Heimskringla - 08.02.1912, Blaðsíða 1
l
Talsimi Heimskringlu
► ▼
J
J Garry 4110 #
W '
Í
4
Heimilistalsími ritstj.
Garry 2414
*
*
XXVI. ÁR.
WINNIPEG, MANUOBA, FIMTUDAGINN, 8. FEBRÚAR 1912.
Nr. 19.
KINA STYRJÖLDIN.
KeisaxadæmiS Kína, e£tir aS
hafa staöiS í 4800 ár, er nú liSiS
undir lok og lýSveldi komiö í
staöinn. En sem stendur skiitist
Kína í tvö lýöveldi, og er Nank-
injr höfuöborg annars, en Peking
hins.
Afnám keisaradæmisins skeöi á
mánudaginn var, er keisraekkjan
lét birta þann boÖskap þjóöinni,
aö kieisaraættin aísalaöi sér völd-
um, 0£ aö Kína skyldi veröa lýö-
veldi. Fól hún kanslaranum, Yuan
Shi Kai, stjómartaumana, og tók
hann sér þegar bráöabyiigöarfor-
seta nafn.
Fyrsta verk hans, þegar hér var
komið, var aÖ tilkynna Dr. Sun
Yat Sen, uppreistarforsetanum,
málavö|x.tu, og óska þess, aö
samningar kæmust á þannig, aÖ
Kína yrði eitt ríki sem áður, en
ekki tvö, og að sá þeirra yröi
forseti hins sanaeinaða lýöveldis,
sem meirihluti fulltrúa frá öllum
hlutum ríkisins kysi á sameigin-
legum fundi ; og jafnframt, að
höfuðborg ríkisins yrði Peking,
sem áður, en ekki Nanking.
Dr. Sun Yat Sen og stjórn hans
hefir enn ekki svarað sáttaboð-
skap kanslarans, og er óvíst talið
aö uppreistarmenn fallist á slíkar
sættir. þykir mörgum, sem eitt-
hvaö grunsamt sé við þetta alt
saman, og vilja heldur halda styrj-
öldinni áfram og vinna Peking og
jafna um keisaraættina.
Sumir halda því fram, að Kína
sé hetur borgiö sem tveim ríkjum
en einu, og sé ekkert betra en að
Dr. Sun Yat Sen verði forseti í
Suður-Kína, með Nanking fyrir
höfuöborg, og að Yan Shi Kai
veröi forseti Norður-Kína, með
Peking fyrir höfuöborg.
Orusta stóð á laugardalginn við
mynni Yalu fljótsins í Manchuria,
og fóru svo leikar, að uppreistar-
menn unnu mikinn sigur.
Síðustu frétttir segja, að heí
mikill af uppreistarmönnum sé
skamt frá Peking, og mutíi ráðast
á borgina innan fárra daga.
Borgin Hon Kow hefir fallið í
hendur uppreistarmönnum.
óaldarflokkar fara víða um
landið meö ránum og gripdeildum,
brenna bygðir og bæi og drepa og
myrða hlífðarlaust karlmenn,
börn og eldra kvenfólk ; það, sem
yngra er, hafa þeir á burt með sér
og selja mansali í borgunum. Ofan
á þetta og aðrar hörmungar
styrjaldarinnar bætist svo hung-
ursneyð og hallæri í mörgum hér-
uðum, og hafa margir orðið
hungurmorða. Ástandið er því
hörmulegt.
Fregnsafn.
Markverðustu viftburftir
hvaðanæfa.
— Neðansjávar tundurselidill,
tilheyrandi brezka flotanum, fórst
við Isle of Wight fyrra fimtudag,
eftir að hafa rekist á herskipið .
Hazard. Kngri blörgun varð aö- I
komið og druknaði öll áhöfnin, —
14 manns.
