Heimskringla - 29.03.1917, Blaðsíða 4
4. BLS.
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 29. MARZ 1917
HEIMS K RIN GrLA
(Stofnnn 188«)
Kemur ðt á hverjum Fimtudegl.
Otgefendur og eigendur:
THB VIKISíG PRBSS, LTD.
Verfl blahsins i Canada og Bandarikjun-
am $2.00 um árlb (fyrirfram borgati). Sent
tll Isiands $2.00 (fyrirfram borgaO).
Allar borganir sendist rábsmannl blab-
•ins. Póst eba banka ávisanlr stýlist til The
Vlktng Press, Ltd.
O. T. Johnson, ritsjóri.
8. D. B. STEPHANSON, ráBsmabur.
Skrlfstofa:
X29 SHERBROOKE STREET., WINNIPEG.
P.O. Box 3171 Talslml Garry 4110
Tákn tímanna.
Stjórnarbyltingin, sem nýlega er afstaðin
á Rússlandi, hlýtur að hafa haft vekjandi á-
hrif á alla hugsandi menn. Þjóðin á Rúss-
landi losar sig á fáum dögum undan strang-
asta einveldi, sem þjáð hefir hana í margar
aldir, og verður frjáls þjóð. Lýðfrelsishug-
sjónir koma í stað kúgunar. Harðstjórnin
líður undir, lok, en umbótaöflin, sem legið
hafa í dái hjá þjóðinni, vakna og taka til
starfa.
Frá fyrstu tímum hefir keisarastjórnin
rússneska verið orðlögð fyrir kúgun og harð-
stjórn. Engin stjórn hefir leyft sér annað eins
og hún. Fyrir engar sakir hefir hún hnept
einstaklinga þjóðarinnar í æfilangt fangelsi,
ef þeir voru andvígir stjórninni í skoðunum.
Engin er furða, þó Rússland hafi frá fyrstu
tíð verið land stjórnleysingja — anarkista og
níhilista.
ef einstaklingar þeirra eru samhuga og vinna
í sameiningu.
Og þetta verður ekki eina stjórnarbylt-
ingin í löndunum. Næsta stjórnarbyltingin
verður ef til vill á Þýzkalandi, enda væri þess
ekki vanþörf.
Á friðartímum er þó einveldisstjórn
Þýzkalands öðru vísi farið en einveldinu var
á Rússlandi. Það er ekki þekt fyrir aðra eins
harðstjórn og kúgun. Á friðartímum er
keisarinn á Þýzkalandi ekki með öllu einn í
ráðum. Ekki fyr en á ófriðartímum er hann
í orðsins fylsta skiiningi einvaldur. En. þá
verður hann líka þjóðarinnar höfuð og hefir
allan herinn til að framfylgja boðum sínum.
—Var nokkuð að undra, þó núverandi keis-
ara Þýzkalands væri umhugað um að til stríðs
| kæmi? Ekki þarf að skýra lesendunum frá
harðstjórn þeirri og kúgun, sem átt hefir sér
stað á Þýzkalandi, síðan stríðið hófst.
Þingbundin konungstjórn, eins og t. d. á
Englandi, hefir reynslan sýnt affaragóða
fyrir land og þjóð. Þjóðin getur verið frjáls
og sannar lýðfrelsishugsjónir geta þróast und-
ir slíku stjórnarfyrirkomulagi. Og með
fengnu frelsi vakna fyrst umbótaöflin hjá
þjóðunum. Aukið frelsi er ætíð fyrsta sporið
í framfaraáttina.
Þjóðin á Rússlandi er nú á góðum vegi.
Ef gott samkomulag ríkir hjá henni og
kraftar hennar vinna í sameiningu að vel-
ferðarmálum öllum, þá verður þjóð sú talin
áður langt um líður ein af mestu framfara-
þjóðum heims. Á harðstjórnarárum Rúss-
lands þróuðust þar bókmentir og listir, en nú
mun slíkt eflast um allan belming. Framtíð-
m brosir nú björt og fögur við Rússlandi.
