Heimskringla - 11.03.1915, Page 5
WINNIPEG, 11. MARZ 1915.
HEIMSKRINGLA
BLS. 5.
• •
Vér afgreiöum yöur fljótt og greiöilega
og gjörum yöur í fylsta máta ánægöa.
Spyrjiö þá sem verzla viö oss.
THE EMPIRE SASH AND DOOR CO., LIMITED
Phone Main 2511 Henry Ave. East Winnipeg
Spánnýr
Vöruforði
G. G. G. FANNING MILLUR.
No. 24 $20.00. No. 30, $22.50. No. 60, $75.00
Baggers fyrir No. 24 og 30 $5.75. No. 60, $16.00.
(]>a?i getur verit5 at5 þessir prísar hækki ef tollskráin
gerir þaí5 nautSsynlegt.)
The G. G. G. Co, I.td 1015 VertJskrá sýnir og útskýrir Seed-drills
Picklers, Harrows, Tractors, Plows, Cultivators, Manure Spread-
ers, Wagons, Buggies, Fencing, Building Supplies, Flour, Salt,
etc. Skrlfitt eftlr verUskrft I dagr
Sendi?5 okkur þetta vagnhlass af korni.
14 The /raT?
kWMOPK cSCGAlör POkTWILLlAM NtWV
Fréttir frá Stríðinu.
(Framhald frá 1. bls.)
in* í haröfennið, eða sem kalla má
jðkulinn, því að frostin eru svo mik-
II. Það er fljótgjört, að grafa sig inn
i fönnina, þó að hún sé hörð og þeg-
ar hríðar, þá sjást þar engin manna-
vhrki. En Rússar þola vel kuldann,
og kunna betur að búa sig, en menn
af sléttum Þýzkalands. Og þegar
Rússar eru fyrir, þar sem Austurrik-
ismenn koma að, þá vita þeir hinir
síðarnefndu ekki fyrri, en kúlna-
hriðin dynur á þá, og þarna er oft
að kafa í snjónum í mitti og verður
þá oft lítið um vörn, og sjást þeir á [
eftir standa skotnir og helfrosnir í
snjónum; og ef snjórinn sígur, þá
smákoma þeir upp, kollarnir og
herðarnar, — þeir eru einsog að
gægjast upp úr sköflunum, til að sjá
sig um i heiminum.
MÖD stríð eru góS, en þetta er
himnaríki.
A þingi Breta kom striðið til um-
■;eðu og hvernig hinum ýmsu þjóð-
flokkum félli vistin og lifið i skot-
gröfunum og bardögunum. Gat þá
einn þingmaður þess, að Hindúi
einn í liði Breta á Frakklandi, het
verið spurður um, hvernig lionum
félli þetta alt saman, en hann var
íljótur að svara: “ÖZZ stríð eru góð,
«* þetla er himnariki!"
Rússinn á Tyrkjann.
Floti Rússa í Svartahafinu er nú
loksins kominn af stað úr höfnun-
mn við Odessa og Sebastopól, og
stefnir suður að Sæviðarsundi (Bos-
phorus). í flota þessum eru þrír
bryndrekar nýjir, sem hafa 30 tólf
pundá fallbyssur til að “hlunka” á
Tyrkjann með. Mörg hafa þeir stór
rftip önnur, þó að þessi þrjú hin
aýju séu bezt. En það þarf mikils
▼íð, því að sundið, sem Mikligarður
stendur við, er ramlega víggirt;
kastalar beggja megin með hinum
beztu Krúpp byssum, sem Vilhjálm-
ur keisari var búinn að útvega fóst-
bróður sinum Tyrkjasoldáni áður
ea strið þetta. byrjaði.
í Lundúnum og um allan heim
ern menn forvitnir, hvernig þeim
muni ganga, er þeir koma suður í
aundin þau. Þessi sund eru ennþá
þrengri en Hellusund, ekki full 500
yards (250 faðmaq, þar sem þau eru
mjóst, og þurfi eiginlega 15 þuml-
nnga fallbyssur til þess að brjóta
vígin, byssur einsog Queen Elisa-
belh hefir. Á þeim enda sundsins,
hinum nyrðri, sem kemur inn í
Svartahaf, eru kastalarnir sagðir á-
kaflcgn sterkir.