— Sneed-málið í Fort Worth, 1
Texas, er nú komið fyrir dómstól- '
aVa. Hefir kviðdlómur verið kall- I
aöur og vitnayfirheyTsla byrjuð.— '
Hefir Sneed fengiö sér fjölda af
beztu lögmönnum ríkis ns til að ,
verja sig, og Boyce fjölskyldan
hefir einnig ráðið sína eigin sak-
sóknara til aö sækja máliö á hend
ur Sneed. Að Sneed og hans
menn svífast einskis sézt bezt af
því, aö aðalvitnið á móti honum,
sem sat við hliö gamla Boyce,
þegar Sneed skaut hann, hefir ver-
ið ráðið af dögum. Vitni þetta,
Edward Trockmorton, sonur fyrr-
um ríkisstjóra i Tejxas, hafði
neytt víns með tveimur honum ó-
kendum mönnum, en vínið var
eiturblandað, og dó Trockmorton
degi síðar, eftir að hafa lýst því
yfir, að sér heföi veriö byrlað eit-
ur. Að það hafi verið Sneeds
menn, sem níðingsverkið unnu, er
vafaJítiö, því einkis er svifist af
þéirra hálfu að veikja sóknina. —
Einnig hefir það orðið uppvfst, að
revnt hefir veriö að múta sumum
af kviðdómendunum, og alt gert,
sem hægt var, til að draga málið
á langinn. — Álit margra er, aÖ
Sneed muni veröa sýknaður af
glæp sínum ; en jafn víst er talið,
ef svo fer, að honum verði ráöinn
bani af einhverjum af Boyce bræðr
unum; því föður sinn viija þeir
ekki láta liggja óbættan í gröf
sinni.— Mrs. Sneed hefir nú höfð-
að skilnaðarmál frá manni sínum
og gerir kröfu til barna þeirra. —
A. G. Boyce yngri er ennþá hér í
Winnipeg og bíður átekta. — Við
stórtíðindum má enn búast áður
málunum lýkur.
— Borgarstjóra kosning fór
fram í Montreai fimtudaginn 1. þ.
m., og var L. A. Lavalle, K.C.,
kosinn með 12,000 atkvæðum um-
fram Ald. George Marcil, borgar-
stjóraefni borgaralistans og tem-
plara. Kosningin var sótt af hinu
mesta kappi, og voru flest öll af
blöðum borgarinnar, klerkaiýður-
inn og bindindismenn á móti La-
valle ; en samt átti hann frægum
sigri að hrósa. Einnig voru fimm
bæjarfulltrúar kosnir, sem borgara
samkundan barðist á móti, og
sem uppvísir höfðu orðið a® fjár-
glæfrum og féllu við kosningarnar
1910 ; nú unnu þeir þau sæti sín
aftur. Yfir höfuð gengu kosning-
arnar mjög á móti “social reform’
og bindindisfélögunum. Auðfélögin
og bandamenn þeirra báru sigur-
inn úr bý.tum. Hinn nýkosni borg-
arstjóri Lavalle hefir setið í borg-
arráði Montreal 12 undanfarin ár.
— Kenslukonur í Quebec fylki
eiga ekki upp á háborðið í launa-
legu tilliti. Kom það fram við
umræður í fyfoisþinginu, að í 12
héruðum væri þeim aö jafnaði
borgað 3 dollarar um vikuna, og
í mörgum stöðum færu laun
þeirra ekki fram úr 5 dollurum á
viku. Af þessum litlu launum eiga
þær svo að klæða sig og fæða. —
| Eftir allmiklar umræður fól þing-
| ið stjórninni, að g.era bráða gang-
| skör að því, að bæta úr hinum
Jágu launum, svo lifvænJeg yrðu.
— Brezka stjórnin og Marconi-
félagið hafa undanfarið átt í
samningum um loftskeytasam-
band, og nú berast þær fréttir, að
samningarnir hafi tekist og að
loftskeytasiamband eigi að tengja
Bretland við allar hinar brezku
nýlendur. FéJagið á að hafa lofað
stjórninni, að sambandið skyldi
komið á áður en árið væri úti.
En hvaða hlunnindi félagið fær
hjá stjórninni, er á huldu. Sam-
dægurs og þessi fregn barst út
hækkuðu hlutabréf Marconi félags-
ins til muna í verði.
— Hertoginn af Fife, hinn ný-
Játni mágur Bretakonungs, átti
engan son, sem gæti erft nafnbæt-
ur hans. Næsta skyldmenni hans í
karllegg er maður sá, er Jekyl
Chalmers Duff heitir, og er lög-
regluþjónn í Sidney í Ástralíu.
