Heimskringla - 08.06.1911, Page 5
HEIMSKKINGCA
WINNIPEG, 8. JÚNl 1911.
b i;
Fréttir úr bænum.
Herra Steingrímur Jónsson, frá
Candahar, kom hinggö til borgar-
innar á laugardaginn var. Gat
hann þess, að járnbrautarlestir
gengju nú beint frá Winnipeg tif
Edmonton, án næturdvalar í York-
ton, sem áður hefir verið. Einnig
kvað hann uppskeruhorfur þar hin-
ar beztu, (sem verið hafi í þau sex
ár, sem þessi nýlenduhluti hafi
verið bygður. Framfarir miklar, —
því þegar hann lagði af stað frá
Candahar hafi þrír gufuplógar og
tvær gasólín-vélar, sem hafi dregið
12 plóga hver, verið að plægja
nýtt land innan fjögra mílna frá
bænum. Telur hann að innan eins
til tveggja ára verði land alt
í kring um bæinn komið í einn ak-
ur. Herra Steingrímur lagði af
stað þeimleiðis í kveld.
Herra Runólfur Sigurðsson, frá
Semons, Saslfi, sem hingað kom
fyrir nokkrum dögum til að mæta.
innflytjendum, sem komu frá ís-
landi, lagði heimleiðis aftur á
laugardaginn var. Hann bað Hkr.
að bera kveðju sína til kunningj-
anna hér í borg með þökk fyrir
viðtökurnar.
I «=------ -
ílíaðið Free Press getur þess, að
ungfrú Ingibjörg Hinriksson, frá
Churchbridge, hafi af Manitoba
búnaðarskólanum verið ráðin til
þess að ferðast með ílokki þeim,
sem skólinn gerir út til þess að
sýna íbúum Manitoba fylkis ný-
Ustu aðferðir í öllum greinum
landbúnaðarins. TJngfrii Hinrikson
á að sýna smjörgerð og annað
það, er rýtur að starfi kvenna á
heimilum bænda.
“Natural Ilistory of Iceland’’
heitir bók ein mikil í skinnbandi,
sem herra C. H. Thordarson í Chi-
cago sendi nýlega herra N. Otten-
son i River Park að gjöf. Bókin
er á ensku, prentuð 1758 í Bondon
(fyrir meira en 150 árum) á Eng-
landi, á kostnað manna í Bret-
lanhi. í bókinni er nákvæm lýsing
á jarðvegi íslands, eldfjöllum,
málmum, jurtagróðri, steinmynd-
un, dýrum, fuglum, fiskum ; einnig
lyndiseinkunnum, siðum og lifnað-
arháttum íbúanna og atvinnuveg-
um, loftslagi, tíðarfari og fleiru þ.
h. Bókin er rituð af herra Ander-
son, fyrrum borgarstjórg í Ham-
burg á þýzkalandi. 1 bókinni eru
merkilegar veðurskýrslur, sem ná
yfir hvern dag á tveggja ára tíma
bili, frá 1. ágúst 1749 til 31. júlí
1751. 1 skýrslunni er lýst vind-
stöðu og vindhraða, loftþunga og
hita og kulda yfir hvern dag, og
í athugasemdum aftan við skýrsl-
una, sem samin er af dönskum
manni, herra N. Horrebow, er það
tekið fram, að vetrar á Islandi
séu engu kaldari en í Danmörku,
en sumrin nokkru kaldari ; annars
sé veðurlag . í báðum löndunum
mjög líkt, að því undanteknu, að
vindasamara sé á íslatidi, og er
það talið landinu til gildis, því
vindarnir hreinsi loftið og geri
landið sérstaklega holt til íbúðar.
Fólkinu er vel lýst og bókin er öll
skemtileg lesturs og dýrgripur í
sinni röð.
Eigandi Market Hotel hefir
breytt auglýsingu sinni í þessu
blaði. Hefir nú íslenzkan veitinga-
mann, herra P. S. Anderson, fyrr-
um aldinasala og ‘Pool Room’
haldara á Sargent Ave., sem ís-
lendingum er vel kunnur. Hótel-
eigandinn er hófnautnarmaður, og
hefir mikið álit á íslendingum sem
ráðsettum og kurteisum mönnum.
Hann óskar eftir heimsókn þeirra
og viðskiftum og er reiðubúinn að
veita þeim öll þægindi og leiðbein-
ingar, ef þeir eru ókunnugir og
þurfa þess með. Market Hotel er
aðal-hótel Islendinga í Vestur- og
N or ður-W innipeg.
