Heimskringla - 24.07.1913, Qupperneq 7
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 24. JÚLl 1913. BLS. 7
S. L. LAWTON
VEGGFÓÐRARl OG MÁLARI
Verk vandað.—Kost-
naðar-áætlanir gefnar
Skrifstofa:
403 McINTYRE BLOCK
Tul. Main 6397
Heimilistals iSt. John 1090
:;Sherwin - Williams
P
AINT
fyrir alskonar
húsmálningu.
Prýðingar-tfmi nálgast nfl.
Dálftið af Sherwin-Williams
húsmáli getur prýtt húsið yð-
ar utan og innan. — B r ú k i ð
ekker annað mál en J>etta. —
S.-W. húsmálið málar mest,
endist lengur, og er áferðar-
X fegurra en nokkurt annað hús
■* mál sem búið er til. — Komið
inn og skoðið litarspjaldið.—
J CAMERON & CARSCADDEN
QUALITY UARDWARE
í Wynyard,
•rri n ii*
Agrip af reglugjörð
dm heimilisréttarlönd í C a n a d a
Norðvesturlandinu.
Sérhver manneskja, sem fjöl-
■kyldu hefir fyrir aö sjá, og sér-
hver karlmaöur, sem orðinu er 18
íira, hefir heimilisrétt til fjóröungs
iúr ‘section’ af óteknu stjórnarlandi
í Manitoba, Saskatchewan og Al-
berta. Umsækjandinn verður sjálf-
ur aö koma á landskrifstofu stjórn
arinnar eöa undirskrifstofu í því
héraði. Samkvæmt umboöi og meö
■érstökum skilyrðum má faöir,
móöir, sonur, dóttir, bróöir eða
■ystir umsækjandans sækja um
landið fyrir hans höud á hvaÖa
skrifstofu sem er.
S k y 1 d u r. — Sex mánaða á-
búö á ári og ræktun á landinu í
þrjú ár. Landnemi má þó búa á
landi innan 9 mílna frá heimilis-
réttarlandinu, og ekki er minna en
80 ekrur og er eignar og ábúöar-
jörö hans, eða föður, móður, son-
ar, dóttur bróöur eöa systur hans.
I vissum héruöum hefir landnem-
Inn, sem fullnægt hefir landtöku
skyldum sínum, forkaupsrétt (pre-
emption) að sectionarfjóröungi á-
föstum viö land sitt. Verð $3.00
ekran. Skvldur :—Verður aö
sitja 6 mánuöi af ári á landinu i
6 ár frá því er heimilisréttarlandið
,var tekiö (að þeim tíma meðtöld-
um, er til* þess þarf aö ná eignar-
bréfi á heimilisréttarlandinu), og
50 ekrur verður aÖ yrkja auk-
reitis.
LandtökumaöUr, sem hefir þegar
notað heimilisrétt sinn og getur
ekki náö forkaupsrétti (pre-emtion
á landi, getur keypt heimilisréttar-
land í sérstökum héruöum. Verð
$3.00 ekran. Skyldur : VeröiÖ aö
■itja 6 mánuÖi á landinu á ári f
þrjú ár og rækta 60 ekrur, reisa
hús, $300.00 viröi.
W.W.CORT,
Deputy Minister of the Interior.
Borgið Heimskringlu!
Hvað er að?
Þarftu að hafa eitt-
hvað til að lesa?
Hver sé sem vill fé sér
eitthvaö nýtt aö lesa í
hverri vikii,œt< i aö gerast
kaupandi Heimskringlu.
— Hún frerir lesendum
sínum ýmiskonar nýjan
fróöleik 52 sinnum A ári
fyrir aöeins $2.00. Viltu
ekki vera iheöl
Þankabrot.
(Niðurlag)
Spvrjiö stórskáld, hvernig hann
hafi auðgað sig að þeirri miklu
andagilt, að lyfta sér þannig fram
úr sinni samitíð. Eg get ekki svar-
að því á þá sömu leið, sem hann
mundi gera, því bæði er éig ekkert
skáld, og þar aö auki mjög svo
ólíktir honum að eðlisfari og lifn-
aðarhættir mínir og hans tnteira
ocr minna ólíkir, og daglegar
revnslur líka að mörgu ósa líkar.