Ilann erfir því nafnbætur hertog-
ans, nema hertogatitillim, sem eru
“jarlinn af Fife, Macduff greifi og
barún Braco”, en engar eignir
fvlgja þessum titlum, og verður
lögregluþjónninn jafn fátækur eft-
ir sem áðtir, þó hann bæði sé jarl,
greifi og barún. Hertogatitillinn
gengur til elztu dótturinnar Alejx-
öndru, og verður hún eftirleiðis
“hertogainnan af Fife”.
— þann 29. jan. sl. andaðist í
Guelp borg, Ont., kona ein 103
ára gömul, Mrs. Hubbard að
nafni. Hún haföi sjón og heyrn alt
fram í andlátið. í sl. 30 ár hafði
hún ekki farið neitt út um borg-
ina, þar til fáum dögum áður en
hún dó, þá keyrði hún um strætin
í miótorvagni, til þess að athuga
breytingar þær, sem bærinn hefði
tekið á þessum 30 árum.
— Franska stjórnin biður þing-
ið um 4% milíón dollara fjárveit-
ingu til þess að smiða flugvélar
fyrir land og sjó her ríkisins. —
Sagt, að 180 af stjórnmálamöpn-
um Frakka séu tilbúnir að leggja
fram féö,, ef þingiö neitar veiting-
unni.
— Blaöið “Die Post” í Berlin á
þýzkalandi segir, að friður sé hið
mesta skaðræði fyrir þýzkaland,
og skorar á keisarann að hefjast
handa og binda enda á þetta á-
stand meÖ því að leiða þjóðina út
í nýjar framkvæmdir og til sigurs.
Beztu kraftar þjóðarinnar liggi nú
í dái ; en tneð hernaði myndu þeir
vakna og kæfa svefnmlók þaö, sem
nú hvíli yfir landinu, og sem Sósí-
alistar hlynni að af öllum mætti.
Blaðið staðhæfir, að þýzkaland
hafi aldrei tekið neinum framför-
um á friöartímum. þess vegna sé
nauðsyn til, að leiða þjóðina út í
stríð.
— Brezku konungshjónin komu
heim til Englands úr úr Indlands-
för sinni á sunnudaginn, — höfðu
verið að heiman síðan 11. nóvem-
ber. Frá Bombay lagði konungs-
skipið Medina af stað 10. janúar,
kom til Gibraltar þann 20. og 15
dögum seinna náði það höfn með
heilu og höldnu í Pcrtsmor.th á
Englandi. Konungshjónunum var
fagnað með kostum og kynjum
við heimkomuna.
— Fylkisþingið í Ontario var
sett í gær i Toronto með viðhöfn
mikilli. Forseti þess var kosinn
W. II. Hoyle, þingmaður fyrir'
North Ontario kjördæmið. Fyrver-
andi þingforseti, Hon. Thomas
j Crawford, hafði sagt skilið viö
j stjórnmál og ekki sótt um þing-
mensku. — Hásætisræðan hafði
! ýms mikilsvarðiandi ným'æli að
j flytja, viðvíkjandi samgöngubót-
um og þjóðeignum. Afstaða flokk-
. anna er: 83 Conservatívar, 22 Lib-
1 eralar og einn verkamanna full-
trúi.