JÖN JÖNSSON, járnsmiður, aB
790 Notre Dame Ave. (horni Tor-
onto St.) gerir við alls konar
katla, könnur, potta og pönnur
fyrir konur, og brýnir hnífa og
skerpir sagir fyrir karlmenn. —
Alt vel af hendi leyst fyrir Iitla
horgun.
T ÖR BRÉFI
Narrows, 8. mai 1911.
Næstl. vetur var fremur harður.
Fiskiveiði í meðallagi góð og verð
allgott. En brautir afleitar vegna
snjóþyngsla. þó bætti það mikið
úr skák, að herra Jóhann Hall-
dórsson, kaupmaður á Lundar,
brauzt í, með miklum tilkostnaði,
að setja upp verzlun og kaupa
fisk, á hentiTgum stað við nýju
járnbrautina, löngu áður en hún
var fullger, og sparaði oss þannig
50 mílna flutning á fiski okkar og
vörum.
'V'ortíSiri verið fremur góð, en
regnfall mikið síðan leið á maí.
þó mun sáning víðast hvar á enda
°g gripahöld yfirleitt góð.
Félagslíf hefir verið fremur gott
hér hin síðustu missiri, og sið-
gæði gott á öllum samkomurp-.
Ileilsufar hefir verið gott í bygð
þessari yfirleitt. þó er nýlega dáin
Ilafldóra kona Bjarna Helgasonar,
bónda hér, væn kona og vel látin.
Engar reglubundnar gufubáta-
ferðir eru nú framar á Manitoba-
vatni, síðan járnbrautin var lögð
í Gypsum námana við Fairford,
og er það fremur hveimleitt, eins
og landvegir eru hér slæmir til
járnbrautar.
17. júní í Leslie.
íslendingar í Leslie, Sask., bjóða
til kveldsamkomu í Goodtemplara-
húsinu þar í bænum kl. 8 að
kveldi þess 17. júní næstk.
það er til minningar um Jón
Sigurðsson og frelsisbaráttu vorr-
ar kæru íslenzku þjóðar.
Samkoman verður frí fyrir alla,
og verður þar skemt eftir föngum
með söng og ræðum.
Eftir áhuganum að dæma, sem
Islendingar sýndu f, að leggja fram
peninga til minnisvarða Jóns, má
vonast eftir, að þeir taki margir
þátt í að minnast hans þenna dag.
það kostar enga peninga, en að
eins ómakið og fyrirhöfnina að
koma á staðinn.
Leslie, 5. júní 1911.
í nefndar umboði
W. II. PAULSON.
ISLENZKAR BÆKUR
Ég undirritaður hefi, til sölu ná-
lega allar íslenzkar bækur, sem til
eru á markaðinum, og verð að
hitta að Lundar P.O., Man.
Sesndið pantanir eða finnið.
Neils E. Hallson.
BANFIELD’S
Hagkvœma Af sláttar sala
Enn einn listinn yfir afsláttasölu sem hverri
húsmóðir í Winnipeg ætti að falla í geð.
Lesið hvert alriði, því vér iiöfurn farið nið-
ur fyririnnkaupsverðísumum tilfellum. Konr-
ið snemma, því sumt sem er hér boðið, er
lítið af. ----- -
‘‘PURITAN”
KÆLINGARSKÁPUR
Eikar fágaður og gerður eftir
ný'justu tizku, með loftleiðslu og
öllum þægindum. Matarhillur
og afrenslispípur hreyfanlegar.
Nauðsynlegur á hverju heimili.
Stærð 32x20x46 þuml.
Cjörkaupsverð .
$14.50
“QUICK MEAL” 01!u eídavél
Eldavél þessi er vönduð að
gerð og auðvelt að hreinsa. Eld
er hægt að kveikja viðstöðu-
laust og auðvelt að stjórua. —
Verð á þríbrennara (eins og
myndin sýnir , ÍJI “1 Qf
Kjörkaupsverð .......ipIfctOO
Tvíbrennarar
Kjörkaupsvérð ....
$9.50
“EXTENSION” BORÐ
Gert úr ask, eikarmálað, með
stórri kringlóttri topp-plötu og
5 sterkum, útskornum n
fótum. Kjörkaupsverð t * «LOU
“CHIFFONIERS”
Fjórskorin eik eða mahogany
Með 5 rúmgóðum skúffum og
stórum, ávölum spegli, einkar
vönduðum ...