óefað hafa þetta verið samantek-
in ráð Rússa og bandamanan, að
Rússar skyldu loka sundinu að
Borðan, þegar Bretar og Frakkar
ksemu að sunnan, svo að floti Tyrkja
vseri þar innibyrgður og hefði ekk-
ert undanfæri nema að gefast upp
eða sökkva.
Enn eru Bretar í þrenglunum, er
þetta er ritað, þann 6., en búnir að
brjóta syðri kastalana og þangað er
búið að sópa upp öllum sprengivéi-
um úr sundinu, eða einum þriðja
hluta af leiðinni, ncfnilega Chanak
Kalesi; eru það nálæga 16 mílur, en
eftir er að fara 33 milur eða svo. —
Samt eru Bretar búnir að brjóta
kastalana nokkuð á undan sér. En
vestan við tangann í Saros vikinni
er nokkur hluti frönsku herskip-
anna að skjóta á Bulair, kastala
Tyrkja, og skjóta yfir sandhæðirnar
á tanganum.
ftalía enn að hugsa sig um.—
Grikkir ólmir. Bulgarar
og Rúmenar vígbúnir.
Eitthvað eru Búlgarar að búa her-
sveitir sínar, og er ekki óliklegt, að
þeir reyni nú að ná Adríanópel og
Kirk Kilisse, sem þeir unnu fræg-
astan sigur við i Tyrkja striðinu.
Rúmenar er og líklegt að fari af
stað áður en þessi vika er liðin, og
er nú annaðhvort að gjöra fyrir
itali, að fara nú á stað eða ekki.
Það getur verið, að þetta sé sein-
asta tækifæri þeirra. Og það segir
sendiherra Rússa á ítalíu, Krupen-
sky. Telur hann vanséð, að ltalir
fái nokkuð úr búinu, þegar skift
verður, ef þeir fari ekki á stað nú..
Ekki vist, að það verði þegið seinna.
Grikkir eru á nálum, ekki af ótta,
heldur ákafa og áhuga, að fá að
vera með að sparka í Tyrkann og
senda hann yfir sundið til Asíu.
Láta lítiS til sín taka.
Það er einsog neðansjávarbátar
Þjóðverja séu farnir að linast, og er
sem þeir veiði litið; en kolaskip og
jafnvel fiskiskútur Breta renna á þá
og sökkva þeim í kaf.
Ey'Sing sprengidufla.
í Norðursjónum og kringum Eng-
lands strendur hafa Bretar eytt
sprengiduflum, þannig, að senda út
smá gufubáta, tvo og tvo, er færu
með langan vað á milli sin, er lægi
djúpt nokkuð í sjónum. En sprengi-
duflin fljóta ofarlega i sjónum, en
strengur liggur úr hverju dufli til
botns. Þegar vaðurinn er dreginn i
miðjum sjó, þá korna duflin á hann,
og má þannig hreinsa alt það svæði,
sem yfir er farið. Bæði er þetta þó
seinlegt og hættulegt.
En svo liafa Bretar líka aðra að-
ferð, og lítur svo út, sem hún sé
betri í ám og mjóum álum. Eru þeir
nýfarnir að nota hana, enda er það
ný uppfinding. Þeir sprengja morð-
tólin upp með öðrum sprengidufl-
um. Þeir senda út bát einn litinn,
sem ekki ristir dýpra en tvö og hálft
fet. Með honum fer annar bátur, er
flytur smá sprengidufl, 5þ punda
þungt hvert þeirra og er hvert dufl
fest á endann á 50 feta langan járn-
hólk. Hólkar þessir með sprengivél
á hverjum enda eru lagðir með
hundrað feta millibili, alls 10 i eiBu.
Þá er merki gefið skipinu, sem sent
hefir bátana, og kveikir það i öllum
vélum þessum með rafurmagni; en
þær sprengja upp allar vélar, sem
nálægt eru. Svona verða bátar þess-
ir að halda áfram hægt og hægt og
sprengja upp við og við, eða lengju
og lengju í einu, 1000 fet. Þeir
hreinsa miluna á klukkutíma; það
er að segja, ef þeir eru ekki skotnir
i kaf, eða rekast á einhverja sprengi-
vélina óvinanna, sem sendir bát og
menn og hólka og tundurvélar i
loft ujjp.
Flugmenn Frakka
10 þúsund ferðir hafa flugmenn
Frakka farið í Ioftinu, og alls hafa
þeir flogið 1,116,000 mílur, — eina
billíón og hundrað þúsund mílur.
