Fjallkonan


Fjallkonan - 03.04.1895, Qupperneq 5

Fjallkonan - 03.04.1895, Qupperneq 5
XII 14 FJALLKONAN. 57 svo djarfr að kveðja þá með tveim alþektum hend- ingum úr rímnavísu: „Skjóttu geiri þínum þangað, sem þörfln meiri fyrir er“. Kaupmannahöfn, 24. febr. 1895. Jón Jónsson, frá Múla. Rit Br. Kr.: „Fjársölumáliö ll“. Nokkuvar athugasemdir. Eftir Jón Jónsson frá Móla. Ég skal fyrst geta þess, að höfundrinn hefir eigi gert mér það létt, að fá að sjá ritlinginn; það er ekki honum að þakka, að ég hefi náð í slitr af hon- um. — Eins og allir vita, er rítið mestalt dylgjur og óhróðr um L. Zöllner, Jón Yídalín og mig. Enn engum okkar sendi hann eða ritstj. það, og kaupa þeir Z. og V. þó blaðið. Heiðarlegum mönnum og drenglyndum fel ég að dæma um þessa aðferð. — Ég náði nú samt í ritið og hefi lesið það rækilega. Mig langar til að gera við það nokkurar athugasemdir. Ekki dettr mér í hug að taka ritgerðina grein fyrir grein; það yrði alt of Iangt, þar sem hún er 35 kapítular. Enn ég hef flokkað eínið dálítið og skift henni niðr eftir því- Meiri hluti hennar — sumt er náttúrlega meinlaust — heyrir, að mér finst, undir þessa 6 flokka: ósannindi, útúrsnúninga, fjar- stæður, ótrúlegt, fávíslegt og dylgjur. — Ég ætla að telja nokkur dæmi af hverju fyrir sig og minnast lítið eitt á þau um leið. Ósannindi. Á þrem stöðum, í 6. 10. og 28. kap. segir höf. að Z. hafi áðr notað skip það, „Princess Alexandra“, sem Björn nú hafði og að Z. hafi þá mist svo og svo margt fé. Af því ályktar hann svo og þykist sannað hafa, að hann kunni eins vel að leigja og „innrétta“ skip til fjárflutninga sem Zöllner. Pessi ályktuu verðr nú samt lítilsvirði, þegar þess er gætt, að það er með öllu ósatt, að Z. hafi nokkurntíma notað þetta skip. í 14. kap. segir, að sala á fé Björns hafi verið „fult eins góð og öllu betri enn sala B,. & D. Slimons og Franz“. — Þetta er ósatt. Saia Slimons á hinum fyrra farmi var slæm, enn þó betri enn Björns; enn hinu síðara farm sinn seldi Slimon þolanlega. Fé Franz seldist alt þolanlega; það sem gerði honum tjón var missirinn á leiðinni. — Það er hvergi sagt i greinunum í Fjallk., Þjóðólfi eða Þjóðv. „að Slimon hafi í hæsta lagi fengið 10 kr. fyrir hverja kind að frádregnum kostnaði fyrir þessi 11000, sem hann flutti út“, eins og B. segir í 25. kap. 10. tölul., og er það furðu djarft af honurn að bera það fram, að slík ummæli standi í greinum okkar í nefndum blöð- um, þar sem það er hæfulaust. Þó leyfir hann sér að draga ályktanir af því. — Þessi framburðr Björns hefir lika orðið til þess, að Guðmundr Einarsson (ísf. 22. des. 94) byggir á hinu sama og fær út sömu á- lyktanir og Bjöin. — Tvent smávegis get ég um leið sagt, sem gerir þessa sölu Björns, og þá eigi síðr frásögn hans um hana, ennþá merkiiegri. Daginn áðr enn Björns fé var selt, var selt norskt fé í Edinb. og seldist mjög vel, svo vel, að þegar samstundis var telegraferað þaðan til Newcastle, þar sem þá eiu- mitt var verið að selja fé Dalamanna og Riis kaup- manns á Borðeyri; þá