Fjallkonan


Fjallkonan - 03.04.1895, Qupperneq 1

Fjallkonan - 03.04.1895, Qupperneq 1
Kemr út um miðja yiku. Arg, 8 kr. (erlendii? 4kr.). Auglýeingar mjög ódýrar Gjalddagi 15. júli. Tpp- sðgn ekrifieg (yrir 1. okt. Afgr.: Þingholtsstr, 18. FJALLKONAN. XII, 14. Reykjavík, 3. apríl. 1896. Útlendar fréttir. Khöfn 14. marz. Hér hefir verið regluleg vetrarveðrátta, snjóalög all- niikil, frost og ísalög. Possi tíð hefir staðið síðan um miðjan janúar. Pað hefir komið hér 15° frost, oger það eigi alUítið, ef gætt er að því, að Kaupmannahöfn er hálft annað hundrað mílum sunnar enn Reykjavík. Eystrasaltið er hálfiult af lagnaðarís, og Eyrarsund, Stóra- og Litla-belti eru illfær sökum isa. Einkum eru skipaferðir um Eyrarsund erfiðar, og algerlega hefði það verið ófært, ef eigi hefði menn ísbrotaskip, er vakar skipunum leið. „Laura“ var látin fara til Kristjánssands frá Granton, er hún kom núna frá ís- landi, og sótti loks ísbrotaskipið hana norðr til Kull- en. Yóru þá allir farþegar farnir úr henni, enn bréf og bögglar vóru sendir landleið suðr í Svíþjóð, og kom það eigi hingað fyr enu á eftir „Laura“. Seinustu dagana er Eyrarsundið orðið svo ilt viðfangs, að ís- brotsskipið fær litlu áorkað, og verðr því eigi séð, hvenær póstskipið fer héðan. Eystrasaltið er mjög snautt af salti. Orsakast af því isalög, þótt eigi séu mikil frost. Járnbrautaferðir hafa verið allerfiðar sökum snjóalaga. Enn vetrarharðindin eru víðar enn hér. Á Frakklandi og Ítalíu hefir þannig komið snjór mikill og frost. Forsetaskifti urðu í Frakklandi 15. jan. eins og áðr er getið um í Fjallk. Casimir Perier sagði af sér forsetatigninni. Barði haun við því, að hann gæti eigi þegjandi setið hjá, er beztu menn þjóðar- innar væru svívirtir á allar lundir, og forseti ríkis- ins væri varnarlaus gegn öllum árásum. Dupuys- ráðaneytið hafði velzt úr völdum rétt á undan, og eigi var neitt nýtt ráðaneyti myndað. Menn vóru því eigi óhræddir um, að einhver vandræði mundu hljótast af aðgerðum forseta. Þótti þetta bera vott um staðfestuleysi og gunguskap hans. Fékk hann ávítur miklar í frönskum blöðum, jafnt hjá flokks- mönnum sínum sem mótstöðumönnum, og vildu sum- ir jafnvel draga hann fyrir lög og rétt fyrir tiltækið. Seinna hefir þess verið getið í frönskum blöðum, að aðalorsökin til þess, að Perier fór frá völdum, hafi verið sú, að ráðaneytið hafi sýnt svo mikið ein- ræði í stjórnmálum, að það hafi eigi einusinni skýrt forsetanum frá ýrasum stórmálum, og þannig þegjandi gert ýmsar ákvarðanir, án þess að forseti þjóðveldis- ins fengi færi á að kynna sér þær áðr. Telja menn það gerræði mikið af ráðaneytinu, enn kjarkleysi af Casimir Perier að láta slíkt viðgangast. Kosningar fóru fram 17. jan. í Versölum. Þrír vóru í kjöri, Waldeck-Rousseau, ötull stjórnmálamaðr af flokki hinna íhaldssamari þjóðveldismanna, Felix Favre, flotaráðgjafi, og Brisson foringi vinstrimanna og forseti fulltrúadeildarinnar. Brisson hefir hvað eftir annað kept um forsetatignina, enn