Kjörkaupsverð .....A *«)U
VÖNDUÐ “LACE” GLUGGA-
TJÖLD Á $7.90 PARIÐ
20 pör af fyrirtaks Venise og
Duchesse Point gluggatjöldum,
hvítum og með tvennskonar lit-
blæ. Falleg og vönduð. þau
eru $12.50, $13.50 og $15.00
virði parið. Kjörkaups- ^"7 AA
verð, parið .........$ I ,V\J
FERHYRNUR
“Crossley’s” ensku flauels fer-
hrynur
Ofnar saumlaust, þéttofnar,
fagrar og endast prýðilega. —
Blóma- og Austurlenzkt-skraut,
með tvílitum blæ, rauðar, græn-
ar, bláar, brúnar og mórauðar.
Stærð :
9-0x10 6 9 0x12 0 10 6x12 12 0x12 0
Verð : —
$21.00 $22.50 $24.00 $32.75
$42.00 WILTON FERHYRNUR
9x12 á $32.50
WILTON ferhyrnur eru þétt-
°g gegn-ofnar. Líta alt af út
sem nýjar og hreinar. Mjög end-
ingargóðar. Austurlenzkt skraut
og tvennskonar litblær : rauðar,
brúnar, grænar og bláar. Stærð
9-0x12-0. Vanaverð
$42.00. NÚ ....
$32.50
CARPETS
Skoskar Axminster gólfábreiður
Mikil og þykk loðna. Mjög
fallegar, littrúar og endingar-
góðar. Viðeigandi í hvert húss-
ins herbergi sem er. Blóma- og
Austurlenzkt skraut ; með tví-
litum blæ. Grænar, rauðar, blá-
ar og brúnar. Viðeigandi kögur.
Vanaverð $2.00 yard <J»| CA
Nú hv. vard ...........«pi.OU
ENSKAR BRUSSELS
ÁBREIÐUR
Alt af útlitsfagrar og lireinar.
Endingargóöar og auðvelt að
sópa. Rauðar, grænar, bláar og
rósráuðar að lit. Austurlenzkt
blómamunstur með tvílitum
blæ. Viðeigandi kögur. Vana-
verð $1.40.
Nú hv. vard ........
$1.10
Afsláttur á léreptum
Þriðjungs afsláttur á húsgagnfót ri
Við höfum miklar byrgðir af
þessum vörum, og til þess að
minka þær, seljum vér með
svona miklum afslætti. Hér eru
teiknin öll af frönskum, þýzkum
og enskum klæðum, silki og
vönduðum dúkum, o. s. frv.,sem
eru viðeigandi fyrir veggjatjöld,
til að klæða legubekki, stóla,
hurðir og glugga. Öll 50 þuml.
á breidd, og verðið frá $1.50 til
$7.00 hvert yard. En frá því
eerði gefum vér nú
Þriðjungs afslátt
Nottingham Lace Curtains
100 pör, sem selja á. þau eru
unnin úr bezta tvinnuðum Not-
tingham þræði ; fögur og við-
eigandi fvrir hvaða herbergi
sem er. þau munu fijúga út,
þar sem þau eru $1.75 til $2.25
virði, len seljast nú, — d*1 14
hvert par ..........•þi.Ifci
dýrar.
J. A. Banf ield
492 IVlain St.
Phones Qarry 1580-1-2
Mottur og Olíudúkar
JAPANSKAR MOTTUR
Kaldar, heilnæmar og þægileg-
ar fyrir sumarbústaði. Brúnar,
grænar og bláar að lit. Traust-
lega gerðar. 36 þmlT 'i C
breiðar. Hvert yd......lOC
OLÍUDÚKAR
Fagurt munstur með snotrum
borða, og ljósir og dökkir að
lit. Endingargóðir. ■* r
Hvert yard ............ 1*IC
REIPIS MOTTUR
Gerðar úr Cucoa tægjum. —
Sterkar, hentugar og ó- 7Cr
Hvert yard .............. •
VÍR MOTTUR
Sterklega gerðar og endast
svo árum skiftir. 3 stæröir
Verð hver $1,00,
FYKIRTAKS LINOLEUM
Með reita og blómaskrauti.
Ljós og dökk að lit. Slétt yfir-
borð. 2 3-ards breið. Vanalegt
'Me.rðK65cf , 45c
Nu hv. fer-vard .......
SUMARBÚSTAÐA MOTTUR
Búnar til úr beztu Cocoa
tægjum. Traustlega ofnar og end
ingargóðar. Rauöar, grænar,
brúnar og mórauðar að lit.
Stærð :
3-0x6 0, 4-0x7-0, 6-0x9-O, 7-6x10-6
Verð : —
$3.00 $4.75 $7.50 $11.75
ÆttareiíkenniS 67
skyldi fá bankastjóranum, og að sér væri send kvitt-
anini undir nafnii Drummond, Coutts og Barclays
bankans.
“það er ágætt”, svaraði bankastjórinn ánægður.