Keisarastjórnin á Rússlandi var annað
meira en keisarinn. f kring um keisarann var
margfaldur hringur af aðalsmönnum og titl-
uðum æðrilýð. Mestallur auðurinn í landinu
var í höndum þessara manna, því frjáls verzl-
unarsamkepni hefir ætíð átt við ill kjör að
búa á Rússlandi. Og þessir æðrastéttar auð-
mæringar voru mennirnir, sem keisarinn til-
nefndi í stjórn með sér. Þetta var heildin,
sem ásamt keisaranum réði lögum og lofum
í landmu.
Fultrúaþingið, sem stofnsett var 1905,
reyndist að eins til málamyndar. Tilraunir
þessara þjóðarfulltrúa í umbótaáttina voru
flestar bældar niður. Ef í harðbakka sló
milli þeirra og keisarastjórnarinnar, þá var
vanaiega úrræði hennar, að uppleysa þingið.
Þó hefir þetta átt stóran þátt í að vekja
þjóðina. Þjóðin kaus sjálf þess fulltrúa á
þing og stór hluti hennar hefir hlotið að fylgj-
ast með baráttu þeirra. Barátta þessi var
heldur ekki alveg þýðingarlaus, því í sumum
málum fékk þingið töluverðu góðu til leiðar
komið, þótt það “takmarkaði’ ekki nema
að nafninu til veldi keisarastjórnarinar.
Er stríðið skall á, tók keisarastjórnin að
sjálfsögðu vöidin í sínar hendur. Lengi vel
virtist umheiminum henni farast stríðsstjórn
ö!l ákjósanlega vel úr hendi. Með því að
skrifa nafn sitt undir skjal eitt, fyrirfór keis-
arinn Bakkusi í öllu landinu og vínbann komst
á á Rússlandi Hér framkvæmdi rússneska
einveldið það þrekvirki, sem seint mun gleym-
ast, — kom því til leiðar á einum degi, sem
tekur marga áratugi að framkvæma í lýð-
veldislöndunum.
En umheimurinn vissi lengi vel ekki um
ástandið á Rússlandi, eins og það í raun og
veru var. Vissi ekki um, hve öflug áhrif
Þjóðverja voru á meðal æðri stétta landsins.
Stöku fréttir tóku samt að berast í önnur lönd
þegar frá leið, sem vöktu grun manna. En
það var ekki fyr en við fréttirnar í vetur um
morð Rasputins munks, að grunur annara
þjóða um áhrif Þjóðverja á Rússlandi varð
á nokkrum verulegum rökum bygður.
Enginn maður á Rússlandi hafði meiri
áhrif á meðal höfðingjalýðs og aðalsmanna,
en Rasputin munkur. Áhrif hans náðu alla
leið til keisarans sjálfs. Þjóðverjar voru ekki
lengi að festa augun á manni þessum og sjá
hvílíkur dýrgripur hann gæti orðið fyrir þá,
ef þeir gætu náð honum á sitt band. Með
einhverju móti hepnaðist þeim þetta. Eftir
þetta urðu þó ekki áhrif Rasputms munks
langvinn. Áreiðanlega stóðu einhverjir
frjálshugsandi menn á Rússlandi á bak við
morð hans. Var þetta viðvörun þeirra í
garð stjórnarinnar.
En stjórnin tók viðvörun þessa ekki hót
til greina, og alt fór versnandi. Stríðstjórn
öll var farin að ganga í handaskolum í seinm
tíð og matarskorturinn í landinu var alt af
að aukast. Þó stafaði ægilegasta hættan af
áhrifum Þjóðverja á stjórnarráðherrana ýmsu
og æðri lýðinn.
Þjóðin tók því ráðin í sínar hendur og
bylti keisarastjórninni úr valdasessi. Þjóð-
inni varð þetta mögulegt, af því sama frelsis-
þráin brann í huga og hjarta allra—her-
mannanna, þingmannanna, og alþýðunnar.
