Norðurljósið


Norðurljósið - 01.01.1956, Qupperneq 1

Norðurljósið - 01.01.1956, Qupperneq 1
o Jn orðurljósið XXXVII árg. Janúar—Febrúar 1956 1.-2. „ÉG GERIALLA HLUTI NÝJA.” Gamla árið er endað. Hvað hefur það fært þér? Heilbrigði, lífsgleði, hamingju og alls nægtir? Sjúk- dóma, reynslur, sorgir, ógæfu og skort? Sért þú í síðari flokknum, kemur boðskapur Guðs til þín, dásamlegur og vonarríkur, hughreystandi og lífg- andi: „Eg geri alla hluti nýja.“ Einnig þú, ham- ingjubarn, getur þarfnazt hans. Hamingjuhjólið er hverfult, eins og æskan og morgunroðinn. Við skulum taka ritninguna, t. d. guðspjall Jó- hannesar, og athuga, hvernig allt breyttist, þar sem Drottinn Jesús kom. Endurnýjun og blessun fylgdu honum alstaðar. í 2. kapítula sjáum við hann í brúðkaupi. Gleði- sólin skein hátt á himni, unz vín þraut. I ritning- unni táknar vínið mannlega gleði. En móðir Jest'i var þar. Það, sem lnin gerði, er fyrirmynd enn í dag. Hún sagði honum frá, fullviss um, að hann gæti itætt úr þessum skorti. Það gerði hann. Hann breytti vatninu í vín. Eru veizluföng hamingju þinnar þrotin? Segðu Drottni Jesú frá því. Fel þú honum mál þín með trúnaðartrausti eins og María. Hann mun snúa gráu vatni vonbrigða og lífsleiða í kostavín hjartafriðar og gleðinnar í Guði. í 4. kap. sjáum vér Drottin Jesúm sitja við brrlnn- inn hjá Síkar. Þangað kémur kona til að sækja vatn. Veður var eflaust heitt, hún var þyrst vafalaust. Sárar brenndi þorstinn sálu hennar og hjarta, þráin eftir ástum og nautnum. Hún lrafði átt fimm menn og bjó með þeim sjötta. Hvað gat Drottinn Jesús gert fyrir slíka sál? Hann bauð henni svaladrykk, er svalar svo þorsta lífsins, að engan þyrstir að eilífu, sem drekkur hann. Konan fékk þennan svaladrykk. Hvernig? Hún bað Drottin Jesúm um hann. Frels- •arinn gaf henni tækifæri til að játa synd sína, og hún gerði það. Þá var þess skammt að bíða, að hann segði henni, hver hann var, opinberaði henni, að hann væri Kristur. Þyrstir þig eftir ástum og nautnum, áfengi eða skemmtunum lífsins? Þú finnur mætavel, að þetta getur aldrei svalað ódauðlegri sál þinni. Farðu leið LAvf) samversku konunnar. Frelsarinn bíður með svala- drykkinn í hendi sér, reiðubúinn að gefa þér hann, þegar þú biður um hann. Veittu honum viðtöku. Segðu hinum samúðarfulla Drottni þínum frá brestum þínum og yfirsjónum, frá syndum þínum og hrösunum. Hjarta þitt öðlast frið við það. Fel þú lionum að svala þinni sál, hann mun gera það. Vér sjáum í sama kap. konungsmanninn. Hvorki staða lians né tign getur mildað þá angist, sem þjak- ar og kvehir föðurhjarta hans. Drengurinn hans er veikur, liggur fyrir dauðanum, þjáður af sótthita. Hann kemur og segir Drottni Jesú frá, biður hann ásjár. Hvað er þetta, sem hann heyrir? „Þér trúið ekki, nema þér sjáið tákn og stórmerki." Þetta er ekki svar við bæn hans. Hann skeytir því engu, þörfin er svo brýn. Hann heldur áfram að biðja: „Herra, kom þú, áður en barnið mitt andast.“ Stendur þú í sporum þessa föður? Áttu barn, þjáð af sótthita æskublóðsins, eirðarlaust, flögrandi, við- námslaust gegn freistingum lífsins? Hvernig lízt þér að fara að dæmi konungsmannsins og leita á fund Drottins Jesú, biðja hann ásjár? Vera má, að hann svari ekki bæn þinni þegar í stað. Gefstu þá ekki upp. Bið því ákafar, sem þörfin verður brýnni. Fyrr eða síðar færðu svar. Enginn þekkir tölu þeirra barna, sem Drottinn hefir frelsað sem svar við bæn. Sum fegurstu og ávaxtaríkustu aldintrén í garði safnaðar Guðs voru eitt sinn villtir og taumlausir unglingar. Konungsmaðurinn fékk svar. Lítum nú í 5. kap. Þar mætir oss hryggðarsjón, maður, sem legið hefir sjúkur í þrjátíu og átta ár. Batavonin bregzt honum alltaf, annar fær hnossið, en aldrei hann, unz vonleysið grípur hann heljar- tökum. Til þessa rnanns kemur frelsarinn, ávarpar hann, lætur liann segja sér sögu sína og læknar hann. Heilbrigði kom í stað sjúkleika, þróttnr í stað magnsleysis. Styrk verða skref hans og stælt, ekki lengur staul og staut. Ert þú í sporum þessa manns, ertu vonsvikinn og sbókaktn]

x

Norðurljósið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.