Áhugi á Bretlandi fer vaxandi
Á Bretlandi verður áhugi almenn-
ings einlægt meiri og meiri, eftir
þvi sem stríðið endist lengur. Það
eru reyndar verkföll hér og þar, en
þau standa ekki lengi; enda hefir
stjórnin sjálf oft gengið í málin og
stutt verkamenn að fá hærra kaup-
gjald, og borgað meira eða minna
af hinu aukna vinnugjaldi.
En hvar sem farið er um England,
Skotland og írland, þá heyrist ekki
annað, en að mest af öllu ríði á að
vinna sigur í stríðinu. Menn heimta,
að engir séu undanþegnir herskyld-
unni, og er jafnvel farið að tala um
það, að það sé nokkuð skrítið, að
prestarnir fari ekki i striðið og berj-
ist fyrir föðurlandi sinu einsog
aðrir.
Smáhnippingarnar á Frakklandi.
Við og við eru Þjóðverjar að gjöra
áhlaup á Frakka á Norður-Frakk-
landi, en Frakkar taka harðlega á
móti. Þetta eru nú ekki kaliaðir
miklir bardagar, en æði harðir eru
þeir stundum, þó að þeir nái ekki
yfir mikið svæði. Hér er sýnishorn
af einum.
Það vpr við Notre Dame de Lor-
ette. Þjóðverjar gjörðu áhlaup og
gátu sprengt upp all-langa röð af
fremstu skotgröfum Frakka, og áð-
ur en reyknum lyfji af sprenging-
unni, voru Þjóðverjar komnir i graf-
irnar i þéttum skörum, og þó að
Frakkar tækju á móti, þá máttu þeir
ekki við, sem eftir lifðu, og hrukku
undan i næstu grafir. Þjóðverjar
komu fast á eftir þeim og höfðu
margskeytur og létu þær sópa um
grafirnar. Urðu þá Frakkar að láta
undan síga til þriðju grafanna, og
enn eltu Þjóðverjar þá, og var nú
mest barist með byssustingjum. Og
þaðan urðu svo Frakkar enn að
hörfa, þvi hinir voru miklu lið-
fleiri. Gátu þeir svo fengið vígi bak
við grafirnar, sem hinir gátu ekki
hrakið þá úr; og voru Frakkar ekki
í góðu skapi yfir hrakförum þcss-
um. En þarna voru ]>eir um nótt-
ina og bjuggu sig undir að taka
grafirnar aftur af Þjóðverjum; en
þcir voru búnir að búa betur um
sig i þeim og hlaða vigarð fyrir
framan sig með sandsekkjum.
Undir eins og dagaði byrjuðu
Frakkar sprengikúlnahrið á Þjóð-
verjana, og sprungu kúlurnar í gröf-
unum, þar sem Þjóðverjar voru, og
svo sendu þeir þeim við og við
hríðar úr stórskotabj'ssum. Þjóð-
verjar sendu þeim sprengikúlnahríð
aftur á móti og sprungu þa'r flestar
yfir höfðum þeim og alt i kringum
þá, með voðalegu braki og brestum.
Þegar þetta var búið að ganga nokk-
urra klukkutíma, hættu Frakkar að
skjóta og stukku upp úr gröfunum
og hlupu á Þjóðverja hálfbognir,
oft á hnjám og höndum; en Þjóðverj
ar skutu í sífellu af liandbyssum
sínum. Frakkar komust í næstu
gröfina til Þjóðverja, og nú var
stungið með byssustingjunum og
lamið með byssuskeftunum og flýðu
Þjóðverjar þeir, sem burtu komust,
og yfir í næstu gröf. Frakkar héldu
þessari, en koniust ekki lengra. Hin
gröfin framundan var troðfull af
Þjóðverjum, og höfðu þeir hlaðið
öflugan varnarmúr mcð sandsekkj-
um fyrir framan sig.
Nú var enn farið að senda þeim
sprengikúlur. Það voru að eins 50
yards á milli grafanna, og sáu
Frakkar sprcngikúlurnar koma
beint niður í grafirnar; þær tættu
Þjóðverja í sundur, og flugu stykk-
in af þeim, hendur, fætur og heilir
búkar í háa loft. En nótt var komin,
loft skýjum þakið og hellirigning.
