Heimskringla - 15.04.1915, Page 8

Heimskringla - 15.04.1915, Page 8
BLS. 8. HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 15. APRÍL 1915. *—---------------* Úr Bænum Hr. Skúli Árnason, Brú P.O., Man., kom að sjá oss. Hann flutti inn hing- að í haust og líkar fremur vel í borg inni, en hélt þó að hollara og trygg- ara væri undir bú úti í íArgyle bygð en hér. Hr. Jónas Sturlaugsson, frá Svold, N. Dak.; kom til borgarinnar nýlega. Hann segir hið bezta af öllu þar syðra. Sáning byrjaði strax eftir páska, og er þar nú hver mgður á ökrum úti frá morgni til kvelds. Það var ekki alveg rétt sagt frá í siðasta blaði um efni Heimkomunn- ar, leiksins fræga, sem verður leik- inn i Goodtemplarahúsinu á mánu- dags- og þriðjudagskveldið kemur. Þar er minst á eldri dóttirina, en á að vera yngri dóttirin, sem tæld hafði verið. Þar er einnig sagt frá Robert sem mentamanni, en hann er aðallega verzlunarmaður.— Þetta er fólk beðið að athuga, er það kemur að sjá leikinn. Það kemur annars ekki oft fyrir, að lslendingar hafi tækifæri til að sjá annan eins leik, og sem hefir verið eins vel vandað til. Leikur þessi var leikinn í tvær vikur sam- fleytt í Reykjavík fyrir fullu húsi, og fékk mikið lof. Leikendurnir, sem leika hann hér, eru þeir beztu, sem völ er á meðal íslendinga vest- an hafs. Allir þekkja þá Árna Sig- urðsson og John Tait, er leika aðal- stykkin; og alt hitt fólkið er búið að vinna sér hylli almennings sem leikfólk. Þetta verður aðal leiksamkoma íslendinga í Winnipeg þetta ár, og ættu því allir, sem geta, að koma. Sjá auglýsingu á öðrum stað í blaðinu. Hr. Jón Hólm, frá Mountain, N. Dak., kom að sjá oss á Heims- kringlu. Hafði farið ofan til River- ton og tekið sér land þar, og ætlar að flytja sig norður þangað undir haustið. Það gladdi oss að sjá Jón. Og vér álítum það þvi betra, þess fleiri Bandaríkjamenn, sem hingað koma. Næstkomandi sunnudag verða við morgunguðsþjónustu fermd tuttugu ungmenni í Tjaldbúðarkyrkjunni. Að kveldinu verður altarisganga fyrir fermingarbörnin og aðstand- endur þeirra, og svo alla, sem óska þess, — ættu að vera sem allra flestir. , Umræðuefni í únitara kyrkjunni næsta sunudagskveld verður: Dag- legt líf. — Allir velkomnir. Stúkurnar Hekla og Skuld hafa i undirbúningi skemtisamkomu, sem verður haldin fimtudagskveldið 29. þ. m. Ágóðinn af samkomunni renn- ur í sjóð, sem varið er til þess að hjálpa ofdrykkjumönnum að fá lækningu á drykkjuástríðunni. Stúk- urnar hafa á undanförnum árum styrkt allmarga með lánum og gjöf- um úr sjóði þessum til að taka Gold Cure. — Styrkið gott og þarft fyrir- tæki með þvi að sækja samkomu þessa. — Skemtiskrá verður aug- lýst í næsta blaði. Eg kvaldist í mörg ár af bakverk CBa nýrnaveiki og hefi reynt mörg meööl frá hinum oB öBrum læknum. Fyrir litiB meira en ári kom lyfsall mér til ati reyna DR. MII.ES’ VERK- VARJVANDI PIL,I.t;R, og eftir aö eg var búinn aö brúka pær í liBugt ár bá fann eg aö eg var mikiB betri i nýrunum, og eg er glaJSur aö segja aö eg hef góöa von um atS veröa bráBum albata. J. E. ALliEN, fyrrum bæjardumari, Glasgow, Ky., Dr. Miles Verk Yarnandi Pillur hafa gefið mjög góðan árangur við verkjum í öllum pörtum lfkamans. Með því að varna æsingi gefur það Ifffærunum tækifæri að ná sér aftur og vinna sitt vanaverk reglulega. Selt með þeirri ábyrgð að skila andvirðinu aftur ef fyrsta askjan bætir ekki. SUMARDAGURINN =FYRSTI= Fimtudaginn, 22. Apríl Concert og Social * i Tjaldbúðarkirkju kl. 8 aS kveldi. PROGRAMME: 1. Piano Duet, tvær ungar stúlkur 2. Quartette, fjórar karlmanna- raddir. 