þctta alt og mikiö flyira mynd-
ar hugsunarhætti manna, svo öör-
um gefast tækifæri hvar öðrum
gefast ekki, og svo notar annar
ekki tækifœri þó framboðin séu,
þar sem hinn notar máske öll eða
meirihlutann. “lÖ'll mannleg fram-
þróun, kyrstaða eða afturþróun er
innvinningur fvr eða síðar innunn-
inn”, — það get ég 'til að yrði
flestra svar, enda þó enginn myndi
eigna sér alls uppsprettvma, hvað-
an svo frá að alt sprettur, heldur
myndu allir viðurkenrta tilrunir
sínar til að nota smáskamta þá,
sem að þeim voru réttir, er sam-
svöruðu þeirra lyst og löngun að
nema og skynja.
það gerir stóran mismun í sjálfs-
framþróun, hvort menn halda
sinni skynjun opinni eða lokaðri.
Hvort httgur manns tekur á móti
skömtum þeim, sem honum eru
réttir, reynir þá og prófar, og ef
góðir prófast, meötekur þá sem
sína, eða annars kastar þeim aft-
ur, sem honum ekki finnas't brúk-
legdr. Alt er í þessu innifalið, að
geta lært að þekkja það brúklega
frlá hinu óbrúklega, til andlegrar
og líkamlegrar uppbyggingar
mannsins. þetta gerir mennina að
htnum sönnu stórmennum, að
sönnum sjálfstæðingum.
AS leita til sjálfs sín fyrir hvað
vantar og fá það að sér ré.tt frá
ósýnileikans allsuppsprettu, þar í
ielst hið sanna sjálfstæöi. þar við
glímir hver sannur hugsjónamað-
ur. þar við glíma vor beztu og
mestu skáld, og þaðan fæst hið
sannasta, sem tilsvarar tímanum,
er vér lifum á og þörf sjálfra okk-
ar. það er gott og ómissandi fyrir
livern, sem ætlar sjálfstæði að' ná,
að njóta undirvísunar frá bók-
mentum eftir heimsins mestu menn
er fyrirmynd annara hafa verið.
það er gott, segi ég, að ráöfæra
sig við þá og læra að skilja þá, á
tneðan ósjálfstæðis aldur manns
vardr, en eftir það gera alt sitt til
að lifa ekki lengur á þeirrai brjósta
mjólk. Reyna að hjálpa sér sjálfur
°g gerast guðs hjálpar verður.
Að framlifa sinn sjálfstæði'saldur
stöðugt á forn Grikkjum og öðr-
um heimsins goðum, er einhlitt
ráð til bjargráðaleysis og kyr-
stöðu, ef ekki afturfarar. þeir
ættu að skoðast fvrirmynd til að
bvggja upp af réttvíst og friðsam-
legt mannfélag, en ekli að dýrk-
ast í vesaldómsins kyrstöðu. þeir,
sem þá dýrka löngu dána, og sjá
ekkert framar en þeir kendu, þeir
sjúga andlegt blóð þeirra í sjálfs-
bjargarlevsi, og ná aldrei nein
sjálfstæði í þessu lífi, og\ því síður
i öðru jífi. þeir gera sig aldrei
eílda, að fara af annára andlegu
né líkamlegu framfæri, og verða
varanlegir ósjálfbjarga þurfamenn
— dáleiðast til þess möguleika, að
sækja alt til annara. þessir ertt
þeir eindregnu neikvæðamenn og
hindranir á braut framfara.
%
Raldvin er ekki einn þessara
manna, þó honum sé fært til
reiknings að hafa rangskiliö og
þýtt harmleik Jóhanns Sigurjóns-
sonar. Eg meina — þó ég hafi rit-
ið ekki séð —, að hann hafi þó
fót fyrir sinni þýðing, rétt ains
vissan og allir hinir,, er sjá á ann-
an veg. það hafa flest málefni
tvær hl ðar, og svo mun þetta og
hafá. Eða hvers vegna hæfir mönn-
um betur, sem vilja læra, að verða
að þýða efnlð úr rósamáli, sem
allur fjöldinn ekki skilur, heldur
,en ef þaö er framsett án rósa eða
tvöfeldnis ? þó rósamál megi nefn-
ast meir listfræðilegt en ginfalt
mál, þá fylgir því jafnan óein-
lægni, er fáfróður lýður tekur fyr-
ir einlægni, og þar fram kemur
sönnun þess, er einn þessa rits
dómari sagði, að “þckkingarleysiö
eitt hneykslaðist”. þá spyr ég :
Er það nokkuð lofsvert af þeim,
sem hneykslinu veldur ? Vei þeim,
sem hnevkslar! stendur í barna-
lærdómi vorutn. Og þaö veit ég
líka að þeim ritdómara er kunn-
ugt, þó hann nú lofi þessa list-
fræði með heimshættinum. það
má i það óendanlega lofa og lasta,
á hverti svo veg, af tveimur, sem
húers eins tilfinningum hæfir, þar
til þekkingarleysið kemur ipn og
segir : “hingað og ekki lengra”.