— C. N. R. járnbrautarfélagiö
ætlar að verja 25 miliónum doll-
ara á þessu ári til umbóta og
stækkunar kerfisins í Vesturfylkj-
unum. Á að byggja 5—6 hundruð
mílur af nýjum brautum, mest þó
í Saskatchewan og Alberta. — 1
Manitoba verður brautin viö Win-
nipeg vatn fullgerð og smærri
framlengingar gerðar. Tvöfalt spor
verður lagt á 200 mílna svæði. —
Nj'jar . járnbrautastöðvar verða
bygðar í Moose Jaw, Calgary,
Fort Frances og Dauphin, og Ed-
monton stöðin verður stækkuð
um 50 fet. Scyctíu nýir bæir verða
opnaðir með fram brautunum og
verða þar allstaðar reistar járn-
brautarstöðvar. Sex af þessum
nýju stöðvum verða á framleng-
ingu Goose Lake brautarinnar
milli Kindersley og Vegreville. Ein
af stöðvum þessum verður skifti-
stöð. Við Jack Fish brautina milM
Nortli Battleford og AthabaSca
Landing verða fjögur ný bæjar-
stæði opnuð og stöðvar bygðar;
þrjár v.erða bygðar milli Shell-
brooke og North Battleford. Sesx
verðá bjrgðar við aðalbrautina
vestur af Edmontob ; heitir ein
þeirra Tullerton og verður hún
fvrsta skiftistöð vestur af Edmon-
ton. Aðrar sex verða á Dunvegan
brautinni, milli Edmonton og
Peaœ River. Fimm verða milli
I/ethbridge og Calgary ; fjórar á
Maryfiéld-Lethbridge viðaukan-
um ; fimm milli Henry og Swift
Current, og þrjár verða Thunder-
hill brautinni, sem rennur milli
Swan River og Humboldt. Hinar
verða víðsvegar með fram braut-
um félagsins í Vesturfylkjunum. —
Núv.erandi “yards” félagsins hér í
Fort Rouge verða stækkuð um
íleiri mílur. Sömuleiðis verða
“yards” stækkuð í Dajjphin, Sas-
katoon og Edmonton. Fjörutíu
þúsund dollara járnbrautarbrú
verður bygð í Port Arthur, og
ýms smærri og stærri mannvirki
gerð af félaginu hér og þar.
— Baráttan fyrir heimastjórn
írlands hefir hleypt öllu í hál og
brand á Bretlandi, og í dag stend-
ur öll brezka þjóðin á öndinni yfir
því, hvað gerast muni í borginni
Belfast, þar sem flotíimálaráðgjaf-
inn, Winston Churchill, fyrir hönd
stjójrnarinnar opnar formlega bar-
dagann og skýrir afstöðu hennar
í málinu. Churchills fundurinn hef-
ir verið umræðuefni blaðanna og
leiðandi manna viku eftir viku, og
Ulster menn hafa hamast sem óð-
ir væru landshornanna á milli og
hótað uppreist og blóösúthelling-
um ; og það unnu þeir á, aö Mr.
Churhill varð að skifta um fundar
stað, og í stað þess að tala í Ul-
ster Hall, sem áöur hafði verið á-
kveðið, talar hann í Celtic Park.
En svo mikilli æsingu höföu Ul-
ster menn hleypt í lýðinn, að 5000
hermenn hafa, eftir beiðni borgar-
stjórans, verið settir til að halda
uppi reglu og vernda ráögjafann.
Má af því sjá, aö útlitið er I-
skyggilegt, þó það skelfi ekki
Winston Churchill. Auk hans talar
John E. Redmond, leiðtogi Iranna
— en fundinum stýrir Canada-
maöurinn Pierre lávarður. Svo
eru horfurnar ískyggilegar í Bel-
fast, að katólsku klerkarnir hafa
daglega haldið messur og heitið á
alla sannkristna menn, að halda
kyrru heiima fyrir í húsum sínurn,
og koma ekki á fundinn, því blóös
(
úthelling og önnur hermdarverk
| væru fyrirsjáanleg. — Fregnir full-
yrða, að 30,000 skammbyssur hafi
keyptar verið síðustu dagana af
borgarbúum, og aS járnstykkjum
og steinum hafi safnað veriö sam-
an, og sé fjöldinn einhuga um, að
berjast. Hinn mikli dagur er nú
upprunninn (8. febr.). Hvernig
hann endar, mun öllum hulið, en
stótrtíðindasaimur mun hann veröa
áður lýkur.
i
— Uppreist er hafin í Mepcjco aÖ
nýju gegn sigurvegaranum frá Di-
az byltingunni, Madero núverandi
forseta. Hafa blóðugir bardagar
orðið hér og þar, og hefir upp-
reistarmönnum oftar veitt betur,
og eru margir, sem álita, að
! stjóirnardagar Maderos verði ekki
margir. Eru þáð endurbætur hans,
| sem vakið hafa óviJja íhalds-
manna og klerka, og sauðsvartur
almúginn lítur einnig tiJ þeirra
óhýrum augum. Á því Madero í
| örðugleikum ; og eina hjálpin hans
er herinn hans gamli, sem heldur
| við hann órjúfandi trygö. Foringi
uppreistarinnar er Emilio Vasquez
Gomez, er var varaforsetaefni viÖ
síðustu kosningar, en féll. Hefir
hann dregið saman allmikinn her
í Norður Meixico og gert mikiö
spellvirki. Uppreist er einnig í Suö
ur Metxico.