3. Vocal Solo, Mrs. I. H. Bell 4. RæSa, Árni Anderson, lög- maSur 5. Vocal Solo, Jónas Stefánsson 6. Upplestur, Árni SigurSsson 7. Vocal Solo, Alex. Johnson 8. Vocal Solo, Mrs. P. Dalmann 9. Piano Solo Mrs. Hall Fríar veitingar í salnum á eftir. Orchestra spilar meSan á þeim stendur. INNGANGUR 25c Takið eftir auglýsingu um Hluta- veltu Hjálparnefndar Únítara safn- aðarins á öðrum stað i blaðinu. Á- góðanum verður varið til að styrkja fátækar og þurfandi islenzkar fjöl- skyldur. Inngangseyrir með einum drætti og skemtunum 25c. Laugardagskveldið 10. þessa mán- aðar hélt Ungmennafélag Únítara samsæti til heiðurs þremur með- limum sínum, sem lokið höfðu námi á háskólum þessa fylkis, — þeim: Hjálmi Daníelssyni og Stefáni A. Bjarnasyni, frá búnaðarskólanum, og Björgvin Stefánssyni, frá háskól- anuin. — Þeir voru sæmdir minn- ingargjöfum : ermahnöppum úr gulli með áletruðum fangamörkum þeirra og félagsins. — í samsætinu tóku þátt um 70 manns og fór það mjög ánægjulega fram. Fögnum sumrinu. Únitara söfnuðurinn hefir ákveð- ið að halda böggla-samkomu á sum- arduginn fyrsta, fimtudagskveldið 22. þ.m. Bögglarnir verða boðnir upp, þegar skemtiskránni er lokið. Aðgangur lOc; dömur, sem koma með böggla, borga ekki inngangs- eyrir. — Gleymið ekki að við erum íslendingar. Komum öll og heiðr- um Sumardaginn fyrsta og skemtum okkur! Takið eftir auglýsingunni frá Mac’s hreyfimynda-húsinu. '— Það hittist svo á, að nú þegar vér fyrst auglýsum fyrir þá, að þeir sýna Mary Pickford í “Mistress Nell” (mjög skemtileg saga). Þessi sýning er í fimm pörtum, og þar sem allir Þekkja Mary Pickford, þarf ekki að orðlengja, hve skemtileg sýningin muni vera. Hr. J. E. J. Straumfjörð, frá Otto Man., er hér á ferðinni að sækja son sinn J. H. Straumfjörð, sem nú er búinn að liggja á spítalanum hér á sjöunda mánuð. Skaut sig í annan fótinn i haust og var fluttur hingað. Fjórum sinnum þurfti að taka af fætinum, því einlægt hljóp spilling í sárið. I.oks er það nú búið, og fer hann heim til sín. Hann er 18 ára gamall. Dr. Brandson gjörði skurð- inn aftur og aftur og má Straum- fjörð þakka honum líf sitt. Hann hefir tekið mikið út svo ungur, en vel kann að vera, að bjartari dagar séu framundan. HEIMKOMAN Sjónleikur í fjórum þáttum. verSur sýndur í íslenzka Good Templara húsinu Mánudagskveldið og Þriðjudagskveldið 19. og 20. April, 1915 ASgönguseðlar: 25c, 35c, og 50c. Til sölu laugardags og mánudags eftirmiðdag þann 17. og 19. apríl hjá B. Metú- salemssyni, horni Victor og Sargent St., og einnig viS inngönguna. The Norwegian Lutheran Church heldur samkomu í Fyrstu íslenzku lútersku kyrkjunni á horninu á | Bannatyne og Sherbrooke föstudag- inn 16. apríl kl. 8 e.m. Gott pró- gram. — Inngangur 25 cents. StríSsskatturinn. Nú gengur hann í gildi stríðsskatt urinn hinn 15. april. 