Heimskringla - 22.02.1917, Síða 3
WINNIPISG, 22. FEBRÚAR, 1917
HEIMSKRINGLA
BLS. 3.
■*---------------------------—*
Islands fréttir.
«------------------------------*
(teknar eítir “Vísi”)
Mislingar i Vestmannaeyjum. —
Vestmanna-eyingar hafa haldið
nppi hjá sér misliríga-vörnum i alt
surnar og haust, en svo tór þó að
Jokum, að veikin komst til Eyja (með
Botníu siðst frá Eyjafjörðum).
.Skömmu eftir að skipið kom lögð-
ust þrír menn í mislingum, sem að
austan höfðu komið — veikin er nú
komin í 20 hús í Eyjum.
—Frú Ellen Hallgrímsson, kona
Sveins Hallgrírassonar bankagjald-
kera, andaðist 10 jan. á Landakota-
.spítalanum, eftir stutta legu. Bana.
meinið var lifrar bólga.
—Vísi voru sagðar þær fregnir
austan úr Árnes- og Itangarvalla-
sýslu nýlega, að þar horfði til vand.
ræða vegna hagleysis. Allur fénað-
ur hefir verið þar á gjöf síðan
snemma í liaust og er gjafa tíminn
orðinn miklu lengri en dæmi er til.
Þar við bætist, að hey nýttust mjög
illa, eins og kunnugt er, síðasta
sumar, einkum í Rangarvallasýslu,
Árnesingar láta ekki eins illa af því-
Elogið hefur fyrir að einhverjir séu
byrjaðir að skera af heyjum, en
.sönnur veit Vísir ekki á því. Væri
það ekki nema lofsvert, þó svo væri,
því að enn er lítill skaði að því að
skera, að minsta kosti saman borið
við það sem seinna yrði.
—Vestan úr dölum er skrifað að
tíð þar hafi verið ágæt og útbeit góð
til þessa.
—Hlutafjársöfnun Eimskipafélags.
3ns rniðar vel áfram, hafa þegar verið
seldir hlutir fyrir rúmlega 60 þús-
undir króna, mestmegnis hér í
Reykjavík og bætist daglega við. —■
Utan af landinu eru engar fréttir
komnar enn um fjái-söfnunina.
—“Vísir” segir frá því að félög í
Reykjavík séu að gangast fyrir því,
að vestur-islenzka skáldinu, Steph-
áni G. Stephanssyni, verði boðið
heim. Til þeas, að standast kost-
uaðinn, sem þessu er samfara, hafa
verið hafin samskot í Reykjavík og
líklega víðar.
Eftirfylgjandi orð tekur “Vfsir”
oftir forgöngumönnunum að þessu:
“Stephan G- Stephansson er eitt af
írumlegustu skáldum þjóðar vorrar,
djúphygginn og orðspakur. Sum
kvæði hans eru snildarverk. Hann
íór tvítugur til Vestrheims 1873, og
liefur dvalið þar síðan. Hann er
alþýðumaður og hefir jafnan unníð
hörðurn höndum fyrir sér og sínum.
Þó hefir hann lagt þann skerf til
bókmenta vorra, er seint mun fyrn-
ast, því hann hefir auðgað þær bæði
að efni og formi. Þjóð vorri, landi
«g tungu ann hann heitt, sem kvæði
lians bezt sina. Landar hans í
Vesturheirni hafa á ýmsan hátt vott.
að honum jiökk sína, en íslenzka
þjóðin hér heima hefir enn ekki
sýnt honum neinn vott virðingar
sinnar né þakklætis. Kvæðin hans
falla hehni í skaut, og ætla mætti,
að henni væri kært að sýna á ein-
livern hátt þökk sína í verki.”
Ritstjóri Vfsirs mælir líka sterk-
lega með þessu og telur Stephan
“einn af útvörðum fslenzks þjóðern.
is," sem alla virðingu verðskuldi
islenzku þjóðarinnar lreima-
Isafold — Haraldur Sigurðsson frá
Kallaðarnesi efndi til hljómleika í
Khöfn 4. jan., og er mikið látið af
list hans f dönskum blöðum.
— Páll ísólfsson er orðinn organ-
isti til bráðabyrgða við St. Thomas
kyrkjuna í Leipzig í stað kennara
síns, prófessors Straube, sem gegna
þarf landvarnarskyldu um sinn- Er
þetta sóml Páli og sýnir glögt það
álit, sem hann er þegar búinn að
afla sér.
Tekiö eftir Lögréttu.
