Heimskringla - 01.06.1911, Síða 7
HEIMSKRINGE -K
WINNIPEG, 1. JÚNÍ 1911. BLS7*1'
íslands fréttir.
FRA ALí>INGI.
Síðustu íslandsblöð, frá 3. maí,
báru það með sér, að nábrast tók
óðum þinglok, og virtist augljóst
að mörg frumvörp myndu daga
uppi í þdnginu, — eitt meðal ann-
ars fánamálið, sem sofnaði í nefnd
í efri deild. — Kjörtimi hinna kon-
ungkjörnu þingmanna var útrunn-
inn 29. apríl, en var framlengdur
ait konungi út þingtímann.
• • •
liannfrestunar frumvarp séra
Sigurðar frá Vigur, sem samþykt
var i efri deild með miklum at-
kvæðamun, var felt eftir harðar
umræður í< tieðri deild, án þess að
nefnd væri kosin. Voru 15 á móti
frumvarpinu en 10 með. Var séra
Ðjörn þorláksson aðal andmæl-
andi frumvarpsins, og fanst séra
Sigurði í Vi.gur hann ganga svo
nærri sér með persónulegum að-
dróttunum, að hann ( Sigurður
sagði sig úr Sjálfstæðisflokknum,
sem hann þó var formaður fy,rir.
jþótti Heimastjórnarmönnum þetta
happ mikið ; en skamma stund
rstóð það. því allir þingmenn
Sjálfstæðisflokksins, að Birni Jións-
.syni undanskildum, biáðu hann í
guðanna bænum kyrran vera i
ilokknum. Og séra Björn þorláks-
son lýsti því hátíðlega yfir, að
meining sín hafi ekki verið, að
móðga séra Sigurð, og bað hann
.að virða ummæli sín á betfa veg.
Hafði þetta þau áhrif, að Sigurð-
ur tók úrsögn sína úr flokknum
aftiur.
* * *
Samþykt hefir verið af þinginu
að stofna háskóla íslands í Rvík
á aldarafmæli Jóns Sigurðssonar
17. júní. En laun háskólakennar-
anna reiknast frá 1. október að
beija. — það eru Bjarni Jónsson
■frá Vogi og Hannes Hafstein, sem
bezt hafa barist fyrir að fá máli
þessu framgengt.
Aðgangur kvenna til allra em-
bætta á tslandi var samþyktnr í
neðri deild 22. apríl og afgreitt
sem lög frá alþingi.
• * *
Ekki er ráðherraskipunin enn úr
söigunni, því tillaga til bingsálykt-
unar var borin fram í neðri deild
svohlj.óðandi :
■'Neðri deild alþingis ályktar, að
skipa þriggja manna nefnd til að
rannsaka símskeytd þau, er ýmsir
þingmenn hafa sent til íslenzku
skrifstofunnar í Kaupmannahöfn
viðvíkjandi ráðherraskiftunum i
vetur. Nefndin liefir vald til að
heimta skýrslur munnlegar og
bréflegar, bæði af embættismönn-
um og einstökum mönnurn, sam-
kvæmt 22. gr. stjórnarskrárinnar”
Flutningsmenn hennar voru :
Hkúli Tihoroddsen, Benedikt Sveins
son, Jón Jónsson frá Ilvanná og
Jón þofkelsson.
IJmræður urðu hinar heitustu
um iþingsályktunartillögu þessa,
sérstaklegia milli Skúla Thorodd-
sen og H. Hafstein. En úrslitin
urðu þau, að hún var feld með
jöfnum atkvæðum.
• * •
Stjórnarskrárfrumvarpið liefir
verið samþykt af þinginu, segir
datiska blaðið Ptlitiken 10. þ.m.
og fara því aukakosningar íram á
þessu sumri.
• * •
Gœslustjóri Landsbankans var
kosinn í neðri deild séra Vilhjálm-
ur 'Briem með 13 :10. Áður hafði
'það starf séra Eiríkur bróðir hans.
Jón samábyrgðarstjóri fékk 10
atkv. og 2 seðlar voru auðir.
