Heimskringla - 13.08.1914, Side 2
Bls. 2
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 13. AGÚST 1914.
™ DOMINION BANK
Horni Notre Dame og Sherbrooke
Str.
HöfuíWíóN uppb............$.0,000,000
Varasjöbnr.................$ .7,000,000
A.llar elffnlr.............$78,000,000
Vér óskum eftir vióskiftum verz-
lunarmanna og ábyrgumst aó gefa
þeim fullnægju. Sparisjóósdeild vor
er sú stærsta sem nokkur banki hef-
ir í borginni. #
Ibúendur þessa hluta borgarinnar
óska at5 skifta vió stofnun sem þeir
vita aó er algerlega trygg. Nafn
vort er fulltrygging óhlutleika.
ByrjitS spari innlegg fyrir sjálfa
yt5ur, konu og börn.
W. M. HAMILTON, Ráðsmaður
PHOTÍE GARRY 3450
♦
i
♦
:
:
:
♦
♦
Crescentl
MJÓLK OG RJÓMI
I
♦
♦
I
er svo gott fyrir börnin að >
mæðurnar gerðu vel i 7
að nota meira af þvi +
Engin Bakteria
lifir á mjólkinni eftir að við 4
höfum sótthreinsað hana.
Þér fáið áreiðanlega
hreina vöru hjá oss.
-f
-f
4-
TALSIMI MAIN 1400 +
4
ÍSLENZKA LYFJABÚÐIN
Vér leKgjum kost, á að hafa
og lata af hendi eftir lækDÍsá-
visan hin bcztu og hreinustu
lyf og lytja efni sem til eru.
Sendið læknisávisan irnar
yðar til egils
E. J. SKJÖLD
Lyfjasérfræðines l Pr«scripiion Spec*
ialist á horninu á Wellineton ok Simcoe
Warrv hUiH -S.)
FURNITURE
on Easy Payments
OVER-LAND
MAIN & ALEXANDER
iMr é-'f-'t'-é"
SKERWIN - WILLIAMS
AINT
i\ nr :-i [skoinir
h ösináintnga.
'rvöin^fir tfim uáliínst ná.
htiö nf Sherwin W
smáli
liiams
li <rpt.nr prvtt ln'fsið yð-
itan og imifui. — B rúkið
er iimwf) niAl r>n f>ett.a. —
IV. hósináljð inálar mest,
ist li'niíur. our er áferðar-
nrra en nokknrt antiað hfis
sei;i bíiirt er f il — Komið
og skoðin i i'tarspjalflið.—
Fréttir frá Islandi.
.. (24. júni til 4. júlí).......
Lögrélla.
—Heinrich Erkes, kaupmaður og
rithöfundur í Köln á Þýzkalandi,
kom hingað með Botníu síðastlið-
inn sunnudag norðan um land, og
fer héðan til Þingvalla og Geysis og
upp á Skjaldbreið, en heimleiðis
aftur með Sterling 24. þ.m. Með
honum er frú hans og dóttir.
— Landskjálfta varð vart hér i
bænum kveldið 18. þ.m. kl. rúmlega
11. — Austanfjalla varð hans einn-
ig vart, en hvergi mikið.
— Raflýsing í Vestmannaeyjum:
Halldór Guðmundsson rafmagns-
fræðingur hefir tekið að sér að
koma upp raflýsing i Vestmanna-
eyjum, og er sagt, að útbúnaður til
þess eigi að kosta 48 þús. kr. Raf-
magnsstöðin á að verða komin upp
og tekin til starfa um næstu ára-
mót.
— Tíðarfar er nú miklu betra en
áður; hafa verið góð hlýindi í Norð-
urlandi, en ekki eins hér syðra, og
þó sumir dagar góðir. ís ,er nú
hvergi sagður nálægur.
