Heimskringla - 14.11.1912, Blaðsíða 5

Heimskringla - 14.11.1912, Blaðsíða 5
HEIMSKR n WINNIPEG, 14. Nóv. 1912. 5. B13, HEIMILI BYGÐ. $1,000 hús kostar nm 10 ára tíma $13.80 á mánnfti að viðlöffðum rentum. Þdr getið fengið að flytja f húsið með eins mánaðar niðurborgun, og eftir á varið húsaleig- i unni, sem þér nú borgið, f kaupin. 6pró sent vextir verðagreiddir af innlagsféfrá $1.00 á viku ogupp, og alt að 9 prósent vextiraf $100.00 jafnframt ábyrgstum 6 pró sent, svo mögulegt verður að fá 15 pr<5 sent, Hið eina f jármála félag sem býðnr almeaningi hluttöku f gróða sínum. Skrfið eftir frekari fræðslu: Oanadian Syndicate Investments Limited. TÁLS. MAIN 77. 810-812 Somerset Block, W'innipei? Canada Islenzk gestrisni. 1 Heimskringlu 10. okt. sten-dur SCrein um íslen/.ka gestrisni, er mig langar til aÖ gera fáeinar athuga- semdir vnð. ■ J>aÖ vill svo v.el.til, aö ég er einn af þeim, er var á ferö nm ísland í sumar sem leið. Hefi alt aðra sögu að segja af íslenzkri gestrisni, heldur enn stendur í Hkr.-greininni. Greinin byrjar með óskaplegum fagurgala um, hvað íslenzk gesit- •risni hafi verið indæl og skemtileg •á dögum Sigurðar ’Breiðfjörðs, þá hafi allur matur og allskonar þæg- indi fengist fyrir alls ekki neitt. Og af því nú að nokkur breyting er á það komið og á ýmsum stöð- um er hafin greiðasala í landinu, þá finst greinarhöfundi sjálfsagt, að hella allskonar ónotum út yfir Austur-lslendinga í tilefni af því, hvernig þeir taki á móti Vestur- íslendingum, er heim kornu síðast- Wðið sumar. Auðvitað þykist hann hafa söguburð ýmsra þeirra, er heim fóru til að byggja grein sína á. Við skulum nú fyrir augnablik í- huga allar þessar óskaplegu giet- sakir, er hann leggur til grund- vallar í grein sinnt. Sá fyrsti seg- ist hafa á Austurlandi verið á ferð með konu sína og þurft að fá ífylgd eina dagleið, og hafði það kostað 25 krónur. það fyrsta að athuga við þessa sögu, er hvaða sannledksgildi hún hefir, þar sem engin nöfn eru tilgreind. Auðvitað Tier sagan sjálf mieð sér ósannindi að hálfu leyti, því hafi söguberinn 'femrið eins dags fygld áleiðis, þá hefir það hlotið að kosta fylgdar- TOann tvo daga, annan daginn til fyl'/dar, en hinn til baka heimleið- is. Greinarhöfundur segir : “þegar þess er gætt, að maðurinn hafði að eins einn hest og misti að eins einn dag frá verki, verður fjár- níðslan ber". Hér talar greinarhöf. alt af um einn dag f staðinn fyrir tvo. Sami höfðingi kvaðst hafa þurft að borga 75 aura fvrir einn kaffibolla mieð brauði á sömu stöðvum. það þarf ekki að íhuga þessa sögu neitt, af því luin er af sa-ma tagi og hin fyrri og þar af leiðandi algerlega ómerk. Að þessu loknu bregður greinar- höf. sér til Suðurlands og brúkar þar sömu aðferðina, — segir, að allir, sem þar hafi ferðast, hafi sömu sögu að segja ; þeir hafi þurft að borga langtum hærra verð, en sanngjarnt hafi verið ; sérstaklega bendir ltann á Kára- staði. Ég læt þess hér með getið, að ég kom á Klíirastaði og þáði þar góðgjörðir og varð ekki var yið neina ósanngirni, heldur þvert á móti það gagnstæða. Grednar- liöf. segir, að allir Vestur-íslend- ingar, ásamt