Heimskringla - 17.08.1916, Side 8
BLS. 8.
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 17. ÁGÚST 1916
Auction
Sale
Everij Second and Fourth Saturday
monthly will be hetd at Clarkleigh
this year from 2 to 6 p. m.
B. RAFNKELSSON.
Ef eitthvað gengur að úrinu l)ínu,
t>á er l>ér lang-bezt að senda l>að til
hans G. Thomas. Hann er í Bardals
byggingunni og ])ú mátt trúa bví,
að úrin kasta ellibelgnum í hönd-
unum á honum.
Fréttir úr Bænum.
Síra Rögnvaldur Pétursson fór
vestur í Saskatchewan og flutti íe-
lendingadagsræðu í Wynyard 2. ág.
Hann var í W'ynyard þegar haglhríð
in byrjaði þar hinn 3. ágúst. Sagði
hann haglið meira og stórkostlegra,
en vér höfum áður frétt um. Bylur-
inn fór yfir alla nýlenduna íslenzku
frá vestri til austurs, og var slóðin
100 mílur á lengd og 6—12 mílur á
breidd. Fór yfir Kandahar, Wyn-
yard, Mozart, Elfros, Leslie og Foam
Lake. en lagði þá mikið norðan við
Foam Lake. Braut og þeytti iangar
leiðar smáhúsum öllum og korn-
hlöðum; braut og lagði saman fé-
lagshúsið í Leslie; fcykti burtu og
braut stór fjós hjá Helga Helgasyni
og Bjarna Jasonssyni í Foam Lake;
jnölvaði glugga á hverju húsi, drap
fugla, tamda og vilta, og svín, en
fældi hesta, svo þeir lilupu á víra og
sköðuðust. Aldrei fyrri hafa landar
hér orðið fyrir jafn mikilli eyðilegg-
ingu og þessari.
Mr. Ásgreir Fjeldsted, Lieutenant
f 223. herdeildinni, var fluttur fár-
veikur á aukalest hingað frú Árborg
á sunnudaginn, og var botnlanginn
sprunginn, er Dr. Brandson skoð-
aði hann. Dr. Brandson skar hann
upp og væntu fáir honum lífs. En
nú í morgun (miðvikudag) segir
Dr. Brandson að honum farnist vel
og er vongóður með hann, þó að
hann sé enn í hættu. Það gleður
alla þá( er Ásgeir þekkja, ef hann
kemst úr hættu þessari.
Gjafir til félagsins “Jón Sigurðs-
son” 2. ágúst:
10 gal. rjómi frá Maple Leaf Cream-
ery, Lundar.
Skyr frá Mrs. Paul Reykdal, Lundar
Skyr frá Mrs. Halldórsson, Lundar.
Skyr frá Mrs. J. Líndal, Lundar.
Skyr frá Mrs. H. H. Sveinsson, Brú.
Skyr frá Mrs. Kr. Sigurðsson, Glen-
Smjör frá Mrs. Casselman, Lundar.
$10.00 gjöf frá kvenfélaginu “Fræ-
korn”, Lundar.
$5.00 gjöf frá Mrs. Halldóru Olson,
Duluth, Minn.
Þetta var margt af þessu ófáanlegt
fyrir peninga, og eru félagskonurnar
því hjartanlega þakklátar gefend-
unum, fyrir alt saman: skyrið,
smjörið og peningana. Eins votta
þær þakklæti sitt til allra þeirra,
sem unnu að veitingunum eða
lögðu til hjálparhönd með eitt eða
annað á íslendingadaginn.
í íslandsblöðum er þess getið, að
stjórn íslands hafi leigt skip til
vöruflutninga milli ísiands og Ame-
rfku. Það er um 1500 smálestir að
stærð og leigan um 65,000 kr. á mán-
uði; er það ekki mikið verð eftir
því sem nú er um að gjöra. Fyrst á
skipið að koma með kolafarm frá
Engiandi, en fara síðan til Ameríku
og sækja þangað ýmsar matvörur og
ef til vill steinolíu.
