Heimskringla - 05.04.1917, Page 4
4. BIÆ.
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 5. APRÍL 1917
HEIMSKHINGLA
(Stofnnll 1W«I>
Eemur út ú hverjum Flmtudegl.
©tgefendur og elgendur:
THE VIKING PRESS, LTD.
VerB blaflslns I Canada op Bandarlkjun-
um $2.00 um árib (fyrirfram borgrab). Sent
ttl Islands $2.00 (fyrtrfram borgab).
Allar borftanir sendist rálismanni blaí-
slns. Pdst eSa banka ávísanir stýlist tll The
Vlklng Press. Ltd.
O. T. JOHNSOX, rltstjörL
8. D. B. STEPHANSON, rábsmatiur.
Skrlfstofa:
TM SHEItBltOOKK STKEET., WINNIPBG.
P.O. Boi 3171 Talslml Garry 4110
Islenzku hermennirnir
Hér áður fyrrum hefði þótt nýlunda mik-
il, að sjá íslenzkan hermann. Ekki munu
fyrstu íslenzku frumbýlingarnir hér í landi
hafa haldið það, að niðjar þeirra myndu ger-
ast hermenn í hundraða tali og taka þátt í
þeirri ægilegustu styrjöld, sem heimurinn
hefði séð. En þessi hefir þó raunin á orðið.
Á annað þúsund Islendingar hér í landi eru
nú í hermanna fötum. Sumir þeirra berjast
nú á vígvöllum Frakklands og annars staðar,
aðrir eru enn við aefingar — og nokkrir eru
fallnir.
Þessir menn hafa allir sýnt, að þeim sé
engu síður umhugað um að verða vel við
borgaralegum skyldum sínum, en hérlendri
þjóð. Þeir hafa sýnt, að þeim sé engu síð-
ant um frelsið og fósturlandið, og séu jafn-
vel fúsir til að leggja lífið í sölurnar fyrir
sína nýju fósturgrund. Stærri skerf getur
enginn lagt fram í þarfir neins málefnis, en
þetta. Þessir menn hafa sýnt umheiminum,
að enp er dáð og dugur í Islendingum, ef á
reynir.
Allir buðu þeir sig fram sjálfviljuglega.
Um enga þvingun var hér að gera. Öllum
var þeim líka kunnugt um það, að líf her-
mannsins er oft annað en leikur,—en slíka
smámuni óttuðust þeir ekki hið minsta.
Margir þeirra voru þó ekki vanir erfiðisvinnu;
voru áður námsmenn, kennarar, lögmenn —
úr slíkum efnisvið hafa verið smíðaðir harð-
snúnustu hermenn. Og eins og vant er, hef-
ir Islendingunum verið sýnt gott tiltraust.
Eiim þeirra stýrir nú heilli herdeild, Capt. H.
M. Hannesson, og ótal margir aðrir íslending-
ar eru yfirliðar.
Forfeðurnir voru hinir herskáustu og lágu
ekki á liði sínu, ef til vopna kom. All-mikið
mun vera gert úr frægð þeirra í fornsögunum,
en óhætt má að trúa því, að þeir hafi kunnað
vel til allra íþrótta og alls hernaðar. Þeir
lifðu á þeim tímum, þegar þetta var nauðsyn-
legt skilyrði að allri lífsánægju og vellíðan.
Enginn gat þá óhultur Iifað, sem ekki kunni
vel vopn að bera og var óhræddur að berjast,
ef þörf bar undir. — Og þessir sömu tímar
virðast runnir upp aftur í heiminum. Nú eru
engar þjóðir óhultar, hvað stórar sem þær
eru, nema þær eigi nógu marga einstaklinga,
sem viljugir séu til að berjast fyrir þær og
málefm þeirra. Þannig verður því varið, á
meðan stríð þetta stendur yfir og kannske
lengur.
Stríðin eru það djöfullegasta, sem átt get-
ur sér stað í heiminum. Myrkur böls og eyði-
leggingar er þeim ætíð samfara. Þau eru
svartasti bletturinn á mannkynssögunm. En
þau eru óumflýjanleg, af því þjóðirnar
stærstu, sem á jörðunni búa, standa á svo
misjöfnu menningarstigi. Það er ónóg, að
ein eða tvær þjóðir, eins og t.d. England og
Bandaríkm, fjarlægist hernaðar hugsunina og
stríðsandan, — ef aðrar stórþjóðir, eins og
t. d. Þjóðverjar, eru í laumi að Hervæðast,
með því augnamiði, að geta með hjálp her-
valdsins drotnað yfir öllum heimi. AUar
þjcðir heims verða sameiginlega að leggja
vopnin niður, ef verulegur og varanlegur
alheims-friður á að komast á. En að
þetta verði, virðist eiga langt í land enn þá.
Mikið er þó undir því komið, hvernig núver-
andi stríð endar. Lýðfrjálsu þjóðirnar berj-
ast á vora hlið, og ef þær sigra, sem má til að
verða, er stórt spor stigið af mannkyninu í
friðaráttina.