útlendingum, er ferð- uðust um Suðurland í sumar er var, hafi orðið að sæta ránsverði á öllum rreiða. Og alla þessa last- TOælgi hefir greinarhöf. frá ónefnd- um mönnuim ; enda er hér auðséð að hann sjálfan er farið að voma upp a£ sínu eigin verki. Hann finn- ur auðsjáanlega sárt til þess, að hér þurfi eitthvað og það meira en lítið til að sanna alt hér á rindan áminst slúður um íslenzka ógest- risni. Og að lokum finnur hann ráðið, sem er það, að skapa sér einn sannorðan, mann og láta hann vera frá Winnipeg. A öllum hinum og öllu því, sem þeir segja, tekur hann eigi lengur mark ; það er bara þessi eini, sem hann veit að er sannorður, og þá bezt að fórn- færa honum fyrir alla hina, — og farast lionutn þannig orð : “Oss hefir tjáð sannorður maður hér úr borg, er gist hafði á Hótel Revkjavík og hafi þurft að borga 8 kr. um sólarhring. Aftur hafi hann gist á Hótel Akurevri við Eyjafjörð og ekki þurft að borga þar nema einar 4 kr. um sólar- hring’’. þetta dæmi virðist mér bæði heimskulegt og illgjarnt, því liefði þessum herra þótt of mikið að borga 8 kr. á dag, því fór þá ekki mannskepnan á einhverja ó- dvrari staði, t. d. Ilótel ísland fvrir 5 kr., eða Skjaldbreið fyrir 4 kr., eða á einhvern annan stað, er hann hefði getað fengið ednhverju slett í sig fvrir 2 kr. á dag ? Eða er bað nokkuð til að sanna, að Ilótel Revkjavík hafi verið ósann- gjarnt í 8 kr. kosti, þó hinn á- minsti gæti farið mörg hundruð mílur norður í land og fengið þar næturgreiða fyrir 4 kr. ? þetta alt svnir og sannar ekkert annað enn að maður sá, er grein þessa hefir í Ilkr. skrifað, er fáránlegur slúð- urberi. Eitt af hans óskammfeilnu ósannindum er það, að allir þeir, er heim til Islands fóru í vor og síðastl. sumar, hafi haft hér að framan áminsta sögu að segja. — Eg skal láta þess liér með getið, að enn sem komið er liefi ég undir- ritaðtir ekki á Hkr. skriístofu komið. Og svo skora ég á ómenni þetta að koma fram í birtuna og sanna, að hann hafi , heyrt mig bera nokkuð af beim óhróðri, er hann ber unn á Austur-íslendinga. Eg gat þess í byrjun þessara fáu lína, að ég hefði alt aðra sögu að segja frá ferð minni um ísland, en stendur í áminstri grein í Hkr, Eg skal nú með fáum orðum minnast á ferð mina og samferðamanns mins, herra Jóns Thorsteinssonar hér úr borg. Við byrjuðum land- ferð okkar í Stj’kkishólmi .við Breiðafjörð. þar keyptum við sex hesta ásamt öllum reiðtýgjum og allskonar ferðaútbúnaði, einnig réðum við okkur þar fylgdarmann og var hann með okkur alla land- ferðina. Maður sá hét Torfi Tóm- asson, gætmn maður og vel að sér um marga liluti. í Stykkishólmi vorum við fjóra daga og Leið hverj um deginum betur. Fyrsti áfang- inn frá Stvkkishólmi var að Helgaielli ; fylgdi okkur þangað múgur og margmenni úr Hólmin- um, og var það alt önnur tegund íslenzkrar gestrisni, en ttm getur í Hkr. Síðan héldum við út í Evr- arsveit, kringum Snæfellsjökul og ittn í Staðarsveit. þar snerum við við og héldum norður og austur allar sýslur, sem leið liggur til Vopnafjarðar. Eg get eigi, tírna- levsis vegna, skrifað langa ferða- sögu. Get einungis um þessa löngu landferð okkar til