Nýjar félagskonur í “Jón Sigurðs-
son” I.O.D.E.:
Mrs. Christiana Albert.
Mrs. Tngibjörg Clemens.
Miss María Anderson, B.A.
Mis Efemía Thorvaldsson.
Mrs. Inga Gillis.
Miss Herdís Ingjaldsson.
Miss Gabríelle S. Thordarson.
Mr. Halldór Kristjánsson Mýr-
mann, frá Milleton, Sask., kom hér
við hjá oss á heimleið frá Nýja Is-
landi. Fór hann þar um suðurbygð-
irnar til að sjá gamla kunningja og
frændur sína. Sendir hann þeim öil-
um nú beztu kveðju og þakklæti
fyrir risnu þá og skemtun, sem þeir
sýndu honum. Dýzt hann við að
fara bráðlega heim héðan.
Mr. E. S. Jónasson, frá Gjimli, var
hér efra á mánudaginn og sagði, að
íslendingadagurinn þar hefði farið
ágætlega fram og aldrei verið jafn-
mikið fjölmenni Jjarsaman komið á
þeim degi. — Fyrir hönd Islendinga-
dagsnefndarinnar á Gimli bað hann
oss að birta þakklæti sitt og nefnd-
armanna þar neðra til alira þeirra,
sem þar hefðu fram komið á pró-
grammi þann dag.
Á síðasta furidi stúkunnar Skuld-
ar Nr. 34 setti stúkuumboðsmaður,
herra Ó. S. Thorgeirsson, eftirfylgj-
andi meðlimi f embætti:
Æ.T.—Gunnlaugur Jóhannsson.
V.T.—Miss Aslaug Mack.
F.Æ.T.—Einar Páll Jónsson.
Kap.—Miss Siguriaug M. Sigurðs-
son.
Ritari—Soffonfas Þorkelsson
A.R.—Dr. Sig. Júl. Jóhannesson.
F. M.R—Sigurður Oddleifsson.
G. K.—Magnús Jónsson.
D.S.—Miss Helga Ólafsson.
A.D.S.—Miss Lára Bjarnason.
I.V.—Benedikt ólafsson.
Ú.V.—Aðalsteinn Jóhannsson.
Ritstj. stúkubl. — Mrs. Karólína
Dalmann.
Organisti—Miss P. Pétursson.
TIL VINA OG AÐSTANDENDA
HERMANNANNA.
JÓN SIGURÐSSON, I.O.D.E., fé-
lagið óskar þess, að vinir og að-
standendur hermanna þeirra hinna
íslenzku, sem riú eru farnir, sendi
utanáskrift hvers eins hermanns til
| forstöðukonu- félagsins Mrs. J. B.
Skaptason, 378 Maryland St., Winni-
peg.— Félaginu ríður á að vita rétta
utanáskrift þeirra og breytingar,
undir eins og þær verða, svo. að þær
beðnir að láta þetta ekki undan-
falla.
Málverk.
Allskonar litmyndir
(“Pastel” og olíu-
málverk) fást
keyptar hjá Þor-
Mtclni I*. Por.steliiMsyni, 732 McGee St.,
—'I'alMfnti G. 4ÍM»7.— Ljósmyndum, bréf-
spjaldamyndum o. s. frv. breytt í stór-
ar litmyndir fyrir mjög sanngjarnt verö.
Efalaust eiga ailir einhverja mynd
svo kæra, aö þeir vilja geyma hana
meö lífi því, sem höndin og litirnir
skapa, til minja í stofunni sinni.
GJAFIR TIL 223. BATTALION.