— Aukakosning til sambands-
þingsins fyrir South Renfrew kjör-
dæmið í Ontario, á að fara fram
22. þ.m.; útnefningardagur þann
15. — Kosning þessi hefir valdiÖ
talsverðum spenningi í herbúöum
beggja flokkanna, því fyrv.erandi
járnbrautaráögjafi LaurLer stjórn-
arinnar, George P. Grahanr, sækir
þar. Gagnsækjandi hans er Dr.
Maloney, er heima á í kjördæm-
inu, og eru líkur til, að átrúnaö-
argoð Liherala mttni fara þar fýlu
för, sem við kosningarnar 21. sep.
sl., þó í öðru kjördæmi sæki og
Liberal þingmaður legöi þing-
mensku niður honum í þágu. —
Kosningahardaginn er háður af
kappi miklu ; hafa þrír fvrverandi
ráðgjafar feröast um kjördæmið
og aðstöðað Graham, og tveir nú-
verandi ráðgjafar, Hon. W. J.
Roche og Hon. Martin Burrell,
feröast um og talað máli Dr. Mal-
oneys. — Sjálfttr ætlar Laurier að
halda fundi til hjálpar Graham
síðustu dagana.
YILTU BETRA
BRAUÐ ?
Það eru fáeinar hösmæður
sem baka sjálfar en sem mundu
verða glaðar að þekkja hinn
m i k 1 a leyndardöm er gerir
kökur, “pies” og bjjauð betra.
Royal Household Flour
er ráðning leyndardómsins, fyrir betri bökun. Það er ekkert
hveitimjöl betra að gæðum, fáanlegt fyrir peninga. Það er not-
að við konunglega htishaldið á Englandi, og unnið f stærstti
hveitimylnufh Canada- Biðjið um það !
OPIÐ BRÉF.
Venjulegum ársfundi Fyrsta ísl.
kvenfrelsis kvenfélagsins verður
frestað til annars þriðjudags í
marz. Meðlimir beðnir að veita
þessu athygli.
Eftirfarandi linur voru Heims-
kringlu sendar .frá Akureyri, af
manni, sem um mörg ár hefir ver-
iö sjúklingur á sjúkrahúsinu þar.
Hann á fjögur systkini hér vestra,
3 systur og einn bróöir, og eru 2
systurnar — aS hann heldur — hér
í Winnipeg. Hann hefir skrifað
systkinum sínum, sen ekki fengið
svar, og heldur hann þaö komi til
af því, aS áritanin hafi verið röng
— Hann vonar, aS þessar línur
sínar komi einhverju þeirra fyrir
sjónir. —
Bréfið er svona : —
‘‘Akureyri 1. jan. 1912.
Kæru systkini mín!!
Éig hefi skrifað ykkur mörgum
sinnum, en ekkert svar fengið.
Gefið þið mér rétta utanáskrift
til ykkar. Eg er sami vesalingur-
inn, hvað heilsuna áhrærir, hef
veriö og verð áfram á sjúkrahús-
inu á Akureyri.
Gleymið mér ekkill
þórður Guðmundsson
(frá Móbergi í Húmavatnssýslu).
CANTATA
Professors Svb. Sveinbjörnssons,
Eftirspurn um stúlku.
Hver sem veit um heimili Mar-
grétar Ölafsdlóttur, sem kom frá
Reykjavík á Islandi sl. ágúst til
Winnipeg, — er vinsamlega heðinn
aö senda vitneskju um það til
F. Johnson Lindal,
Thingvalla P.O., Sask.
Elín Johnson.