Pvrir heimsháttinn og undir
hans merkjnm mun ritið vera sam-
ið, á kostnað aljréðu, er ekki skil-
ur nema bess ytri búning o^ sein
bvrstir eftir að siá alt, hversu
ljótt sem er, án þess að skvuja
frá hvaða orsökum það spratt. —
Hinir, þedr lærðu, vita orsakirnar,
og jafnvel sjá þær rangar hafa
verið og vera. En kærleikur til
sinnar stéttar, valdafíkn, peninga-
græðgi og framfærsla á annara
kostnað, og margt fleira, forgvllii
vtri búninginn, svo allir stari á
og gieymi hinum innri. Fólk á
milli vita, beldur að hér sé rósa-
mál um að tala, og skáldið beri
að skilja á dulaffullan og' andleg-
an máta ; en það er hreint ekkert
víst, að skáldið hafi haft við
samning þess minstu hugmynd um
að það skyldi þýðast á þá vísu,
sem þess dýrðlingar hafa gert enn.
Heldur tilheyrir sá skáldskapur
sjálfum þýðendunum, sem ætla þar
með að hækka hans manngildi
fram yfir það, sem vera ber, ef
honum skvldi réttur matinn, að
gjaldast hvað hann á og ekkert
mieira. Rétt skilin intiri hlið hvers
málefnis samsvarar þeirri j'tri.
Ilvor fyrir sig ber hinni með-
vitni. Sá, sem talar á tvíræðan
máta, hann er að einhverri stærð
hræsnari, eða gauð, er ekki þorir
opinberlega að mæla. Ilann elsk-
ast af hans líkum, og lofast og
A’irðist af röngum hoimsvana, er
mælir eingöngu hið sarna og aðrir
mæla, án eijjin sannrar dóm-
gseindar. “Tvent rangt tilbýr ekki
eitt rétt”. Og þar af er skiljanlegt
að harmleikur Jóhanns framleiðir
enga siðbetrun í hjörtum siðspilt-
um. Kn siðbetruð hjörtu þurfa
hans ekki með. Að eftirleika ó-
sómann, er hans bezta viðhald ;
með því er hann kendur og plant-
aður í meðtækilegum. En þeir
meðtækilegu eru alt of margir, og
hafa gaman af að sjá það, sem
þeir hreint ekki ættu að sjá. Menn
ættu að fara að verða yfir það
vaxnir, ettir að þieir ná sjálfstæð-
isaldri, að þykja gaman að horfa
á harmleiki eins og hálfvitar, er
ekki kunna að meta, en langar alt
að sjá. í það minsta höfum vtr
ísleudingar átt kost n að heyra
sögur og æfintýri nígu ljót og
sorgleg til að erta upp ilt skap,
hvar illur andi inni býr, svo oss
ætti ekki að vanta neitt harma-
leikaskáld til að snúa þ. im í leik-
rit til að leika á leiksviðum.
Ef þeir vilja yrkja og eru skáld,
og vilja láta gott af sér leiða sem
nýtir menn, þá yrki þeir gott og
fagurt, er öörum er gagn um að
hugsa, og sjálfum þeim til sórna
og framþróunar og sjálfstæðis.
þeim er jafn hægt, að venja sig á
að hugsá út eitthvað gagmlegt og
sannlega lofsvert, eins og að
hugsa út til háls einhvern skripa-
leik, þeim til vanvirðu, sem löngu
eru dauðir o.g samsvöruðu þátið-
• aranda og staðháttum, öllu betur
en Jóhann samsvarar sínu uppeldi
og sínum tíma og framfæri.
Að þessu sögðu er ég yður öll-
um, sem til máls hafið tekið, inni-
lega þakklátur fyrir skemtunin«
það ^.ð lesa og hugleiða, og játa
að öllum hafi sagst vel.
B. G. Backman.
Dánarfregn.
Miðvikudag 9. jiilí síðastliðinn
andaðist mærin Rannveig Lilja
Jónsdóttir, að heimili foreldra
sinna í Selkirk. Hin framliðna var
fimm ára, oins mánaðar og nítján
daga ;ti>mul. Banaxntin hennar var
taugaveiki og heilabólga, og var
hún búin að liggja á fjórða mán-
uð og hafði þjáðst mikið. Rann-
veíg sáluga var jarðsungin í hin-
um íslenzka lúterska grafreit í
Mapleton á fimtudaginn 10. júlí af
séra N. Steingrími Thorlákssym.