Aflabrögð eru sögð hafa verið með
bezta móti á Eyrarbakka og Stokks-
eyri f lok sfðastl. árs Á Vestfjörðum
hafa ógæftir hamlað, en bátar frá
fsafirði, sem fóru út nú eftir áramót.
in, hafa fengið töluverðan afla. —
Einnig eru vélabátar byrjaðir að
afla frá veiðistöðvum liér suður í
flóanum, sagt að um 60 vélabátum
muni verða haldið út frá Sandgerði
í vetur. Botnvörpungarnir héðan,
sem veiðar stunda, hafa aflað vel,
að minsta kosti sumir þeirra.
“Goðafoss." Það er nú talað um,
að ekki «é óhugsandi að skipið ná-
ist út sfðar frá strandstaðnum, ef
heppilega viðri, og mun þá hugsað
til að fá björgunarskip frá Dan-
mörk tll að fást við það ásamt
“Geir”. Skipið kvað liggja á besta
stað f nesinu- Miklar vonir um
þetta skyldu menn samt ekki gera
sér.
Nýárssundið. Kl. 12 á nýársdag
var kappsund liér á höfninni, eins
og nú er orðin föst venja þann dag.
10 menn reyndu sig í þetta sinn og
varð Erlingur Pálsson fljótastur,
synti 50 stikur á 34 og fjórum fimtu
sek. og vann bikarinn, sem um var
kept, og 1. verðlaun. Næstur hon-
um varð Steingrímur Pálsson, bróð-
ir hans, (39 sek.) og fékk 2- verðlaun
en þar næstur Kristinn Hákonar-
son (40 sck.) og fékk ’. verðlaun.
Hiti var í sjó 0 stig, en f lofti 2. stig.
Bjarni frá Vogi flutti ræðu og af-
henti verðlaunin.
Garöar Gíslason stórkaupmaður
hefur nú keypt fasteignir firmans
G. Gíslason & Hay hér á landi og
lieildsöluverzlun þess félags, og rek-
ur hana áfram undr firmanafninu
“Heildsöluverzlun Garðars Gíslason-
ar”
Háskólinn. Þar liefur frá 1. þ.m.
verið settur kennari við læknadeild.
ina Stefán Jónsson cand. með &
chir. í Khöfn,, og er hann væntan-
legur hingað bráðlega.
Bæjarfógetaembætti Rvíkur. Vig.
fús Eiparson lögfræðingur hefur
verið settur til að þjóna því til
næstu mánaðarmóta-
Tíðin. Eftir frostakafla að undan.
förnu kom þíða í gær, og var bleytu.
hríð fram af degi og snjóaði tölu-
vert. — I sumum sveitum austan
fjalls hefur tíðin verið erfið, einkum
uppsveitunum, og hofur þar að sögn
verið jarðlaust frá því í byrjun jóla-
föstu, þótt veður liafi verið góð.
Þykjast menn þvf sjá fram á liey-
leysi, ef þessu fer fram, og hafa fækk.
að fé á nokkrum bæjum. í Borgar-1
fjarðar héraði liefur snjóað töluvert
en úr Húnavatnssýslu var nýlega J
sagt, að þar væri lítill snjór, en yxi j
eftir því sem austur drægi norðanj
lands. Á Austurfjörðum er mikill
snjór, og á Fljótsdalshéraði öllu
kvað hafa verið jarðlaust frá þvf
fyrir jól.
“Gullfoss” kom hingað frá Vest-j
fjörðum f gær og á að fara um næstu 1
helgi til Austfjarða og út. Þingmenn |
að austan og norðan hafa hug á að
komast héðan með honum, en óvíst
enn, hvort svo getur orðið-
Sæsíminn er enn óslitinn.
Vörurnar úr Bisp. Nokkuð af
landsjóðsvörum, sem Bisp ílutti
hingað nú síðast, hafði skemst á
leiðinni og var selt hér á upiiboði.
Var þetta eitthvað nálægt 1000 sekk-
jum af matvöru og kaffi og seldust
sekkirnir af bveiti á 18—21 kr., liafra.
mjöl 14—17 kr„ kaffi 60—70 kr., ogj
maís 16—17 kr.
Mannalát- Hinn 25. nóvember s.l. j
andaðist á Bíldudal Tómas Jónsson,
fyr bóndi á Hóli í Bíldudal, dugn-
aðar maður, og vel látlnn, 69 ára að |
aldri.
Nýlega er og dáin á Bíldudal Sig !
ríður Kristjánsdóttir, ættuð frá
Skógai’koti í Þingvallasveit, 80 ára.
Patmore’s áreiðanlega útsæði, tré, smáyiður, plöntur
SAMSAFN NO. 1.