að sanna lesend- um Hkr., að mér er eins vel kunn- ugt um1 gestrisnina heima eins og fvrr nefndum greinarhöf. Hvar sem við fórum um landið, þá fvlgdi fólkið sömu resrlu, að fylgja okkur úr garði, og það stundum heiiar og hálfar dagleiðir. Við höfðttm náttstað hjá fólki af ölltim stétt- um og mættum allstaðar sömu á- gætu viðtökum. Eitt af því, sem við áttum erfiðast með, var að fá að bortra nokkuð fvrir nætur- greiða, þar sem við gistum. Attð- vitað var það ekki á þeim stöð- um, har sem tim almenna greiða- sölu var að ræða ; þar er gjaldið ákveðið 2 kr. um nóttina. það var iafnvel á bessum stöðtim, að fólkið vildi ekki taka bað mikið fyrir næturgreiða, og ef því svo var þnenp"t til, að taka þessa á- kveðnu borgun, þá var sjálfsagt, að revna að gefa manni eitthvert ofanálag, sjem vanalega var í því fólgið, að taka bezta hestinn og fylgja manm hálfa eða jafnvel heila dagleið. Ég vona, að þetta sé nóg til að sanna, að ég ber eigi sömu söguna og þessi Hkr. höf. Og nú að end- ingu bið ég alla þá, er veittu mér höfðinglegar inóttökur á ferð minni um ísland síðastl. sumar, að mieðtaka mitt innilegasta þakk- læti. Og verð ég að bæta þvi við, að ef ég hefði tíma og efni til að takast á hendur aðra skemtiferð, þá vildi ég hvergi frekar eyða nokkrum mánuðum, heldur enn úti á íslandi. Sigfús Anderson. Hvað Athabasca er að gera. Eftir ‘Northern News’, Atha- basca, 26. okt. 1912 : “Pþns dæma framfarir eru hér í Athabasca þanding í hverri átt, sem litið er. Trjáviðar verzlun er sérstaklega mikil, og bygginga- mennirnir gera sitt ítrasta til, að uppfylla kröfurnar, sem kotna all- staðar að. Verzlunarlífið er fjör- ugt, og vagnfarmar með allskyns vörum koma rrueð hv.erri lest, til að ttppfylla þarfir bæjarbúa og grendarinnar. Skurðgraftrar vélin mikla vinn- ur bæði dag og nótt, og vátnspíp- urnar eru lagðar jafnharðau og skurðirnir eru grafnir. Pipurnar fyrir gasleiðsluna eru nýkomnar frá Calgary, og bærinn verður búinn að fá bæði gasleiðsflu og vatnsleiðslu fyrir jól. Talsíminn frá Kdmonton hingað er nú lagður og talsímakerfið verður lagt innanbæjar mjög bráð- lega. Að ári liðnti verður Atha- basca nýtisku borg með öllum þægindum, nema sporvagna, og má þá með sanni segja, að tröll- auknari framförum hefir enginn bær tekið ð jafn stuttum tíma í Vestur-Canada. Undra-vöxtur. það er mikil umbót á með- höndltin kornvöru á Vestiirlands- sléttunum nú, við það sem var fjrir nokkrum árum, og þetta er beinlínis og óbeinlínis að miklu leyti að þakka Grain Growers fé- laginu. Beinlínis fvrir upplýsinga starf- semi þess vfir vetrarmánnðina, með mvndiin félagsdeilda og út- býtingu j'mislegra bæklinga, og með því að fá ýmsar stjórnir til þess, að lögleiða hagfeldar um- bætur á meðnöndlun korns, svo sem fvrsta kornlagafrumvarpið, útbýting járiibraiitarvagna, vagn- hleðslustéttir, og hin nýu, endtir- bættu kornlög og margt annað svipaðs eðlis. öbeinlínis, með þcirri viðurkcnn- ingu, að bændafélögin séu tekin til greina í landsmálum, og þeirri breytingu hugsunarháttarins, að bændalýðurinn sé rétthár liluti mannlélagsins, og í fúsleika stjórn- anna til |>ess að taka tillögur