Heimdallur - 01.04.1884, Blaðsíða 6

Heimdallur - 01.04.1884, Blaðsíða 6
i hann. «Við skulum sjá hvor okkar syngur betur». i Og svo söng hann: Gullþjófar jafnan í geysi-háðung fá, heldur þú sje betra’ að stela ; hjörtunum þá. Franzel svaraði: Hafur vildi framast, sem heimskum er tamt; hann vildi verða gemsa, varð nú hafur samt. Seppí svaraði þannig: i Hani er enginn páfugl, < en hanakamb þó á; ■ jeg hefðargaukur enginn er, en undan mun ei slá. f>au settu upp stór augu og horfðu á barún- ; inn, en hann sat undur rólegur, og hlustaði á kapp- í söng þeirra, og skildi víst naumast, að nokkru úr | honum væri beint að sjer. En gamli maðurinn - skildi það því betur, og til þess að reyna til að ; neyða Seppí til að hætta, þá hugsaði hann sjer að ; stinga honum sneið, fyrir hvað hann væri sólginn í i spil, og söng þessar vísur: Ef tóa í gildru gengur hún gjarnan sprikla má, því harðar sem hún spriklar ; herðir járnið á. Og glópsku spilafíflin, þau geta sagt fljótt, sem tóa flækt og fjötruð, við frelsið góða nótt. En þó höggið væri hátt reitt, þá mistókst það / algjörlega. Seppí hjelt áfram að leika lagið ofur ljett á fiðluna, leit á barúninn og einblíndi á hann í og söng yfir honum tvær vísur. Hann söng lágt, í en það var auðheyrt að hatur og reiði bjó niðrí Ifyrir hjá honum. Vísurnar voru svona: Vita skaltu að enginn veiðimaður er, þó beri’ í hatti fjaðrir ; og byssu á herðum sjer. ; Og íkornanunn ann jeg uppi’ í fjalla reit, í en hata drómedarann, í sem dragnast um sveit. Hann hætti að syngja, en hjelt áfram að leika á fxðluna. Gamli maðurinn þagði á meðan, og það leit út fyrir að hann væri að hugsa sig um, hvernig hann gæti bezt borið vörn fyrir þennan varnarlausa útlending. Ein af stúlkunum ætlaði þá að hjálpa upp á sakirnar. Hún var farin að ; eldast, en það leit út fyrir að hún væri findnust af þeim. Hún söng þessa vísu: Búa má bergmál \ið býsna þung kjör, í ef gaukum öllum frömum ; það gefa skal svör. ;> Seppí varð bálreiður og ljet ekki standa á sjer ; að svara: Og Gred’l, hún gleymir öílu, ; hún gleymir fyrri tíð. ; Hún gleymir aldrei einu: hún var einusinni fríð. ; Hann ljet sjer nægja að hefna sín á stúlkunni ; með þessari vísu. Svo sneri hann sjer að barún- ; inum. Hann sá að hann var ógnar rólegur, og ; hjelt að hann vildi sýna sjer með því óvirðingu og ; fyrirlitningu og espaðist hann enn þá meira við ; það; en í raun og veru hafði barúninn ekki hug- ; mynd um í hvaða hættu hann var staddur. Svo söng Seppí, og það var eins og hann yrði ávallt ; reiðari og reiðari: ; þ>ó kálf menn eigi’ úr gulli, það kemur út á eitt: hvern sem vantar hjartað, hann á ekki neitt. ; Og láslausa byssu og mannlausa mey \ og veiðimann hníflausan ; virði jeg ei. | í>ó að bjart sje loptið, þokan skellur á, . ; en langt mun ei að bíða þess, ; hún líði aptur frá. ; Gamla manninn langaði til að taka fram í, i; og segja eitthvað barúninum til varnar, en Seppí í gaf honum ekki ráðrúm til þess. Hann hjelt áfram í að syngja, og ljek um leið á fiðluna, varirnar ' skulfu, augun tútnuðu út, hann söng einlægt \ hærra og hærra og leit aidrei af barúninum. Barún- í inn horfði á Seppí með hæðnis svip; það var sú ; eina vörn sein hann gat borið fyrir sig, því ekki gat ;

x

Heimdallur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimdallur
https://timarit.is/publication/123

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.