Gœzlustjóri Söfnunarsjóðsins var
kosinn í neðri deild fhv. landsh.
Magnús Stephensen með öllum
þorra atkvæða. Hann hefir gegnt
því starfi undanfarin ár.
* * *
Yfirskoðunarmenn landsreik'n-
inganna voru kosnir : í n. deild—
Skúli Thoroddsen alþm. með 15
gegn 10 atbv. í efri deild—Lárus
H. Bjarnason með 6 :5 atkv.
* * *
Endurskoðunarmaður Lands-
bankans var af sameinuðu þingi
kosinn Beniedikt Sveinsson.
* * *
Skúli Thoroddsen hefir af þing-
inu verið kosinn erindsreki íslands
við hátáðahöldin í Rúðuborg á
Frakkl'andd, sem haldin verða þar
í júnímánuði í minndngu þess, að
1000 ár eru liðin frá því að Göngu-
Hrólfur lagði Norður-Frakkland
undir sig. — Guðmundur Finn-
bogason magister verður erinds-
reki 'Bókmentafélagsins við þessi
hátíðaihöíd. Hefir þingið veitt
styrk til þeirrar farar.
* * *
Á sunnudaginn 23. apríl héldvj
ílojkks'menn Jóns alþingismanns frá
Múla honum veizlu i í minningu
þess, að þá var hann 56 ára gam-
all og hafði 'verið 25 ár þingmað-
ur. Voru þar kvæði flutt : eftir
llannes Hafstein fyrir minni Is-
lands, og tvö fyrir minni heiðurs-
gestsins eftir Jón ölaisson og
I Guðmund Magnússon. íslands-
| minni Hafsteins birtum vér á öðr-
I um stað i b'.aðinu.
I
Embættisvieitingar : Héraðs-
I læknar hafa verið skipaðir—Guðm.
j Guðfinnsson í Axarfirði, Ölafur
Lárusson í Hróarstungu, Jónas
Kristjánsson á Sauðárkrók og
Guðm. þorsteinsson í þ'istilfirði.
— Frið'björn Steinsson danne-
brogsimaður varð 73. ára 5. apríl.
Ilann hefir verið bóksali og bók-
bindari í Akureyrarbæ í 52 ár, en
hætt'ir nú í vor þeirri atvinnu. —
Hann hefir verið einn hinn nýtasti
i og merkasti borgari þess bæjar og
j haft mörgum trúnaðarstörfum að
| gegna, og ætíð verið vinsæll og
mikils virtur, því að ha,nn er gæt-
inn og fastur fyrir, hagsýnn og
ráðhollur.
— í Sandfellshaga í Axarfirði er
komin upp illkynjuð fjársýki í
I sauðfé. Sex sauðir voru dauðir, er
i síðast fréttist og 90 höfðu tekið
j sýkina. Lýsingin á sýkinni er ó-
nákvæm, en sagt er að hún byrji
| með hálsbólgu og höfuðbólgu og
eyrun detti jafnvel af og augun úr
augnatóftunum, er sýkin er á
hæsta stigi.
— þann 27. apríl féllu dómar í
22 meiðyrðamálum, sem Tryggvi
I Gunnarsson', fyrv. bankastjóri,
höfðaði sl. sumar, í málaferla-
þrættinni þá, móti Isafold. Sektir
j frá 15—50 kr. í máli og málskostn-
aður 15 kr., alls sektir og máls-
; kostnaður samtais, að sögn, 785
j kr. Sýknaður var ritstj. Isafoldair
! í þremur af málunum. Einar Arn-
I órsson lagaskclakennari dæmdi. —
i Hann er settur aðstoðarmaður bæj
arfógeta meðan á þingi stendur.
i Enn eru eftir ódæmd af þessum
| blaðamálum 20 mál, sem Eiríkur
Briem prestaskólakennari höfðaði
gegn ísafold.
— Mokafli fyrir Suðurlandi; hafa
botnvörpungarnir reykvíksku aflað
aíburða vel. Góður afli einni.g á
fiskiskútur og mótorbáta. Allmik-
ið af sel og síld á Eyjafirði.