1 cents frímerki á öll bréf til stáða í Canada, Bandaríkjunuin, Mexikó, Englands og nýlenda Breta, hvar sem þær eru. Einnig 1 cents frímerki á öll póst- spjöld til framangreindra landa. Ekkert stríðsfrímerki þarf að setja á bréf eða póstspjöld til ann- ara landa en þessara. 1 eents frímerki á allar póstávís- anir. 2 centa frímerki á allar peninga- ávísanir aðrar (‘Express’ ávisanir). Fréttablöð, bækur, “circulars” og bögglapóstur sleppi við skatt þenna. Á þetta þarf engin striðsfrimerki. Sérstök stríðsfrímerki verða til- búin og höfð til sölu á pósthúsum öllum, en séu þau ekki fáanleg, má hafa vanaleg frimerki. Þess verða menn að gæta, að ekki dugar að hafa stríðsfrimerkin sem veruleg frimerki, þó að frímerkin vanalegu geti dugað sem stríðsfri- merki. Menn mega t. d. ekki setja 3. centa frimerki á bréf eitt, heldur vanalegt tveggja centa frímerki og 1 cents striðsfrímerki. Þá skal og taka það fram, að eng- in striðsfrímerki þarf á bréf eða póstspjöld til Frakklands, Italíu, Hollands, Danmerkur, íslands, Nor- egs, Sviss, Rússlands o. s. frv. Burð- argjald er þar ákveðið með samn- ingum og má ekki færast upp. Til fólksins. Einsog lesendur Heimskringlu muna eftir, hefi eg getið þess áður í blaðinu, að eg ætlaði mér að gefa út bók með sögum af ýmsu tagi; og hefði ekki styrjöld þessi hin mikla, sem nú stendur yfir, lamað peninga- markaðinn og öll viðskifti, hefði eg getað látið bókina koma út í fullri stærð nú í vetur. En til þess þó, að verða ekki að öllu leyti svikari við þá, sem eg hefi lofað bókinni, hefi eg látið prenta 100 bls. i nokkuð stóru 8-blaða broti. Eg hefi brotið svona stórt, af því eg ætlast til að bókin verði fáein hundruð blaðsið- ur, þá hún er öll prentuð. Af því að mér hafa borist bréf víðsvegar að þess efnis, að æskilegt væri, að fá draumana sem allra fyrst — lét eg þá sitja fyrir. Eg hefi því látið prenta alla þá drauma, sem eg hafði fyrirliggjandi, bæði eftir mig og aðra. Þessir draumar eru um 80 bls., og er fyrsia deild i sögusafni mínu. Önnur deild hefir inni að halda sögur eftir Kristján Geiteying, og eru nokkrar af þeim í þessu hefti. En þetta eru aðeins fáar af mörg- um, sem eg hefi skrifað upp, og sem enginn kann nema eg. Þetta hefti, sem eg hefi nú þegar minst á, er nýprentað hér i borg- inni og kostar 50 cents póstfrítt hvert sem er á þessum hnetti, ef borgun fylgir með pöntuninni; og hver sá, sem sendir mér $2.00, fær 5 bækur. í næsta blaði mun eg geta auglýst útsölumenn mína víðsvegar um þetta land. Kse.ru lslendingar! Kaupið þetta hefti, svo þið getið fengið alt, sem eg á eftir óprentað. Yðar einlægur, S. J. Austmann, 247 Lipton St., Winnipeg, Man. Eða: Winnipeg P.O., Station D. Síðustu stríðsnýungar. Síðari fregnir geta þess til, að skothríðin undan Björgvin og Seley hafi ekki verið annað en viðureign Breta við 2 eða 3 neðansjávarbáta, og að flotinn þýzki, sem Norðmenn sáu, hafi verið þýzkar duggur, sem ætlað hafi til lslands að finna vini Vilhjálms þar. En i striðinu trúir hver því, sem honum sýnist. — Þess má geta, að hinn frægi herforingi Rusky er nú frá herstjórn að sagt er. Hann tók Galizíu og Lem- berg og síðan kvaddi keisari hann norður, þegar Þjóðverjar létu verst við Przasniz og óðu inn yfir landa- mæri Rússa. Hann kom