“Æösti umboiðsmalðnr okkar skal koma þessu öllu í
lag fyrir yður. Hann er gáfaður og áreiðanlegur,
og lætur sér rnjög ant um hagsmuni viðskiftamanna
okkar”.
Ofurstinn brosti ánæigður og sat dálítið lengur til
að tala um einstök atriði crindis sins. Hann ætlað-
ist til, að 12 þúsund pund yrðu lögð inn í reikning
bræðranna alls, en ai þessari upphæð væru að eins 6
þúsund borguð nú, og þessi 6 þúsund vildi hann að
strax yrðu borguð í reikning Cyril Warrings, málar-
ans. Hin 6 þúsundin fengi hann að fimm vikum
liðnum, og þau vildi hann að borguð yrðu tafarlaust
f reikning Guy Warrings, blaðritarans. Dowlands-
jörðin hefði auðvitað selst fyrir lágt verð, en á þess-
nm slæmu tímum mætti maður vera ánægður yfir
því, að geta fengið kaupanda að jörðu.
“það var ungfrú Ewes sem keypti, var það
ekki?” spurði bankastjórinn.
“Já, ungfrú Elma Ewes frá Ivenilworth”, svaraði
ofurstinn glaðlega, þegar annað umtalsefni var feng-
ið. “Hún er tónskáld, eins og þcr máske vitið, —
býr til sönglög og lög fyrir dansa : er eitthvað í ætt
við Reginald Clifford, einn af nágrönnum mínum. 1
raun réttri er það frú Clifford, sem hún er í ætt við,
kona'Reginalds, landstjóra sem eitt sinn var ; frú
Clifford er fædd í Ewes, prestdóttir frá Dorchester.
Elma er ættarnafn og nefir verið það um langan
tíma hjá öllum þessum Ewes’um, þeir hafa erft það
írá hinni rúmensku ættmóður sinni”.
“Er það svo?” svaraði bankarinn, sem var orð-
inn dálítið hrifinn af spjalli ofurstans, því Clifford
yar einn af viðskiftavinum hans. “Var ættmóðir
ii i.i ! ■......
68 Sögusafn Heimskringlu
frú Clifford frá Riimeníu. Já, mér sýnist hörunds-
litur hennar nokkuð sunnlendingalegur, — nærri því
Tataralegur, að minsta kosti ekki enskur”.
“Já, þeir kalla það rúmenskt”, svaraði ofurstinn
einlæglega, af því það þykir laglegra, en ég held, þeg-
ar maður athugar það nákvæmlega, þá hafi hún ver-
ið tatarastúlka einhversstaðar frá Austurlöndum.
Sir Michael Ewes, ættfaðir fjölskyldunnar, var sendi-
herra í Konstantínópel, þegar Georg II. réði liér ríkj-
um ; upphafiega var hann tyrkneskur kaupmaður,
og einhverju sinni, þegar hann gekk um götu í Pera
— segir ættarsagan — mætti hann hinni áðurnefndu
tatarastúlku, sem kvað hafa verið mjög merkileg,
ein af þeim — hún hefir kunnað að dáleiða —, sem
upprunalega var af ætt indverskra höggorma-særinga-
manna. það lítur svo út, sem stúlkur þessarar ein-
kennilegu ættar hafi verið uppaldar og mentaðar til
að verða spákonur, sem jafnframt og þær spáðu
dönsuðu eins konar galdradans, mjög óskiljanlegan.
Hvernig sem á þessu stendur, þá er það víst, að Sir
Michael mætti þessari tatarastúlku á götu í Pera,
og þar eð hún var mjög fögur, varð hann strax ást-
fanginn af henni. Ástarþráin óx, þegar hann nokk-
uru/siðar sá hana dansa galdradansinn, og hann hafði
engan frið f)rr en hún var orðin hans. En enda þótt
hann sýndi með þessu smekkvísi Austurlendinga og
fljótfærni í ástasökum, var hann að öðru leyti virð-
ingarverður Breti og þess utan farinn að eldast ;
hann sá úm það, að stúlkunni yrði kend kristin
fræði og hún skírð, og að því búnu kvongaðist hann
henni og fór með hana heim tif Englands, sem lafði
Ewes. Hún var einnig kynt hiröinni og Georg II.,
og lafði Montagu, sem var brúðarmey hennar, kynti
hana öllu heldra fólkinu í London”.
“Nú, hvernig endaði svo þetta djarftefli, því slíka
gifting er víst óhætt að nefna þannig?” spurði bank-
Ættareinkennið 69
arinn.
