Heimskringla - 18.03.1915, Qupperneq 2
RLS. 2
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 18. MARZ 1915.
THE CROTO DRUG CO.
WINNIPEG
Bætir
fljótlega
Ábyrgst
RHEUMA TIC
TREATMENT
VeriS $1.50
Rafmagns heimilis áhöld.
Hugrhes Rafmagns Eldavélar
Thor Rafmagns Þvottavélar
Red Rafmagns Þvottavélar
Harlev Vacuum Gólf Hrelnsarar
MLacor’ Nitrogen og Tungsten Liamp-
ar.
Rafmagns “Plxtures”
“Universal" Appliances
J. F. McKENZIE ELECTRIC
CO.
283 Kennedy Street
Phone Maln 4064 Wlnntpeg
VlígjörtJtr af öllu tagl fljótt og vel
af hendl lelstar.
D. GEORGE & C0.
General House Repairs
Cablnet Makera and IJpholaterera
Purnlture repalred, upholstered and
cleaned, french pollshtng and
Hardwood Flnlshtng, Furnt-
ture packed for shlpment
Chalrs neatly re-caned.
Phone Garry 3112 36* Sherbrooke 3t.
THE CANADA
STANDARD LOAN CO,
Attal Skrlfatofa« Wlnnlpeg
$100 SKULDABRÉF SELD
Tllþœglnda þelm sem hafa smfi. upp-
hœhlr tll þess aö kaupa, sér t hag.
Upplýslngar og TaztahlutfaU fœat
fi skrlfstofunnl.
J. C. Kyle, rátamator
428 Maln Street, W'lnnlpeg.
Piano stilling
Ef þú gjörir árs samning um
að láta stilia þitt Fíano eða
Player Píano, þá ertu æfinlega
viss um að hljóðfæri þitt er í
góðu standi. Það er ekki að-
eins að það Jturfi að stilla
píano, heldur þar að yfirskoða
þau vandlega.
Samnings verð $6.00 um árið,
borganlegt $2.50 eftir fyrstu
stillingu, $2.00 aðra og $1.50
þriðju.
H. HARRIS
100 SPENCE STREET
CARBON PAPER
for
TYPEWRITER—PENCIL—
PEN
Typewriter Ribbon for every
make of Typewriter.
G. R. Bradley
& Co.
304 CANADA BLDG.
Phone Garry 2899.
Brúkaöar saumavélar mett hæfl-
legu vertst.; nýjar Slnger vélar,
fyrir penlnga út 1 hönd etla tll letlgu
Partar I allar tegundlr af vélum;
attgjört) fi öllum tegundum af Phon-
nographs fi mjög lfigu veröl.
J. E. BRYANS
531 SARGENT AVE.
Okkur vantar duglega “ag.nta” og
verksmala.
BETUR BÚINN TIL
Bragð Betri,—er Betri
í merkur eða pott flöskum. Selt hjá
öllum verzlunarmönnum eða frá
E. L Drewry, Ltd., Winnipeg.
Gleraugu og notkun
þeirra.
Eftir Dr. Jón Stefánsson.
Erindi flutt á Menningarfélags fundi
3. marz 1915.
Marga blessan hafa vísindin og
menn vísindanna fært mannheim-
inum í liðinni tíð, og má án nokk-
urs efa telja gleraugun, einsog þau
eru gjörð nú í dag, eina þeirra allra
stærstu og þýðingarmestu. En fólk
yfirleitt lítur ekki á gleraugun sem
blessan, heldur alveg hið gagnstæða.