bænda til greina. þessi atriði hcfðu ekki fengist á svo skömmtim tíma, nema f'J’rir Grain Growcrs félagsmyndanina, sem lagt hefir fram starfskostnað- inn og þær upplýsingar um hag twenda, sem áður voru litt þektar. Félagið hefir árlega varið frá 10 til 30 þús. dollars til styrktar kornræktarfélögum, mcð því að senda út ræðumcnn og menn til að mj-nda nýjar deildir hvcrvctna i landinu, og margt annað til hagsmuna bændttm. Vöxtur félags- ins hefir verið undraverður, ekki að eins vcrzlunarstéttinni, heldur einnig sjálfum bændunum. Fylgj- andi taíla sýnir vöxt félagsins til þessa tátta. 1906— 7. Bushcl korns höndlað ... 2,500,000 Scldir ldutir .............. 1,853 Uppborgaður höfuðstóll 11,795.00 Upphæð tekinna hluta ... 46,325.60 1907— 8. Btishcl korns höndlað ... 5,000,000 Seldir hlutir .............. 2,932 Uppborgaður höfuðstóll 20,385.00 Upphæð tekinna hluta ... 73,300.00 * 1908—9. Bushcl korns höndlað ... 7,500,000 “ “ útflutt ... 2,000,000 Sddir hlutir ...>.. ..., ... 7,558 Uppborgaður höfuðstóll 120,708.00 Upphæð tekinna hluta... 188,950.00 1909— 10. Bushel korns höndlað 16,400,000 “ “ útflutt ..... 6,000,000 Scldir hlutir ............. 14,131 Uppborgaðttr höfuðstóll 292,957.55 Upphæð tckinna hlttta... 353,275.00 1910— 11. Bushel korns höndlað... 18,855,303 “ “ útflutt ... 10,592,232 Seldir lilutir ............. 24,602 Uppborgaður höfuðstóll 492,062.00 Upphæð tekinna hluta ... 615,050.00 Tala bæiida, scm áttu hluti í fé- laginii 30. júní 1911 ....... 11,785 Tala bænda, sem sendu korn sitt til Bændafél. árið 1911 ..... 10,062 Á jjessu ári hafa nýir starfsliðir aukist viö vcrkahring Íélágsins, svo sctn starfræksla Manitoba- stjórnar kornhlaðanna og tvcggja C.P.R. kornhlaðanna í Fort Wil- liam,, sem hvorttveggja sýnir æski- legan árangur til þessa tima í íækkuðum mcðaferðar tilkostnaði bændanna. Við byrjun ársins var brej’ting gerð á skrifstofu þjón- ustu félagsins. Einn nýju stjórn- endanna, hcrra Mo.ffat, kosinn á síðasta ársfundi, var gerður skrif- ari með ttmsjon a öllum bréfavið- skiftum við fólagið. . G. I.ind- say, með 30 ára æfingu, var gerð- ur umsjónarmaðtir kornhlaðanna. J. A. Jenkins, j'firbókhaldari og forstjóri skrifstofunnar. Hr, Mur- ray hcfir umsjón á sölu og út- llutningi kornsins, og hefir nú þeg- ar fengið meira en þj prócent hærra cn markaðsverð fyrir selt korn. Ilerra Lcisncr hcfir umsjón með útflutningsdedldinni, og hann á að sjá um, að markaðsvcrð hér í landi sé í samræmd við markaðs- verð utanlands. Fyrir ráðsmensku hr. Hendersons á haínstaða korn- hlöðunum hcfir meira korn sótt að þckn þetta ár, en nokkru sinni fyr og trjggir með því góðar inntekt- ir fyrir félagið. Hr. Massey ræður yfir flokkunardeildinni, sem ðkvcð- ur gæði korns í hverjum vagni, sem íélaginu er scndur. Hr. John Kennedv sér um deildamyndun. Svo er ákveðið, að stjórnendur hverrar deildar bafi vikulega fundi með sér, til þess kað ræða um vandamál félagsins og ráða fram úr jæim. Ef j>ér lítið inn í skrifstofuna í Keewayden Building, sjáið þér annamestu skrifstofu í Winnipeg, þar seim 120 þjónar eru önnttm kafnir alla daga og part af nótt- unum