Safnað af G. Stefánsson:
Frá Vestfold P. O., Man.—
G. Stefánsson............. $2.00
E. H. Einarsson .......... 2.00
Halldór Jónsson........... 0.50
Jón S. Árnason ........... 1.00
Leonard H. Olson ....... 1.00
Einar J. B. Johnson ...... 1.00
Björn Jónsson ............ 0.50
A. M. Freeman ............ 1.00
F. Thorgilsson ........... 1.00
Sigurður Mýrdal .......... 1.00
L.,Kristjánsson......... 0.50
K. Stefánsson............. 0.50
Frá Hove P.O., Man.—
Vigfús Thordarson......... 1.00
Safnað af Th. Thorkelson :
Frá Oak Point, Man.—
Th. Thorkelson............ 5.00
Mrs. G. Thorkelson........ 2.00
Miss Hekla Thorkelson .... 0.25
Fred Thorkclsoh .......... 0.25
V. J. Guttormsson ........ 1.00
Frá Vestfold P.O., Man,—
S. T. Byron .............. 1.00
Björn Björnsson .......... 0.50
Guðbjörn Guðmundsson....... 0.50
Frá Clarkleigh P.O., Man.—
A. G. Breiðfjörð.......... 1.00
Frá Winnipeg:
S. Sveinsson, Simcoe St.... 5.00
Frá Lundar, Man.—
Home Economics Society..... 25.00
Samtals................ð54.50
Ofsaveður.
Það var eitthvað um kl. 6 e. m. á
þriðjudaginn, að hér (í Foam Lake,
Sask.) kom hinn versti stormur, er
hér hefir koinið síðan sveitir þess-
ar bygðust. Skýjin hlóðust saman
þykk og svört í vestri, og svo kom
ofviðrið og slengdi þeiin yfir með
feikna hraða. Einn flókinn stefndi
á bæjinn og virtist vera fellibylur,
en gjörði þó ekki annan skaða en
sprengja inn rúður f flestum glugg-
um, sem áveðurs voru og bylta um
smáliýsum nokkrum sem létt voru
fyrir.
Leslie bærinn, næstur fyrir vestan,
slapp þó ekki eins vel. Farþegalest-
in kom þetta kveld til Wynyard
ineð 58 glugga brotna af haglinu, og
í kringum Wynyard hafði haglið
gjörsamlega eyðilagt uppskeruuna.
Haglið kom að vestan en beygði
norður á við áður en það kæmi til
Foam Lake og fór því fyrir norðan
bæjinn. En slóðin eftir það var nær
7 inílna breið og stefndi til norð-
austurs. Á þessu 7 mílna svæði voru
akrar bænda meira og minna eyði-
lagðir af haglinu og veðrinu.
"Víða hefir ofveðrið fært stórar
hlöður úr stað, og af mörgum hlöð-
um svifti vindurinn þökunum gjör-
samlega af og setti þau niður ann-
arsstaðar eða molaði í sundur. —
Einn bóndi átti hlöðu á hól einum
og ætiaði að færa hana burtu það-
an; en sá ekki ráð til þess, nema
að höggva breiða braut gegnum
skóginn til að flytja hlöðuna eftir,
að öðrum kosti hefði hann orðið að
slá alla hlöðuna í sundur. En of-
verið tók af honum ómakið og lyfti
hlöðunni af hólnum, yfir skógar-
toppana, og setti hana niður á
sléttri grund utan við skóginn. Var
þá hlaðan lítt skemd, en ómakið
tekið af bónda að höggva skóginn.
— (Úr “Foam Lake Chronicle”).
Tilkynning
Verzlunarskóla
Námsskeið
Byrjar
Haust-námsskeiSiS byrjar mánudaginn
28. ágúst. En margir hafa þegar gjört ráS-
stafanir til aS byrja nám sitt hjá oss næsta
mánudag, 21. ágúst. — ByrjiS nám ykkar
snemma. KomiS á mánudags morguninn.