Sýnir þetta, hve miklu þjóðirnar geta áorkað,
SYAR
Dr. Guðmundar Finnbogasonar.
Dr. Guðmundur Finnbogason á þökk allra
Islendinga skilið, sem hérna megin hafsins
búa, fyrir ritgerðina “Vestur-Islendingar” í
síðasta Skírni. Eftir allan vaðalinn hér vestra
um hinn nafntogaða fyrirlestur séra Magn-
úsar Jónssonar, er hressandi að lesa þetta
drengilega svar Dr. Guðmundar.
Flest af því, sem birzt hefir á prenti hér
vestra um fyrirlestur þenna, hefir verið mjög
bágborið. Stöku menn hafa þó þorað að
koma fram í dagsljósið með skýrt og skorin-
ort álit á fyrirlestrinum. Flestir hafa þó ver-
ið eitthvað hikandi, eins og þeim fyndist
þeir ekki vera á traustum ís. Þeir hafa sleg-
ið úr og í, hælt fyrirlestrinum í öðru orðinu
en átalið hann í hinu. Þeir hafa snoppung-
að éra Magnús ögn á vinstri kinn—og svo
hlaupið upp um hálsinn á honum strax á eftir
og kyst hann á þá hægri! Að líkindum hef-
ír þeim fundist þessi vígði prestur svo stór og
mikill fyrir handan hafið, ættjarðarást hans
v'era svo hrein og göfug, að þetta meira en
réttlæta kulda hans og hlutdrægni í garð
Vestur-Islendinga.
Einn þessara manna var svo tungu-lang-
ur, að líkja fyrirlestri þessum við “Lífið í
Reykjavík” eftir Gest Pálsson. Hér er þó ó-
Iíku saman að jafna. Gestur flutti fyrirlest-
ur sinn með fullri einurð fyrir framan Reyk-
víkinga sjálfa. Séra Magnús nýtur hér allr-
ar gestrisni, honum er hossað á allar lundir
af Vestur-íslendingum,—svo, þegar hann er
kominn í annað land, þegar heilt haf er á
milli hans og þeirra, eys hann sér yfir þá í
þessum fyrirlestn.
Nú kemur Austur-lslendingur fram á
sjónarsviðið, Dr. Guðmilhdur Finnbogason,
og svarar þessum austri prestsins. Hér er
tekið í alt annan streng, en Vestur-ísiending-
arnir svonefndu hafa gert; hér er ekki sleg-
ið úr og í og höfundur fyrirlestursins ýmist
barinn eða kystur,—hér er hann tekinn ræki-
lega í hnakkann. Ekki þó með stóryrðum,
heldur með rökfærslum og viti. Enda hafa
stóryrðin vanalega minst að segja.
Hér er líka sá maður, sem talar.af kunn-
ugleika og þekkingu. Á meðan hann dvaldi
hér vestra, ferðaðist hann í flesta þá staði,
þar sem Islendingar búa. Og Vestur-íslend-
ingum ætti að vera það gleðiefni, að hann
ber þaðan hlýjar endurminingar. Ekki þarf
langt að lesa í þessu svari Dr. Guðmundar
Finnbogasonar, til þess að finna bróðurhug
þann, sem hann ber í garð Vestur-íslend-
inga, og til þess að verða var við, að hér
er austur-íslenzkt drenglyndi að tala. Og
gullvægar bendingar eru hér gefnar, með
því markmiði, að stofna til bróðurþels og
vináttu á milli þessara tveggja þjóðarbrota,
Austur- og Vestur-Islendinga. Ef íslend-
ingar beggja megin hafsins færa sér bend-
mgar þessar í nyt, geta þær verið jafn-
blessunarríkar á báðar hliðar. Sé það t.d.
hagnaður fyrir Austur-Islendinga, að Vest-
ur-lslendingar kaupa bækur, tímarit og
blöð þeirra, þá er það engu síður hagnaður
fyrir Vestur-Islendinga, að bækur, blöð og
alt, sem gefið er út hér vestra, er keypt á
Islandi.
