Norðurljósið


Norðurljósið - 01.08.1963, Blaðsíða 7

Norðurljósið - 01.08.1963, Blaðsíða 7
NORÐURLJÓSIÐ 63 þeim ekki. Honum var Guð ávallt fyrstur af öllu í lífinu. „Minn matur er að gera vilja hans, er sendi mig, og full- komna hans verk.“ Hann sagði: „Verið hughraustir, ég hefi sigrað heiminn." Af því að hann sigraði, getum vér sigrað. Trúin á Jesúm sem Krist, Guðs son, er það sigurafl, sem sigrar heiminn. (I. Jóh. 5. 1.—4.) Þessa trú hefir hann gefið þér og mér. Við verðum því án afsökunar, ef við sigr- um ekki heiminn, heldur elskum hann og líkjumst honum. „Hrein og flekklaus guðrækni fyrir Guði og föður er þetta: að vitja munaðarlausra og ekkna í þrengingu þeirra og varðveita sjálfan sig óflekkaðan af heiminum.“ (Jak. 1. 27.) Guðs börn, vér skulum varðveita sjálf oss óflekkuð af heiminum. S. G. J. ---------x—------- Biblíuskýringar Framh. af bls. 59. 10. kap. 4. v. Drottinn lét setja merki á enni þeirra manna, sem andvörpuðu og kveinuðu yfir svívirðingunum, skurðgoðadýrkuninni, og sýndu með því, að þeir væru Guði trúir. Á frummálinu liggur í orðinu „merki“, að það sé Arrowlagað. 11. kap. 23. v. Fjallið fyrir austan Jerúsalem er Olíu- fjallið. Þangað fór dýrð Drottins í sýn Esekíels, og frá Olíufjallinu fór Drottinn Jesús á brott frá borginni, sem hafnaði honum og krossfesti hann. 12. kap. 13. v. Höfðinginn, sem fluttur var til Babel, til Kaldealands, var Zedekía konungur. Nebúkadnesar lét biinda hann, áður en hann var fluttur til Babel. Þannig rættust orð Drottins. 13. kap. 17.—23. v. Hér er lýst athæfi falsspákvenna og dóminum yfir þeim. Þær saumuðu bindi á úlnliði manna, sem leituðu þeirra og skýlur fyrir höfuð þeirra. Þetta var gert sem töfrabragð. Niðurlagið á 18. v. er bezt að þýða þannig: „Þér veiðið sálir (fólk) hjá þjóð minni til að halda lífinu í sálum yðar.“ (ykkur sjálfum.) Þær lifðu á því að fólk borgaði þeim, er það leitaði til þeirra. Minnir þetta á svipaða starfsemi nú á dögum, þegar fólk er að leita til miðla. 19. v. Bygghnefafyllar og niðurmulið brauð var notað, þegar leitað var spáfrétta, sbr. kaffikorg og tekorg nú, En nafn Drottins var ákallað um leið. Þetta var vanhelgun nafns hans. 14. kap. 1.—11. v. Hér lýsir Drottinn því, hvaða boð- skap sannur þjónn hans eigi að flytja þeim manni, sem tekur skurðgoðin fram yfir Drottin, en leitar þó á fund hans. Boðskapurinn er: Snúið við og snúið yður frá skurð- goðum yðar. Það átti að boða afturhvarf. Hins vegar, ef spámaðurinn fékk einhvern annan boðskap til skurð- goðadýrkarans, og flytti hann þann boðskap, en ekki aftur- hvarfsboðskapinn, þá var það spámanninum dauðasynd og áheyranda hans líka. Drottinn er liinn sami enn í dag, og afturhvarfsboðinu hefir hann ekki breytt. „Nú boðar hann mönnunum, að þeir allir skuli alstaðar gera iðrun.