THE DOMINION BUSINESS COLLEGE
er aS eins fimm ára gamalt í þessum mánuSi,
en þó hafa fleiri nemendur frá DOMINION
Verzlunarskólanum staSist “Chartered Ac-
countant’s” prófin (Manitoba), heldur en
frá öllum hinum verzlunarskólum borgarinn-
ar til samans, á síSastliSnum tuttugu árum.
Engir útibús skólar
Aðeins einn góðr skóli
Ekki sá bezti í heimi, heldur
sniSinn eftir þeim bezta í heimi
Einn yfirkennari í verzlunarfræSi á verzl-
unarskóla hér í bænum útskrifaSist frá
D.B.C. — Ef þú óskar eftir sömu tilsögn og
hann fékk, þá getur þú fengiS hana á DOM-
INION Verzlunarskólanum hjá sömu kenn-
urum og hann hafSi.
Dagskóli Kveldskóli
$12.50 $5.00
á mánuði á mánuði
Innritið yður á
DOMINION
Business College, Ltd.
CARLTON BUILDING, PORTAGE AVE.
(sama megin og Eaton’s)
WINNIPEG.
KalliS upp: Main 2529, eftir skólaskrá vorri
Fjárhagur Breta.
Það var rétt nýlega ráðist á fjár-
málaráðgjafa Breta, Reginald Mc-
Kenna, á þinginu fyrir það, að svo
mikið væri útistandandi af óborg-
uðum skuldabréfum upp á fjár-
hirzlu ríkisins. Kváðu menn það
vera hættu mikla og sögðu, að ríkið
ætti heidur að fá sér meira lán.
M.r McKenna svaraði þessu og
sagði, að Bretar gætu fengið iánaða
peninga með miklu betri kjörum,
en nokkur önnur þjóð, sem nú væri
í stríðinu, og mundi svo verða síðar.
Gat hann þess, að skuldir ríkisins
j væru nú 3,440,000,000 pund sterling
| (nærri hálf fjórða bilíón).
i En frá þessari upphæð gætu
menn dregið 800,000,000 punda sterl-
ing (átta hundruð milíónir punda),
sem Bretar hefðu lánað Banda-
mönnum og hinum ýmsu ríkjum
Bretaveldis. Sú upphæð, sem þá
væri eftir, þegar þetta væri dregið
frá þjóðskuldinni, væri ekki meiri
en svo, að Bretar gætu léttilega bor.
ið hana, því að hún væri ekki meiri
en árlegar tekjur þjóðarinnar. Og
ástand Breta væri hið sama og þess
manns, sem hefði 5,000 punda skuld-
ir á herðum sér, en á móti því kæmu
árstekjur hans, sem allar til samans
væru 5,000 punda sterlings, og væru
það sannarlega ekki hættulegar á-
stæður.
Víðtækar breytingar.
London, 11. ág. — Þaðan koma
b*r fréttir, eftir Pall Mall Gazette,
að fyrir Trades Union þingið í næst-
komandi mánuði, verði lagðar víð-
tækar og þýðingarmiklar breýting-
ar. Ein er sú, að skylda menn til að
vera í verkamannaféiagi; önnur að
skylda menn til að vinna að ein’s 48
klukkustundir á viku, við hvaða
starf sem þeir vinna; þriðja er sú,
að borga hveBjum fullvöxnum karl-
manni 30 shillings á viku.
En til þess að borga strfðskostn-
aðinn stinga verkamenn upp á
þessu: Vaxandi skattar á stórum
inntektum; landskattur; toilhækk.
un; vaxandi skattur á höfuðstól;
að stjórnin taki að sér járnbrautir,
námur, siglingar, banka, og að síð-
ustu “conscription of wealth”, —■
láta auðmenn borga.
Vinnukona óskast.
Hátt kaup borgað. Finnið Mrs.
Árni Eggertsson, 766 Yictor St.
Phone Garry 3139.
Tímaritið <iðunn,,.