til þess að annast starfið. þetta er vöxrtur félagsins á 6 ár- um. Hvað verður hann á næstu 6 árurn. þvi ráða bændumir. Dánarfregn. Fimtudaginn þann 3. október 1912 andaðist að heimili sínu Hvammi í Gimlisvcit bóndinn þorsteinn Sigfússon, nær áttræður að aldri. Hann var íæddttr á þórodds- stöðum í ólafsfirði á íslandi þann 13. október 1832. Foreldrar hans voru þatt hjón Sigftts bóndi Bjarna son á þóroddsstöðum og Ásta þórunn Daníelsdóttir, bónda að Skipalóni í Hörgárdal. Syx ára að aldri lluttist þor- steinn sál. mcð foreldrum sínum frá þóroddsstöðum 4nn að Hvammi í Möðruvallaklausturs- sókn, og var hjá jieim þar, þár til hann var átján ára að aldri. Fór hann þá til móðurbróður síhs, þorsteins Daníelssonar á Slcipa- lóni og var hjá hontim í scx ár og lærði hjá honuni snikkaraiðn. Frá Skipalóni fór þorsteinn til Jóns bónda Sigfússonar, bróður síns, sem þá bjó á Hallgilsstöðum í Fnjóskadal, og var hjá honum vinnumaður eitt ár. þaðan fór hann aftur til þorsteins Daníels- sonar frænda síns á Skipalóni, og var hjá lionum vinntimaðttr í þrjú áe. Ilaiistið 1860 gvæntist þorsteinn Önnu Halldórsdóttur, bónda að Kjjama í Möðruvallaklausturs- Næsta vor á eftir, 1861, reistu þau bú að Hvammi í Möðruvallakl.- sókn og bjuggu þar þangað til vorið 1876, að þau fluttu til Ame- ár. þorsteinn sál. nam land 4 mílur snðvestur af þorpinu Gimli, og nefndi bæinn Hvamm. þar bjó hann til dánardægurs. þau hjón höfðu lifað í hjóna- bandi í 52 ár og eignast 4 böra. Af þeim dóu tvö í æsku heima á íslandi, en tveir fullorðnir synir þeirra eru enn á lífi, sem báðir edga heima í Gimli sveitinni. Friður og blessun drottins sé með hinum framliðna. Sigfús Valdimar Thorstcinsson. Konur og ungfrúr. Aður en þér kaupið ykk ar vetrarfatnað og yfir- hafnir ættur þér að koma og skoða hin&r miklu og fjölbreyttu birgðir vorar, sem allar eru eftir nýustu tízku og af bezta verði. Saumað eftir máli, eða tilbúin. I.ÁNAÐ, EF ÓSKAÐ ER. J WILSON l’hone G. 2592 - - 7 CampMI Blk, riaín & James MAIL CONTRACT. r JL'ILBOD i lokuðum umslögum, árituð til Postmaster General, verða meðtekin í Ottawa til há- clegis á föstudaginn þann 6. des- ember 1912, um póstflutning um íjögra ára tíma tólf sinnum á viku hvora leið, milli Oak Point og Oak Point járnbrautarstöðv- anna, og byrjar þegar Postmaster Gencral skipar fyrir um það. Prentaðar tilkyuningar, sem innihalda frekari upplýsingar rnn póstflutningaskilyrðin, fást til yf- irlits, og eyðuhlöð til samninga eru fáanleg á pósthúsinu í Oak Point og á skrifstofu Postoffice Inspector. Postoffice Inspectors Office, Winnipeg, Manitoba, 25. okt.1912 H. H. PHINNEY, Postoffice Inspector4 152 Sögusafn Heimskringlu Bróðurdóttir a-mtmannsins 153 154 Sögusafn Heimskringlu hafði haft með sér. 'En sá klaufi ég er’, hvíslaði hún og strauk hendinni um enni sér ; <ég skil ekkert í þessu ; en loftið hér inni er svo þungt. Einstakur 1 aumingi er ég’.. Hún leysti klútinn af sér í snatri og ýtti honum aftur á lierðarnar, sem vildi hún eiga hægra með að | ná andanum. Svo tók hún um hendi hans, án þess að líta upp. ‘þetta tekur bráðutn enda’, sagði hann. Hann vildi segja þetta henni til liuglireystingar, en gat varla komið upp orðunum vcgna sinnar eigin hugar- æsingar. Hún svaraði engu strax, cn tók að spretta af umbúðunum. 