Heimskringla - 14.11.1912, Blaðsíða 2

Heimskringla - 14.11.1912, Blaðsíða 2
I BLS, WINNIPEG, 14. NÓV. 1912. HEIUSEEINGCA ISB« Rex Renovators. Hreins*a o* pressa föt öllum betur— Rœöi sótt og skilaó. Loöskianafataaöi sérstakur gaumur gefiun. VERKSTŒÐI 639 Notr* Darae AVe. Phone Garry 5180. Jón Guðjónsson. Fíólín Kennari 639 Macyland Street,. Winnipeg tekur nemendur fyrir lága borgun. HANNES MARINO HANNESSON (fiubbard tk liannesson) LÖGFRÆÐINGAR 10 Bank of llamiiton Bldg. WINNIPBO P.O, Box 781 Phone Maln 378 “ “ 3142 GARLAND & ANDERSON Arni Anderson E. P Garland LÖtí FRÆÐINGAR 204 Sterling Bank Building PHONE: main 1561. Bonnar & Trueman LÖtíFRÆÐINGAR. Sulte 5*7 Nanton Block Phone Maín 766 P. O. Box 234 WINNIPBG, : : MANITOBA S. A. SI0UR0S0N & CO. Hásum skiffc fyrir Jönd og lönd fyrir hás. Láó og eldsábyrgö. Room : 510 McIntybe Block Slini Mait. 4463 30-11-12 WEST WINNIPEC REALTY CO. TalsíraCQ. 4068 653^Sargent Ave. Selja hds og lööir, átvega peninea lán.sjáum eldsábygröir.leicja og ajá um leigu á hásum og störbygKÍngum T. J. CLEMENS G.ARNASON B, SIG 'RÐSSON P. J. THOMSON R. TH. NEWLAND Verzlar moð fasteingir, fjárlán ogábyrgöir Skrlfatof'a: 310 Mclntyre Block Talaími Main 4700 Helmili Roblin Hotel. Tala. Garry 572 NEW YORK TAILORING CO. 639 SARQENT AVE. SIMI UARRY S04 Fðt gerð eftir máli. Hreinsun.pressun og aðgeröVerö sanngjarnt Fötin sótt ogTafhent. SEVERN THORNE Selur og gerir við reiðhjól, mótorhjöl og mótorvagna. VEBKJ VANDADJOG ÓDÝRT. 651 Sargent Ave. Phone^G. 5155 Gísli Goodman TINSMIÐUR. VKRKSTŒöl: Cor. Toronto & Notre Dame. Phone Oarry 2988 Helmllfs Garry 806 i’i-U-iZ W. M. Church Aktygja smiöur og verzlari. SVTPUR, KAMBAR, BUSTAR, OFL. Allar aögeröir yaudaöar. 692 Nolre'.Dame Ave. WTNNTPKO TH. JOHNSON ] JEWELER FLVTUR TIL 248 Maln St.. - - Slml M. 6606 Paul Bjarnason FISTEIGN ASALI SELUR ELDS- LÍFS- OG SLYSA- ABYRÖÐIR Otí ÚTVEOAR PENINGALXN WYNYARD : : SASK. J- J. BILDFELL PASTBIQNASALI. Unlon'Bank 5th Floor No. 520 Selur hás og lóöir, og annaö þar aö lát- andi. Utvegar peuiugalán o. fl. Ptione Main 2685 Absinth útlægt. Síöan þann fyrsta þessa mánað- ar hefir ekkert ‘absinthe’ verið flutt inn í Bandaríkin, og þegar það er uppdrukkið eða flutt hing- að til Canada, sem nú er þar til, | þá er það þar með afmáö úr sögu landsins. Kongressinn samþykti, sem sé, þann fyrsta þcssa mánað- ar bannlög gegn drykkjartegund þessari, sem talin er svo skaðleg, j að Bandaríkin ætla hér eftir hvorki jað leyfa innflutning hennar né til- búuing nokkurstaðar í landinu. Stjórnin hefir um langan undan- jfarinn tima verið að íhuga mál I þetta, og komist að þeirri sann- færingu, að skýrslur landsins bæru jþess ljósan vott, að ‘absinthe’ jværi hættulegasta drykkjartegund, 'semj til væri í landinu, og að þjóð- in væ'ri að auka nej'7.1u hennar langt fram úr öllu hófi. Yfirleitt er það bjór eða whiskey, sem Banda- ríkjatnenn drekka ; absinthe hefir ekki ennþá náð eins föstum • tök- j