Það er nú liðinn svo langur tími
síðan eg pantaði meira af 1. árgangi
“Iðunnar” að heiman, að hún ætti
að vera komin í mínar hendur. En
svo er þó ekki, og heldur ekki 1.
hefti annars árgangs, sem átti að
koma út í Reykjavík í júlíbyrjun.
En eg vonast nú eftir því á hverjum
degi. — Þá, sem hafa sent mér borg-
un fyrir 1. árgang og ekki fengið
hann, bið eg að hafa þolinmæði enn
um stund; þeim verður sent ritið
strax og það kemur, eða peningarn-
ir aftur, ef 1. árg. er ófáanlegur, —
nema þeir tilkynni mér að pening-
arnir megi skoðast sem borgun fyrir
2. árgang. — Sökum dýrtíðarinnar
heima hefir verð árgangsins verið
hækkað og kostar eftirleiðis $1.25.
— Þeim, sem hafa keypt 1. árgang,
verður sent 1. hefti 2. árgang undir
eins og það kemur f mínar hendur,
nema þeir láti mig vita áður, að þeir
ekki óski ritsins framvegis. — Fá-
einir skulda enn fyrir 1. árg. og bið
eg þá svo vel gjöra og borga sem
fyrst. — Nýjir kaupendur beðnir að
gefa sig fram sem fyrst, en senda
ekki peninga fyrri en eg auglýsi að
1. hefti 2. árg. sé komið vestur.
Stefán Pétursson,
696 Banning St., Winnipeg.
Verzlunarskóli byrjar
Nýjir stúdentar koma daglega, —
fleiri bætast við næsta mánudag.
Miss Marie Bessitt lærði hina maka-
lausu Paragon hraðritun; líka vél-
ritun og verzlunaraðferðir, — alt á
þremur mánuðum, og hefir síðan
haft ágæta stöðu hjá einu stærsta
lögmannafélagi bæjarins.
Ef þig langar til að spara þér
tveggja eða þriggja mánaða tíma —
og kostnað — á verzlunarskóla, þá
semdu við WINNIPEG BUSINESS
COLLEGE, að byrja lærdóm þar
sem fyrst. — Dagskóli og kveldskóli
alt af opinn. Talsími: Main 45.
GEO. S. HOUSTON, ráðsmaður.
Vér kennum Vér kennum
PITM AN Hraðritun. Success GREGG Hraðritun.
BUSINESS COLLEGE
Horninu á Portage og Edmonton
Winnipeg - - Man.
DEILDIR AF SKÓLANUM FRÁ HAFI TIL HAFS,
I
Tækifæri
Það er stöðug eftirspurn
eftir fólki, sem útskrifast
hefir frá SUCCESS skólan-
um. Hundruð af bókhöldur-
um, Hraðriturum, Skrif-
stofustjórum og Skrifurum
geta nú fengið stöður. - —
Byrjið i dag að undirbúa
yður. Takið tækifærin, sem
berast upp i hendur yðar.
Leggið fé i mentun, — ef
þér gjörið það, þá borgar
það svo margfalda rentu, og
vandamenn yðar og vinir
verða stoltir af yður. —
SUCCESS skólinn er tilbú-
inn að undirbúa yður fyrir
tækifærin.
SKRIFIÐ YÐUR
STRAX í DAGI
INN
Yfirburðir
Beztu meðmælin eru til-
trú fólksins. Það skrifa sig
árlega fleiri stúdentar inn i
SUCCESS, en í alla aðra
verzlunar skóla Winnipeg
borgar samantalda. Skóli
vor er æfinlega á undan öll-
uin öðrum í nýjustu hug-
myndum og tækjum, sem
kenslunni við keniur. “Bil-
legir” og “Privat” skólar
eru “dýrir” á livaða “prís”
sern er. Allar vorar kenslu-
greinar eru kendar af sér-
fræðingum. Húspláss og á-
höld öll er margfalt betra
en á öðrum skólum. Stund-
aðu nám á SUCCESS skól-
anum. Hann hefir gjört —
success í starfi sinu
frá byrjun. — SUCCESS
vinnur.