Ef séra Magnús Jónsson hefði flutt
þennan fyrirlestur sinn hér vestra, þá hefði
hann að minsta kosti komið fram sem
hreinlyndur drengur. Þá hefði mátt skoða
orð hans sem töluð af sannfæringarkrafti.
En þessu var ekki að fagna af hans hálfu.
Hann “safnaði engri sannfæringu”, fyr en
til íslands var komið!
Sá, sem elskar brcður sinn, talar ekki
um galla hans við aðra,—hann gerir það
við hann sjálfan. Vinur er líka sá, sem til
vamms segir. En ekki lýsir það vináttu,
þegar einhver segir öðrum frá vömmum
meðbróður síns, en þorir ekki að segja eitt
orð þeim viðvíkjandi við hann sjálfan. Líka
er hætt við, þegar rokið er með slíkt til
annara, að alt sé orðum aukið og meira og
minna ósannindi Enda á þetta sér fyllilega
stað í fyrirlestri sérá Magnúsar.
Frá hvaða hlið, sem fyrirlestur þessi
er skoðaður, er hann sterkt óvináttumerki
garð vor Vestur-íslendinga.
Alt stjórnarfar á að vera ihér spilt,
—en út yfir á )>ó að keyra livað nú-
verandi forsætisráðiherra í Canada
sé vitgrannur! Þannig á stjórn Sir
höfundarins hálfu og hve góð og;
gild rök hann styður með mál sitt.
Því er líka framkoma hennar fagn-
aðarefni ekki sízt öiium oss, sem að
Flokksblölin.
Enginn hugsandi maður mun halda því
fram, að flokksblöð hætti að vera til. Til-
vera þeirra er of nauðsynleg til þess.
Stjórnmál, eins og önnur mál, eiga margar
hliðar sem allar verða að takast rækilega
til íhugunar. En þó enginn fari fram á það,
að flokksblöðin hverfi úr sögunni, munu
margir krefjast þess, að þau taki breyting
um og geri tilraun til að fylgjast með mann
kyninu á framfaraskeiði þess. Krefjast þess,
að þau ræði flokksmál sín með gætni og
skynsemi; hætti að hlaupa eftir lygasögum
og flugufréttum og reyna þannig að sverta
flokkinn, sem andstæður þeim er, í augum
lesenda sinna.
Vér lifum nú á alvarlegum tímum.
Stórkostlegasta styrjöld, sem heimurinn
hefir séð, stendur nú yfir. Á yfirstandandi
tímum ríkir enn þá kolsvart myrkur ægileg-
asta stríðs yfir jörðinni, stríðs tveggja and-
stæðra afla—hervalds og Iýðfrelsis. Ein-
veldi hervaldsins verður að brjóta á bak aft-
ur með herafla og hreysti, þetta er óum-
flýjanlegt, — en lýðfrelsisandinn er þó á
vora hlið. Stjórnarbyltingin á Rússlandi
sannar þetta bezt af öllu.
Að stríði þessu loknu verða án vafa þær
stórkostlegustu breytingar í heiminum, sem
mannkynið hefir nokkurn tíma þekt. Eng-
inn maður, sem nokkuð hugsar, getur lifað
á þessum þýðmgarmiklu tímum, án þess að
sjóndeildarhringur hans víkki að mun og
andi hans þroskist meira og minna.
