Heimskringla - 01.06.1911, Blaðsíða 1
Talsími Heimskringlu
Garry 4110
Heiœilis talsími ritstjórans 1
Garry 2414
XXV. AR.
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN, 1. JONÍ 1911.
Nr. 35.
Kosningar í september.
MIKILL UNDIRBÚNINGUR HJÁ
STJÓRNARSINNUM.
J>að var auglýst í Conservative
austan-b.lö ð'um þaan 25. maí, að
Laurier stjómin hefði fastlega á-
TcveðiS, að láta almeunar ríkis-
kosningar fara fram í Canada ekki
siðar en um miðj-m september
næstkomandi. Alt kapp hefði verið
lagt á það frá stjórnarinnar hálfu,
að halda ákvörðun þessari leyndri
eins lengi og auðið væri, eða þar
til Sir.Wilfrid kæmi heim lir Kng-
landsferð sinui í júlí næstk.
En nú er því svo varið, að ekki
verður kosning haldin án at-
kvæðakassa, og þeir hafa á siðari
árum gengið talsvart af sér, auk
þess sem vaxandi fólksf jöldi í land-
inu krefur fleiri kjörstaða en áður.
J>ess vegna var það, að herra J.
G. Toley, sá sem fy.rir stjórnarinn-
ar hönd á að sjá um kjörsefla-
kassana fyrir alt ríkið, fór nýlega
irá Ottawa til Toronto borgar til
þess þar að semja við félag eitt
um tilbúning nokkurra þúsunda af
'kjörseðlakössum, og að tryggja
það, að þeir yrðu fullsmíðaðir
tímanlega í júlímáánuði. — Herra
Foley sagði ferð sína til Toronto í
engu sambandi við almennar kosn-
ingar, og þó hann hefði pantað at-
kvæðakassana, þá væri það ekki
•óvanalegt, því að hann væri edn-
att af og til að lárta búa þá til.
En andstæðingaflokkurinn í þing-
inu lét sér ekki nægja þesSa um-
sögn harra Foleys, með því að
íleiri merki þess voru sjáanleg, að
kosniugiar væru í nánd., því svo
má heita, að Ottawa borg hafi
verið öll í uppnámi um síðastliðna
mánuði við kosninga undirbúning.
Mar.gir tugir tonna af kosninga-
bæklingum margvíslagum, hafa
verið í prentun og í útsendinga-
undirbúningi, og sumir þefrra þeg-
ar fyrir nokkru sendir út um land-
ið. En það er vanalega talið ljóst
merki um, að kosningar séu ná-
lægar, þegar kosningabæklingar og
atkvæðakassar eru efst á baugi
hjá stjórnarráðinu.
þegar þessi fregn kom xit í blöö-
um andstæðinganna, varð stjórn-
inni hverft við. Ráðgjafafundi var
þegar skotið á og málið rætt, og
að honum loknum fóru ýmsir ráð-
gjafanna út í kjördæmi sin í Que-
bec fylki, og er nú bardaginn þeg-
ar byrjaðnr þar. Og hinir aðrir
ráðgjafarnir fóru þegar að undir-
búa til bardagans í kjördæmum
sínum í öðrum fylkjum.
það er og í almœli, að Bourassa
með sitt fylgi alt muni sækja
móti Laurier við þessar kosning-
ar, og að hann muni keppa um
sæti það í Montreal, sem Gervais
er nú þingmaður fyrir, og að Sif-
ton muni einnig sækja móti Laur-
ier stjórninni og keppa um þing-
sæti í Brockville móti Graham
járnbrautaráðgjafa.
það mun mega telja áreiðanlegt,
að ríkiskosningarnar fari fram í
september næstkomandi.
BJARNASON &
THORSTEINSON
Fasteignasalar
Kaupa og selja lönd, hús og
lóðir víðsvegar um Vestur-
Canada. Selja lífs og elds-
ftbyrgðir.
LANA PENINGA
út á fasteingir
og innkalla skuldir.