Samanstendur af 22 tegundum af voru áreiðan.
lega kál útsæði í pökkum og únsum. 2% pd.
af útsæði þessu fyrir $1.25, burðargjald borgað.
SAMSAFN NO. 2.
15 pakkar af áreiðanlegu útsæði fyrir 25 cents,
burðargjald borgað.
SAMSAFN FYRIR BÆNDUR NO. 3.
Samanstendur af: 1 jmnd Mangel, 1 pd. Sugar
Beet, 1 pund Stvede, % pund Carrot, Vs pund
Kale og 4 pund Raj>e — í alt 8 pund, fyrir
$3.00, burðargjald boigað.
PERENNIAL SAMSAFN
Varanlegur gamaldags blómagaröur fyrir 75c.
Frá Hávöxnum Hollyhocks og Foxgloves, til
liinna lágt'ættu Forget-me-not, mun þetta
blómasafn blómgast hvað eftir annað á hverju
ári liangað til seint á haustin. í safni þessu
eru einnig blóm sem þessi:—Iceland Pojijiy,
Sweet William, Pinks, Canterbury Falls og
mörg önnur.
20 pakkar, burðargjald borgað.......75c.
(Vanaver® $1.50)
BLÓMASAFN FYRIR SKÓLAGARÐINN.
55 pakkar af beztu blóma tegundum og marg-
víslegum kál.ávöxtum
fyrir ........... $1.00, burðargjald borgað
Skrifið í dag eftir
Verðskrá vorri fyrir 1917
í lienni er listi yfir allar þolbeztu og áreiðanleg.
ustu káhnatar og blóma útsæðis tegundir, yfir
aldini, trjávið, smávið, grös, fóður tegundir
ýmsar og útsæðis kartöplur.
Með mörgum og góðum myndum og útskýring-
um sáning og öðru viðvíkjandi.
Fyrir $10 meðfylgjandi borgun með pöntun-
inni sendum við .burðargjald borgað,
til hvaða staðar sem er:
50 Currant og Gooseberry Bushes, beztu tegund.
100 Raspberry Plants, beztu mismunandi tegruadir
12 Plum og Fruit tré, ung og hraust tré, 2 til 3
fet á hæfc, og 12 Rhubarb rœtur.
Alt ofantalið fyrir ......................$10.00
Vér höfum ræktaö í blóma húsum vorum og
bjóöum til sölu—
500,000 Caraganas, 1 til 3 fet á hæö.
255,000 Native Maple, 1 til 3 fet á hæö.
6,000 Ontario Mapie, 2 til 6 fet á hæö.
12,000 Native Ash, 1 til 8 fet á hæö.
150,000 Russian and other poplar, allar stæröir.
50,000 Lilac, 1 til 3 fet á hæö.
115,000 Russian Goldcn Willow, ailar stærölr.
5,000 Crab apple and Plum Trees. og stórt upp-
lag af þolgóöum aldinum, fögrum smávtö.
plöntum, o.s.frv.
Vér ernm útMÖlumenn fyrir MeMMrK. Sutton
A Sonm, hÖ Heading á KCngrlandi. Vér IÍMt-
nm f verÖMkrA vorri hiÖ heimMfrægra AtMaeÖl
|>eMMa félagM — Melt f lokuöum pökkum
iyrir 10 eent hvern.
The Patmore Nursery Co., Ltd., “skatoonmsask.
22—26
Patmore Nursery Co. Ltd„ Brandon.
Please send me Collection No
as advcrtised in The Heimskringla, for which
I enclosc $..........................
NAME ................................
ADDKESS..............................
Fjallaferð.
Lífið er krókótt fjalla ferð,
full af kolsvörtura dröngum ljótum,
svcllbunkum, klungrum, kömbum,
gjótum,
klóbeittum örnum, hrafna mcrgð;
hættan þar sérhver liótar dauða,
húngur og kuldi sækir snauða —
lirapaðir fram af hárri snös
hálfdauðir liggja þeir í kös.
Soltnir liræfuglar naga ná, —
nfðingar sjúga merg og blóðið,
seitlar um löndin synda flóðið,
sálina byrgir þoka grá.
Nötrar loftið af neyðar kveini,
náhljóðum heljar og dauðaveini,
angistar stunum, ekna grát —
eiginmanns við og sona lát.
Erlendis leiftrar 'lýðum hjá
lastmælgi, svikin, tál og slaður;
sérhver er talinn mcrkisinaður,
mest sein að öðrum níðist á, —
hálfum sem stelur heimsins friði,
hatast við guð og manna siði,
svívirðir konur, brennir bygð,
þarnanna gleði snýr f hrygð.