“ Prédikari, sem flytur ekki syndugum mönnum afturhvarfsboðskap Guðs, bregzt Uði, bregzt þeim, sem þarfnast þessa boðskapar, og bregzt þar með köllun sinni og sjálfum sér. Við dómstól Krists oiun hann verða þess var. 15. kap. Vínviðurinn, teinungurinn meðal skógartrjánna, er villi-vínviður, ekki hinn ræktaði. Flonum var safnað saman og brennt. Þannig átti að fara fyrir Jerúsalem. -------:—x--------- ( Framh.) Litla hálenzka hetjan I norðanverðu Skotlandi liggur aðaljárnbrautin yfir stóra gjá eða gil. Kvöld nokkurt geisaði þar ægilegt ofviðri. Lækurinn litli, sem rann á botni gilsins, varð að freyðandi elfi. Ungur smaladrengur hýsti fé sitt sem bezt hann gat um kvöldið. Löngu fyrir dögun lagði hann af stað til að vitja þess. Á leiðinni upp brekkurnar sá hann sér til skelfingar, að miðstöpullinn var hruninn og brúin brotin. Hann vissi, að von var á póstlestinni þá og þegar, og væri ekki gefið aðvörunarmerki, mundi hún mölbrotna. og fjöldi fólks farast. Hann leit á æðandi strauminn. Skyldi hann komast yfir um? Hugsunin um lífshættu margra manna rak hann áfram. Hann var illa til reika, er hann komst yfir. Hann klifraðist upp úr gilinu. Jafnskjótt sem hann komst að járnbrautinni, heyrði hann hljóðið í eimlestinni. Hann stóð á milli teinanna og veifaði og veifaði ákaflega. En hann sá ekkert nema hönd lestarstjórans, sem benti honum að víkja. Lestin var orðin of sein, og hann var að flýta sér. Lestin kom nær og nær, og smalinn hélt áfram að benda henni að stanza. Loks kom hún fast að honum, og þá fleygði hann sér þversum á teinana. Lestarstj órinn skellti hemlunum á og tókst að stöðva lestina. Svo snöggt nam hún staðar, að farþegarnir vöknuðu og komu út til að sjá, hvað væri að. Þegar þeir sáu ekkert urðu þeir mjög reiðir, en eimreiðarstjórinn sagði: „Það skall hurð nærri hælum í þetta sinn. Við hefðum öll getað verið dauð.“ Þegar þeir sáu, hve nærri þeir voru brotinni brúnni, bliknuðu þeir af ótta. Lestarstjórinn sagði við þá: „Komið með mér, og ég skal sýna ykkur, hver það var, sem frelsaði okkur í nótt.“ Þeir gengu spölkorn til baka, og þar fundu þeir sundur marðar leifar litla hálenzka smalapiltsins. „Ef liann hefði ekki dáið fyrir okkur, sagði lestarstjórinn, „þá hefðum við öll farizt í nótt.“ Þetta var það, sem Drottinn Jesús gerði fyrir oss, þegar hann dó á krossinum. Hann varpaði sjálfum sér á milli vor og guðlegrar reiði og glötunar. Hann dó fyrir oss, annars mundum vér hafa dáið. Hefði það ekki verið sví- virðulegt vanþakklæti, ef fólkið hefði ekki verið þakklátt fyrir það, sem drengurinn gerði fyrir það? En hve miklu svívirðulegra vanþakklæti er það, ef þú hafnar kærleika Krists og gerir lítið úr dauða hans á krossinum. Þú munt þó ekki ætla að æða yfir líkama hans niður í glötunina? Hví viltu tortíma þér? Það er engin þörf á því? Guð elskar þig og þráir að veita þér hjálpræði sitt. Jesús dó til að frelsa þig frá synd og glötun. Veittu honum viðtöku. Treystu honum. Trúðu á hann, þá munt þú aldrei glatast. Megi Guð hneigja hjarta þitt til að veita honum við- töku. NÚ. (Þýtt.) „Af því þekkjum vér kærleikann, að hann lét lífið fyrir oss; svo eigum vér og að láta lífið fyrir bræðurna.“ (I. Jóh. 3. 16.)

x

Norðurljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.