in. Væri þetta gjört til þess, að
greiða fyrir almenningi á íslandi
að eignast bókina. — Ennfremur
gæfi félagið út í ár Orðakver til
leiðbeiningar, um réttritun, eftír
Finn Jónsson. Þar væri skýrt frá
uppruna orða, og væri þetta mjög
handhæg og þörf bók öllum almenn-
ingi. Bók þessi væri seld í bandi á
75 au., og væri hún hin ódýrasta
bók á íslenzku, að þrem guðsorða-
bókum undanteknum. Bók þessi
væri prentuð með skýru smáletri,
og væri svo mikið á hverri blað-
síðu, að það hefði kostað 17 krón-
um meira að setja hverja örk af
henni en öðrum hinum dýrustu
bókum Fræðafélagsins, — þ. e. með
öðrum orðum, að hver örk i orða-
kveri þessu, kostaði tvisvar til þris-
var sinnum meira, en örk í venju-
legum bókum, sem prentaðar eru á
íslandi. — Allar bækur félagsins
væru þegar fullprentaðar og yrðu
sendar til íslands i lok mai-mánað-
ar. — Að lokum þakkaði forseti
prófessor Þorvaldi Thoroddsen fyr-
fyrir góðvild hans og styrk til
Kræðafélagsins. — Stjórn félagsins
og endurskoðunarmenn voru end-
urkosnir.
Stríðið.
Það stóð ekki á þvi lengi, að Aust-
urriki segði Serbum stríð á hendur.
Þann 28. júli sögðu þeir upp öllum
griðum, og voru herflokkar þeirra
óðara komnir af stað til að fara inn
á lönd Serba.
— Aflabrögð eru nú sögð góð
bæði við ísafjarðardjúp, á Siglu-
firði og Eyjafirði.
— Bílferðir um Fagradalsbraut-
ina eystra ætlar Vigfús Sigurðsson
Grænlandsfari að reka í sumar; hef-
ir keypt til þess flutningsbíl frá
Ameríku, sem flytur töluverðan
þunga, og fylgir vagn, sem billinn
er látinn draga, þegar með þarf. —
Þessar ferðir eiga að byrja i næsta
mánuði.
— ólöf Sigurðardóttir skáldkona
frá Hlöðum í Eyjafirði hefir verið
hér um tíma. Héldu konur hér henni
samsæti síðastliðið fimtudagskveld.
Voru þar margar ræður fluttar og
fyrir minni heiðursgestsins sungið
fallegt kvæði eftir frk. Ingibjörgu
Benediktsdóttir. Kvæðakver eftir
ólöfu kom út á Akureyri i fyrra og
þar í jnargt vel kveðið.
— í skólanefnd kaus bæjarstjórn-
in hér nýlega: Síra Bjarna Jónsson,
M. Helgason, K. Zimsen, frú Bríetu
Bjarnhéðinsdóttur og frú Guðrúnu
Lárusdóttur.
Skozkt skemtiferðaskip, sem
Ermine heitir, kom hingað í gær
með um 70 farþega, og verða þeir
hér nokkra daga.
— Danskt skólaskip, Ingolf, kom
hingað í gær á leið til Grænlands.
— Til Ástralíu eru nýfarnir héð-
an tveir ungir menn, Hallur Páls-
son og Franklin Guðmundsson. Hafa
þeir áður verið við hvalveiðar við
Suður-Afríku.
— Lögreglustjóri á Siglufirði er
í sumar Júlíus Havsteen lögfræð-
ingur, áður settur sýslumaður í
Eyjafjarðarsýslu.
— Aflabrögð við Eyjafjörð eru
nú sögð í bezta lagi, bæði af þorski
og síld.
— Silfurbergsnámurnar í Helgu-
staðafjalli hafa verið faidar til eftir-
líts Sigurði Hjörleifssyni lækni.
CAMERON & CARSCADDEN í
pUALITV IIAKDWAKE
Wynyard,
Sask. •-
♦
M«H-H*I-H»H-I-I-H4 1-4
-—■ íslcnzka nýlcndan í Edinborg
og Leith. Hún er ekki margmenn, þó
eru þar ekki færri en 20 íslending-
ar. Þeir komu flestallir saman 17. j
júni á íslenzku kaffihúsi i Sala-
mander Street 12, i Leith. Þar halda
þær uppi veitingum frú Gunnhild-:
ur Jóhannesdóttir, sem lengi var
hér á Hotel Reykjavík, og ungfrú
i Elísabet Baldvinsdöttir frá Þorgcrð-
I arstöðum. Af samsætinu er það
sagt, að það hafi verið svo fjörugt,
að enginn einn hafi talað í.einu, j
heldur margir. Var sungið og spilað
j og jafnvel dansað og stóð sá gleð-
1 skapur til kl. 3 um nóttina. Það
J kemur sér vel fyrir marga íslend- J
inga, sem fara utan, að geta fundið |
: landa sínan í Leith.