En samt gjörðu Frakkar áhlaup i
myrkrinu og sáu menn þá ekki
handaskil. Þjóðverjar tóku á móti
og varð þar voða aðgangur i myrkr-
inu. Þjóðverjar hrukku út i holurn-
ar alt í kringum grafirnar, eftir
sprengikúlur þeirra, er þeir skutu
fyrst á Frakka, og börðust þeir þá
oft við sina eigin menn, sem þeir
þektu ekki, af því svo var myrkt.
Loks flýðu þeir Þjóðverjar, sem
eftir voru, til eigin skotgrafa sinna
og höfðu beðið mikið manntjón, —
látið 3 menn fyrir hvern einn, sem
þeir feldu af Frökkum. 3 þúsund
Þjóðverja töldu Frakkar dauða í
gröfunum þarna og milli grafanna,
og voru þó ótaldir þeir, sem særðir
höfðu undan komist.
Þetta og annað eins skeður nú
þarna annanhvern dag, á mílu svæði
hér og hvar í skotgröfunum, og er
ekki talið; það þykir varla í frásög-
ur færandi, ef það eru ekki hundruð
þúsunda, sem berjast.
Bandamenn skjóta á Smyrna
Það sýnist sem Bretum og Frökk-
um sé nú orðin full alvara þarna
eystra. Á Litlu-Asíu skaganiun nær
miðjum, stendur borg sú, er Sinyrna
heitir. Er þar höfn mikil og þar er
verzlun mest íLitlu-Asíu. Þar eru
kastalar og herlið Tyrkja. íbúar
borgarinnar eru um 200 þúsund.
Fjöll brött eru upp af borginni, og
er þar ákaflega fagurt. Þarna eru
Frakkar komnir með einn eða tvo
bryndreka og smærri lierskip og
skjóta í gríð á borgina, eða eigin-
lega mest á vigi Tyrkja þar, og gjöra
usla mikinn. Er sagt, að nærri hver
maður hafi flúið úr borginni, karlar
og konur og börn, upp til hæðanna
.. bak við bæjinn, en þangað er ör-
skamt. Járnbraut liggur á bak við
borgina norður til Skútari, á móti
Miklagarði, og þar hafa 35 þúsundir
tyrkneskra hermanna tekið sér
stöðvar, til þess að verja brautina,
svo að þeir geti þó alla daga flúið
á henni norður.
“Queen Elisabeth
Þegar þetta er skrifað, þann 9. þ.
m., var Queen Elisabeth, bezta her-
skip Breta, komin vestur fyrir skag-
ann vestanmegin við Hellusund. —
Norðan við sundið að vestan mjókk-
ar skaginn, svo hann verður eitt-
hvað 3 mílur á breidd. Þar er flói
inn úr Grikklandshafi að vestan,
sem Saros-flói er kallaður. Þar er
“drotningin” og skýtur yfir háls-
ana eða skagann; fyrst á kastala
þann, sem Bulair heitir, og stendur
á miðju rifinu, þar sem það er mjóst
og svo sunnar á nyrðsta kastalann,
I við sundið að vestanverðu, en hann
heitir Gallipoli, og jafnvel ennþá
lengra, til kastalans i þrengslun-
um, sem Kilid Bahr heitir; er þar 7
milna vegur að skjóta og land nokk- J
uð flatt. En einlægt eru flugmenn
Breta i lofti, til að leiðbeina þeim,
hverng þeir skuli skjóta. Hin skip-
in eru í sjálfu Hellusundinu, að
hreinsa þar til, sem Queen Elisabeth
var búin að brjóta áður.
Deila á Grikklandi.
Á Grikklandi kom upp deila milli
Constantinus konungs og stjórnar-
ráðsins. Stjórnarráðið vildi lierða
á konungi, að leggja út í striðið og
gefa Tyrkjanum skell, áður en hann
slyppi yfir til Asíu; en konungur
vildi ekki. Þá sagði Venizelos stjórn-
arformaður af sér, en konungur
reyndi þegar að fá annan mann til
að mynda nýtt ráðaneyti, en þegar
þetta er skrifað (þann 9.) var hann
ekki búinn að fá neinn til að mynda
ráðaneyti. Venizelos þessi hefir
verið talinn einn af vitrustu stjórn-
málamönnum Evrópu. Constantin
er danskur að ætt, eins og kunnugt
er. — Sumir ætla, að þetta sé gjört
til að villa mönnum sjónir og séu
látalæti, og að í rauninni sé kon-|
ungur eins fús í stríðið og þegnar
hans. Aftur sýnir það, að honum
stendur einrver geigur af Vilhjálmi,
sem mörgum öðrum smærri þjóð-
höfðingjum, og er þó Constantin I
dugandi maður sagður. Hann er
kvongaður systur Vilhjálms keisara
og segja sumir, að þar liggi fiskur
undir steini.