SUCCESS skólinn heldur hæstu verSlaunum fyrir vélritun
í öllu Canada.
SKRIFIÐ YÐUR INN HVENÆR SEM ER.
Skrifiö eftir skólaskrá vorri.
Success Business College,Ltd.
F. G. GARBUTT, Pres. D. F. FERGUSON, Prin.
::
$20.00 grœðir sá, er hjól þetta fœr
Alveg nýr hjólhestur (Perfect Bicycle) til sölu. Hefir “Coaster
Brake” og allar aðrar nýjustu umbætur. Vanalegt verð $65.00,
en verður seldur fyrir $45.00 gegn peningum út í hönd, eða á
$50.00 með niðurborgun og mánaðarborgun á afganginum eftir
samningi. Þetta er einhver bezta tegund hjólhesta á markaðn-
um. — Skoðið hjólið á skrifstofu Heimskringlu og semjið við
ráðsmanninn.
BRÉF Á HEIMSKRINGLU:
Mrs. Jóna Ágústsson.
G. J. Guðmundsson.
Björgvin Stefánsson.
Jón Reykjalín.
KENNARA VANTAR
fyrir Frey-skóla, No. 890, í Argyle-
bygð, sem hefir lögmætt kennara-
leyfi. Kenslan byrjar fyrsta septem-
ber næstkomandi, og heldur áfram
til 21. desember 1916. Umsækjandi
sendi tiiboð sín til: Árna Sveinsson-
ar, Glenboro P. O.- við fyrsta tæki-
færi.
Arni Sveinsson, Sec’y-Treas.
KENNARA VANTAR
við Árnes skóla nr. 586 (í Manitoba)
frá 1. september næstkomandi til 1.
desember. Umsækjandi verður að
hafa “3rd Class Professional Certifi
cate”.. Hver, sem sinna vill þessu,
greini undirrituðum frá æfingu sem
kennari, einnig kvaða kaupi óskað
er eftir.
Til 31. ágúst verður umsóknum
veitt móttaka.
Árnes, Man., 4. ágúst 1916.
S. Sigurbjörnsson,
48 Sec’y-Treas.
MARKET HOTEL
146 Prlncewii Street
á móti markatiinum
Bestu vínföngr. vindlar og atJ-
hlynlng góö. islenkur veitinga-
maöur N. Halldórsson, leiöbein-
ir íslendingum.
P. O’CONNEL, Eigandl Wlnnipeg
Hospital Pharmacy
Lyfjabúðin
sem ber af öllum öðrum.-->
Komið og skoðið okkar um-
ferðar bókasafn; mjög ódýrt.
— Einnig seljum við peninga-
ávísanir, seljum frimerki og
gegnum öðrum pósthússtörfum
818 NOTRE DAME AVENUE
Phone G. 5670—4474
™ DOMINION BANK
Horal Notre Dome »( Sherbrooke
Btreet.
Hflfntlatðll nppb. $0,000,000
Vnrnejflflnr..........$7.000,000
Allar elsrnlr. --..«„$78,000,000
V<r ðskum eftlr vlflsklftum ver*-
lunarmanna og ábyrgjumst afl $efa
þelm fullnœgju. Sparlsjðflsdalld vor
er sú stœrsta sem nokkur bankl hef-
lr I borglnnl.
fbúendur þessa hluta borgartnnar
ðska afl sklfta vlfl stofnum sem þelr
vlta afl er algerlega trygg. Nafn
vort er fulltrygglng ðhlutlelka.
Byrjlfl sparl lnnlegg fyrlr ejálfa
yflur, konu og bðrn.
W. M. HAMILTON, Ráðsmaður
PHONB GARRY S4SO