að sunnan og hrakti Þjóðverja aftur. En að því búnu varð hann að hætta hermensk- unni, — þjáðist af innvortis krabba- meini. Kvaddi keisari hann heim, og fékk honum sæti í senatinu og veitti honum heiður mikinn. — Þá eru smáfregnir að koma frá ítalíu, er benda til þess að héðan af sitji þeir nú ekki lengi hjá aðgjörða- lausir. Yfirmenn allir og hermenn eru beðnir að blekkja alla hnappa á einkcnnisbúningi sínum, sverðs- hjöltu og skeiðar, því alt sem glóir er ágætt mark fyrir skotmenn óvin- anna. — Á Englandi og Italiu eru konur að taka við verkum karlmanna, bæði á skrifstofum og á verksmiðj- um, og á ítalíu eru þær einnig farn; ar að vinna á strætisvögnum. SYRPA TÍMARIT ALÞÝÐU sögur, æfintýr og annaS innihald til skemtunar og fróðleiks. ÁRGANGUR $1.00 HEFTIÐ 30c. KJÖRKAUP Nýir kaupendur fá 1. 2. og 3. árgang fyrir $2.00, eru það 768 blaðsíÖur af einkar skemtilegu les- máli. Með því að fyrstu árgang- arnir eru að þrotum komnir stend- ur þetta fágæta tilboð aðeins til loka aprílmánaðar. 0. S. Thorgeirsson 678 Sherbrooáe St., Winnipeg. Mac’s Theatre Cor. Sherbrooke and Ellice. Always — The Best — Always Mary Pickford in “MISTRESS NELL” 5 parts. Today and Tomorrow Friday and Saturday: “THE SONG IN THE DARK” A Great 2 Reel Drama. Coming Wed. and Thurs. April 2 1 st and 22nd. Dustin Farnum in: “CAMEO KERBY” 5 Parts Bréf frá vígvellinum. Austmann slátrar Þjóðverjum. Eftirfylgjandi bréf var nýlega prentað i Winnipeg Free Press, en skrifað af Sergeant-Major H. R. •Northover, manninum, sem Aust- mann lærði hjá byssusmiði: — “Á Frakklandi 22. marz 1915. “Kæri Hawleyi “Já, Svörtu DjÖflarnir eru hér og hafa nóg að gjöra, og þeir eru sú bezta sveit, sem nú er á meginlandi Evrópu í hverju sem reyna skal. Eg fer ekki að segja þér frá mannfalli voru, því um það getur þú séð i blöðunum. “Mér hefir verið boðin hærri staða, en eg hafnaði því tilboði, af þvi eg vil ekki skilja við mína fé- laga i 90., sem eru hér allra manna fræknastir. Joe Austmann er iðinn við að sálga Þjóðverjum. Hann markar skoru í byssuskeftið sitt við hvern haus, sem hann hæfir, og eru skorurnar orðnar æði margar. Sjálf- ur hæfði eg einn haus á hér um bil 200 föðmUm. Eg vissi, að það vár Þjóðverji i launsátri ekki langt í burtu; en vissi þó ekki, hvar hann var, og var eg 20 mínútur í óvissu. En þá kom upp skotmarkið og eg miðaði á miðdepil. Skotmarkið datt niður og kom aldrei upp aftur, svo eg markaði hjá mér hæstu tölu, sem hægt var að ná í einu skoti. Sú 90. er búin að velja flokk (team) af sín- um beztu mönnum, til þess að fara til Berlin í sumar og reyna sig þar við olympisku leikina. Þeir, sem kosnir hafa verið, eru þessir: Aust- mann, Houghton, Davidson, Cook, Ford, Bishop, Watson og eg sjálfur, og svo nokkrir menn til vara. Pað er í ágúst í sumar sem ferð- inni er heitið til Berlínar. Haf þú gætur á, hvað símað verður á milli landa um það leyti. , Aths. — Þjóðverjar hafa alla tið fjölda manns í launsátrum, einn og tvo í stað. Liggja þeir i leyni og drepa alt, sem þeir sjá lifandi ofan- jarðar, og það eru þessar launsáturs- skyttur, sem Austmann hefir tekið að sér að eyðileggja. FLUTTIR HérmeS tilkynni eg almenningi að eg hefi flutt mig í stærri og betri búð, þar sem öll viðskifti geta gengið mikið greiðar en áður. Nýja búðin er að: 572 Notre Dame Ave. aðeins þremur dyrum vestar en gamla búðin. Central Bicycle Works S. MATTHEWS eigandi. TELEPHONE — GARRY -- 121 mm SÖNGSAMKOMA verður haldin í Lyric Theatre á Gimli. Sumardaginn fyrsta, klukkan 8. e.h. PROGRAMME. 