Öllum tilskrifum svarað fljótt
og áreiðanlega.
Wynyard - - Sask.
Fregnsafn.
Markverðusru viðburðir
hvaðanæfa
— Bandaríkjastjórnin hefir gert
gangskör til að útrýma einokunar-
auðfélögunum þar í landi. Stan-
dard olíufélagið mikla var 15. maí
af hæstarétti landsins dæmt tdl að
leysast upp innan sex mánaða. Og
þann 29. s. m. feldi hæstiréttur
samskonar dóm yfir tóbakssatn-
steypunni (T.obacco Trust), sem
starfsemi hefir rekið þar í landi.
Er skýrt tekið fram í dómsákvæð-
inu, að félögin séai einokunarfélög,
sem hindri írjálsa verzlun á tó-
baki, og ef samsteypan ekki innan
8 mánaða hafi breytt fyrirkomu-
lagi sínu þannig, að það verði lög-
um samkvæmt, verði gangskör að
því gerð að uppleysa hana. Af
félögum þessum, sem dómurian
snertir, eru 65 ameríkönsk og 2
ensk. Auk þess eru 29 einstakling-
ar, sem sömu útreið fá. — Dóms-
ákvæði þetta er stórmikill sigttr
fyrir Bandaríkjastjórnina, því að
dóminum verður að hlýta, þar
sem ómögulegt er að áfrýja hon-
um til æðri réttar.
— Níu manns mistu lífið í járn-
brautarslysi á mánudagintt, nálægt
McCook í Nebraska ríkinu.
— Hr. W. Leonard Palmer, aðal-
ritstjóri blaðsins Financial News í
Lundúaum, sagði nýlega í samtali
við iblaðamann, að á síðasta ári
hefðu Bretar lagt 375 milíónir doll-
ars til atvinnureksturs og umbóta
í Ganada, og að á þessu yfirstand-
andi ári myndu þeir verja 500 mil-
íónum í sama augnamíði. Herra
Palmer er um þessar mundir að
ferðast um Catiada til þess að
kvnna sér auðsuppsprettur og
framtíðarlíkur hér. Han.n segir, að
Bretar eigi nú 2100 málíónir doll-
ars í ýmsum fyrirtækjum í Can-
ada, og að á sl. 12 mánuðum hafi
vaknað mikill áhugi meðal brezkra
auðmannai, að verja fé sínu í Can-
a.da. Hvar . sem tækifæri séu til
þess, að lána peninga til atvinnu-
reksturs í verkstæðum eða til járn
brautalagninga, eða annað þess
háttar, þá sétt nægir peningar i
boði. tEIins vegar segir hann að
auðmannaflokkurinn, sem lagt hafi
fé í iðnaðarstofnanir og ílutnings-
tæki landsins, líti með kvíða á
gagnskiftasamnin.gana, sem nú eru
til timræðu milli Canada og Ðanda
ríkjanna. Hann segir það sé al-
menn skoðun á Englandi, að Taft
forseti hafi sett sér það markmið,
að hefja ver/l in,a(r'letrt stríð á hend-
ur Bretum, ,eins og hann hafi sjálf-
ur með berum orðum tilkvnt í
ræðu sinni á ftindi ameríkönsku
bla ðútgefendanna.
— Sir Donald Mann segir að C.
N. R. félagið ætli að leggja járn-
braut frá Montreal til Port Arth-
ur, þúsund mílur vegar, og að
kostnaðurinn við það sé $59,000 á
tníluna að jafnaði, að meðtöldum
endastöðvum, sem kosta muni alt
að 10 milíónum dollars. Ottawa
stjórnin veitir félaginu ábvrgð
skulda.bréfa á þessar þústind míl-
ur, sem nemttr 36 miliónnm doll-
ars, eða jafngildi 36 þústtnd dollars
á hverja mílu brautarinnar.