Sérstaklega er það unga fólkið, sem
sjónar og heilsu sinnar vegna þarf
að brúka gleraugu, sem formælir
þeim. Auðvitað stafar það vanalega
af þekkingarleysi, en þó stundum
af heimsku og hégómaskap. En þeg-
ar vér minnumst þess, að menn í
öllum stéttum mannfélagsins, kon-
ungar sem kotungar, Jærðir og ó-
lærðir, ríkir og fátækir, þurfa að
brúka gleraugu, og að mörg stór-
menni í vísinda heiminum og menta
heiminum, hefðu aldrei komist á
það fullkomnunarstig, sem þeir
hafa komist á, ef þeir hefðu ekki
haft gleraugu, — þá verður oss fyrst
ljóst, hve þarflegur hlutur gieraug-
un eru. Oss verður þá einnig ljóst,
að það er stór partur af mannfélag-
inu, sem gæti alls ekki aflað sér al-
mennrar þekkingar, og jafnvel ekki
daglegs brauðs, ef vér hefðum ekki
þenna þýðingarmikla hlut. En eins
og flestar mikilsverðar og þarflegar
uppgötvanir eru í fyrstu aðeins vis-
ir til fullkomnunar, eins var það
með gleraugun. Þau snotru og listi-
lega gjörðu gleraugu, sem vér sjáum
dags daglega, eru harla ólík þeim,
sem fyrst voru smíðuð.
Hverjum eða hvaða þjóð vér eig-
um að þakka fyrir gleraugun, vitum
vér ekki með vissu. Það halda sum-
ir, að Kínverjar hafi fyrstir manna
notað gleraugu. Þeir voru, einsog
við vitum, á mjög háu menningar-
stigi löngu áður en Norðurlanda-
þjóðirnar þektu nokkuð til þeirra.
Það er því ekki ólíklegt, að þeir hafi
til forna eitthvað fengist við að búa
til gleraugu, en fyrir því eru engar
beinar eða órækar sannanir.
Það er haft eftir Marco Paulo, að
þegar hann kom til Kína 1270, þá
hafi landsmenn þar brúkað “lorgni-
ettur”. Þeir, sem komu þnngað síð-
nr, sögðu frá, að landsbúar brúk-
uðu þá alloft gieraugu. Kinverjar
bjuggu þau til úr brúnum steini, er
þeir kölluðu “te”, af því steinninn
bar sams konar lit Þeir festu gler-
in saman á nefinu með tré eða leðri
og bundu þau svo með spotta aftur
fyrir eyrun. Sumir settu spottana
aftur fyrir eyrun og hnýttu steinum
eða einhvcrju þungu á endana, til
að halda gleraugunum í skefjum.
Ekki verður það séð í fornritum
Gyðinga, að þeir hafi nokkuð þekt
til gleraugna, og hið sama er að
segja um bókmentir forn Grikkja og
Rómverja; þær minnast hvergi á
gleraugu. Það má því ganga út frá
því sem vísu, að þessar þjóðir hafi
alls ekkert þekt til gleraugna til
forna. Ekki heldur hafa leitanir í
borgarrústum, eða þar, sem grafið
hefir verið eftir fornmenjum, leitt
neitt í Ijós þessu viðvíkjandi.
Safngler hafa fundist í Nóla, Pom-
peji, Nineve og á Engiandi; en þau
hafa öll verið of þykk til þess að
hægt væri að brúka þau fyrir gler-
augu. Er öllu líkara, að þau hafi
verið notuð sem stækkunargler eða
brennigler.
Pliny skýrir frá þvi á nokkrum
stöðum, að glerkúla fylt með vatni
stækki mjög mikið. Var það álit
manna til forna, að það væri vatnið
í kúlunni, sem stækkaði, en þeir
höfðu ekki hugmynd um, að það var
lögunin á kúlunni, sem olli þessari
breyting. Þessar glerkúlur með vatn
inu í, voru iðulega notaðar sem
stækkunargler, bæði til að ráða
fram úr gömlum og smátt og illa
rituðum handritum, og eins við ým-
iskonar iðnað, sem útheimti skarpa
og góflít sjón, svo sem við gullvefn-
að og gimsteinasmíði.