Seinustu fréttir.
— Uppreistin í Portúgal heldur
áfram, en enginn veit, hvað uppi
verður á endanum.
— Við Piliea fljót á Suður-Pól-
landi hafa Þjóðverjar gjört harðar
árásir á Rússa.
— í Serbiu er fólkið að lirynja
niður af pestnæmum sjúkdómum,
og erþað afleiðing af hrakningi, er
alþýðan hefir orðið að þola við að
flýja heimili sín, og svo af hungri.
Helztu tiðindi eru þau, að gamli
syndaseggurinn, Abdúl Hamid, sol-
dán Tyrkja sem einu sinni var, er
nú laus orðinn. Allir héldu, að hann
hefði verið hengdur eða kæfður fyr-
ir löngu, en það hefir reynst öðru
visi, því að hann er nú laus. Hann
var settur af stóli og hneptur i fang-
elsi, þegar Tyrkir þoldu hann ekki
lengur, og svo gleymdi heimurinn
honum. En hann liafði ekki verið
af lífi tekinn, og i byrjun stríðsins
var hann fluttur til Konia (Ikoni-
um) i Litlu-Asíu. Og nú kemur sú
fregn frá Bukarest, að hann sé
sloppinn úr haldinu, og hafi vinir
hans hjálpað honum til að losna.
Búast nú allir við, að tíðindi verði
með Tyrkjum innbyrðis, og muni
stjórnarbylting óhjákvæmileg. Ab-
dúl var áður talinn slægastur allra
stórhöfðingja Norðurálfunnar og
miðlungi góðgjarn. En enginn efi á
því, að hann reynir að ná stjórnar-
taumunum og reynir að draga sig út
úr ófriðnum; en spursmál getur orð-
ið um það, hvort Bandamenn vilja
viðurkenna hann.
Constantinus Grikkja konungur
kvað engan geta fengið til að mynda
nýtt ráðaneyti, þvi að öll þjóðin er
með Veniz«los. En drotningin, sem
einsog fyrr er sagt, er systir Vil-
hjálms keisara, dregur örugt taum
bróður síns og Þýzkalands, einsog
eðlilegt er. Mega nú Grikkir sjá það,
að litill hagur er fyrir þjóð eina, að
hafa stjórnendur af öðrum ættstofni
en þjóðin er sjálf. Og verður nú
annarhvor málspartur undan að
láta, þjóðin eða konungurinn.
En vorkunn er Grikkjum, þó að
þeir vilji vera viðstaddir útför Tyrkj
ans; hann hefir þeim lengi harð-
drægur verið. Venizelos sér fyrir
eyðileggingu Tyrkja, í Evrópu að
minsta kosti, og að eftir stríð þetta
verður enn einu sinni skift Iöndum
og ríkjum á Balkan skaganum, og
ef til vill í Litlu-Asiu líka. Og nú
hefir Austurriki minna að segja eða
kannske ekki neitt. En áður ætlaði
það ríki sér, að brjóta undir sig all-
ar þjóðir á Balkan skaganum, að
undanteknum Grikkjum, líklega.
En nú vill Grikkland ná undir sig
þeim hluta Albaníu, þar sem Grískir
menn búa, og er það eitthvað góður
þriðjungur sunnantil. Eru þeir Epí-
rótar kallaðir. Svo vilja Grikkir fá
allar eyjarnar i Grikklandshafi.