— Coney Island sumarskemti-
staður New York búa, varð fyrir
tniklum eldsvoða á laugardaginn
var. Brunnu þar leikhús, hótel,
greiðasölustaðir og búðir og ýms-
ir skemtistaöir. Einnig brunnu
yfir 65 dýr í dýragarðinum, en
tnnnntjón varð ekkert. Alls er tjón-
ið talið að nema 2J£ milíón doll-
ars.
— Japanar hafa ákveðið að
byggja sex stór-dreka í viðbót við
herskipaflota sinn. Verða þeir allir
smíðaðir á Englandi.
— Gagnskiftasamningarnir eiga
ekki upp á háborCÍð í efri mál-
stofu Washington þingsins. Virðist
sem þeir mnni daga þar uppi, því
flestir af RepúMíkönum eru þeim
andvígir, og draga á lan.ginn, sem
þeir geta. Aftur er Demókrötum
mjög hugarhaldið, að fá uppkast-
inu framgengt, en þeir eru í minni-
hluta og fá því litlu áorkað. —
Champ Clark, leiðtogi þeirra i
neðri málstofiinni, hefir lýst því
yfir, að atkvæðaRreiðsla yrði að
fara fram í Senatinu um uppkast-
ið, j)ó júngið yrði að sitja til
veturnátta.
Ný uppfynding.
JL' -L —I—i'.
Myndin sýnir uppfunding, sem landi vor, G u ð -
jón Jónssons að Gurnsey í S askatchewan hefir
gert og nýlega fengið einkaleyfi fyrir. það eru
stormglugiga-hjarir. Oig s'-o segja einkalevfis fræð-
ingar, sem uppfunding þessa hafa skoðað, að hún
sú bez.ta sinnar tegundar, sem þeir hafi séð. Félag
eitt í Austur-Camada hefir boðið herra Johnson, að
taka að sér s< l i 4 einkaleyfi haris, og telur víst að
ekki skorti katipendur, því að hjarirnar muni gangia
vel út. Tilbúningur þeirra sé auðveldur og þær
muni verða ódýrar, er þœr koma á markaðinn, og út-
bola öllum keppinautum.
— Franz Jóseph Atisturríkis-
keisari er hættulega veikur um
þessar mundir.
— Sir Donald Mamn, annar eig-
andi Canadian Northern járbraut-
arimtar, hefir keypt fyrir sjö milí-
ónir dollars allar eignir Island
járnbnæðslu og hreinsunarfélagsins
í Tioronto borg, ásamt með rétt-
indum til þess að mega nota upp-
fyndingu Dr. Islands til hreinsunar
og jármbræðslu. Dr. Island er einn
af tannlæknum Toronto borgar og
vann að því um nokkurra ára bil
í fristundum sínum, að uppgötva
mýja aðferð til j»ess að bræða og
hreinsa járn. þegar hann hafði full-
komnað uppgötvun sína, myndaði
hann félag til þess að nota hana,
og félag j>að hefir nú selt Sir D.
Mann allar eignir sínar og upp-
fyndingar einkaleyfið, og með þeim
réttindum, að kaupandinn megi
nota jtað, eða láta nota í öllum
heimsins löndum. Aðallega er það
Dr. Island, tannlæ'knirinn, sem
græðir á sölu þessari, því að það
er ávöxturinn af hugviti hans,
sem hefir verið keyptur. Hann var
áður fátækur rnaðttr, en er nú
orðinn fleir-milíóna eigandi fyrir
hugvit sitt.