Pliny skýrir einnig frá, að þessar
glerkúlur hafi verið notaðar af lækn-
um og þeim, sem við lækningar
fengust til forna. Mest brúkuðu þeir
þær til að brenna með hörundið. En
það, sem vakti mesta undrun, var
það, að það var sama, hvort þeir
settu sjóðandi heitt eða jökulkalt
vatn í kúluna; hún brendi jafn fljótt
og með jöfnum krafti. í þessu gátu
þeir ekkert skilið. En það þóttust
þeir vita með vissu, að það væri
vatnið, sem hefði í sér þenna kyngi-
kraft. í sambandi við þetta tókst
skottulæknum, að hleypa af stað alls
konar hjátrú, og töldu mönnum trú
um, að það mætti ekki vera nema
vist vatn i glerkúlunni, sem vana-
lega enginn þekti nema þeir sjálfir.
Og svo þóttust þeir, sem kunnu of-
urlítið fyrir sér, geta aukið lækn-
ingakraft vatnsins og jafnvel breytt
því svo, að það gæti læknað nálega
allar meinsemdir mannsins. Þetta
minnir menn á skottuiækna vorrar
tíðar og einkaleyfis meðul þeirra,
sem alt eiga að lækna.
Það er sagt, að Neró keisari hafi
notað smaragð til að sjá með, þegar
hann fór á þessa hryllilegu leiki,
sem hann efndi oft til. Alls konar
munnmælasögur hafa gengið um
þenna stein, og eftir þeim átti Neró
að hafa getað séð svo afar vel með
steininum. En nú vitum vér, að slíkt
gat ekki átt sér stað, að hann hafi
séð leikina mun betur með að horfa
í gegnum steininn. Hitt er öllu lík-
legra, að hann hafi orðið þess vís,
að grænn litur hefir sefandi áhrif á
augun, og þar sein hann hafði veikl-
uð augu, þá notaði hann steininn af-
ar oft. Má vera, að hann hafi hald-
ið, að þessum steini fylgui einhver
sérstök náttúra. í annan stað má
geta þess, að græni liturinn • var
uppáhalds litur Neró keisara. Hirð-
fólkið varð að klæðast i grænt að
mestu leyti. Hann lét bera grænan
sand á gólfin í höll sinni og prýða
hana á alla vegu með grænum dúk-
um. ,
1 gömlum handritum Norðurlanda
er hvergi minst á gleraugu, og má af
því ráða, að þar þektist ekkert til
þeirra snemma á miðöldunum. —
Forngripasöfn Norðurlanda geyma
ekki nein sýnishorn af gieraugum
frá þeirri tíð.
Það er fyrst getið um gleraugu á
Englandi árið 1276, af Roger Bacon.
Hann var álitinn einhver lærðasti
maður þar í landi, er þá var uppi.
Segir hann frá þeirri undra breyt-
ingu, er gleraugu gjöri á sjón manna
og hvað stórmikið þau bæti sjónina
á gömlu fólki og þeim, sem hafi
veikluð augu.
Um aldamótin 1300 þektust gler-
augu víða í Þýzkalandi. Sézt það á
lýriskum kveðskap frá þeirri tið.
Einnig voru Flandrar farnir að
brúka gleraugu um þær mundir. ít-
ölsk handrit skýra frá þvi, að mað-
ur nokkur, Salvino degli Armati,
hafi fyrstur manna fundið upp gler-
augu. Hann dó árið 1317. Ekki alls
fyrir löngu fann ítalskur fornfræð-
ingur, Leópold del Migliori að nafni,
gamla steintöflu í kyrkju einni í
Florence á Italiu, og voru þar á letr-
uð þessi orð: “Hér liggur Salvino
Armati frá Florence, sá er uppgötv-
aði gleraugun. Guð fyrirgefi honum
þá synd”.
Það er líka skýrt frá því í itölsk-
um liandritiun, að munkur nokkur,
Spina að nafni, hafi búið til gler-
augu, um sama leyti og Salvino Ar-
mati var uppi. Þessi munkur var að
sögn manna svo dverghagur, að
hann gat smiðað alla hluti, sem
hann sá og heyrði talað um.