Þeir fengu reyndar mikinn hluta
þeirra eftir Balkan striðin. En
Tyrkland hefir einlægt þverskallast
við, að láta þá fá eyjarnar Mitylene
og Khios, sem þeir lofuðu að láta
þá fá i Lundúna friðnum 1913. Og
svo eru eyjarnar Imbros og Tene-
dos ennþá i höndum Tyrkja. Þær
eru framundan Hellusundi að sunn-
an. Þá eru undir Tyrkjum Rhodes-
eyjan og Sporades syjarnar, sem
ítalir halda nú. En allar eru eyjar
þessar grískar, og svo er Cyprus-ey,
sem Bretar halda. Fólkið er griskt
og tungumál þess gríska og allur
þess hugur fylgir Grikkjum. Þá eru
og allar stendur Litlu-Asíu griskar,
og Smyrna er stærsta gríska bbrg-
in, sem til er. — Þetta er það, sem
dregur Grikki til að fara í stríðið;
þeir vilja hafa bræður sina i þjóð-
félag sitt.
Pálína Vigfúsdóttir, Einarsson.
Ekkjufrú Pálína Vigfúsdóttir, Ein-
arsson, lézt á fimtudaginn 25. febr.
sl., að heimili dóttur sinnar, Mrs. D.
J. Mooney, hér í borginni, eftir
stutta sjúkdómslegu.
Pálina heitin var borin í þenna
heim 31. marz 1852 í Álftafirðinum,
ag ólst þar upp hjá foreldrum sín-
um, Vigfúsi bónda Sigfússyni og
konu hans Katrinu fram að ferm-
ingaraldri. Þá fluttist hún með for-
eldrunum norður til Fljótsdalshér-
aðs.
Rúmlega átján ára að aldri giftist
hún Einari bónda Hinrikssyni á
Miðhúsum í Eiðaþinghá, er þá vai
ekkjumaður, og bjuggu þau þar um
nokkur ár. Þaðan fluttist hún með
manni sinum að Vestdal í Seyðis
firði og dvaldist þar um sjö til átta
ára skeið, og búnaðist þeim hjónum
þar mæta vel.
Því næst skiftu þau á eignarjörð
sinni Vestdal og gestgjafahúsi á Vest-
dalseyrar kauptúni, og átti hún þar
heimili jafnan siðan, þar til er hún
fluttist til Vesturheims vorið 1904,
ásamt einkadóttur sinni Jarðþrúði
Guðrúnu, nú Mrs. Mooney.
Höfuðorsökin, er dró hug hennar
til vesturfarar, mun hafa verið sú,
að sonur hennar fullorðinn og mann
vænlegur, Jón Römmer, hafði fyrir
nokkru fluzt til Winnipeg, og þráði
hún mög að hitta hann, sem von var
og hlakkaði mikið til.
En aðkoman varð kuldalegri, en
hún hafði vænst eftir, því að rúm-
um tveimur mánuðum áður en hún
kom til þessarar álfu, hafði Jón
horfið snögglega og eigi spurst til
hans síðan, þrátt fyrir miklar og
margvislegar eftirgrenslanir af
hennar hálfu og margra annara.
Fékk þetta henni svo mikillar sorg-
ar og svarf mjög að henni, sem og
eðlilegt var, því að Jón var hennar
eftirlætisbarn. Urðu því fyrstu árin
vestra henni andstæðari og örðugri,
en ella mundi hafa orðið.
En kjarkurinn var óbilandi. Vann
hún hér ásamt dóttur sinni við
hvaða vinnu, sem hún gat fengið,
unz dóttir hennar giftist Mr. D. J.
Mooney, eiganda að Manitoba hóteli
hér í borginni og dvaldi hún á lieim-
ili þeirra hjóna jafnan síðan, að
undanteknum tíma þeím, er hún
varði til íslandsferðar fyrir tæpum
góðrar aðbúðar og hins mesta ást-
ríkis
í hjónabandi varð henni alls lí
barna auðið, er mörg dóu á ungum
aldri, nema Eiríkur og Jón, er kom-
ust til fullorðinsára. En fjögur börn-
in eru enn á lífi og syrgja hina ást-
ríku móður: Karl sýslumaður og
alþingism. í Vestmannaeyjum, Vig-
fús Goodmann, verzlunarmaður I
Kaupmannahöfn; Ingimundur. fyrv.
skipstjóri, i Winnipeg, og Jarðþrúð-
ur Guðrún (Mrs. Mooney) einnig hér
í borg. Stjúpdætur hennar voruí
Guðný, gift dönskum málara i Kaup-
mannahöfn, og Anna, sem dó hér
vestan hafs fyrir nokkrum árum.