hækkuðu kaupendr undir eins boð sín, er fregnin kom frá Edinb. um sölu norska fjársins. — Ég var sjónar og heyrnarvottr að þessu. — Svona var verðlagið í raun og veru í Edinb. þá dagana. — Annað er það, að Slirnon keypti talsvert af fé Björns; hann hefir líklega haldið, að hann muudi ekki skaðast á því. — Þó segir Björn, að hans fé hafl selzt öilu betr enn Slimons, og í öðrum stað hæðist hann að því, að ’Þjóðviljinn’ hefir sagt, að það væri ekki fyrir viðvaninga að selja fé í Engiandi. — Björn hallar auðsjáanlega allri frásögninni til að sýna hans góðu hæfileika til að sjá um fjársölu. — Rök- færslan hjá B. er þessi: ’Z. hefir ekkigetað seit betr eun Slirnon, þar sem Si. ergamalvaur; ég seldi eins vel og Sl., þess vegna er ég eins fær til að selja og Zöliner’. Enn sá ólukku hængr er á, að grundvöllr rökfærsluunar er slæmr: eintórn ósannindi, þar sem Björns fé seldist miklu ver enn Slimons þegar á ait er litið, og Zöllner seldi aftr miklu betr enn Siimon. í 33. kap. segir B., að Z. hafi orðið að hætta við uppboð á einum farminum. og gefr svo í skyn, að það fé hafi enn verið óselt. þegsr ég skrifaði grein mína og þegar Z. gaf út reikninga um fjársöluna til félaganna. Út úr þessu fær svo B. náttúrlega það, að verðið, sem upp var gefið, hafi verið falskt, og þar með líka ö!l frásögnin; hann gerir talsvert skop að því, að hægt hafi verið að reikna „upp á eyriu hvað hvert félag fengi. Já það viidi nú svo óheppi- lega til, að meðalverðið gat ekki staðið á krónu hjá neinu félaginu. Það er æðimikið þægilegra eins og það er hjá Árnesingum þeim, er B. flutti fé fyrir; þar stendr verðið einmitt á krónu, eins og sjá má af skýrsiu Ágústs Helgasonar. Máske B. hafi það annars fyrir reglu, að reikna bara með krónum. „Það gerir ekkert í svo mikilli mjólk“. — Annars er öli þessi saga, sem B. setr fram um það, að Z. hafi orðið að hætta við söln, tilhæfulaus ósannindi, og ályktanir þær, sem hann dregr af því, og aðdróttanir sem hann byggir á því, eru því tóm iokleysa og markleysa. B. segir það ósatt í 35. kap., að ’Þjóðviljiun’ haíi „skýrt frá, að Jóni Vídalíu hafi verið vikið úr félagi íslenzkra kaupmanna í Höfn“. ’ÞjóðviIjinn’ sagði, að eins það sem satt var, að nokkrir limir þess félags hefðu farið fram á það. Sú saga er í stuttu máli þannig, að J. Vídalín var rækr ger úr nefndu féíagi með atkvæðagreiðslu á félagsfundi, enn ekhi fyr enn 26. janúar þ. á. Næsta lygin út af þessu verðr lík- lega sú, að Vídalín hafi keypt þá til að reka sig brott. TJtúrsnúningar Björns eru ekki mjög Baknæmir. Ég ætla að minnast á að eins einn í 29. kap. Björn gerir mjög mikið skop að pví, að ég gat þess að fjárdauðinn hjá Pranz yrði ef til vill til pess, að lög um innflutning fjár yrðu skerpt á Bretlandi. Þeesu var þegar hreyft í blöðum þar, er fregnir bárust af hrakförum Franz í hinni síð- ustu ferð. Mér datt ekki í hug að gefa í skyn, að F. hefði ver- ið kærðr eða fengið sekt. Rann hefir vist ekki brotið brezk

x

Fjallkonan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.