Margir álíta, að Roger Bacon á
Englandi hafi fyrstur manna búið
til gleraugu. Eitt er víst, að hann
hann bjó til mörg stækkunargler/Og
skaraði langt fram úr samtiðar-
mönnum sínum, að vísindalegri
þekkingu. Komst sá orðrómur á loft,
að hann væri fjölkyngis maður, og
að þessi stækkunargler og gleraugu,
sem hann hafði með höndum, væru
með göldrum gjörð. Einn höfundur
skýrir frá því, að Bacon hafi eitt
sinn búið til gler með þeirri nátt-
úru, að í þvi mátti sjá nærri alla
hluti, jafnvel sjálfan Satan að leik-
um.
I.æknar á þeirri tíð voru mjög
mótfallnir því, að fólk brúkaði gler-
augu. Þeir prédikuðu fólki, að það
væri óþarfi og heimska, að nota
þau, því að augnameðul þeirra væru
miklu hollari og betri. En einstöku
þeirra sögðu þó, að ef augnameðulin
brigðust og öll önnur ráð brigðust,
þá skyldu þeir reyna gleraugu.
Enginn á þeirri tíð þekti lögmál
það, sem ljósið cr háð. Og þegar
Mausolycus og Kepler tókst nokkru
síðar að útlista það ' lögmál fyrir
heiminum, þá kom það bezt i ljós,
■i.jo mikið hafði verið talað og rit-
að um gleraugu og notkun þeirra,
sem ekki var nema tóm vitleysa. —
En það vill oft koma fyrir, jafnvel
á þessari miklu menningar- og upp-
Iýsingar-öld, að fólk, sem ekki hefir
hina minstu þekkingu á þessum
hlutum, og gæti ekki, þótt það ætti
líf sitt að leysa, skýrt hvernig gler-
augu bæta sjónina, og hvernig þau
stundum skemma sjónina, hikar sér
samt ekki við, að láta álit sitt í
ljós um, hvort þessi eða þessi þyrfti
að nota gleraugu eða eigi. Slikt álit
er augljóslega bara út í bláinn og
hefir ekki við hið allra minsta að
styðjast. En það getur oft og tíð-
um leitt mikið ilt af sér, og út í það
er sjaldan hugsað.
Fólk er oft að tala um, að notkun
gleraugna sé að færast i vöxt, og er
það álit margra, að mannkyninu sé
að fara aftur með rjón og alls kon-
ar augnveiki sé að aukast að mun.
Byggja þeir þetta álit sitt á þvi, að
fyrrum hafi svo fáir notað gleraugu,
en komist áfram og unnið verk sitt
eins vel og fólk gjörir nú á diígum.
Það cru margar ástæður til þess,
að fólk fyrr á tímum notaði ekki
gleraugu tiltölulega eins mikið og
vér nú gjörum, og skal eg aðeins
drepa á nokkrar þeirra.
Einsog eg hefi þegar minst á,
komst á gang alls konar hjátrú í
sambandi við notkun gleraugna. —
Héldu sumir, að það væri stórkost-
leg synd, að brúka þau; og má ganga
út frá því, sem vísu, að margur, sem
þurfti gleraugna með, hafi af þeirri
ástæðu ekki þorað að brúka þau.
Svo héldu sumir, að þau væru smíð-
uð með fjölkyngi og voru þess vegna
hræddir við að nota þau. Álitu sum-
ir, að þeim fylgdi, ef ,til vill, ein-
hver vond náttúra, sem gæti þá og
þegar gjört þá blinda.
1 annan stað ber að muna eftir því
að samgöngur voru lengi fram eftir
mjög ógreiðar, og það spurðist ekki
út um sveitir eða héruð, hvað gler-
augu komu oft að góðum notum. —
Svo hafði fólk oft hvorki efni né
ástæður til að ná sér i gleraugu. Að
ferðast langar leiðir var bæði kostn-
aðarsamt og erfitt, og fólk lagði ekki
upp í langferðir á þeim dögum,
nema þegar bráð nauðsyn bar að
höndum.
Þá voru læknarnir, sem prédikuðu
lengi vel á móti því, að fólk brúk-
aði gleraugu. Það var ekki fyrr en
svo sem fyrir hundrað árum siðan,
að læknar fórn að ráðleggja fólki að
nota þau. Alt ftam að þeim tíma
voru gleraugu að mestu leyti í hönd-
um umferðasala, sérstaklega i hönd-
um Gyðinga.