Til eru þó flokks-blöð hér í landi, sem
enga eftirtekt virðast veita yfirstandandi
tímum. Þau fylgjast ekki hót með þrosk-
un fólksins, og er því engin furða, þó að
margir séu orðnir dauðleiðir á þeim — og
það flokskmenn þeirra. Þau eru enn þá að
hjakka í sama farinu og fyrir mörgum tug-
um ára síðan. Eru enn þá að reyna að æsa
lesendur sína til flokksfylgis með einhliða
pólitisku gargi, án þess að gera nokkra til-
raun til að rökfæra mál sitt og ræða það
skynsamlega. Blöð þessi hafa þann sið enn
þá, að hlaupa á eftir ýmsum flugufréttum,
sem enginn fótur er fyrir, með því augna-
miði, að sverta andstæðingaflokkinn í aug-
um almennings.
I Lögbergi, sem út kom 8. þ.m., birtist
frétt á fyrstu síðu, sem tekin er upp úr enska
blaðinu “Nation”, sem gefið er út í Lund-
únaborg á Englandi. Segir Lögberg eitt
hvað í þá átt, að blað þetta sé mesta merk-
isblað og vinsælt. Annað blað hér í bæn-
um, málgagn Iiberala hér um slóðir, flutti
þessa sömu frétt, en fékk þó ekki varist
þess um leið, að segja blaðið “Nation” á
Englandi frekar lítilvægt blað. Á þessu má
sjá, að liberal blöðunum kemur ekki æfin-
lega saman.
Frétt þessi fjallar aðallega um Sir Ro-
bert Borden, forsætisráðherra Canada, sem
nú er á Englandi. Hún á að flytja dóm
helztu stjórnmálamanna á Englandi á þess-
um forsætisráðherra Canada, sem mætir nú
á fyrstu alríkis ráðstefnunni, sem haldin er
í brezka veldinu. Mætir þar sem fulltrúi
Canadaþjóðarinnar, hefir málfrelsi og at-
kvæðisrétt í öllum helztu málum alríkisins
brezka. Ráðstefna með slíku fyrirkomulagi
er ný í sögu Bretlands og afar þýðingarmikil
fyrir framtíð Canada.
En eftir frétt þessari að dæma, á dómur
brezku stjórnmálamannanna um Sir Robert
Borden að vera sá, að hann sé “vitgrann-
astur allra ráðherra”! Ef til vill sé hann
góðum hæfileikum gæddur, en þeir hæfi-
Ieikar njóti sín ekki,' af því hann sé svo vit-
grannur! Laurierstjórnin hafi að vísu ver-
ið spilt, en stjórn Sir Roberts Borden sé þó
spiltari, enda verði henni bráðlega vikið úr
valdasessi! Þetta er kjarninn úr frétt þess-
ar*- Þetta á að vera áht brezku stjórn-j
málamannanna á Sir Robert Borden og
stjórnarfarinu í Canada.
itjórnmálainönnunuTn brezku fyrir
að haifa staðið fyrir því að Canada
þjóðin legði fram háifa miljón her-
manna til að berja.st með brezku
hersveitunum á Fiakklandi og víð-
ar. Þetta á að vera þakklæti
þeirra og viðurkenning.
En slíkar fréttir, þó þær birtist
á fremstu síðu í Lögbergi, villa ekki
sýn nokkum skynberandi mönnum
nú á dögum. Allir þeir, sem nokk
uð fyigja-st með, vita um viðtökur
þær, sem Sir Robert Borden fékk á
Englandi í þessarj ferð sinni. Hann
hefir verið kosinn í árfðandi nefnd-
ir stjórnarinnar. Brezkir stjórn
málamenn hafa auðsýnt honum alla
þá virðingu, sem merkum stjórn-
málamanni sæmir.
Hvað það snertir, að hann sé af
brezkum stjórnmálamönunm álit-
inn “vitgrannur”, þá er slíkt ekki
svaravert. Ailir, sem til Sir Boberts
Borden þekkja,- vita, að hann er
viðurkendur að vera einn af mælsk-
ustu og vitrustu stjórnmálamönn
um hér í landi.
Ritstjórar, sem taka fréttir eins
og ofangreinda frétt, kasta ekki
skugga á neinn nema sjálfa sig.