— Bátur fórst í Miðnessjó 25.
apríl sl. og drukknuðu fimm menn,
en þremur varð bjargað af ensk-
um botnvörpiung. Báturina var frá
Nýlendu í Hvalsneshverfi og var á
lveimledð úr fiskiróöyi, drekkhlað-
inn. Skolað’ist sjórinn yfir hann
og hvolfdi honum ; komust þeir
þrír,. sem bjargað varð, á kjöl, oy
gá'tu haldið sér þar í fullan hálf-
an tima, unz björgun kom. Ildnir
fimm tirðu strax viðskila við bát-
inn og druknuðu. þeir voru : For-
maðurinn Tón Jónsson frá Ný-
lendu í Hvalsneshverfi, fertugur
maðtir ; Páll Pálsson frá Nýjabœ ;
þorvaldur Bjarnason, Benedikt
Guðmundsson og Guðmundur
Sveinsson. Allir höfðu þessir menn
verið ósyndir og varð það þeini að
fjörtjóni.
— Jóhann skáld Sigurjónsson frá
Laxamrýiri hefir nú fullsamið sjón-
leik á dönsku, er hann kallar
i F'jalla-Eyvindur. Er ráðgert, að
hann verði á þessu sumri sýndur
; á einti helzta leikhúsd Hafnar, og
ledki frú Dybwad, frægasta leik-
j kona Norðmanna, Höllu konu Ey-
I vindar.
— Finnur Jónsson er nú orðinn
neglul'egur prófessor í norrænu við
j háskólanu í Kaupmannahöfn.
— Magnús Jóhannsson, bóndi
frá Ásbjarnarstöðum í Húnavatns-
sýslu, andaðist á Landakotsspítal-
anumri Reykjavik í apríl. Var um
sextugt.
SÍÐARI FRÉTiTIR.
Alþingi var slitið miðvikudaginn
10. maí, eftir tæpa þriggja mánaða
setu. ‘“Vandræðaþingið” hefir það
verið nefnt, og mun réttnefni fyrir
margra hluta sakir, og munu sum-
ar af aðgerðum þess lengi í minn-
um hafðar. Frumvörp til laiga
voru lögð fyrir þingið 107 alls, 24
stjórnarfrumvörp og 83 þingmanna
frumvörp, og af þeim náðu sam-
þykki 45 og voru afgreidd sem lög.
þingsályktunartillögur voru 49 og
af þeim 25 samþyktar. Ein fyrir-
spurn til ráðherra var borin fram
og 11 rökstuddar dagskrár. Merk-
ustu lögin, sem samþykt voru,
auk fjárlaga og fjáraukalaga, eru :
Stjórnarskráin, viðskiftalögin, jafn
réttislög kvenna til embætta og
hafnarlög Reykjavíkur.
þingið samþykti að halda áfram
viðskiftaráðunautsstarfinu og að
'Bjami frá Vogi gegndi þeim starfa
sem áður. Var þetta samþykt í
sameinuðu þingi með 20 atkv.
gegn 19. Ráðherra Kr. J. kvað það
vera að lýsa vantrausti á stjórn-
inni, nfl. sér sjálfum, að binda fjár-
vedtinguna við nafn sérstaks
manns. En þar sem samþykt var
að biinda hana við nafn Bjarna, þá
hefir ráðherrann að sjálfs síns
dómi fengið vantraustsyfirlýsingu
síðasta þingdaginn.
— Sigurður Sigurðsson, ráðu-
nautur og alþingismaður, sag.ði sig
fyrir þingilokin úr Sjálfstæðis-
flokknum. Hafði hann þá um tíma
fylgt Heimastjórnarmönnum við
atkvæðagredðslu. Er hann fjórði
þingmaðurinn, sem úr flokknum
hefir farið á þessu þingi. Hinir
eru : Kristján Jónsson, Jón frá
Haukagili og Hannes þorsteins-
son.
— Á þi:i'gmannafundi voru þess-
ir kosnir í stjórn þ'jóðvinafélags-
ins : IJr. Jón þorkelsson forseti Og
Björn Krist'jánsson varaforseti.