Ekki má gleyma, að minnast á
fjölgun mannkynsins á síðustu
hundrað árum. Eg hefi ekki skýrslu
við hendina til að sýna, hvað sú
fjölgun hefir verið mikil, en við
vitum öll, að hún er afar mikil. Þar
af leiðir, að það eru mikið fleiri
menn og konur í heiminum, sem
nota gleraugu nú en fyrr.
Svo eru margar iðnaðargreinar
reknar á vorri tið, er þektust ekki
fyrir hundrað árum síðan. Sumar
þessar iðnaðargreinar eru þannig,
að þeir, sem þær stunda, þurfa að
hafa ágæta sjón, og til þess að geta
rekið þenna iðnað, hafa margir orð-
ið að nota gleraugu.
Þá eru embættismennirnir, prest-
ar, læknar, lögmenn, prófessorar og
margir aðrir embættismenn og kenn
arar í ýmsum greinum. Meir en lít-
ið hefir þessu fólki fjölgað upp á
síðkastið. Þetta fólk, einsog öllum
er kunnugt, les og skrifar mjög mik-
ið. Skólatími þess er langur og
strangur, og ekki að eins á skólaár-
unum, heldur lika á embættis árun-
um, verður það að reyna afar mik-
ið á sjónina og augun. Svo er á-
reynslan mikil, að þótt margur virð-
ist hafa góða sjón, þegar hann byrj-
ar nám, þá getur hann ekki haldið
áfram, nema hann fái gleraugu til
að hvíla augún.
Þá er sjálfsagt, að minnast á
barnaskóla mentun nú á dögum.
Það hefir víst aldrei verið lagt
meira kapp á, að kenna börnum
ýms fræði, en í vorri tíð. Þau eru
send, stúlkur jafnt og drengir, í
skólana strax á unga aldri, þegar
augnavöðvarnir, einsog aðrir vöðv-
ar líkamans, eru veilir og óþroskað-
ir. Þau cru látin rína í bækurnar
fleiri klukkustundir á dag. Ætla
menn, að það Sé engin áreynsla
fyrir ung og lítt reynd augu, Jú,
það er langtum meiri áreynsla, en
margur á þeim aldri er fær um. —
Það var ekki alment verið að kenna
stúlkubörnum lestur og skrift fyrr-
um. Þær stúlkur, sem það lærðu,
voru mjög fáar og aðeins af háum
ættum. Þótti sá kvenmaður vera sér-
lega vel að sér, sem gat dálítið iesið
og skrifað, og var i mjög miklu á-
liti. Það þótti óþarfi og tímaeyðsla,
að dunda við að kenna lægristétiar-
stúlkum, og jafnvel drengjum líka,
lestur og skrift. Það hélzt lengi við
sá hugsunarháttur, að bókvitið væri
látið í askana. Þannig sjáum vér, að
börn og unglingar reyndu fyrrum
ekki nærri þvi eins mikið á augun
og sjónina, einsog unglingar verða
að reyna á vorri tíð. Það kom þvi
ekki í ljós, hvað margt af börnum
og unglingum höfðu lélega sjón, og
veikluð augu, fólk alment var ckki
að hafa gætur á slíku. En þegar vér
hugsum um allan þann mikla fjólde
af bæði konum og körlum, sem fást
við alls konar skrifstofustörf frá
morgni til kvelds, á vorri tíð, og þá
miklu áreynslu fyrir augnn, sein því
starfi er samfara, þá þurfum vér
naumast að undrast yfir, þótt marg-
ir þurfi að brúka gleraugu nú á dög-
um.
Þá mætti minnast á eina ástæðu
enn fyrir því, að fólk á fyrri tím-
um notaði ekki alment gleraugu, og
hún var sú, að það var eingöngu rík-
isfólk, sem gat veitt sér þau. Gler-
augu voru lengi vel svo dýr, að fa-
tæklingar urðu að vera án þeirra.
Þau voru seld i nú gildandi pening-
um á fimtíu til hundrað dollara.