um á þeirri þjóð eins og í Krakk- landi. Fyrir 30 árúm var absinthe Yiálega óþekt meðal Frakka, og | jafnvel fram á þennan dag eru þeir skoðaðir sem víndrykkjnmenn frek- ar en absinthe rieytendur. En samt jer absinthe nautnin svo að vaxa 'þar, að hún er talin orsök þess, að fangelsin, vitfirringaspítalarnir og fátækrahælin eru of skipuð ves- alingum. Absinthe nautnin er því 'nú sem stendur eitt alvarlegasta viðfangsefni þjóðarinnar ; engar af þeim tilraunum, sem enn haía vér- ið gerðar til þess að vekja þjóð- I ina til meðvitundar um skaðsemi þessarar drykkjartegundar, hefir haft hina minstu þýðingu. þ>að jeru engin öflug Templarafélög þar í landi ; en hins vegar eru þeir, sem tilbúa og verzla með þessa drykkjartegund, bundnir öflugum samtökum, og hafa. að þessum tíma getað varnað því, að stjórn eða þing befði nokkur lagaleg á- hrif á atvinnuveg þeirra. Væntan- I lega vita þeir, að þeir eru að eyði- leggja þjóðin,a um leið og þeir Jbyggja upp sinn eigin atvinnuveg, en þeir láta sig slíkt smáræði engu skifta. Absinthe var fyrst innleitt á Frakklandi við lok Aleeriu stríðs- ins, af heimkomnum hermönntim, sem höfðu vanist drykk þessum meðati á stríðinu stóð, og að því loknu höfðu herlæknarnir ráðlagt þeim, að hafa dálítið af jæssum | drykkjarlegi í víni því, sem þeir drykkju ; á þennan hátt fengju jþeir löngun í þessa drykkjarteg- und, kröfðust hennar, er þeir |komu heim úr stríðinu — sam- kvæmt læknisráði. Vínverzlunar- | menn létu ekki standa á s.r að tit- it ega vöruna og þannig útbreiddist nautn hennar um alt landið, þar til nú að svo er komið, að hún ) nemtir fullum potti á hvern íbúa landsins á ári hverju. Árið 1910 | varð nautnin þar 36 milíónir lítra, 'en það er meira en allar aðrar þjóðir heimsins samanlagðar nevta 1 á nokkru einu ári ; og þessi nautn fer svo óðííuga vaxandi, að stjórn- in óttast, að sá timi sé í nánd, að jallir Frakkar taki að drekka ab- I sinthe, og þá er fyrirsjáanleg eyð- ' ingr þjóðarinnar, af því að þá væri ógerningur fyrir nokkra stjórn að yfirbuga óvætt þennan. það var sú tíð, að absinthe var skoðað sem magalyf og ágætt til hjálpar meltingaríærunum, en það hefir síðar verið visindalega sann- að, að jjessi skoðun er ekki bygð á neinum gildum rökum. Efnin, sem lögur þessi er gerður af, eru að mestu óþekt ; bruggararnir halda því leyndu. En það vita menn, að aðalefnið er dregið úr ormviðar (wormwood) plöntunni, sem vex í Tura héraðinu á austur Frakk- landi og á Svisslandi; svo er bætt við ögn af ópíum og nokkru af vín- anda ; að öðru leyti er ekki kunn- ugt um efnablöndunina eða hver önnur efni eru t vökva þessum. Aaðalframleiðslustöðvar þessa drykkjar eru í Pont Parlier hérað- inu við landamæri Svisslands, og þar er aðalmarkaðurinn fyrir sölu hans. Á smekk er það ekki ólíkt ‘paregonic’, og neytandinn finnur ekki til þess, að hann sé að drekka hinn sterkasta og skaðlegasta vín- anda, sem búinn er til. Ýmislegt er sett í drykk þennan til