En í ritnefnd : Björn Jónsson,
Einar Hj irleifsson og séra Jens
Pálsson. Tryggvi Gunnarsson hafði
verið mjög lengi formaður þessa
félags.
— Skattamála - milliþinganef'nd
var kosin af sameinuðu þingi :
Aug. Flygienring, H. Hafstein, M.
Blöudihl og Sig. Hjörleifsson.
Fimta manninn skipar stjórnin.
— Aukaþingskosningar eiga fram
að fara á komandi hausti, og auka
þingið að koma saman í næstkom-
andii febrúarmánu'ði.
— Til minnisvarða Jóns Sigurðs-
s'onar er ötullaga safnað í Norður-
Isafjarðarsýslu, að því er Vestri
segir. Hann leggur til, að sjómenn
gefi til hans afla úr einum róðri,
og væri það stór gjöf.
— Minningarsjóð Jóns Sigurðs-
sonar eru Isfirðingar að stofna og
hefir nokkurt fé þegar safnast til
hans. Ekki er kunnugt til hvers
sjóðnum verður varið.
— Við Hornafjörð strandaði ný-
lega franskt fiskiskip frá Paimpol,
rakst á ísjika, brotnaði og sökk.
Tveir meiin fórust, en hinir björg-
uðust og voru komnir til Fá-
skrúðsfjarðar, er fréttin kom hing-
að af stirandinu. það er sagt, að
s’kipið heiti Madelaine.
— Prestafundur Hólastiftis verð-
ur haldinn á Akureyri 17.—19 júní
næstkomandi.
— Mokfiski er nti sagt við tsa-
fjarðardjúp,. Vlélabátar liafa fengið
ílestir 70—90 króna hlut eftir vik-
una, en nokkrir á annað hundrað
krónur. Bclmgar hafa aflað mest.
— Gipsmynd Jóns Sigurðssonar
var fullger 8. maí. Hafði Einar
Jónsson hana til sýnis í alþingis-
húsinu tvo 'eftirfarandi daga, og
fanst öllum, er hana sáu, mikið
um.
— Siglufjarðar læknishérað er
veitt Guðmundi T. Hallgrímssyni,
settum lækni í Höfðahverfishéraði.
— Hafísinn í rénun, að mestu
farinn frá Austurlandi, en hroði
all-mikill fyrir Norðurlandi ; land-
fastur við Horn og Sléittu.
— Norskur varakonsúll á Isa-
firði er orðinn Guðmundur L.
I lannesson lögfræðingur.
— Verzlunarskóla Islands var
sagt tipp 1. maí. Útskrifuðust 19
nemendur, þar af 3 stúlkur.
— M a :i nailá t. Nýdáinn er á
Sdglufirði Guðmundur S. Th. Guð-
mundsson póstafgirieiðslumaður þar
Nær íertugur að aldri. Dugna>ðar-
maður og drengur hinn bezti.
Krabbamein varð honum að bana.
— Árni Gíslason leturgrafari and-
aðist í Reykjavík þann 4. maí, eft-
ir lanicrvarandi vanheilsu. Hinn
mesti merkismaður. Fjörgamall.
— I sl. viku voru $30,000 borg-
aðir fyrir eitt sæti í Stock Ex-
change féTaginti í Montreal. þetta
þýðir, að inntökuleyfi í verzlunar-
manna félaigið þar kostar 30 þús-
und dollars í eitt skifti fyrir öll,
og með ákveðnu auka-árstáflagi
eftir þörfum félagsins.
Dry kkj uskapur
og tóbaksnautn.
Ef til væri meðal, sem læknaði
drykkjuskap og tóbaksnautn, án
vitundar og tilverknaðar neytand-
andans sjálfs, þá yrði það merk-
asta uppfynd'ing aldarinnar, þvi
hver drykkjumaður og tóbaksneyt-
andi hyrfi á skömmum tima.
Hver sem hefir í hyggju að
lækna annanhvorn þennan ávana
kunningja sinna á þennan hátt,
mun sjá, hversu fráleitt bað er, eí
hann hugsar ögn um það.