— Nýútkomnar skýrslur sýna,
að um tvær milíónir innflytjenda
hafa komið til Canada á sl. 10 ár-
um, og sezt }>ar að. Hafa um 850
þúsund manns komið frá Bret-
lamdseyjum og ttm 800 þúsund frá
Bandairíkjunum. Meginþorri þeirra,
sem frá Bandaríkjunum hafa kom-
ið, hafa verið bændur eða bú-
jarða verkamenn. Hafa flestir
þeirra tekið sér lönd í Yesturfylkj-
unum og búa þar;. — Aftur hefir
rúmur fjórði hluti af þeim, sem
frá Bretlandseyjum komtt, verið
bíóndamenn, tæpur fjórfi hluti
verið algengir verkamenn, álíka
margir verið handiðnamenn og af-
gangurinn heyrt ýmsnm öðrum at-
vinnugreinum til. Að eins rúm 400
þúsund hefir fluzt inn af svert-
iniyjtim á þesstim árum, en aftur
hafa 5,200 Hindúar komið. Hinir
aðrir þjóðflokkar, sem til Canada
hafa fluzt á þessum 10 árum, skift-
ast þannig : 121,000 Austurríkis-
menn og Ungverjar, 63,817 Italir,
18,675 Gyðingar, 38,950 Rússar,
19,349 Svíar, 21,145 þjóðverjar,
16,236 Frakkar, 13,798 Norðmenn,
og 5,223 Sýrlendingar og Armeníu-
menn. A þessu 10 ára tímabili
hafa um 1,200 Islcndingar til Can-
ada komið. — Af þessum innflytj-
endum fengu Albierta og Saskat-
chewan fylkin í sameiningu rúm-
lega milíón, Ontario 403,820 og
Manitoha tæp 310 þúsund. Minst
fengu Austurstrandfylkin, New
Brunswick, Nova Scotia og Prince
Edward Island, — að eins væp 74
þúsund til samans. Áætlað er að
á þessu sumri muni full hálf milí-
ón innflytjenda koma og setjast
að mestu að í Vesturfylkjunuin.
— Diaz Ligði niður völd sem
forseti Mexico lýðveldisins á föstu-
daginn var, og lagði samdægurs
af stað til Spánar, og tr áhtið,
að hann tnuni setjast þar að fram-
vegds. Madero lagði samdægurs
niður völd sem bráðabyrgöarior-
j seti, og var Jtann sama dag F;an-
cisco de la Barra, fyrrtun sendi-
lierra lýðveldisins í Bandarikjun-
utn, gerður að bráðatyrgðaiíor-
seta, unz nýjar kosningar geta
fram farið. Madero verður öunur
hönd hans og tveir nákomnir ætt-
ingjar ltans (Madcro) verða ráð-
gjafar í hinu nýja ráðaneyti. Er
nú friður kominn á um gercalt
ríkið, og virðast allir una hið
bezta við skiftin, o,g er Madero í
hávegum hafður, kallaður lausnari
lýðsins og hjargvættur Mexico. —
En gamli Diaz flýði hulduhöfði úi
landinu, sem hann hafði stjóruað
í 30 ár með járnhcndi, — án þess
að nokkur bæði honum afturkomu
auðið.
— Flugið frá Parísarborg til
Madrid endaði svo, að einum flug-
manna, Fierre Verdine, frakknesk-
um, hepnaðist jiað. Náði hann
Madrid á fimtudagsmorguninn kl.
8.30. Var honum fagnað með við-
./
Royal Household Flour
Til Brauð
og Köku
Gerðar
Gef ur
Æfinlega
Fullnœging
EINA MYLLAN í WINNIPEG,—LÁTIÐ HEIMA-
IÐNAÐ SITJA FYRIB VIÐSKIFTUM YÐAR.
................\
höfn mikilli af íbúum hins spænska
höfuðstaðar ; kvenfólkið stráði
blómum á vag hans og kysti hana
og faðmaði, sem ástmögur þess
væri. Konungurinn saemdi hann
virðingarmiklu heiðursmerki, og
þess utan fékk hann 50 þúsund
dollara verðlaun fyrir flugið. Er
ílug þetta talið annað merkasta
flug, sem flogið hefir vcrið. Hitt
var þegar Georgie Chavez flaug
yfir Alpaifjöllin 8. sept. 1910, og
beið bana, þó sigri hefði að hrósa.
— Auk Pierrc Verdine þreyttu
fimm aðrir flugið, en mishepnaðist
öllum.
— Hveitimylnan í Wynyard bæ,
Saska'tcbewan, brann á föstudag-
inn var. Er talið að tjónið muni
nema fullum 20 þúsundum dollara,
því byngðir voru miklir af korni
og hveiti, sem fórust }>ar. Elds-
ábyrgðin niatn 10 þús. dollurum.