Roberts Borden að vera þakkað af einhverju leyti erum við mál það
riðnir, sem hún fjailar um; en hún
er það líka eða ætti að vera öllum
þeim, sem langar til að geta áttað
sig á þessum ágreiningsmálum, er
standa í svo nánu sambandi við
þau hugðarefni, sem fjölda manna
eru hjartfóignust allra, trúmálin.
Sérstaklega á bók þess brýnt erindi
til presta og kennara, sem sam-
kvæmt stöðu sinni eiga að leiðbeina
öðrum til rétts skilnings á þessum
efnum, en hafa í þessu tilliti átt svo
erfitt aðstöðu, að vantað hefir
handhæg hjálparmeðul á vora
tungu. Þess vegna bætir bók þessi
úr verulegri þörf, og enginn, sem
bókina les, er iengi að ganga úr
skugga um, að þar hefir hann feng-
ið góðan leiðbeinanda og lærðan,.
sem höfundurinn er. Því að alstað-
ar skín fram yfirburða þekking höf-
undarins á þeirn efnum, sem hann
er að rita um, og rétt óvenjumikill
kunnugleiki hans á öllu því merk-
asta af vísindalegum guðfræðirit-
um, sem út hafa komið með stór-
þjóðunum, iþeim er fyigja trú mót-
mæienda, á síðari árum. Það sýna
bezt hinar mörgu og nákvæmu til-
vitnanir í merk guðfræðileg vís-
indarit neðanmáls, svo að segja á
hverri blaðsíðu bókarinnar.
Bókin sjálf er í tólf köflum og er
hver kafli um leið ritgerð út af fyrir
sig, þótt náið samband sé á milli
þeirra hins vegar. Og í hverri rit-
gerð er jafnframt haft—venjulega að
niðurlagi—eitthvert tillit til þeirra
skoðana, stundum alifáránlegra,
sem komu fram af hendi afturhalds-
guðfræðinnar í deilumálunum með-
al landa vorra vestra.
Fyrirsagnir þessara tóif ritgerða
segja til um aðalefni bókarinnar.
En iþær eru þessar: I. Gömul guð-
fræði. II. Nútíma-guðfræði. III.
Biblíurannsóknir að forun og nýju,
IV. Skoðanir Lúters um biblíuna.
V. Trúarskoðanir þjóðar vorrar. VI.
Sýnódu-guðfræðin og kirkjufélagið,
VII. Deilan um biblíuna. VIII.
Kenningin um innblástur biblíunn-
ar. IX. Trúarvitundin. X. Trúar-
játningarnar og kenningarfrelsi. XI,
Trúvillukæran. XII. Ávinningur-
inn.
Aftan við þessar ritgerðir eru á
rúmum 80 blaðsíðum þéttprentuð-
um og með smáletri “Fylgiskjöl”'
snerfcandi vestur-íslenzku deilumál-
in. Mest þeirra skjala er “Fram-
burður prestanna fyrir rétti.”
Því miður leyfr ekki rúmið, sem
mér er afskamtað hér, að farið sé-
ítarlega út í efni hvers einstaks
kafla bókarinnar, svo feginn sem eg
hefði viljað. Þó eru þar tvær rit-
gerðir. sem eg einkanlega vildi vekja
athygii á fyrir þá sök, að um þau
efni, sem þar ræðir, hefir mér vitan-
lega ekki verið skrifað neitt á ís-
ienzku fyrri.
Annað er ritgerðin “Skoðanir
Lúters um biblíuna”. H.ítt “Trúar-
skoðanir þjóðar vorrar.”
í fyrri ritgerðinni er gerð ítarleg
grein fyrir allri afstöðu hins mikia
siðbótarhöfundar til heilagrar ritn-
ingar. Sú ritgerð er ekki sízt tfma-
bær nú, er fjögra aida minning lút-
ersku siðbótarinnar stendur fyrir
dyrum, og þess andans mikilmenn-
is er að minnast,er valdið hefir einni
af mestu og mikilsverðustu bylting-
um í sögunni og var í flestum grein-
um svo iangt á undan sínum tíma.
