veginn að gefa út ljóðabók. „Ég byrjaði einmitt að yrkja á Laugum og hef hald- ið því áfram með hléum, og nú JÓHANN GUÐNI REYNISSON Segist munu sakna Hafnfirðinga þótt hann sé fullur tilhlökkunar að takast á við ný verkefni. koma ljóðin fyrir almennings- sjónir. Jóhann Guðni átti líka hátíðarljóðið sem fjallkonan í Hafnarfirði, Brynja M. Dan Gunnarsdóttir, flutti á þjóðhá- tíðardaginn og er mjög stoltur af, en Brynja var nemandi Jó- hanns í Öldutúnsskóla. Áður en alvaran tekur við í Þingeyjarsveitinni ætlar Jó- hann Guðni að taka tveggja vikna frí. „Þá fikra ég mig af stað norður með tjaldvagninn og skoða landið í leiðinni.” Með í för verða eiginkona hans, El- ínborg Birna Benediktsdóttir, og tvær dætur þeirra, ína Björk og Hugrún. „Þær eru mjög spenntar, eins og við erum öll,“ segir nýi sveitar- stjórinn að lokum. edda@frettabladid.is hAþrýstiþvottur við seðlabankann Þessa dagana er verið að undirbúa málningarvinnu við Seðlabankann. Áður en hafist er handa við að mála húsnæðið þarf að háþrýstiþvo það. Eins og við er að búast er það gríðarmikið verk að háþrýstiþvo alla bygginguna enda ekki í smærra lagi. SAGA DAGSINS '20. JULI Arið 1783 var hin svokallaða eldmessa á Kirkjubæjar- klaustri. Meðan séra Jón Stein- grímsson messaði í Klaustur- kirkju stöðvaðist hraunstraumur Skaftáreldua stutt frá kirkjunni. Aþessum degi árið 1968 var skrúfað frá vatnsleiðslu sem lögð hafði verið frá bænum Stóru Mörk undir Eyjafjöllum til Vest- mannaeyja. Arið 1969 komu fyrstu menn- irnir til tunglsins. Það voru banda- rísku geimfararnir Neil Armstrong og Edwin Aldrin. Þriðji geimfarinn, Michael Collins, beið um borð í geimfari á braut umhverfis tunglið meðan Arm- strong og Aldrin fengu sér göngutúr á yfirborði tunglsins. TÍMAMÓT JARÐARFARIR______________________________ 13.00 Jóhann Lúðvíksson, fýrrum vega- vinnuverkstjóri, Kúskerpi, Skagafirði, verður jarðsunginn frá Sauðárkróks- kirkju. 14.00 Óskar Sövik verður jarðsunginn frá Blönduóskirkju. 14.00 Þorbjörg H. Pálsdóttir, áður til heim- ilis á Oddabraut 23, Þorlákshöfn, verður jarðsungin frá Þorlákskirkju í Þorlákshöfn. 14.00 Þórólfur Beck Guðjónsson, Grundar- götu 53, Grundarfirði, verður jarð- sunginn frá Grundarfjarðarkirkju. 14.00 Þórsteinn Sigurgeirsson, Mannsi á Gautlöndum, verður jarðsunginn frá Skútustaðakirkju. AFMÆLI___________________________________ Teiknarinn Brian Pilkington er 52 ára í dag. ANDLÁT___________________________________ Anna Halldórsdóttir, Sólhlíð 7, Vestmanna- eyjum, lést 17. júlí. Elín Jónasdóttir, Sóltúni 2, Reykjavík, lést 17. júlí. Þorbjörn Sigmundur Sigfússon, Grundar- tanga 34, Mosfellsbæ, lést 16. júlí. Jón Brynjólfsson, vélaverkfræðingur, Báru- götu 20, Reykjavík, lést 9. júli.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.