Haröindin.
Það verður að segja hverja sögu
svo sem hún gengur. Heyskapar-
timinn i fyrra sumar var einhver
sá erviðasti, sem við miðaldra
mennirnir, munum eftir, svo að
næstum hver heytugga, sem náðist,
var stórskemd og hrakin og hey-
fengur lítill. Svo byrjar veturinn
Þannig, að þegar hálfur mánuður
er af honum liðinn, verður að taka
allan sauðfénað á fasta gjöf, jafnt á
hagbeitarjörðum sem á gjafajörð-
um, og svo mátti heita, að væri ó-
slitinn gjafatími veturinn út. Og
ekki batnaði, þegar hið nýbyrjaða
sumar gekk i garð. Síðan hefir tíð-
in verið svo slæm, sem menn geta
frekast hugsað sér á þeim tíma árs:
sifelt skifst á slyddur, byljir og
frost. Það er þvi i augum uppi, að
afleiðingarnar af þessari tíð verða
alt annað en góðar, enda er það víða
farið að sýna sig. Snemma vetrar
fór fé að veikjast bæði af lungna-
veiki, ormum og skitupest o. fl., og
þegar kom fram á útmánuði, Góu
og Einmánuð, fór að sjást máttleysi
á fé, þótt í góðum holdum væri.
Síðan hefir fé farið síhnignandi, alt
fram á þenna dag, hvernig sem með
|það hefir verið farið. Víða hefir
j verið gefin taða, mjólk og korn all-
an tímann, fram undir hvítasunnu;
en ekkert hefir getað bjargað fénu
i við, heldur hefir það drepist í hóp-
i um úr áðurnefndum kvillum. Svo
i mikil brögð eru að þessu á sumum
j bæjum, að farist hefir meiri hluti
! sauðfénaðarins, og allstaðar eitt-
hvað. Lömb hafa svo að segja strá-
drepist, bæði af kvillum og svo í
| hinum afskaplega vondu veðrum.
| Það eru stórgripirnir, sem ennþá
j lifa, en hætt er við, að rýr verði
i málnytan úr kúnum í sumar.
Þannig er ástandið i sunnanverð
j um Borgarfirðinum. Betra mun það
i ofan Skarðsheiðar, en þessu líkt á
i sumum stöðum í Mýrasýslunni og
j jafnvel á miklum parti af vestur-
kjálka landsins. Hér er um alvar
legt mál að ræða. Ekki er annað
fyrirsjáanlegt en að margir bændur
j verði að yfirgefa jarðir sínar, ef
ekki finnast einhver bjargráð. Menn
eru komnir.í botnlausar skuldir
Það hefir lengi legið við borð
þetta. Það hefir vist aldrei verið
vinátta á milli þeirra Austurríkis-
inanna og Serba. Það eru tvær ólík-
ar þjóðir. Austurríkismenn eru got-
neskir, af sama aðalflokk hinna
aryönsku þjóða og Þjóðverjar; eig-
inlega eru það Þjóðverjar, komnir
þarna suður að Dóná og Mundiu-
fjöllum, og tala þýzka tungu. En
Serbar eru slavneskir; reyndar af
aryönskum uppruna, en þó alt ann-
ar þjóðflokkur en Gautar, og tala
slafneska tungu.
Þeir eru ákaflega mannmargir,
Slafarnir, og til þeirra heyra Rúss-
ar, Pólverjar, Bosniu menn, Herze-
govina búar, Dalmatíu búar og
fjöldi mesti á Ungaralandi. 1 lönd-
um Austurríkiskeisara eru fleiri Slaf
ar en Þjóðverjar, nær 40 miiíónir.