jafnan borið lægra hlut. Nú hugðu menn, að betr mundi takast. Vinstrimenn fylgdu honum allir að málum og einnig jafnaðarmenn. Við fyrstu atkvæðagreiðslu veitti hon- um og betr, enn fékk eigi nógu mörg atkvæði. Wal- deck-Rousseau fékk fæst atkvæði, og gengu þá kjós- endr hans í flokk með Felix Favre, því Brisson vildu íhaldsmenn ekki velja. Fór þá svo, að Felix Favre var kjörinn með 430 atkv., enn Brisson fékk 361 atkvæði. Felix Favre er 55 ára gamall. Er hann lítt kunnr, hvað stjórnarstefnu hans snertir. Þó ætla menn, að hann fylgi fram stefnu hinna gæflyndari þjóðveldis- manna. Hann er af lágum stigum. Hefir hann auðg- ast af kaupskap (skinnaverzlun) og skipaútvegi í Havre. Hann var kominn um fertugt, er hann fór að gefa sig við stjórnmálum. Hefir hann á seinni árum haft ýms stjórnarstörf á höndum, er snerta fjár- mál og siglingar. Var þannig flotaráðgjafi í Dupuys- ráðaneytinu, og þykir hann hafa leyst þau störf vel og vandlega af höndum. Það orð fer af Felix Favre, að hann sé vandaðr maðr og samvizkusamr, og það hefir óefað ráðið baggamuninn við kosningarnar, enn þó einkum það, að hann aldrei hefir verið ákafr flokksmaðr. — í ávarpi hans til þings og þjóðar er ekkert nýstárlegt. Kveðst hann sérstaklega láta sér hugað um verzlun og verklegar framfarir, enn forð- ast muni hann að fylgja nokkurum sérstökum flokki að máium. Vináttu við stórveldi Norðrálfunnar muni hann efla, enn her og floti Frakka muni verja sóma fóstrlandsins, ef á sé leitað. Nú var eftir að velja nýtt ráðaneyti. SneriF&vre sér fyrst til eins af foringjum vinstrimanna í neðri deildinni, Bourgois, og bað hann að mynda nýtt ráða- neyti. Þrátt fyrir margítrekaðar tilraunir tókst Bour- gois eigi að fá þá merin er hann vildi í ráðaneytið með sér. Var Ribot, er forseti var utn stund á Panama-tímanum, falinn sá starfi á hendr, og tókst það. Hin nýja stjórn lét þegar bera upp frumvarp á þinginu um uppgjöf pólitískra saka, og var það sam- þykt. Þá voru og meðal annars Henri Rochefort gefnar upp sakir. Hann lieíir um mörg ár haldið til í Englandi; flýði hann þangað undan dómi. Hann var einn af aðalfylgifiskum Boulangers; er skarpvitr maðr, enn eigi er þeim vært, er verða fyrir árásum hans. Hann er ritstjóri og eigandi blaðs í París, er heitir „Intransigeant“, og þangað hefir hann daglega sent hinar bitrorðu greinar sínar, og miskunnarlaust hefir blað hans veitt stjórnmálamönnum einatt þau holundarsár, er þeir aldrei hafa beðið bætr á. Engiand. Enska ráðaneytið hefir staðið á völtum fæti. Rosebery er eigi jafn-sýnt um að halda sam- an hinum ýmsu flokkum framsóknarmanna sem öld- ungnum Gladstone. írarnir hafa reynzt honum ó- tryggir, og jafnvel Labouchére, sem er einn af hin- um æstustu framsóknarmönnunum á Englandi, hefir verið ráðaneytinu erfiðr viðfangs. í umræðunum um ávarp drotningarinnar til þingsins, er sett var 5. febr., dundu ávíturnar á stjórnina úr öllum áttum.

x

Fjallkonan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.