Það voru aðeins örfáir menn, scm
kunnu þá list, að búa til gleraugu,
og þeirri list var haldið leyndri í
liðugar tvær aldir. Vegna þessa voru
gleraugu svona afar dýr. Líka voru
þau svo illa tilbúin og bættu oft sjón-
ina svo lítið, að fólki þótti ekki til-
vinnandi, að borga þetta háa verð
fyrir þau.
Eigi leið á löngu áður en sá hugs-
unarháttur náði að festa rætur, að
gleraugu bentu á líkamlegan veik-
leika, og að það væri ijótt og bjálfa-
legt, að brúka þau. Ungt fólk sér-
staklega var spottað og gjört gys að,
þegar það bar gleraugu, og fældi
það marga frá að nota þau, sem ann
ars þurftu þeirra með. Skrípamynd-
ir af fólki með gleraugu voru al-
gengar. Enda litu þau víst ekki vel
út á mönnum fyrst framan af. Gler-
in voru ljót og óregluleg í laginu
og umgjörðin vanalega úr leðri eða
Það skýrir best hvað það er í miklu afhaldi
BLUE RIBBON
TEA
að það er einlægt hið sama á-
gæta te. Gæði þess bregðast
aldrei. Þeir sem drekkaþað,
vita, að það er besta teið.
Spurðu eftir því með nafni.
Sendu þessa auglýsingu með 25 centum fyrir BLUE RIBBON
matreiðslubökina. Skrifaðu nafn og heimili skýrt og greinilega
tré. og bundin með spotta aftur fyr-
ir eyrun.
Savonarola, i einni opinberri
ræðu er hann hélt, ráðlagði þeim,
er þyrftu að nota gleraugu, að festa
þau við skygnið á húfunni sinni.
Það væri svo þægilegt að toga húf-
una niður að framan, þegar maður
vildi brúka gleraugun, eða þá toga
húfuna aftur á hnakkann, ef maður
þyrfti ekki að nota þau. Þessa að-
ferð notuðu margir lengi vel, sér-
staklega munkar og þeir, er mikið
fengust við skriftir; en aldrei varð
hún vinsæl meðal almennings.
Er fram liðu stundir, var farið r.ð
nota bein og horn í gleraugna um-
gjörðir; síðar járn, silfur og gull. En
lengi var smíðið ónett og ósmekk-
legt. Það var ekki fyrr enn laust fyr-
ir miðja síðustu öld, að gleraugu
fengust, sem voru þægileg og luru
fólki sæmilega vel. Síðan, einsog vér
vitum, hefir verið stórmikil framför
í þeirri list, einsog öðru. Enginn
þarf lengur að bera það fyrir, að
hann geti ekki fengið falleg og
vönduð gleraugu.
Það lýtir engan mann og enga
stúlku nú á dögum, að brúka gler-
augu, og sá eða sú, sem þráast við
að brúka þau, þegar þess er þörf,
bara vegna þess, að þeim finst þau
óprýða sig, verðskulda fyrirlitning
allra velhugsandi manna. Það lystr
svo miklum hégómaskap og heimsku
að stofna þannig, ekki aðeins sjón-
inni, heldur líka heilsunni í hættu,
að það er ekki hægt að fara um það
nema hörðum orðum.
Hvers vegna þurfa sumir gleraugu
en aðrir ekki, við sama verk'/
Þcirri spurningu er ekki hægt að
svara svo vel sé, í stuttu máli. Þó
skal eg leitast við að svara þessu í
sem fæstum orðum.
Tii þess, að auga manns geti með
öllu áreynslulaust séð skýrt hlut,
sem er í nokkurri fjarlægð, þarf
augað að vera reglulega kúlumynd-
að, og ljósleiðin i gegnum augað al-
veg gagnsæ. En augað er ekki reglu-
lega kúlumyndað, nema i mjög fá-
um. Ncfið er ekki eins að lögun á
okkur öllum, og svo er með augun.
1 sumum eru þau of stutt, í öðrum
eru þau of löng. En látum oss at-
huga áhrif Ijósssins á augað.