Hefir Austurríki einlægt verið að ná
bita og bita af löndum Slafa og
stinga i síopinn hvoftinn á keisara-
veldinu, er Jóseppur hinn gamli
stýrir. Seinast tóku þeir Bosniu ár-
ið 1908, og innlimuðu það i keisara-
veldið. En Bosnía var öll slafnesk
og Jóseppur átti þar ekkert tilkall
til. Hefir þá mörgum Serbanum
volgnað undir eyrum. Og fyrri og
síðar hefir Austurriki verið svarinn
óvinur Serba. En þeir litlir stilling-
armenn og viljað gjalda liku líkt.
1 tvo mannsaldra hafa menn bú-
ist við illu þarna úr horninu, þegar
Serbar vöknuðu. En Rússar ala
einlægt vonir þeirra, að þeir Slaf-
arnir þarna syðra skyldu mynda
stórt og mikið slafneskt þjóðveldi,
og vist hafa þeir nú heitið þeim
hjálp, hvenær sem þeir risu upp af
krafti nokkrum. Hafa menn búist
við því, að alt veldi Austurrikis
losnaði sundur við fráfall Jósefs, en
hann er nú fjörgamall og búinn að
ríkja í 60 ár.
Engri þjóð í Norðurálfunni hefir
þvi komið þetta á óvart. Þær vissu,
að þetta mundi koma fyrir og hafa
verið að búa sig undir það árum
saman. Því að Vilhjálmur vill taka
öll Þýzku löndin og koma þeim í
hið þýzka samband, undir keisara-
veldi sitt. Hefir honum víst einlægt |
fundist nóg, að hafa einn þýzkan I
keisarji. En lofað hafði hann Aust-1
urríki, að berjast með því, ef i hart I
færi.
Þeir halda þarna i sinn enda kað- I
alsins hvor, Rússakeisari og Vil- [
hjálmur, og taki annar á, þá spyrn-
ist hinn við sem hann getur.
Undirskrifaður annast um flutn-
ing á þunguin og léttum munum
hvar helst sem er I bænum. Með-
höndlun á húsinunum sérstakur
gaumur gefinn. öll verk fljótt og
vel af hendi leyst og verð sanngjarnt
Reynlð þetta landar góðir, þá mun-
uð þið sannfærast-
JÓN AUSTMANN
Phone 1694 512 Toronto St.
46
HERBERGI TIL LEIGU.
Stórt herbergi til leigu með eða án
úsinuna.
627 AGNES STREET
IIiÖ íslenzka frxöafélag.
Ársfundur í Hinu íslenzka fræða-;
félagi var haldinn 15. maí. Forseti
félagsins skýrði frá gjörðum félags-
ins á umliðnu ári og lagði fram1
reikninga þess. Félagið hefir gefið ;
út árið sem leið: Pislarsögu síra
Jóns Magnússonar, 2 hefti; Bréf
Páls Melsteðs íil Jóns Sigurðssonar; |
Jarðabók Árna Magnússonar og Páls
Vidalíns, 1. hefti, og ferðabók eftir
Þorvald Thoroddsen, mestalt fyrsta
bindið. — í ár gæfi félagið út það
sem eftir væri af Pislarsögu síra
Jóns Magnússonar, með registri og j
mjög fróðlegum inngangi eftir út-1
gefandann, Sigfús Blöndal; þetta
hefti væri nálega helmingi stærra!
en 1. heftið, en kostaði þó ekki í
meira en það -— 1 kr. 50 au. Af;
Jarðabók Árna Magnússonar kæmi
út 2. hefti jafnstórt og jafndýrt hinu
fyrsta. Af ferðabók eftir Þorvald
Thoroddsen I. bindis 2. hefti, bók-
hlöðuverð 1 kr. 50 au, og II. bindi,;
bókhlöðuverð 5 kr. Bók þessi yrði;
seld til 1. júlí 1915 fyrir nálega hálf-
virði þ’eim, sem keyptu öll 4 bind- j
fyrir kornkaup handa fénaðinúm,
og eigi ]>eir að borga alt í haust,
auk þess.sem þcir ]>urfa sér og sín-
um til lífsviðurværis, standa marg-
ir allslausir eftir. Sumir hafa ráð-
ist í kaup á jörðum sínum, erldur-
bætt þær með jarðabótum og húsa-
byggingum, en standa í stórum
skuldum fyrir hið sama, sem þeim
ber að borga rentur og afborganir
af. Svo koma vaxandi sveitarþyngsli
og ný og ný útgjöld. Þessu geta
menn ekki risið undir, nema ein-
hverjn sé hagað öðruvísi en nú á
sér stað.