Áður en sú framliðna var flutt úr
húsi foreldra sinna talaði Mr.
Mattías Thordarson nokkur orð og
siðan hélt séra N. S. Thorláksson
húskveðju.
“ó, sæll er hver, sem urigur burt
má svífa
frá eymd og harm,
áður en sorgin hjörtun óspilt hrífa
í hreinum barm”.
ÞAKKARÁVARP.
í síðastliðinni viku þóknaðist
drottni að kalla til sín okkar
heittelskuðu dóttur Rannveigu
Lilju, fimm ára að aldri ; og er
við getum ei þakkað Qllum vinum
okkar persónulega fyrir þá hlut-
tekningv er þeir létu í ljósi og
stvrk, er þeir veittu okkur á sorg-
arstundum okkar, tökum viö þetta
tækifæri að birta þakklæti okkar
hjónanna til allra þeirra, sem leit-
uðust við, á vdlan mögulagan hátt,
að láfa í ljósi liluttekning sína, og
hjálouðu til að gera útförina sem
veglegasta. Séra N. S. Thorláks-
son gerði alt sem í hans valdi
stóð til að gera xitförina sem
hngðnæmasta. Ennfremur ber okk-
ur að þakka Mr. Mattíasi Thord-
arsyifl hin hlýju og viðkvæmu orð,
er hann mælti vfir liinni fram-
liðnu.
Selkirk, Man., 14. júlí 1913.
Guðlaug M. Tónsson,
Jón Jónsson.
Þakkarávarp.
Með þessum línutn vottum við
hjónin, ásamt syni okkar, innileg-
asta þakklæti þeim Jónasi þor-
steinssyni, bróður mínum, Lilju
konu hans, börnum þeirra og Sig-
urðd Friöfinnssyni, bróður hennar,
og svo öllum öðrum, sem svo vel
og góðfúslega brugðust undir
bagga með okkur peningalega,,
þegar okkur lá mest á, í vor er
leið, þegar sonur okkar varð tví-
vegis að þola uppskurð með
stuttu millibili, fyrir innvortis
meinsemd. Við biðjum guð að
blessa alla þiessa vini okkar og
hjálpendur, og óskum, að ef ein-
hverntíma likt stendur á fvrir edn-
hverjum þeirra, að hann v-eki þá
hluttekningu meðbræðranna gagn-
vart þeim hinum sömu.
Ennfremur þökkum v'ið af öllu
hjarta Hr. B. T. Brandson, sem
uppskurðinn gerði, fyrir alla hans
alúðlegu umönnun á svni okkar,
frá bvrjun til enda, meðan hann
dvaldi á sjúkrahúsdnu, og sömu-
leiðis öllu því fólki í Winnipeg,
sem bæði vitjaði um son okkar á
sjúkrahúsinu og svbidi honum hlttt-
tekningu á annan hátt.
Hér með birtum við svo lista
yfir nöln allra gefendanna :
A r b o r g : — Dr. J. P. Páls-
son, $6 ; Ásgeir Fjeldsted, Sigur-
jón Sigurðsson, séra Jóh. Bjarna-
son og Percy Jónasson, $5 hver ;
Bert Wood, $3 ; Sigurbj. Sigurðs-
son, Andrés Reykdal, H. Hermann
og Ásbj. Pálsson, $1 hver ; Magn- J
ús Sigurðsson, 50c.
Gevsir P. O.: — Jón S. Nor-
dal $9 ; Sig. Mristinnsson og Mrs.
Salbjörg Sigurðsson, $5 hvort ; [
Mr. og Mrs. Friðrik Sigurðsson, !
$2.3,5 ; IMr. og Mrs. Jón Sigurðs- j
son, $2.25 ; Mr. og Mrs. Jónas |
þorsteinsson, Ágúst B. Jakobsson,
Mr. og Mrs. J. Schram og Gestur
Oddleifsson, $2 hvert ; Friðf. Sig-
urðsson, Mr. og Mrs. J. Gutt-
ormsson," þorl. J. Skagíjörð og
Lestrarfélagið Vísir, $1.50 hvert ; [
Mr. og Mrs. B. Jakobsson $1.95 ;
Mr. og Mrs. Sig. Friðfinnsson,
Íl.25 ; Guðjón Björnsson, $1.05 ;
Cristjón Sigurðsson, Kristm. N.