(Einkadöttir Mr. og Mrs. Stefáns A. Johnspn,
498 Maryland St., Wlnmpeg.)
Fœdd 9. jimi 1908. Dáin 22. Sept. 19lL
Þú hvarfst eins og geisli, sem glampaði’ um fald,
Er gekk inir í voginn á blævaktri öldu,
En skógarnir fluttu 3itt forsælutjald
Að fiörum og skuggarnir þögulu, köldu,
Þeir tóku’ ’ann af birtunni’ og’^beygðu’ á sitt vald
Og bökkunum uudir f dökkvanum földu.
Svo fá voru ár þfn, svo skamt var þitt skeið,
Ei skuggi né blika yfir minningu gröfir
Og gleðin og ánægjan góðlynd og heið,
Sem gekk þar f erfðir, hún blóminu hlúir,
Er skildir þú eftir að endaðri leið
Þvf einlæga, góða, sem ljósinu trúir.
Eg man er þú settist og sönginn þinn hófst
Svo sæl eins og iugiinn í gróandi skógum,
Og barnshugans kvæðið í kvakið pitt ófst,
Þú klappaðir saman af fögnuði lófum.
Með vorblóm&’ og sólskin i hjarta þú hlóst.
Öll haust voru fjarlæg með kuldum og snjóum.
Og lundkvika bernskan á léttstfgan fót,
Og líf hennar blikandi árroða geima.
Því komst þú oss oftlega kát okkur mót
Og kallaðir: Pabbi og mamma’ eru heima.
Sem glóhnappur efstur á ungviðarrót
Þig ylinn og lffið var farið að dreyma.
Við mótdrægu framtíð mun finna sér bót
í fullvissu’ að ekkert lff muni sér gleyma.
Og sá dagur skína’ ytír rakstorm og rót,
Sem raðirnar alda var búið að dreyma.
Svo kémur þú aftur þér kunnugum mót,
Og kallar: flann pabbi og mamrna’ eru heima.
Kb. Stefánsson
Cantata Prófessor Sveinbjörns-
sons veröur sungin í Fyrstu lút.
kirkju miðvikudaginn 14. febrúar
næstkomandi, svo semt fyr var frá
skýrt. Söngflokkur kirkjunnar
syngur, en miklu stærri en venja
er til, ai því að fjöldinn allur af
íslenzku sönglólki hefir lofaö aö-
stoð sinni við samsönginn. Mun
því óhætt mega svo aS oröi kveöa
að flestalt bezta söngfólk í bæn-
um láti þar til sín heyra.
Fyrir utan cantötuna veröa
sungin mörg fögur og hrífandi
sönglög. þess má geta, að eitt
þeirra veröur hið ágæta sönglag
eftir próf. Sveinbjörnsson ; “ö,
guð vors lands! ” þaö lag hefir
marg oft verið sungið hér og
margar mismunandi skoðanir lát-
ið til sín heyra um það, hversu
meö það skyldi fara. ITafa menn
ekki orðið ásáttir um það. Nú
verða öll tvímæli tekin af þar um,
því að próf. Sveinbjörnsson ætlar
sjálfur að stýra söngnum á þvi, og
mun marga fýsa að hevra þaö, og
hversu hann stjórnar því.
Aðgangur að samsöngnum verð-
ur 50c fyrir fullorðna en 25c fyrir
börn, og byrjar hann kl, 8.30.
Aðgöngumiðar fást hjá öllum
íslenzkum ■ kaupmönnum í bænum.
— Heimskringla leyfir sér, og það
í alvöru, að benda mönnum, að
aíla sér aögöngumiöa snemma,
því að allar horfur eru á, að fleiri
vilji komast á samsöng þenna en
Fyrsta lút. kirkjan rúmar.
Svar frá “Fróða” til J. J. kem-
ur í næsta blaði.
VEGGLIM
Patent hardwall
vegglím (Empire
tegundin) «;ert úr
Gips, jrerir betra
vegglím en nokk-
urt annað vegg-'
líms efui eða svo
nefnt vegglíms-
ígildi. :
PLÁSTER BOARD
ELDVARNAR-
VEQOLtMS
RIMLA R oq
RLJÓDDEÝFIR.
Manitoba Gypsum
Company, Limited
WláSIPEG