Pálina heitin var umhyggjusöm
eiginkona og elskuleg móðir böra-
um sinum. Hennar kærasta áhuga-
mál var að koma þeim til menta
einsog frekast var auðið, og dá það
allir, er til þektu, hve hart hún lagði
að sér við að koma Karli syni sinura
gegnum latínuskólann, þar sem
maður hennar var þá að verða þrot-
inn að heilsu og efnin mjög til þurð-
ar gengin. En það rættist á Pálínu,
sem svo mörgum öðrum, "að sigur-
sæll er góður vilji”.
Hún hafði sjálf farið margs á mis
í uppeldinu, lítillar tilsagnar notið;
til þess fann hún sjálf. Hún viídi
ekki að börnin færu á mis við það
ljös og þau tækifæri, sem mentunin
getur veitt. Hún skildi raentaþrána
og mentaþörfina svo vel, Þess
vegna lagði hún svo mikið á sig
barnanna vcgna, og þess vegna var
hún svo fórnfús. Hún var örgeðja
kona, bjartsýn og stórhuga, og elsk-
aði alt, sem einhver mannsbragur
var að. Islandi unni hún mjög. Hún
var barn nýja timans fram í and-
látið
Pálína heitin hafði á yngri árum
verið fríð, kona, andlitið tilkomu-
mikið, með skýrum og þróttiniklum
dráttum; svipurinn djarfur og við-
mótið Ijúfmannlegt. Hún var trygg-
lynd—sannur vinur vina sinna. Um
það get eg, sem þessar linur rita,
borið af eigin reynd. Eg þekti hana
um allmörg ár. Og mér var hún all
af, sökum frændsemi við mann
hennar og vináttu við móður mína
heitina, einsog hún ætti i mér hvert
bein, og svipuð hygg eg að við-
kynning hinna mörgu, er þektu
hana á Seyðisfirði, eða hvar sem
var, hafi orðið
En nú er hún horfin—liorfin út úr
lífinu, að minsta kosti sýnilegum ná-
vistum. Henni var hvildar þörf.
Heilsan var á förura. Börnin henn-
ar kveðja hana með sorg og sökuði,
en gleði lika, — gleði yfir þvi, að
hafa átt jafngóða móður. Eg er visS
um, að þeir eru margir, sem sakna
hennar og minnast hennar með hlýj-
um hug. Og eg held, að engir hugsi
til hennar á annan veg.
Pálína heitin var jarðsungin á
mánudaginn 1. þ. m. frá Tjaldbúðar-
kyrkju, að viðstöddu fjölmenni. Síra
Friðrik J. Bergmann flutti ræður )
heimilinu og í kyrkjunni.
Einar P. Jónsson.
Róstur í Bæheimi.
Frá Amsterdam kemur sú fregn,
hinn 9. þessa mánaðar, að róstur
hafi orðið i borginni Prag, helztu
borginni í Bæheimi á Þýzkalandi.—
Sveitar- eða bæjarstjórnin fór að
[ útdeila brauði, sem nú er gjört urp
i alt Þýzkaland, kartöflubrauði, og
fólkið fékk ekki nóg af því, og þá
kom ilt i náungann. svo að herliðið
þurfti að lemja á honum.
Nú er komin tími fyrir þig að kaupa
Vor yfirhöfn
Þetta er staðurinn til að kaupa hana. Okkar gráu og
svörtu klæðis yfirhafnir, meðal þyngd, vel sniðnar eftir nýjustu
vor tísku, eru óviðjafnanlegar á
$14.00, $16.00, $18.00 og $22.00
Komið inn og skoðið það scm við höfum að bjóða.
WHITE & MANAHAN LTD. 500 Main Street j
tveim arum Naut hún hjá þeim
Ódýr, Næringar Fæða
Ovcti, Flour
Testing Labor
atory
Hvítt hveiti er billegasta oj
næringarmesta fæSa sem til ei
SamanburSur frá peningaleg
sjónarmiSi sýnir hveiti hafa 11
sinnum meiri kraft en kjöt.
PXTRITY FLOUR er reynt Í
ofni við millunna, sameinuð
kunnátta efnafræðings og hveiti-
__ mölunnar manna hefir verið not-
að til þess að gjöra PURITY besta hveiti sem búið er til í Canada
Þessi sérstaka varúð er húsmóðirinni fullvissa þess að hún fær
óblandaða heilnæma vöru.
PURITS FLOUR
flore Bread and Better Bread