Sigurðsson, Jónns M. Jónasson,
Unvald 0. Jónasson, Miss Una F.
Jónasson, Gestur J. Sigurðsson,
j>orsteinn Sigurðsson, Mr. og Mrs.
J. Benjamínsson, Mrs. Valgerður
Nordal, Mrs. Jóhann Nordal, Jón
Pálsson, $Í hvert ; Mrs. Hólmfr.
Ilelgasori, 85c ; Mr. og Mrs. Pétur
Guðmundss • i, 85c ; Mi «.« Mrs.
Jón Skúlason, 60c Miss Guðrúti
Jónasson, Mr. og Mrs. Kr. A.
Kristinnsson, Mrs. Sigrún Gísla-
son, Mr. og Mrs. Bjarni Bjarna-
son, Mrs. þóranna Evrjólí.sson, Mr.
og Mrs. B. Jóhannsson, Mr. og
Mrs. Gísli Jónasson, Jón þopsteins
son, Sigtn. Gunnarsson, Alb. Sig-
ursteinsson, 50c hvert ; Mrs. Björg
Gíslason, Mrs. Sigríður Friðriks-
son, >Mrs. Olöf Björnsson, Mrs.
Anna órðarson, 25c hvert.
Icelandic Rive r.— Sveirin
Thorvaldsson, $5 ; Mr. og Mrs. j
þorst. Eyjólfsson, $1.50; Mr. og 1
Mrs. Jóh. Jóhannsson, $1.25 ; Mr..
og Mrs. B. Hjörleifsson, $1.25 ;
Jóhann Briem, Mrs. J. S. Páls-
son, Pétvtr Jónsson, Páll Vídalín, |
Hiálfdún Sigmundsson, Jónas Jón-
asson, Jóhannes Jónsson og Mrs.
Guðrún Björnsson, $1 hvert ; þor-
grímur Jónsson, 75c : Mrs. EHtt
V. Sigmundsson, Stefán Eyjólfs-
son, Sigurjón Eyjólfsson, þor-
varður Benediktsson, Helgi, Th.
Stefánsson, Axel G. Eyjólfsson,
Georg Sigurðsson, Mrs. Björg
Björnsson, 50c hv-.ert ; ónefndur
40cGunnl. Iljörleifsson ; Miss
ölína Pálsson,, hlr. W. Sopher,
Tímóteus Björnsson, Eiríkur þor-
steinsson, Sig. Krisóf&rsson, Ei-
rikur Eymundsson, IMrs. H. Ey-
mundsson, Mrs. Kr. ólafsson,
Árni Guðjónsson, Valdi Benedikts-
son, 25c hvert. \
H n_a u s a P. O. — Jón Bald-
vinsson, $2 ; Bjarni Marteinsson,
Eddvr lilarteinsson, Jón Bergsson, |
Guunar Helgason, Máss I. J. Pét- |
ursson og Baldvin Jónsson, $1 [
hvert ; Sigvaldi Vídal og Miss
Kristín Jónsdóttir, 50c hvort.
Geysir, Man., 13. júlí 1913.
J. II. J. Thorsteinsson,
Albertína Thorsteinsson,
Thorsteinn J. Thorsteinsson. [
J. WILSON
LADIES’ TAILOR & FURRIER
7 Campbell Bloök
^Cor. Main & James St.
Phone (xarry 2595
DR. R. L. HURST
I moWmnr konunprlefrn skurðlreknaréðsins,
útskrifaöur af konuniíletrH IreknaskólHiuim
I t liondon. SérfrreMueur 1 brjóót o*? tHUsrR-
veikluii n*t kvon jnkrlómuni. Skrifsiofa S05
i\ iineJy IJuildip-r. Portase Avo. ( scnguy-
Rato «) Talsími Main 814.- Til viðtals frá j
10—12, 3—5. 7 9
SHINGLE BLACK
Kolsvartur, vatnsheldur
þakspóns litur, sem
glansar enn meira við
sólarhitann. Aðeins 50c gallónan í tunnunni. Kaupið það.
Shinglesote,” Málara Creosote
—Tilbúið að blandast f alskonár liti,— 40c gallónan f tunnunni.
Mál oo litir alsk°^ar, og ódýrara en
------—-------- HEILDSÖLUVERÐ FYRIR PEN-
INGA ÚT í HÖND. Skrifið, sírnið eða finnið oss að máli.—
CARBON OIL WORKS, LTD.