það þarf að beita fullkominni
einlægni við þann, sem lækna skal.
Með hans aðstoð má lækna hann
af hvorum þessum löstum, en á-
rangurslaust án hans hjálpar og
samþykkis.
Dr. McTaggart í Toronto, Can.,
ábyrgist, að lækna menn ai
drykkjuskap á þremur til fjórum
dögum, ef forskriftum hans ar ná-
kvæmlega framfylgt. Læknirinn
hefir selt þétta ofdrykkju læknis-
lyf til fleiri ára og hefir bætt
fjölda manns. Lyfið kostar að
eins $25.00 og mun reynast eins
vel, ef ekki betur, Qg nokkur $100
lækning, sem völ er á.
Meðal hans móti tóbaksneyzlu,
er sérstaklega tilbúið í því skyni.
Kostar að eins $2.00, og geta
menn læknast af því á hér um bil
tveimur vikum
Bæði lyfin eru ágæt til styrking-
ar líkamans, og hafa engin óholl
eftirköst á þann, sem læknaður er.
Fjöldi vottorða gefin af fúsum
vilja. Getur hver fengið að sjá
þau, sem þess óskar»
Lyfin send, þegar borgun er
fengin. Burðargjald ókeypis. Bréfa-
viðskjfti boðin, — stranglega
heimuleg.
Skrifið eða ráðgist við
K K AIBERT,
einka-umboðsmaður í V.-Canada,
708 McArthur Bldg., Winnipeg.
Á öðrum stað í þessu bJaði aug-
lýsa þeir Johnson og Carr jaf-
leiðsluiðnað sinn, að 761 Wifliatn
Ave. Johnson mun vera eind ís-
lendingurinn hér í borg, seti stund-
ar það starf á eigin reikuing, og
með því að maðurinn hefir mikla
starfsþekkingu af margra ára
vinnu við allskyns rafleiðslu, } á
ættu Islendingar að unna lionum
viðskifta sinna. þeir hafa meira en
nóg verk fyrir ednn mann að gera
á öllum ársins tímum.
TVÖ SMÁKVÆÐI.
Ást.
Ást er naust, sem að eins hjartað
skilur,
ást er lind, sem þomað getur ei ;
ást er hvöss, sem æðis fellibylur ;
ást ier iþíð, sem drauma fögur mey.
Ást á heima á efsta fjallatindi ;
ást er fólgin í instu hjarta þrá ;
ást sér hreyfir með örlaganna
vindi ;
ást er sælu-drauma vorra spá.
Perla.
I.
Mörg er perla í djúpi ins dulda
dysjuð í eilífðar reit.
Mörg er lika mannleg perla
máske falin, og enginn til veit.
II.
Mörg er perla í grundu grafin,
geymd þó mannlegt auga týni.
Margur steinn, sem mun ei skafinu
er máske gimsteinn, þó ei skíni
F. H.
Herra Jón Hólm, guBsmiður að
770 Simcoe St., biður þess getdð,
að hann selji löndum sínum gull
og silfur-muni og gigtarbelti. —
Belti þessi eru óbrigðul við gigt.
ef þau eru notuð samkvæmt fyrir
skipunum Jóns. Kosta að ein?
$1.25.
JÖN JÖNSSON, járnsmiður, af
790 Notre Dame Ave. (horni Tor
onto St.) gerir við alls konai
katla, könnur, potta og pönnui
fyrir konur, og brýnir hnífa op
skerpir sagir fyrir karlmenn. —
Alt vel af hendi leyst fyrir litla
borgun.
Giftingaleyfisbréf
SELUR
Kr. Ásg. Benediktsson
424 Corydon Ave. FortRoug
Hvað cr að ?
Þarftu að liafa eitthvað til
að lesa? Hver sá er vill
fá sér eitthvað nýtt að lesa
í hverri viku, ætti að gerast
kaupandiað Heimskringlu.
Hún færir lesendum sfn-
nm ýmiskonar nýjan frðð-
leik 52 sinnum á ári fyrir
aðeins $2.00. Viltu ekki
vera með ?