þess að leyna smekk aðalefnanna sem £el- ast í honum, svo sem sykur, pipar og önnur efni því lík. En notkun þessa drykkjar, sé hún nokkuð talsverð, endar bráðlega með vit- firring eða dauða neytandans. Eitt af einkennum absinthe er það, að það hefir fyr áhrif á taug- arnar en heilann, og er það ólíkt öðrum áfengum drykkjum að því leyti. Einnig hefir það 01 og oft mjög skaðvænleg áhrif á lungun, svo að absinthe sjúklingur þekkist tæpast frá tæringar sjúklin!ri. þeir, sem verða drukknir af absinthe, fá miklu magnaðra drykkjuæði (delirium), en þeir, sem verða ölv- j aðir af algengum áfengum drykkj- um ; im'vndunaraflið verður alt j sjúkt, og þeir sjá og heyra alt j mögulegt og ómögulegt, og þessi sýki varir miklu lengur á þeim en hinum, sem kotnast undir sömu á- hrif af öðrum víntegundum. Oft kemur það og fyrir, að menn fá flogaveiki af ofnautn þessa skaðlega drykkjar. Bandaríkin hafa því gert vel í, að banna með lögum notkun þessa eiturs þar í landi. þau fara í því eftti að dæmi Belgíu, sem varð hin fyrsta batmþjóð þess eiturs, og semí orsakaðist af því, að sá mikli fjöldi Frakka, sem býr þar í landi, var farinn að draga dám a£ þjóð- bræðrtim sínum Frökkum í ált af meiri og meiri nautn þessa eiturs. þingið í Belgíu tók því það ráð, árið 1906, að banna með lögum innílutning þess í líindið og tilbún- ing þar. Arið 1910 voru samkynja lög samþvkt í Svisslandi og síðar á Hollandi og í Brazilíu. öll þessi lönd voru sannfærð um hin eyði- leggjandi áhrif eitursins á þjóðir sínar, og aö ekkert nema bein bannlög gætu orkað afnámi þess úr löndum þeirra. En Frakkland hefir ennþá ekkert ákveðið spor tekið í þessa átt, en að eins sett sölunni takmörk, líkt og gert er hér í landi með verzlun áfengis. En þar kemur, að þjóðin verður að láta til sín taka v þessu máli, og þvi fyr því betra ; því að helztu stjórnmálamenn allra flokka landsins viðurkenna, að full þörf sé á að útrýma absinthe al- gerlega úr Frakklandi, ef þjóðin á ekki bráðlega að falla í eymd og volæði, ef ekki algerða tortíming. En ennþá hefir engin stjórn þar haft siðferðislegt þrek til þess, að ráðast á þennan óvin meö þvi vopninu, sem eitt nægir til þess að leggja hann að velli. Fréttabréf. NATIONAL CITY, CAL. 1. nóv. 1212. Hr. ritstj. Hkr. Vilt þú gera svo vel, að birta nokkrar línur í Heknskringlu til kunningjanna, sem báðu mig að skrifa sér héðan. Rlg ætla að minnast stuttlega á íerðalagið hingað. Y'ið lögðum aí stað frá Leslre, Sask., þann 26. júlí með C.P.R. eins og leið lá vestur slétturuar. Viö stönsuðuin litið eitt i Saskatoon ; það er fall- egur bær i miklum uppgangi. það- an héldum við áfram það sem eítir var af þeim degi og næstu nött, og komum til Wetaskiwin í Al- berta morguninn eftir og biðum ] þar í tvo klukkutíma eftir járn- I brautarlestinni frá Edmonton, og j íórum ineð henni til Calgary. }')kki gat ég komið því við, að sjá : gamla kunningja og nágranna í j Alberta, þó mig langaði til þess. j Við