66 KING STREET WINNIPEG TALS. GARRY 940
TH0RSTEINS0N BRO’S. & CO.
BYGGINGAMENN OG FASTEIGNASALAR.
Vér byggjum og seljum vönduð og góð hús og ail-
ar tegundir af byggingum, og seljum lóðir og lönd,
útvegum lán á byggingax og lönd og eldtryggjum
bús og stórbyggingar. Vér skiftum bæjareignum íyrir
bújarðir, og bújörðum fyrir bæjareignir. Vér óskttm,
að íslendingar taH við okkur munnlega, bréflega eða
gegnum síma.
815-817 Somerset Bldg.,
(næsta bj«gging austan viS Eaton).
SKRIFSoFl' SIMI MAIN 2992. HEIMILIS SIMI GARY 738.
| AVM. BOND |
| High Class Merchant Tailor
Aðeins beztu efni á boðstólum.
Verknaður og snið eftir nýjustu
tízku. — VERÐ ÖANNGJARNT.
J Verkstæði : •
• Room 7 McLean Block 2
• 530 Main Street 2
♦•♦•♦•♦•♦•♦•♦©♦•♦•♦•♦«♦•♦•♦•♦•♦•♦•♦•♦•♦•«•«•
l SJALFSTÆTT HEIMILI:
*
*
♦
. _ ------, ........... ......-...ónýtt
t að dyruni besta markaðar. Odýr fiutningur.
t Skilmalar: yfir fjögur ár.
Y Sendið t ftir stórri b<*k með myndnm, —
1 lafn ódýrt og útkjálka bæjarlóð. Milt loftslag. Ekkert frost -t
f } á vetrum, engin sumarfrost. Ekkert-ónýtt land. Liggur *
' }
ókeypis
Queen Charlotte Land Go. Itd.
Wínnipeg.
t
+
*
*
4-
*
*
4
#
1 401-402 Ccnfederation Life Bldg.
} PHONP flAIN 203.
Það er
alveg
víst
að þa* borg-
ar sig að aug-
lýsa í Heiin-
skringlu !
Engan eld þarf að
kynda
þann dag sem lfn er strokið, ef
rafmagnsjár er notað. Fáið
yður eitt. far við sparast eldi
viður, eldliúsið helzt svalt, og
miklu betur gengur að strjúka
línið heldur en með vanalegu
járni.
QAS STOVE DEPT.
Winnipeg Electric Railway C>>
3i2 MAIN ST, PUON'E M.2 522
JÓN HÓLM
Gullsmiður í Winnipegosis bæ
býr til og gerir við allskyns
gullstáss og skrautmuui. Sel-
ur ódýr en öflug gigtarlækn-
inga-belti.
VERDiCT
INTHICAMOfTHI
IXL WASHER
•CrORt TMÍ OOURT OR RUBUC OPINIOM
IN FAVOR OF THE
I.X.L. VACUUM WASHER
V «;h.D }<3 5u.
M ilfy ffjaiuM'oiHO spariir $2.C9|
Þvær f llan falabala á 3 mín.
Seud yönr u: d*r éndurborpunnr ébyrgö
HEIMSKRINGLA COLPON.
Seudiö Coin-on ou $1-50, nafn ng
Aritun yflnr til Dominion UtiTitií s Mfg Co.
Ltd.. i'21'; M. iii Sf.. VN'lnnip»ír. nt' biö
fáiö 1. X. L. VACCNM DVOTTAV EL
Vér borpnm bnrft rejald «g endursenduni
peninga yðar ef véJin ei ekki ems og er
IslenzkurBilliard safur
339 Notre Dame Ave ,
rétt vestan við Wintiipeg leik-
húsið. Bezti og stærsti Billiard
salur í bænum. óskast eftir við-
skiftum ísfcndinga.
j Fyrir að spila, pool:
2|c. fyrir “cuið’
yrir hvert poolborð:
urn kl. tfma 30c.
’ Eigandi: TJI. INDRIÐASON.
P. 0. Box Hkr. er 3171.
Vegna breytingar, sem verið er
að gera á bréfahólfum í pósthúsi
Winnipeg borgar, hefir póstmeist-
arinn tjáð Heimskringlu, að talan
á pósthólfi hlaðsins verði óumflýj-
anle<ra að breytiast, og að sú tala
verði hér eftir No. 3171. þetta eru
heir allir beðnir að taka til greina,
sem viðskifti hafa við blaðiö. *
*