PRENTUN
VÉR NJÓTUM, sem stendur, viðskipta margra
Winnipeg starfs- og “Business”-manna.—
En þó erum vér enþá ekki ánægðir. —
Vér viljum fá alþýðumenn sem einatt notast við illa
prentun að reyna vora tegund. — Vér ábyrgjumst
að gera yður ánægða. — tífmið yðar næstu prent.
pðntun til —
PH03STE 334
THE ANDERSON CO.
PROMPT PRINTERS
555 Sargent Ave. Winnipeg, Man.
The Hyland Navigation Co.
hefur nú opnað
SUMAR SKEMTIFERÐA SKRÁSETNINGAR
Margar þegar skiáðar.
TJALDSTAÐIR til leigu til sumardvalar, í
“HYLAND PARK’’
Rétt við ána. Dýrðlegt útsyni. Btrætisvagnar á hverjum tuttugu
- mfnútum.
HYLAND NAYIGATION CO.
13 Bank of Hamilton Chambers. Winnipeg.
M_eö þvl aO biöja œfinleí?a um
“T.L. CIGAR,” þá ertu viss aö
fá ágœtan vindil.
T.L.
(UNION MADE) -**—
Western Cigar Factory
Thomas Le«, eiizandi Winnnipeg
(s'
asaaa?* mamsam nmanma antaaaauuanBn
V LDREI SKALTU geyma til É
H morguns sem hægt er að gera 1
* f dag. Pantið Heimskringlu f dag. j|
WBsamm hhhiiiih *emœsiamsiewmt&mn!r.%
6)
AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA
Bókalisti.
N. 0TTEN30N S,- River Par. W’p’g.
Ljóömæli Páls Jónssonar í bandi (3) 85
Sama bók (aft eins 2 eint. (3) 60
Jökulrósir 15
Dalarósir (3) 20
Hamlet (3) 45
Tíftindi Prestafélagsius í hinu forna Hólaskifti (2) 15
Grant skipstjón (2) 40
Börn óveftursins (3) 55
Umhverfis jöröina á áttatlu dögum (3) 60
Blindi mafturinn (3) 15
Fjórblaftafti smárinn (3) 10
Kapitola (1 II.fBindum) (3) 1.25
Eggert ólafsson (B, J.) 15
Jón Ólafssonar Ljóftmæli 1 skrautbamdí (3) 60
Kristinfræfti (2) 45
Kvæfti Hannesar Blöndal (2) 15
Mannkynssaga (P. M.) í^bandi (3) 85
Mestur í heimi, t b. 15
Prestkosningin, Leikrít, eftir P.E., í b. (3) 30
Ljóöabók M. Markússonar 50
Ritreglur (V. Á), í b. 20
Sundreg ur, 1 b. 15
Verfti ljós 15
Vestan hafs og austan, Prjár sögur eftir E. H., 1 b. 90
Víkingarnir áHálogandi eftir H. Ibsen 25
Porlákur'helgi 15
Ofurefli, skálds. (E. H.) 1 b. 1.50
Ólöf 1 Ási (£) 45
Smælingjar, 5 söw?ur (E. H.), 1 b- 85
Skenr.tisCgur eftir S, J. Jóhannessou 1907 25
Kvæfti eftir samalfrá 1905 25
Bóndinn
MinninparitJ (Matt. Joch.)
Týndi faftirinn
Nasreddin, í bandi
Ljóftmæli J. Pórftarsonar
Ljóömæli Gestur Pálssou
Maximi Petrow
Leyni-sambandift
Hinn óttalegi leyndardómr
Sverft og bagall
Waldimer Nlhilisti
Ljóftmæli M. Joch. I,-V. bd.. í skrautb. (15) 4,0
Afmælisdagar Guöm Finnbogasonar l.C
35
(3) 45
“ 75
[(2)1 45
(2) 40
(2) 50
(2) 30
(4) 75
(4)1.1!