'Ég losna þó við þetta’, mælti hún svo ; ‘þú hefir ekki rneitt þig aftur, sárið er gróið satnan og það vcrður tæpast ör eftir’. ‘Hvaða skrambi! Mér hcfði þótt gaman af, að hafa það til minningar, eins og stúdent, er fær ör á andlit sér ; og nú bj'st ég einnig við, að þú álítir ekki lengur þörf á, að gera því til góða’. ‘Nei, alls ekki’, svaraði hún, ‘það scm hér eftir þarf að gera, getur frú Gricbel gert’. ‘Mikið ertu góð! En mig langar nú ekki svo sérlega mikið til að biðja gömlu frú Griebel um að hjálpa mér. Ef til vill má ég koma í hjáleiguna, ef ég þarf frekari hjálpar við?’ ‘það liefði enga þýðingu’, mælti liún án þess a'Ö líta upp. Svo gelck hún frá honum ; starfi hennar var nú lokið. , Hún flýtti sér að ganga frá dóti sínu, og áður en hann vissi af, var hún komin út úr dyrunum, líkt og fugl, cr notar sér frelsið og flýgur út. En er hún stóð f annari tröppunni sneri hún sér við : ‘Ifefir hér verið sýnd nóg sjálfsafneitun ?’ spurði hún og blandaðist sorg og gremja saman í rödd hennar. ‘Ber ekki þetta nægilegan vott um auðmýkt?’ ‘Vertu nú ekki að grcmja þig með jiessari upp- gerðargremju, sem alls eklci kemur frá lijarta þér’, greip liann fram í fj'rir lienni. II,ann hafði tekið hatt sinn og stóð nú við hlið hennar. ‘Kg hcuntaði að eins það, er ég átti heimtingu á. Hver skjldi lá mér það ? Og þú gerðir að eins skvldu þína. Er það svo hræðilegt ? í staðinn- skal ég fj'lgja þér heim. Nei, nci, — hafðu ekkert á móti þvi. Veiztu ekki, að ílökkumannaflokkur er á ferð hér í Ilirsch- winkel — — ?’ ‘Er það svo ? þeir gætu tekið mig og látið mig ganga á mjóa bandinu’, mælti hún og sneri sér bros- andi að honum. ‘Auðvitað. Og þó það hafi ekki skeð í raun og veru, þá hefi ég séð þig í dag í vagni með striga- tjaldi yfir á meðal spákerlinga og flökkumanna. En alt þetta skal ég skýra fyrir þér í annan tfma, — það er að segja, ef blessuð sólin vill skfna á mig, vesalinginn. Til þessa hefir hún gert það af skornum skamti ; og með því lika að 6g vcit, að eftir hér um bil hálftÍTOa hverfur amtmannsvinnukonan, í verka- fötunum og tneð skýluklútinn, fyrir fult og alt, þá skal cg rejna að nota þennan stutta tíma, sem eftir er, eins vel og cg get’. Hún leit snögglega til hans. Hann' var alvarleg- ur á svip. þau gengu samhliða í áttina til furu- trjánna, eftir miðjum vcgimim, því ennþá glitruðu regndroparnir í trjálaufumun. Sama var að scgja um kornstráin or hvern einasta smápoll. Sólin varp- aði dýrðlegum ljótna j'fir það alt. það var sem hitnin otr jörð, sól og vatn sættust nú heilum sáttum cflir óveðrið. ‘Ilvað heldur þú að ungi Franz ætli að leggja fyrir sig, er hann fær heilsuna nftur ?’ spurði lierra- garðscigandinn a1t í eimi. ‘T.