En því næst er hún einkar tímabær
fyrir þá sök, hversu afturhalds-guð-
fræðin hefir tekið sér einmitt Lúter.
til inntekta i deilunni gegn fram-
“ Trú og þekking/’
Friðrik J. Bergmann: Trú og
þekking. Gömul og ný guðfræði.
Deilan um biblíuna og málaferlin,
sem út af henni risu með Vestur-ís-
iendingmn. Reykjavík 1916. 355 bls.
Verð 3.00.
Eins og titill bókar þessarar ber
með sér, þá er hún til orðin út af
hinum kirkjulegu deilum, sem stað-
ið liafa með löndum vorum vestan
hafs á síðari árum. Hún er eins
konar málskjal til sóknar og varnar
í því máli, en að því leyti frábrugð-
in venjulegum málskjölum, að luin
er lögð fram eftir að dómstólarnir
hafa fjailað um málið. En hún er
meira en málskjal í þessu vestur-
íslenzka deilumáii. Hún er jafn-
framt og aðallega málskjal til sókn-
ar og varnar í niálinu: gamla guð-
fræðin gegn nýju guðfræðinni, eða
afturhaldsguðfræðin gegn fram-
sóknar-guðfræðinni — þessu mikla
deilumáli, sem staðið hefir yfir í
heimi mótmælendakirknanna allan
síðasta mannsaldur og stendur yfir
enn. Að þessu leyti fyrst og fremst
á bók þessi einnig erindi til vor
hérna megin hafsins og )>að brýnt
erndi, svo erfitt sem mörgum veitir
að átta sig á þessum miklu deilu-
málum og taka afstöðu til þeirra.
Það meginatriði málsins, sein bók
þessi fjallar um svo að segja frá
upphafi tii enda, er þetta: Getu
framsóknar-guðfræðin nýja sam-
rfmst kristinni trú, svo að hún eigi
með réttu heimilisfang innan kirkju
Jesú Krists yfirleitt og innan evan-
gelisk-lúterskrar kirkju sérstaklega.
Markmið bókarinnar j>r að leiða rök
að því, að svo sé. Framsóknar-guð-
fræðin geti í alla staði samrímst
kristnu trúnni og sé að réttu lagi
guðfræði hinnar elztu kristnu trú-
ar. Ilún eigi því engu síður heimil-
isfang innan kirkjunnar en aftur-
iralds- eða gamla guðfræðin, sem
þar vilji annars ráða lögum og lof-
um. Og um fram alt eigi hún heim-
ilisfang innan þeirrar kirkjudeild-
ar, er kennir sig við Lúter, þar sem
hún sé allri guðfræði fremur í anda
hins mikla siðbótarhöfundar.
Nauinast mun nokkur maður geta
lesið bók þessa svo, að það dyljist
honum, hve til hennar er vandað af
(Framh. á 5. bls.)
Sendið Heimskringlu
til hermanna á
Englandi og Fraklandi
K0STAR AÐ EINS 75 CENTS I 6 MANUÐI
eða $1.50 I 12 MANUÐI.
Þeir, sem vildu gleðja vini sína eða vandamenn í skot-
gröfunum á Frakklandi, eða í herbúðunum á Englandi,
með því að senda þeim Heimskringlu í hverri viku, ættu
að nota sér þetta kostaboð, sem að eins stendur um stutt-
an tíma. Með því að slá einum fjórða af vanalegu verði
blaðsins, vill Heimskringla hjálpa til að bera kostnaðinn.
Sendið oss nöfnin og skildingana, og skrifið vandlega
utanáskrift þess, sem blaðið á að fá.
THE VIKING PRESS, LIMITED.
P.0. Box 3171. 729 Sherbrooke St., Winnipeg