komum um kveldið til Cal- | gary, og biðum þar lítið eitt eftir Kyrrahíifs járnbrautarlestinni. Calgary heíir tekið miklum fram | förum á fáum áruin. Járnbrautar- stöðin þar er mikil og vönduð j bygging, ekkí ólík C.P.R. stöðinni i Winnipeg. Við fórum frá Calgary sama kveldið vestur í Klettafjöllin og héldum áíram næstu nótt og næsta dag allan. Á þeirri leið er margt tilkomumikið að sjá. Seint um kveldið komum við.til Van- couver og vorum þar um nóttina. Ekki hafði ég tima til að íinna íslendinga þar, því morguninn eft ir tókum við gufubátinn Princess Charlotte til Victoria. þar vorum við næstu nótt. Mor^uninn eftir tókum við bát til Seattle. þar hittum við séra J. A. Sig- urðsson, sem tók okkur mjög al- úðlega og fylgdi okkur til Mrs. K. Gíslason. þar hóldurn við tfl rúma tvo daga, á meðan við biðum eft- ir skipinu, sem fer alla leið til Los Angeles og San Diego. E;g fór frá Seattle til Blaine, Wash., til að sjá kunningjana, og um leið til að líta eftir eign, sem ég á þar. Landar þar tóku mér mjög vel. þar hafa oriðið tölu- verðar framfarir ; þar á meðal má telja það, að engin vínsala er í bænum, og eru menn yfirieitt á- nægðir með það. þaðan tók ég með mér hlýjar heillaóskir í lang- ferðina suður. Frá Seattle fórum við um morg- uninn 2. ágúst með skipinu Gov- ernor, og komum til San Fran- cisco eftir tvo sólarhringa. þar stóö skipið við í tvo sólarhringa. % fór nokkuð víða um í borg- inni og sá hér og livar menjar eft- ir jarðskjálftann og brunann mikla ; en undravert er það, hve fljótir þeir hafa verið að byggja upp borgina aftur. Frá San Francisco fórum við á einum sólarhring til Redondo ; jtar mætti okkur Miss Elinborg Joel, mágkona mín, og fórum við svo með járnbraut þær 18 mílur, sem eftir vortt til i/os Angeles. þar vorum við í viku ; á því tíma- bili vnr ég að skoða mig tim, og fór hingað til San Piego og Na- tional Citv, sem er tim hálft ann- að hundrað mílur. Hér leizt mér bezt á mig, svo við settumst hér að. Hér eru að eins fáir íslending- ar, sem líður vel og líkar ágæt- kga. þar á tneðal mágur minn, Joseph Joel, sem undanfarin ár hefir átt heima í Los Angeles, en nú er seztur að í San Diiego. Mikið væri hægt að skrifa um risavaxnar framfarir hér, sem stafa af mörgu ; opnun Panaina skurðarins, sem hefir stórkostkg áhrif á alla ströndina og hér í San Diego verður sýning í sam- bandi við alhvimssýninguna í San Francisco 1914. Land fer hér óö- fluga hækkandi og er því bezta tækifærið sem fvrst að kaupa land hér, og vonandi að landar noti sér eitthvað af þeim tækifærum. Einn af aðalatvinnuvegunum hér er ávaxtarækt, einkum appelsínur, sítrónur og vínber. Eru sítrónur lesnar nær árið um kring, en app- elsínur helzt um miðjan vetur og mitt sumar. þá er garðrækt, fiskiveiðar o. s. frv. Saltgerð er og mikil hér. Mjólkurbú eru hér víða og. landbúnaður töluverður. Vatns veitiugar nota hér allir og upp- skera margar uppskerur á ári ; af alfalfa frá sex til níu árlega ; í garð sá þeir jafnóðum og þeir taka ávextina upp, á hvaða tíma árs- ins sem er. Fjöldanum er ekki nógu kunn- tigt um veðurblíðuna í Suður- Californiu, og óhætt mun vera að fullyrða, að hún sé jöfnust hér í San Diego. Veðurathuganir um síðustu 40 ár sýna, að meðal árs- hiti 'er hér 61 stig (Fahrenheit). Meðalhiti í janúar er 54 stig, en í júlí 67 stig; lægsta hitastig í jan. 32 (örsjaldan) og hæsta í júli 88 (líka mjög sjaldgæft). Langoftast er hitinn milli 50 og 80 stig. Regn fellur að meðaltali 43 daga á ári. Höfnin er ljómandi falleg, 22 fer- mílur að stærð, innilukt af þur- lendi á alla vegu líkt ocr stöðu- vatn, að undantekinni innsigling- unni, sem er löng og nokkuð þröng. Naumast verður of mikið látið af fegurð landslags og útsýnis. Bærinn stendur á lágum hæðum, sem hallar aðlíðandi niður að fló- anum ; en fagrir dalir of frjógir liggja upp til fjallanna að norðan og austanverðu, með hjöllum og hálsum á milli. Er útsýnið svo fagprt, að vart mun finnast feg- urra. Bændabýli eru aðalkga í dölunum og jarðvegur frjór. þessu plássi verður ekki betur lýst, en með einni vísu i útflutningaerindi eftir St. Stephánsson : “Hér er ei ótíð eða köld, Alt í ró sig nærir, Sólskins hógværð ár og öld. Allir sjóar færir’’. J. O. N o r m a n, Box 115 A.R.F.D., National City, Cal. Sigrún M. Baldwinson ^TEACHER OF PIANO^ <£.__________-____í 727 Sherbrooke St. Phone G. 2414 Það er alveg víst afl þftfl borg- ar sig að ang- lýsa i Heim- skringlu ! Hvað er að ? Þarftu að hafa eitt- hvað til að lesa? Hver sá sem vill fá sér eitthvaö uýfct aö lesa 1 hverri viku,æt i aö gerast kaHpandi Heimskringin. — Hán færir lesendum slnum ýmiskonar nýjan fróöleik 52 sinnum á ári fyrir aöeins $2.00. Viltu ekki vera meöl Municipality of Bifrost Abstract Statement of Receipts and Expenditures from Jan. ist to Oct. 3ist, 1912 RECEIPTS Cash on lianri......$ Cash in bank......... Taxer collecteri..... Discouut at bank..... Provincial tíovernment for road work, 1911 . Provincial Government wolf bounties refurid Roriemptions......... Proceeds of Tax Sale.. Uospital account anri Charity airi refund... Timber fees and sundry collections........... EXPENDITURES 3.22 Roads and Bridges.. . 2,133.75 526.47 Schools—Arnes 233. 1,846.30 Ardal 525.25 4,000. Baldur 282.20 Bjarmi 430 60 1,018. Big Island .. 151.20 Framnes .... 330. 67. tíeysir...... 393.40 106.06 Laufas 177.20 187.94 Lundi 326.20 Viðir 423. 156.70 Mun. Commissioner .. Roads— Hudsons Bay 158.22 128.36 Company and P. S. Guðmunrisson JEealth, $220,56 Vital Statistics$41 Refunri $6.25.............. Charity aid $60.70 Hos- pitals $87.75...... Members Indemnity $16,63 Law expense $20 35, Elections $100.95............ Wheelscrapers $75 00 Wolf Bonnties$114 . Printing P S. $251.10, Salaries $725.75 .... Redemptions $105.41, Noxious weeds $30.20 Expenses Olavia Jons son $65 Sundry exp. account $102.30 .... Cash on hand $2.21, Cash in Bank,$242.69 178.18 267.81 148.45 167.93 189. 