Keisarans ef l)ú kyssir fót,
krýpúr við presta veldivsstólinn,
má þá vcra að sælu sólin
sendi þér geisla’ um áramót;
hæpið er þessu þó að treysta.
þar féir nokkurn hlýjan neista.
Berðu þig vel og blástu í kaun —
biddu drottinn um sigurlaun.
Þetta er dýrðleg fjalla ferð,
fegurðin krýnir hæsta tindinn;
útsýnið byrgir ekki syndin,
oftast er liún I laynl gerð.
Má þó vera þeir sjái sora,
sé þar nærri þeim kletta skora, —
heimti þá snæri og hengi sig,
hcimsins svo feti ei glæpastig.
Hraun karl
Verðlagsskráin nýja
1. Hvernig hún á að finnast.
A alþingi er lagafrumvarp á ferð
inn, sem mætti nefna frumvarpið
um vcrðlagaskrána nýju. Það fer
fram á að gjalda cmbættismönnuin
og sýslunarmönnum landssjóðs
kauj) l>eirra eftlr landaurareikningi
frá þessa árs byrjun og framvegis,
en kaupið á að greiðast f peningum.
Aðal hugmyndin í frumvarpinii er
að hver verkamaður iandssjóðs eigi
að geta keypt sömu lífsnauðsynjar
og sömu þægindi, sem þeir gátu
veitt sér áður en alt steig svo mjög f
verði, sem nú er orðið. Til þess að
fá grundvöll undir breytinguna skal
Hagstofan gera yfirlit yfir laun allra
starfsmanna landsins sfðustu 20 ár-
in á undan 1914, eða frá því embætt-
ið eða starfið var stofnað. Hverjum
launuin skal síðan skift með meðal-
álnar verði í verðlagsskrá hvers árs
til þess að fá út álna upjihæð laun-
anna hvers einstaks árs. Álna tal-
an er síðan lögð saman, og lienni
skift með 20 ef starfið er svo gamalt,
en annars með jafn inörguin árum
og það hefir að baki sér, sé það
yngra, og þá fæst iit* meðalálnatal
launanna, sem starfinu eru lögð. —
Þvf næst skal liagstofan gera verð-
lagsskrá fyrir árið 1916 og er stjórn-
arráðinu heimilt að ákveða, að taka
sktili fleiri vörutegundir upj> í verð.
lagsskrána, en verið hefur, eða fella
úr. Eftir þessari verðlagsskrá skal
reikna landaurakaup starfsinanna
til peninga og gjalda í ínynt næsta
ár (1917) og svo koll af kolli.
Séu síðar ákveðin laun nýrra
starfsmanna eða breytt eldri laun-
uin skulu þau ákveðin í landaurum.
II. Andi allra launalaga.
er það, að maðurinn sem borgunina
á að fá. geti aflað sér vissra nauð-
synja og lífsþæginda, svo iiann geti
lifað eins og ínanneskju sæniir. Pen-
ingarnir eru aldrei annað en ávísun
á þessar nauðsynjar eða þægindi.
Enginn klæðir sig í peningana
sjálfa, enginn gctur borðað þá. Þeir
eru aðeins girnilegir vegna þess, sem
fyrir l>á fæst. 10 kr„ í jieningum
voru um aldamótin meðal annars
ávísun á 13 pd. af smjöri, nú eru
þær ávísun á liðug sex pd. Ef ung-
ur prestur var að sitja bú um alda-
mótin síðustu og ætlaði að verja
einum þriðja af árslaunum sínum
(1300 kr.) til að koma upp ám, þá
voru 100 kr. ávfsun á 6 ær í fardög-
úm, líklegast 7. Nú fær hann út á
sömu ávísunina 2 ær í fardögum og
einn fjórða jiart úr þeirri þriðju.
Svona dæmi má taka hvert á fætur
öðru, sem sýna að gamla ávísunin
á lífsnauðsynjar og lífsþægindi er
að eins tekin með mestu afföllum í
daglega lffinu, og efnir alt annað en
hún lofaði, þogar launalögin, sem
nú gilda voru samin.
Verðlagsskráin nýja leiðréttir
þetta — ef hún verður lög — að eins
að nokkru leyti. Til þeas að komast
niður á fastan grundvöll á að taka
20 ára meðaltal af laununum og
byggja hana þar ofan á. Vlð það
vcrður álnatalan f laununum lægri
en vera ber. Fná 1900 til 1914 hefir
verðlagsskráralinin ávalt smá liækk.
að yfirleitt, svo allnin í cmbættis-
laununum fyrir 1914 hækkar ávalt
og ákveðin f álnum verða þau alt af
lægri og lægri. Hverjar 100 kr. í
embættislaununum 1898 voni hér
um bil 200 al„ hverjar 100 kr. í sömu
laununum 1914—15 verða hér um bil
100 álnir, og í 20 ára meðaltalinu,
senj allar síðari verðlagsskrár ættu
að hyggjast á, yrðu þessar 200 al. frá
1898 cinhverstaðar nálægt 175 álnum.
