Norðurljósið - 01.12.1913, Qupperneq 7
Norðurljósið
95
um inn í sálir vorar. Ráðin við þessu eru bæði einföld
og áreiðanleg, því hinn mikli sálarlæknir gaf þau: „Vak-
ið Og biðjið." Les þú Guðs orð, til þess að Iæra að
þekkja öll brögð hans, og bið þú Guð, til þess að þú
megir yfirstíga þau.
(b) Onnur aðferð hans er sú, að vekja uppreistar-
anda hjá oss gegn stjórn Guðs. Það vill stundum til,
að vjer gerum oss miklar vonir um eitthvað, en þegar
ekkert verður úr því, er oss hætt við að mögla á móti
Drotni og vantreysta alvisku hans og gæsku. Þetta er
í raun og veru ekkert annað en uppreisn gegn Guði,
og kemur frá anda myrkranna, sem fyrst reis upp á
móti Guði sínum og skapara.
(c) Hann ónýtir vitnisburð marga trúaðra manna,
með því að koma þeim til að þverskallast gegn boð-
orði Krists um að vjer eigum að viðurkenna hann með
munninum. Þar kemur hann oftast fram sem Ijósengill
og hvíslar að mönnum eitthvað á þessa leið: »Vertu
ekki að fleipra út úr þjer öllum þínum hjartans mál-
um, þau eru of heilög til þess að um þau sje talað;
haf þú trú þína út af fyrir þig;« þess vegna tala menn
um alla skapaða hluti, en forðast sem heitan eld að
tala um það, sem fremur öllum öðrum málefnum get-
ur orðið náunganuin til gagns og uppörvunar. Sá, sem
lætur ginnast á þennan hátt, getur ekki búist við að
lifa neinu sigursælu lífi.
(d) Hann táldregur marga unga kristna menn, með
því að telja þeim trú um, að það sje engin þörf á því,
að slíta fjelagsskap við óendurfædda fjelaga sína. Um
þetta mál er ýtarlega rætt í kaflanum hjer á undan. Vjer
verðum að vaka og biðja, til þess að láta ekki þessa
tælandi freistingu villa oss.
(e) Hann ónýtir vitnisburð margra trúaðra manna,
með því að koma þeim til að hætta að lesa daglega
Guðs orð og taka sjer tíma til bænar. Vjer höfum nógu
margar áhyggjur fyrir voru líkamlega lífi, hvernig vjer
eigum að afla oss alls þess, sem með þarf til lífs og
viðurværis. En vjer þurfum engu síður að bera um-
hyggju fyrir þörfuin hins andlega lífs; þær eru ekki
síður áríðandi en hinar líkamlegu.
Ef vjer vanrækjum það, að taka okkur tíma á hverj-
um degi til að lesa Guðs orð, biðja og rannsaka sálu
vora, til þess að dæma alt, sem vjer höfum gert rangt,
þá getum vjer alls ekki átt neina von um að níkja í
lífinu«. Líf vort verður kraftlítið og árangurslítið, þeg-
ar alt er komið í kring, jafnvel þó vjer vinnum í aug-
um manna mikilvægt starf fyrir Guð. Job gat sagt með
sönnu: »Betur geyindi jeg talið hans munns, heldur en
min eigin áform« (Job 23. 12), og þess vegna stóðst
hann eldraunina, sem hann varð að reyna. Lætur þú
lestur Guðs orðs sitja í fyrirrúmi, eða þín eigin áform?
Óvinurinn hefir fleiri brögð en þessi, sem jeg hefi
ihjer talið upp, en ef vjer »vökum og biðjunu, þá föll-
• • • • • • • • ••••••••••••••••«
um vjer ekki í freistni, eins og orð Drottins í grasgarð-
inum gefa í skyn, — og þá lifum vjer hinu slgurscela
lífi.
(Framhald.)
Mikið úr litlu.
Ungur, frakkneskur hermaður lá særður á spitala
eftir orustuna við Skt. Quentin í Frakklandi. Einn dag
tók hann eftir smáriti, sem einhver hafði lagt ofan á
rúmábreiðuna hans, Það var andlegs efnis og mjög
vekjandi. Ungi maðurinn las það og sneri sjer til Guðs
af einlægu hjarta. Standmynd af þessum manni stend-
ur nú í París fyrir framan stóra kirkju, og er hann þar
með biblíu í hendi sjer. Það var hinn mikli Coligny
sjóliðsforingi, sem var einn hinn helzti leiðtogi siða-
bótarmanna á Frakklandi á 16. öld.
En smáritið hafði enn þá meira ætlunarverk. Hjúkr-
unarkonan, sem stundaði Coligny, var nunna; hún las
ritið, en þegar hún vissi, að það studdi mál siðabótar-
manna og hvatti menn til að snúa sjer beint til frels-
arans, en ekki til Maríu eða dýrlinganna, varð hún
mjög hrædd, fór til abbadísar klaustursíns, fjekk henni
ritið og viðurkendi um leið synd sína(!) með því að
hún hefði lesið það.
Abbadísin las ritið með athygli, varð sannfærð um
sannleikann, sem það hafði inni að halda, og sneri
sje í einlægri trú til Jesú Krists. Fyrir þetta varð hún
að flýja burt úr Frakklandi, en komst klaklaust tit
Hollands. Meðan hún dvaldist þar, kyntist hún ungum
Hollendingi, sem nokkru seinna giftist henni. Þessi
ungi maður varð síðar hinn mikli frelsisvinur Vilhjálm-
ur frá Orange, konungur Hollandsríkis og síðar kon-
ungur á Englandi. Kona hans, fyrverandi abbadísin,
hafði mikil áhrif á hann, og henni er það mikið að
þakka, hve hraustlega hann barðist fyrir trúarfrelsi og
hreinum kristindómi í Hollandi.
Athugasemdir ritstjórans.
Nú er annar árgangur „Norðurljóssins" á enda. Á-
skrifendatalan hefir verið svipuð því sem var í fyrra Er
enginn efi á því, að „Norðurljósið" er lang vinsælast af
þeim blöðuin, sem fjalla um trúmál, og hefir langt um
meiri útbreiðslu en nokkurt annað blað á Norðurlandi.
Er þess vegna ástæða til þess að ætla að það geti orðið
'eins vinsælt á þeim stöðum, þar sem það er enn þá
ekki komið, og ritstjórinn hvetur alla lesendur sína til
að hjálpa honum til þess að útbreiða blaðið sem mest.