Ljósið fer fyrst í gegnum horn-
himnuna, sem er fremsti gagnsæi
partur augans. Þar næst fer það í
gegnum vatnsvökvann, sem fyllir
bilið á milli hornhimnunnar og
ljósbrjótsins. Gegnum hornhimn-
una og vatnsvökvann sjáum vér
hringmyndaða hintnu, regnboga-
himnuna, og er litur augans undir
henni kominn. Á miðri regnboga-
himnunni er kringlótt op, sem kall-
að er sjáaldur. Þetta op minkar og
stækkar eftir því, hvað sterkt eða
dauft Ijós fellur á augað. Rétt neðan
við regnbogahimnuna, er ljósbrjót-
urinn, og er hann allra likastur
sterku safngleri í laginu, en er þó
meira bunguvaxinn að aftan en
framan. í ungum, og þeim, sem hafa
heilbrigð augu, er ljósbrjóturinn
glær og svo linur, að hann sveigist
og teygist á alla vegu. Yið ljósbrjót-
inn eru tengdir fínir vöðvaþræðir,
sem breyta lögun hans eftir þörf-
nm. Aftan við ljósbrjótinn er hlaup-
kendur vökvi, sem kallaður er gler-
vökvinn, og utan um glervökvann,
að aftan og til hliðar, er nethimn-
an. Nethimnan er eiginlega partur
af sjóntauginni, sem liggur aftur úr
auganu og inn í heilann.
Augað er hreyft af sex vöðvum,
sem kallaðir eru hreyfivöðvar aug-
ans. Þeir liggja allir utan á aug-
anu.
Látum oss nú til skýringar taka
ungling, sem er dálítið fjarsýnn —
hypermetropic — af því að augað er
of stutt. Og látum hann horfa á
mynd, sem er tuttugu fet eða ögn
lengra frá honum. Hann sér mynd-
ina skýrt, og hann virðist hafa góða
sjón. Það er ómögulegt, að hann
þurfi gleraugu. Svo sendum við
hann á skóla. Eftir nokkurn tima
fer hann að kvarta um, að hann fái
verk í augun, eða jafnvel höfuð-
verk, þegar hann lesi til lengdar-
laust. Augun verða rauð og þrútin,
augnahvarmarnir rauðir; hann ev
oft voteygður; hann er einlægt að
depla augunum, því honum finst
eitthvað vera upp í þeim, sandur
eða ryk. ,
Þegar hann horfði á myndina,
sem var dálítið frá honum, félln
ljósgeislarnir af myndinni beint og
samhliða á augað. Hornhimnan, af
því hún er bunguvaxin, og vatns-
vökvinn, safnaði geislunum samai
og benti þeim í gegnum sjáaldrið.
Af því augað var of stutt, urðu hin-
ir fíngjörðu vöðvaþræðir, scm að
ljósbrjótinum liggja, að taka tR
starfa. Þeir urðu að gjöra ljósbrjót-
inn þykkri um miðjuna, svo mynd-
in yrði skýr á nethimnunni. Eða,
þeir urðu að láta ljósbrjounn brjóta
geislana, — safna þeim saman en»
meir.
Þegar maðurinn horfir á einhver»
hlut, sem er nær honum en tuttugra
fet, falla geislarnir af hlutnuin ekki
lengur samhliða á augað, heldur
eru þeir þá dreifðir. Og þvi nær,
sem hluturinn er auganu, þvi meir
Hospital Pharmacy
LyfjabúSin
sem ber af öllum öðrum. —
Komið og skoðið okkar um-
ferðar bókasafn; mjög ódýrt.
— Einnig seljum við peninga-
ávísanir, scljum frimerki og
gegnum öðrum póstliússtörf-
um.
818 NOTRE DAME AVENTJE
Phone G. 5670-4474
Isabel Cleaning and
Pressing Establishment
J. W. QUINN, elgandi
Kunna manna bezt ab fara mel
LOÐSKINNA
FATNAÐ
VlbgertSir og breytlngar
fi fatnatii.
Phone Garry 1098 83 Isabel St.
hornt McDermot