Endaði? Jú, það éndaði með stórri og fallegri
fjöfskyldu, 13 börnum”, svaraði ofurstinn. “Til
alfrar lukku fyrir föðurinn, dóu flest af þeim á unga
aldri. þau fimm, sem(lifðu, giftust síðar inn í mjög
góðar fjölskyldur, en öll höfðu þau einkennilegt sér-
eðli, sem kvenfólkið erföi. það er mjög einkennileg-
ur arfur þessi ættar-arfur, — mjög merkilegur”.
“Já, það er satt, en hvaða séreðli var það, sem
allar stúlkur ættarinnar erfðu frá þessari tatara
stúlku ?"
“Jú, fyrst og fremst”, svaraði ofurstinn, “eru all-
ar stxilkurnar af Ewes-ættinni, að minsta kosti í
fjórða lið, og sumar lengra niður, með ljósjarpt hör-
und, mjúkt og gagnsært eins og kristallur, þess utan
geta þær allar lesið hugsanir manna á andliti þeirra,
— einhver eðlisávísun hlýtur það að vera. Ég fyrir
mitt leyti vil ógjarnan vera athugaður af konum
þessum, þegar ég er að hugsa um eitthvað, sem ég
vil geyma hjá slálfum mér. Augu og andlit manna
er jafn gagnsært f\’rir þær og gler, þær geta lesið
hugsanir manna í gegnum líkatnann”.
“Já, hafi ættmóðirin verið spákona”, sagði bank-
arinn, “þá er það ekkert undarlegt, því slíkar spá-
konur þurfa að vera skarpskx-gnar; þær þurfa að
geta séð svipbreytingu manns undir eins, og liaga sér
eftir henni, svo að þær í spásögn sinni leggi rétta á-
herzlu á ím\-ndanirnar og geti farið sem næst vilja
mannsins með spásögn sína. Haldið þér það ekki?”
“Jú, áreiðanlega”, svaraði ofurstinn, “það er
einnig mín skoðun, og þessi kona, — Esmeralda hét
hún, en því nafni var breytt|í Elma, sem þótti betur
viðeigandi, og síðan hefir gengið í erfðir —, þessi
kona tilheyrði eins konar erfðastétt eða prestastétt,
sem lagði það fyrir sig að spá, eins og allir forfeður
hennar höfðu gert langt ;aftur í tímann. þess vegna
70 Sögusafn Heimskringlu
þroskaðist þetta atgervi, að lesa hugsanir manna,
meir og meir. Og svo segja menn einnig, að allar
konur, sem eiga ætt sína að rekja til frú Esmeralda,
eða lafði Piwes af Charlwood, sem lum varð í Eng-
landi — eigi þann dag í dag í ge\’mslu sinni undar-
legan og ógeðfeldan arf eftir forfeður sína. Hann er
að sönnu af því tagi, sem ekki er auðvelt að sanna
eða skilja, enda þótt margir af ættarvinuntim hafi
sagt mér það mörgum sinnum”.
“Ó, það er ekki alt búið enn ? Hvaða arfur er
það?” spurði bankarinn.
“Menn segja, að indverski höggormadansinn, sem
var sérkenni í ætt frii Esmaröldu, hafi einnig gengið
í erfð í kvenlegg ættarinnar. þegar þetta ofboð
kemur yfir þær, loka þær sig inni í herbergi sínu,
hefir mér veriö sagt, og snúast þar í hring tímunum
saman eins og dansandi förumunkar, og halda jafnan
á einhverju, sem líkist höggormi, þangað til þær eru
orðnar magnlausar af þreytn. Jafnvel þó að stúlka,
sem hefir Esmeröldu blóð í æðum sínum, geti varist
þessu ofboði um langan tima, brýst það út hjá\henni
þegar hún sér höggorm í fvrsta skifti, eða þegar hún
fær sanna og alvarlega ást á manni. þá er það
eins og ættarinnar mókandi eðli vakni um leið og
ástin, sem er öllu kvenfólki sameiginleg.
“Markvert”, sagði bankarinn, “mjög markvert,
og þó að vissu leyti eðlilegt, því lífsvenjurnar, sem
æfingin gerir alfullkomnar, hljóta að verða samein-
aðar líkama og sál, verða einn liður í líffærakerfi
hennar, og ef þessi kona er af ætt langrar raðar af
spákonum —”
“Ég bið yður að afsaka”, sagði ofurstinn, þegar
hann var búinn að líta á úrið sitt, ,stóð upp og greip
hattinn, “ég var búinn að lofa einum vina minna að
finna hann í gildisskálanum kl. 3J£, svo ég þori ekki
að bíða lengur. Ég reiði mig á að þér, strax og
i