— Stórmerkur atburðux í loft-1
skeytasögunni skeði á fimtudagintt
var. Tókst þá að senda loftskeyti
frá Glaee Bay á austurströnd
Canada til Eiffelturnsins í París,;
og þaðan viðstöðulaust til Dakar
á vesturströnd Afríku, og var
skevtið 'einar 60 mínútur á aUri
þeirri leið. Er þetta lengsta fjar-
lægð, sem loftskeyti til þessa hafa
náð, Qg tókst svo skilmerkilega^
að ráðgiert er, að koma upp loft-
skeytasambandi milli allra hitina
brezku nýlenda, hvar sem á hnett*»
inum eru, og Bretlands. Og er á*
ætlað, að 70 til 80 nýjar loft-
skeytastöðvar þurfi til }>ess. Loft-
skeytin virðast með degi hverjum
afla sér meira og meira trausts
og vinsælda hjá menningarþjóðum
heimsins.
Aldarafmœli Jóns Sigurðssonar.
KLÚBBURINN Helgi niagri ætlar að gangast fyrir
samkomu hér í borg til minningar um aldarafmæli
Jóns Sigurðssonar, og verður hún ’naldin f Good-
templara húsinu laugardagskvöldið 17. júní næstk.
Vér undirritaðir hðfum verið kosnir f nefnd til að
annast um samkomu þessa, og verður þar skemt með
ræðum og kvæðum, sðng og hljóðfæradætti,
Allir Islendingar eru þangað boðnir og velkomnir.
Sfðar verður nánar skýrt frá, hvernig samkomunni verð-
nr liáttað.
Winnipeg, 29. maí 1911.
O. S. Thorgeirsson,
form. nefudarinnar
Albert Johnson
Gísli Goodman, Gunnl. Tr. Jónsson.
Baldur Sveinsson,
ritari nefndarinnar
— Nýafstaðnar þingkosningar i
Portúgal haía gengið lýðveldis-
mönnum í vil-. Konungssinnar
höfðu ekkert þiiigmannsefni í kjöri
Má því telja lýðveldinu borgið að
þessu sinni og litla von fyrir Man-
úel að ná aftur yfirráðum í Port-
úgal.
— Hermálaráðherra Frakklands,
í stað Henri Barteaux, sem lífið
misti í flugvélarslysinu í síðustu
viku, er útnefndur Goiron hers-
höfðingi.
— Eldsvoði geysaði í Qnebec
borg á sunnudaginn var og brunnu
mörg hús til grunna. Tjónið metið
rúm 250 þúsund dollars.
— ítalskur flugmaður, Cirri að
nafni, féll úr flugvél sinni 610 fet
úr lofti og bedð bana. þetta skeði
á laugardaginn var nálægt borg-
inni Voghera á Ítalíu.
— Að ekki séu allir boðnír og
velkomnir til Canada má sjá af
nýútkomnum skýrslum fráOttawa
þar gefst að líta, að á áxi'.tu sem
leið voru 784 menn endursendir til
átthaga sinna, vegna glæpa og
sjúkleika og annara orsaka, en
17,614 var bönnuð landgnnga. —
Flestir af þeim, sem landgöngu
var neitað, voru frá Bandaríkjun-
um, — 15,404 talsins. Ilina lög-
heimtuðu peninga-npphæð hafði
flest fólk þetta, en ýmislegt var í
fari þess, sem gerði }>að að verk-
um, að yfirvöldin í Canada álitu
J>að ekki æskilega þegtva Canada-
veldis.
VEGGLlM
Vönduð bygginga efni:
The “Empire”
W o o d F i b e r
tegundir.
Cement Wall
og Finish Plast-
ers
Sackett Plaster
Board.
Vér höfum ánægju af að senda
yður vora “Plaster Book”
Manitoba Gypsum
Co., Limited.
Winnipeg, Manitoba