(10) il.8<
90
9C
27.80
5.15
Ljóömæli eftir sama.(Meft mynd höfund-
arin9} frá 1897 25
Safn til sögn og Isl. bókmenta 1 b., III.
bindi og þaö sem út er komift
af því fjóröa (53c) 9.4
íslendingasaga eftir B, Melsted I. bindi
bandi, ogþaö sem út er komift af 2, b. (25c) 2.85
Lýsing íslands eftir P. Thoroddsön 1 b.(16c) 1.90
Fernir fomlslenzkir rtmnaflokkar, er
Finnur Jónsson gaf út, bandl (5cj 85
Alþingisstaftur hinn forni eftir Sig, Guft-
mundson, í b. (4c)
Um kristnitökuna árift 1000, eftir B. M.
Olsen (6c)
fslenzkt fornbréfasafn,7. bindi innbund-
ift, 3 h. af 8 b. (1.70)
Brskupasögur, II. b. innbundift (42c)
Landfræftissaga íslands effcir Þ. Th., 4.
b. innbundift (55c). 17.75
Rithöfunda tal á fslandi 1400—1882, ef-
tir J. B., í bandi (7c) 1.00
Upphaf allsherjarríkis á íslandi eftir
K. Maurer, í b. (7c) 1.15
Auftfræöi, e. A. ól., í bandi (6c) 1.10
Presta og prófastatal á íslandi 1869,1 b.(9c 1.25
Norfturlaudasaga eftir P. Melsted, 1 b.(8c) 1.50
Nýjatesfcamentiö, 1 vönduöu bandi (lOc) 65
Sama, 1 ódýru bandi (8c) 80
Kóralbók P. Guftjónssonar »90
Sama bók t bandi 110
Svartfjallasynir (5) 60
Aldamót (Matt. Joch,) 20
Harpa V4) 60
Feröaminningar, 1 bandi (5) 90
Bréf Tómarar Soemundsson
Sam a bók í skrautbandi
íslenzk-ensk oröabók, G. T. Zoega
Gegnum brim og bofta
Ríkisréttindi íslands
Systurnar frá Grænedal
Œhntýri handa börnum
Vísnakver Páls lögmans Vldalins 1
Ljóftmæli Sig. Júl. Jónannesson 1
Sögur fré Alhambra
Minningarrit Templara 1 vönduöulbandi 1
Sama.bók, t bandi i
Pétur blásturbelgur
Jón Arason
Skipið sekkur
Jóh. M. Bjarnason, Ljóðmæli
Maftur og Kona j
Fjarfta mál
Beina mál
Oddur Lögmaður
Grettis Ljóft.
Dular, Smá"Ögur
Hinrik Heilráfti, Saga
Andvari 1911
Œflsaga Benjamin Franklins
Sögusafn þjóftviljans I—II árg. 35c; III árg.
IV árg. 20c; V.árg. 20; VI. 4«;; VII. 45: VII
árg. 55; IX.árg. 55; X. árg. 55; XI. árg. .
XII. árg. 45; v XIII. árg, 45 : XIV. árg,
XV. árg. 30: XVi. árg. 25; XVii, árg. 45; XV
árg. 55; XiX, árg. 25.
Alt sögusafn þjóöviljan selt'á $7
Eidraunin (Skáldsaga)
Vallyes sögur
Valdimar munkur
Kynlegur þjófur
Sagan af staraafti Stórvirkssyni t bandi
óbundin
Rtmur af Sörla sterka Lbandi
óbundin
Myndin af fiskiskipinu j
Bækur söglnfélagsins Reykavlk;
Moröbréfabæklingur ]
| Byskupasögur, 1—6, ]
! Aldarfarsbók Páls lögmanns Vídalin
Tyrkjaránift.I—IV, ;
I Guftfrœftingatal frá 1707—"07 1
Bækur Sögufélagsins fá áskrifendur fj
, nœrri hálfvirfti,—$3.80.
Umboftsmenn mínir t Selkirk eru] Daln
bræöur.
Pess skal getið viftvíkjandi bandinu á Fo
aldarsögunum Norfturlanda, aft þaft er m
vandaft, handbundiö skrautband, vel frá geo
eins er meft Bréf Tómasar Sæmundssonar.
Tölurnar í svigum tákna burftargjald,er se:
• st n>eö pöntuuum