Hér er málefni, sem þing og
stjórn verður að taka til athugunar
og hugsa upp einhver' ráð, sem að
haldi geti komið, svo að menn þurfi
ekki að flæmast frá jörðum sínum.
Eins treystum víð því, að iandbún-
aðarfélalgið, eða réttara sagt stjórn-l
endur þess, láti ekki sitt eftir;
liggja, að bjarga við á einhvern I
hátt með ráðum og dáð þeim sveit-j
um, sem verst hafa orðið úti í þess-1
um harðindum.
Fyrir fáum árum kom til tals í
þinginu, ef eg man rétt, að verja
all-álitlegri upphæð úr landssjóði til
þess, að fá menn frá Ameríku til að
flytja sig hingað og setjast hér að.
Mundi nú ekki vel varið álíka upp-j
hæð til þess að sporna við því, áð í
menn færu nú að streyma af landi I
burt? Uíka hefir verið talað um, að j
veita hagkvæm lán til nýbýla, og J
grasbýlaræktunar. Engin hjálp væri j
jafn-notasæl, einsog hér á stendur,
einsog ef hægt væri að útvega lán j
með lágum vöxtum og vægum af-[
borgimum. og eg vil vona, að land-
búnaðarfélagið, hið nýkosna al-
þingi og stjórnin leggist á eitt til
þess, að ráða fram úr þessu máli á
sem hagkvæmastan hátt.
Geitabergi, 8. júni 1914.
Bj. Bjarnason.
Hvorugur er kominn af stað, er
]>etta er skrifað; en fari Rússar nú
að hjálpa Serbum, þá stckkur Vil-
hjálmur af stað með sveitir sínar.
Og þá koma Frakkar, eftir loforði
]>eirra til Rússa, og hlaupa á Þjóð-
verja, og ítalía verður með Vil-
hjálmi.
1 Hvert eitt einasta herskip Eng-
lendinga, sem þeir hafa náð í„ er
nú lieim kallað. Þeiin er ant um, að
líta nú eftir Norðursjónum. Þjóð-
verjar hafa öll sín herskip heima.
Þjóðverjar geta kallað inn og búið
allan sinn her á fáum dögum, einar
800,000. Rússar hafa vígbúna eina
niilíón manna, og mun mcginið af
þeim ekki langt frá Ungarn, sem
er eitt af löndum Austurríkis. Rúm-
anar höfðu í Tyrkjastríðinu víg-
búnar 400,000 manna, — úrvalalið,
að sagt var. Grikkir hafa lofað að j
senda Serbum 100,000 manna, live-1
nær scm þeir kalli cftir; Montene-1
gro hefir skýlaust sagt, að þeir I
yrðu með Serbum, og varla fara
Búlgarar að hjálpa Austurriki. Auk j
flotans eru Englendingar við þvi j
búnir, að kalla út meiri landher en !
])eir nokkurntíma hafa haft áður.
Holland segist verða með hvor-
ugum, cnda liggur nú nærri að það
sé komið i ginið á Vilhjálmi. En
smáríkið Belgía er óðum að búa út
100,000 manna, og styrkja kastalana j
á landamærum sínum, er vita að j
Þýzkalandi. Um Norðurlönd vita
mcnn ekki. En vígbúist hafa Svíar, j
og óttast þeir Rússann , og eins J
Norðmenn, en stuggur mun Dönum j
standa af Vilhjálmi.
Aftur eru sósialistar og verka- j
menn á Þýzkalandi að hálda fundi, j
til þess að reyna að aftra stríðinu,!
en tyísýnt, að nokkurt tillit verði til J
þeirra tekið.
Öll Norðurálfan er því eiginlega |
ekki annað en herbúðir núna, hver
sem afkoman vprður. Og má víst
fullyrða, að aldrei hafi annar eins
vígbúnaður verið á hinum trylt-
ustu dögum berserkja og bardaga-
nianna.
Blue Ribbon Kaffi
og
Baking Powder
Þó aö þú sért hin besta matreiðslukona í heimi
þá geturSu ekki búiS gott brauS, sé súrdeigiS
vont. HafSu því æfinlega Blue Ribbon Baking
Powder. ÞaS gjörir hið léttasta og besta brauS
og kökur.