1. —Söngflokkur (yfir 20 manns) undir stjórn hra. Jóns J ónatanssonar. (a) Voriðerkomið ----- O. Lindblad (b) ísland ----- H. Helgason (c) Vorvísa ------ A. P. Berggreen 2. —Trombone Solo --------- Guðm. Björnsson 3. —Piano Duet - -- -- -- -- Miss Y. Jónatansson og Mrs. H. Lawson 4. —Baritone Solo - -- -- -- - B. Kristjánsson 5. — (a) Ó, Guð vors lands - - Sv. Sveinbjömsson (b) Heim til fjalla ----- J. Pálsson (c) Mig hryggir svo margt - - G. Eyjólfsson Söngflokkurinn 6. —Violin Solo - -- -- -- -- ó. Thorsteinsson 7. —Trombone Solo - -- -- -- - Guðm. Björnsson 8. —Piano Solo - -- -- -- -- " Miss Violet Hermanson 9. — (a) Sjóferðin ------ O. Lindblad (b) Vængirnir ------- Doleres (c) Stríðsbæn ------ O. Lindblad Söngflokkurinn 1 0.—Kökuskurður - 1 1.—Dans - -- -- -- -- -- Veitingar seldar. Inngangur fyrir fullorðna 25c., fyrir böm 15c. LEIDBÉTTING.— 1 Heimskringlu 25. marz, 5. bls., 4. dálki, í skrá yfir gafir til Þjóðræknissjóðsins, stend- ur: “1 Belgian Relief Fund Paul Reykdal $50.00, en á að vera: Pat- riotic Fund- Vinnukona getur fengið vinnu úti á landi. Þyrfti að kunna að mjólka kýr í viðlögum. Kaup $12—$15 um mánuðinn. Heims- kringla vísar á. * , Skemtisamkoma og Veitingar undir umsjón kvennfélags Skjaldborgar, verður haldin á Sumardaginn Fyrsta í Skjaldborg Apríl 22., 1915 PROGRAMME: 1. —-Ávarp forseta - Séra R. Marteinsson 2. —Píanóspil ----- Miss S. Fredrickson 3. —Frumsamið kvæði - Dr. Sig. Jul. Jóhannessson 4. —Fíólín spil ----- Mr. Wm. Einarson 5. —Recitation, Fjallkonan, (sýnd í Faldbúning) Miss Jódís Sigurðsson 6. —3 raddaður Samsöngur: Skólameistarinn, nokkur börn og Mr. B. Mteúsalemsson. 7. —Fíólín samspil: - Lærisveinar Mr. Th. Johnston’s 8. —Einsöngur ----- Miss E. Thorvaldson 9. —Upplestur ----- Miss Ásta Austmann 1 0.—Einsöngur, Selected - Miss H. Friðfinnson 1 1.—Samsöngur ------ Söngflokkurinn 12.—Veitingar - -- -- -- -- - Byrjar kl. 8 e.h. Aðgangur 25c og 15c fyrir böm. TOMBOLA OG ADRAR SKEMTANIR Hjálparnefnd Únítarasafnaðarins heldur Tombólu, fimtu- dagskveldið I 5. þ.m. í samkomusal safnaðarins. Ágóðan- um af Tombólunni verður varið til styrktar þurfandi íslenzk- um fjölskyldum hér í bænum. Margir góðir drættir verða þar á boðstólum. Á eftir Tombólunni verða skemtanir. Stuttar ræður, Rögnv. Pétursson og G. Árnason; upplestur, H. Gíslason og Mrs. Ingibjörg Goodman. Auk þess hljóð- færasláttur. Kaffi verður selt og unga fólkinu gefst kostur á að fara í Grand March. Fimtudagskveldið, 15. apríl, 1915. Inngangur með drætti, 25c. Komið og hjálpið. Stoek Taking Sale AUar vörur boðnar til sölu með afsláttum er reiknast frá 20 prósent til 80 próents. $10.00 fléttur fyrir...............$4.95 $ 5.00 fléttur fyrir...............$2.40 $ 7.50 fléttur fyrir................ 95c MANIT0BA HAIR G00DS CO. M. Person, Ráðsm. 344 Portage Avenue, Winnipeg

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.