Á launum sem liafa færri ára meðal-
tal, eða eru ákveðin fyrir færri árum
en 20, yrðu 100 kr. í laununum að i
lægri álnatölu 175. Hjá þvf mætti [
komast að miklu leyti með því að
láta verðlagsskrána vera reiknaða
fyrir 30 ár án tillits til þess, livenær
embættið eða starfið væri stofnað.
Eg hefi lesið einhversstaðar, að
begar launin fyrir landsstörfin væru
svo há, að eitthvað gengi af — yrði
lagt upp, með öðrum orðum, þyrfti
slfk verðlagsskrá ekki að ná til af-
gangsins; það er án efa sprottið af
þeim skoðunarmáta, að peningar
séu gæði í sjálfum sér„ en ekki ávfs-
un á lífsnauðsynjar eða lífsþægindi.
Afgangurinn á að vera hinn sami á
lífsnauðsynjum og þægindum livert
sem nafnaverð þeirra er í peningum.
Sá hluti á líka að reiknast eftir verð-
lagvsskránni.
ðleð þessari verðlagsskrá tajia
starfsmenn landssjóðsins í hlutfalli
við það, sem þeir einu sinni höfðu
úr að spila, vegna þess, að 20—30
ára meðalálnatalið í launum þeirra
verður ávalt iægra gjört upp fyrir
1914 en það var fyrir fullum 20—30
ámm. En livað er sá skaði móts
við öll ókjörin, sem yfir það fólk
hafa dunið sfðari ár. Fjöldi af starfs.
mönnum landssjóðs bíður þeirra
ára aldrei bætur. Verðlagsskrár-
frumvarpið er sporið í rétta áttina.
Það er að halda launalög, en ekki
að brjóta þau, eins og landlæknir
skrifaði fyrir mánuði liðnum. Þá
hækka launin í krónutali lvegar lífs.
nauðsynjar stíga í verði, og lækka í
krónutali þegar þær falla aftur í
verði.
Mín meining með slíkri verðlags-
skrá er að landsmenn verði f þcssu
tilliti forgönguþjóð annara — þeir
hafa verið það áður. Þeir gáfu öll-
um heiminum gott eftirdæmi með
því, hvernig þeir lögleiddu kristni.
Þeir námu fyrstir allra siðaðra
þjóða einvígi úr lögum. Þeir urðu
fyrsta þjóðin í Evrópu sem gengu
undir allsherjarfriðinn. Þeir vom
fyrsta þjóðin í Evrópu, sem komu á
— með samþykki konungs síns —
algerðum bannlögum hjá sér. 1 öll
þess skifti hafa þeir vikið út af
brautinni, sem þeir liöfðu gengið
áður. Ef þeir tækju upp verðlags-
skrána um að reikna kaup starfs-
manna landssjóðsins eftir landaru-
uin, sem nú liggur fyrir alþingi,
yrðu þeir að öllum likindum for-
göng Jjijóð með því að ganga aftur
inn á braut, sem þeir hafa farið
mestan hluta þess tíma, sem landið
hefir verið bygt.
(ísafold)
Indr. Einarsson
KAUPIÐ
Heimskringlu
Nýtt Kostaboð
Nýir kaupendur aö blaöinu, sem senda oss
fyrirfram eins árs andvirði blaðsins, oss að
kostnaðarlausu, mega velja um þRJÁR af
af eftirfylgjandi sögum í kaupbætir :
bylvia Lara
‘Hin leyndardómsfullu skjöl" “Ljósvörðunnn ’
’Dolores” “Hver var hún?’
Jon og Lara Kynjagull
’Ættareinkennið”
“Bróðurdóttir amtmannsins ’
Sögusafn Heimskrínglu
Eftirfarandi bækur eru til sölu á Heimskringlu, — með-
an upplagið hrekkur. Sendar póstfrítt hvert sem er:
Sylvía .............................. $0.30
Bróðurdóttir amtmannsins ........... 0 30
Dolores .............................. 0.30
Hin leyndardómsfullu skjöl............ 0.40
Jón og Lára .......................... 0.40
Ættareinkennið........................ 0.30
Lára.................................. 0.30
Ljósvörðurinn ........................ 0.45
Hver var hún? ........................ 0.50
Kynjagull ............................ 0.35