Blue Ribbon er fyrirmynd að
gœðum í te, kaffi, Baking Powder
Jelly Powders, Spices og Extracts.
I (7 Eru börnin yðar að læra að spara
IIMI KB )M
I m. K
OFCANADA peninga?
Hver einn vaxandi sonur og dóttir ætti að hafa reikning
út af fyrir sig í Union Banka Canada. Þá hafa þau tækifæri til
þess að spara reglulega og læra og æfast í pví að fara viturlega
með peninga. Slíkt. uppeldi kennir mönnunum prifnað og
spsrsemi og er ómetanlegt eeinna í lífinu.
L0GAN AVE. 0G SARGENT AVE., ÚTIBÚ
A. A. WALCOT, Bankastjóri
Þegar þú þarfnast bygginga efni eía eldivií
D. D. Wood & Sons.
Limited
Verzla meS Sand, möl, mulin stein, kalk
stein, lime, “Hardwall and Wood Fibre”
plastur, brendir tígulsteinar, eldaSar
pípur, sand steypu steinar, “Gips” rennu-
stokkar, “Drain tile,” harð og lin kol,
eldiviS og fl.
SKRIFST0FA:
Cor. R0SS & ARLINGTON ST.
upp hina beztu aðferð að halda flug-
drekum á réttum kjöl, svo þeim
hvolfi ekki. Hefir hann til þess fjög-
ur gyroskóp, og hefir reynt útbún-
að sinn á 600 feta hæð og dugði vel.
Það var ekki þægt að livolfa drek-
anum, þó að hann færi út á annan
vænginn.
; hafði aldrei áður heyrt neitt því-
likt. En þeir greiddu það á tveim-
i ur árum.
Þjóðverjar tóku við gjaldinu og
j komu fyrir i kastala einum og vildu
ekki snerta það, og sögðu, að það
Hafa menn stungið upp á því, að
liann smíðaði þau á flugdreka Mr.
Portes, en hann segist ekki hafa
na;gan tíma til þess, þar sem Porte
sé að því kominn að fara. En hefðu
menn séð, hvernig Beachy á dreka
sínum liékk liér i Winnipeg hátt í
lofti uppi, einsog leppur á uglu;
hvað eftir annað veltist hann um í
loftinu og flaug Icngi, svo að hann
spyrnti fótum til himins, — þá
virðast menn ekki þurfa gyroskópa
við, þó að það líklega sé betra fyrir
viðvaninga.
ÓFRIÐARSJÓÐUR
ÞJÓÐVERJA.
$50,000.00 VERÐLAUN
Ungur Ameríkumaður hefir ný-
lega unnið 50,000 dollara verðlaun
frönsku stjórnarinnar fyrir að finna
Það eru peningarnir, sem Frakk-
ar urðu að gjalda Þjóðverjum eftir
hrakfarirnar 1871, þegar Þjóðvcrj-
ar óðu’yfir landið og fengu sigur í
nærri hverri orustu; en er friður
samdist, lögðu Þjóðverjar gjald á
Frakka, — svo hátt, að heimurinn
skyldi vera ófriðarsjóður og ekki
hrærast fyrri en stórkostlegan ófrið
bæri að höndum. Eru þetta 30 milí-
ónir dollara í gulli.
Nýlega var farið að telja það og
settur til fjöldi manna; en heil
sveit af vopnuðum mönnum stóð yf-
ié þeim dag og nótt. Og er búið var
að telja vantaði ekki einn einasta
skilding.
Þarna liefir þetta legið yfir 40 ár.
En nú er hætt við að þurfi að grípa
til þess, ef að i ilt fer með stórþjóð-
unum út af Serba-málúnum.
GÓÐ TILBOÐ
Maður, sem er vanur landbúnaði, v
hefir litla familíu, getur fengið bú-
jörð í íslenzkri nýlendu skamt frá
Winnipeg.
Vílji einhver íslendingur sinna
því, þá að gjöra það hið allra 4
fyrsta.
Upplýsingar gefnar að 674 Alvcr-
stone St., Winnipeg, eða með tal-
síma: Garry 4161.