976.85 135.61 167.30 244.90 $8,040.05 Certified Correct, B. Marteinsson, Treasurer $8,040.05 Financial Statement for the ten months ending October 3ist, 1912 AS3ETS LIABILITIES Cash on hand and in bank........... Taxes collected .... Hospital accounts un- collected........ Timber fees uncollected Real property...... Office furniture and supplies, road mach- inery, etc............ Bills payable at bank $ 4,000. 5 244.90 Interest 151. 24,107,65 Schools—Arnes 273.80 Ardal 2,520.20 518.75 Bfridur 518.75 63.90 Big Islsnd .. 297.60 465. Bjarmi 501. Framnes .... 437.20 tíeysir 474. 460.60 Laufas 303.60 510. 546.80 Viðir Municipal commission- ers ievy, 1912 Road Work and other 177.40 accounts unpaid .... Surplus—Assets over 2,241.58 Liabilities '. 12,907.87 $25,860.80 $25,860.80 Certified Correct, B. Marteinsson, Treasurer Borgið Heimskringlu! Eru hinir stærstu og bezt kunnu húsgagnasalar f Canada GÓLFDOKAR Og GÓLFTEPPl, TJÖLD og F0RHENGI, Marg fjölbreyttar. KOMIÐ EÐA SKRIFIÐ: CANADA FURNITURE MFG CO. Wl.V.MI'Etí EF þAÐ KEMUR FRA ] B.J.WRAY | MATVÖRUSALA. þA ER þAÐ GOTT. iðskifti Íslendinga óskast. ] BÚÐIN á horni ^íotre Dame & Home j Talsími : Garry 3235. ] í T0MSTUNDUNUM þAÐ ER SAtíT, AÐ MARtíT megi gerá sér og sfnum til góðs og nytsemds, f tónistundunum. Og það er rétt.. Sumir eyða ðllum slnum tómstundum til að skemta sör; en aftur aðrir til hins betra að læra ýmislegt sjálfum sér til gagns í lffinu. Með þvf að eyða fáum mfnútum, í tómstundum, til að skrifa til HEIMSKRINtíLU og gerast kaupandi hennar, gerið þcr ómetanlegt gagn, — þess fleiri sem kaupa þess lengur lifir fs- lenzkan Vestanhafs. ™ D0MINI0N BANK llornl Nolre Dame og Sherbrooke Str. Höfuðstóll uppb. $4,700,000.00 Varasjóður - - $5,700,0071.00 Allar eignir - - $70,000,000.00 Vér óskum eftir viðakiftumverz- lunar manna og ábyrgumst ati ge/a þeim fullnægju. 8parisjóðsdeild vor er sú stærsta sem nokkur banki hefir i borginni. íbúendur þessa hluta borgarinn- ar óska ad skifta við stofnun sem þeir vita að er algerlega trygg. Nafn vort er fulltrygging óhulf- leika, Byrjið spari innlegg fyrir sjálfa yður, konu yðarog börn. 1 OBO. h. MATUEWSON. BáBsmaSur Phone <*nrry 3 4 5 0 C.P.R. 111 C.P.R. Lönd til söln, í town- ships 25 til 32, Ranges 10 til 17, að báðum meðtöldum, vestur af 2 hádgisbaug. Þessi lönd fást keypt með 6 eða 10 ára borgun- ar tíma. Vextir 6 per cent. Kaupendum er tilkynt að A. H. Abbott, að Foam Lake, S. D. B. Stephanson að Leslie; Arni Kristinsson að Elfros; Backland að Mozart og Kerr Bros. aðal sölu umboðsmenn.alls heraðsins að Wynyard, Sask., eru þeir einu skipaðir umlxiðsmenn til að selja C.P.R. lönd. Þeir sem borga peninga fyrir C.P.R. lönd til annara en þessara framan- greindu manna, bera sjálfir ábyrgð á þvf. Kaupiö þesst lönd nú. Verð þeirra verðnr brdðlega sett upp KERR BROTHERS OBNERAL SALES AOBNTS WYNYARD :: :: SASK.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.