íklegast hverftir liann eigl aftur til Californiu’. Hún liristi höfuðið. ‘þegar hann kom, sagði Ihann við mig, að heldur vildi hann stunda vega- ivinnu hér í Thuringen’. Ilún stundi þungan. ‘þú veizt bezt sjálfur, í hvaða ásigkomulagi ‘lvin gullna Ivon’ gamla amtmannsins kom licim. Hann hefir sagt Imét, að þú af brjóstgæðum tókst liann upp af veg- inum, hjálpaðir honnm heim til þín og lijukraðir hon- um fyrstu nóttina á hcrragarðinum. Sorg og Igremja kom honum til aö flýja þaðan, — hann vildi lieldur deyja einn síns liðs úti á víðavangi, heldur en þiggja ölmusti. Ég skil það vel’, bætti hún við og grcip báðum höndum um brjóst sér. ‘Hann hafði irétt fyrir sér ; það er hálfu bctra, að dej'ja á af- viknum stað, hcldur en verða stööugt að þiggja af öðrum’. Hún þagnaði um stund, og horfði upp fyrir sig ; jhún bcit gremjulega í neðri vörina og hnj’klaði brýrn- 'ar, og maðuriun við hlið hcnnar forðaðist að rjúfa jþögnina. ‘Hann komst gegnum skóginn og hneig niður í nrma mína við hliðið’, bætti lnin við og dró þungt andann. I ‘Kn hvernig gastu komið honum í burttt ? ’ ‘Öttinn gaf mér afl. Foreldrar hans máttu sjá hann. Hefði móðir hans séð hann í slíku komulagi, mj'ndi hún eigi hafa afborið það’. ‘En skógvarðarhúsið cr svo langt í burtu?’ ‘Já, þann morgun fanst mér vegurinn þangað ó- endanlegur ; en ég fékk hjalp. Skogyörðurmn var æskuleikbróðir Ottós. Hann bæði hló og grét í einu, er hann mætti okkur. Nokkrum klukkutímum stðar hafði sjúklingurinn okkar óráð’. ‘Og hafði þá svo hátt, að ttndir tók í skógimvm’, bætli hr. Markús við. ‘Og þeir er fram hjá gengu og jhevrðu hláturinn, héldu . að skógvörðurinn hefði jdrj'kkjuveizln í hornstofunni. Já, ég veit það, og ekki ásig- Bróðurdóttir amtmannsins 155 til að bæta fyrir nokkur hörð, ónéttlát og meiðandt orð, sem særðu göfugt hjarta, veitti ekki af lteiltt mannslífi, með allri þeirri ást og umhyggju, er það gæti í té látið’. Hún sneri sér óttaslegin til hliðar, og virtisty sem væri hún helzt að hugsa um, hvort hún gæti oigi komist kiðar sinnar gegnum rennandi lilautt skóg-i kjarrið. Fj'lgdarmaður hennar tók víst ekkert eftir þessu4 Hann spurði jafn rólega eins og ekkert hefði trufiað samtal þeirra : ‘Hvaða atvinnu stundar gullleitar- maðurinn ?’ ‘Hann er bóndi’, svaraði hún og færði sig fjær trjágrein, er slóst í höfuð henni. ‘Fj'r meir ætlaði hann sér að taka við cftir föðttr sinn á Gelsungen ; auðvitað er langt síðan því var slcpt, og xiú^ er bann hefir mætt svo mikilli ógæfu, gerir hann ekki svo há- ar kröfur. Vinna, er veitir honum lifsuppeldi, þó það væri svo hm erfiðasta og á úthala veraldar, og að geta verið með móður sinni — óskar hann nú mest af öllu. ‘þá gæti hann verið hér í Hirschwinkel’. Hún þagði um stund og leit ánægjulega til lians4 ‘Vildir þú bj'ggja homitn hjálciguna?’ Hann leit til hliðar og j'pti öxlum. ‘Eg hefi ekk- ert með það að gera lengur’. ‘Ekki lengur! ’ endurtók hún alveg forviða og með hrj'gðarkeim í röddinni ; hún var náföl. ‘Hefir þú selt Hirschwinkel ?’ ‘Hvernig spj'r þú ? Hcldttr þú að ég hafi selt aðra eins pcrlu, setn féll mér í skaut alveg óverðug- utn ? Fyr mjmdi ég selja verksmiðjtina. Nei, en á- stæðan er sú, að i meira en ár hefir hjáleigan ekki legið undir herragarðinn’. ‘Svo þú hefir þá ekkert meira með það að gera ?! Og ógæfusama gamla fólkið verður nú aftur að berj-

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.