Enda munu allar siðaðar þjóðir heims þrá
þann dag, að allsherjar friður komist á í heim-
inum og þjóðirnar hætti með öllu að búa
sig undir stríð. Reynslan hefir sýnt, að
“vopnuðum friði” er ekki treystandi. Undir-
búningur undir stríð leiðir til stríðs fyr eða
síðar. En, eins og eg hefi þegar bent á, er
ekki nóg, að ein þjóð hætti að hervæðast og
geri tilraun til að komast á hærra þroskastig
andlega. Þetta, meira að segja, getur orðið
stórhættulegt fyrir hvaða þjóð sem er. Ef
Frakkar hefðu ekki verið eins vel viðbúnir og
þeir voru, þegar Þjóðverjar gerðu sína miklu
árás á þá í byrjun stríðsins, þá væri Frakk-
land nú í höndum þýzkrar stjórnar.
Englendingar hafa liðið mestan baga við
það í þessu stríði, hvað þeir voru illa undir
það búnir á Iandi. En sjóflotanum brezka.
öflugasta sjóflotanum í heimi, eigum vér það
að þakka, að Þjóðverjar eru nú ekki stjórn-
endur meiri hlutans í Evrópu.
Eins og nú er komið, er ekki um annað að
gera, en brjóta hervaldið á bak aftur með
vopnum og herafla. Þótt vér séum andstæð-
ir stríðum og hötum þau, hljótum vér að sjá
þetta og viðurkenna. Og íslenzku hermenn-
irnir hafa gert meira en viðurkenna þetta í
orðum, þeir hafa viðurkent þetta í verkinu.
Vér, sem heima sitjum, getum líka gert meira
en tala. Allir geta ekki barist á vígvellinum,
en allir geta þó hjálpað á einhvern hátt. Svo
ótal margt þarf að gera. Þjóðin þarf líka að
undirbúa heimkomu hermannanná að stríðinu
I loknu. Hún þarf að vera við því búin, að sjá
| um þá, sem heim koma særðir og limlestir.
i Annað má hún ekki láta um sig spyrjast.
j Einnig þarf að sjá um eiginkonur og börn
þeirra hermanna, sem fallið hafa. Konur þess-
ar, sem orðið hafa svo miklu á bak að sjá,
og börn þeirra mega ekki skort líða.
Flestir Vestur-Islendmgar munu hugsa
með tilhlökkun til heimkomu íslenzku her-
mannanna. Hugur vina og vandamanna hef-
ir dvalið hjá þeim á þeirra langa ferðalagi og
mun því verða sannnefndur fagnaðarfundur,
er þeir koma heim aftur. Þessir menn munu
' líka heim koma töluvert breyttir frá því, sem
I áður voru. Sjóndeildarhnngur þeirra verður
víðari, Iífsreynsla þeirra verður meiri. Her-
lífið hefir gert þá að hraustari mönnum en
áður, það hefir stælt vöðva þeirra og hert
líkama þeirra. Við heimkomuna mun lífið
brosa við þeim eins og töfrandi vormorgun.
| En þegar annir sumarsins byrja, er þó engin
hætta á, að þessir menn liggi á liði sínu.
Mörg bréf hafa borist frá íslenzku her-
mönnunum, sem votta Ijóslega, að vera þeirra
erlendis hefir oft vakið íslenzkar þjóðernis til-
finningar í brjóstum þeirra. Eitt slíkt bréf
birtist í síðustu Heimskringlu og fleiri bréf,
sem skrifuð hafa verið í sama anda, hafa ver-
íð birt hér í blaðinu áður.—Og hverjum sönn-
um Islendingi hefir hlotið að hlýna um hjarta-
rætur við að lesa þessi bréf. Þessir menn
hafa þó sýnt það, að þeir séu góðir Canada-
borgarar, ef hægt er að sýna það með nokk-
uru móti; og nú hafa þeir einnig sýnt, að þeir
séu engu síður góðir Islendingar.
Herlífið er dásamlegt í augum hermann-
anna, einu mannanna, sem þekkja það til hlít-
ar, og hlýtur það að hafa meiri og minni áhrif
á hugi þeirra. Að stríðinu afloknu munu ís-
lenzku hermennirnir, sem svo margir eru góð-
um hæfileikum gæddir, semja og skrifa ná-
kvæmar lýsingar af ferðalagi sínu erlendis og
I herlífinu, eins og það kom þeim fyrir sjónir.
: Skáldsögur, bygðar á þessu efni, sem samdar
væru af hermönnunum sjálfum, myndu hafa
mikið bókmentalegt gildi—ef þolenlega vel
væri frá þeim gengið. Góð ástæða er til þess
að vona, að þetta gæti orðið til þess að
auðga hinar fátæku og “fálmandi” vestur-
íslenzku bókmentir. Og myndi hverjum sönn-
um íslendingi verða þetta gleðiefni.
En langt getur verið til heimkomu ís-
lenzku hermannanna enn þá. Sumir koma
ekki aftur, hafa fallið á vígvellinum í þarfir
lýðfrelsisins, sem verið er að berjast fyrir.
j Það skar oss í hjartað, að vita þá fallna, en
| huggun gegn harminum var þó vissa sú, að
þeir hefðu fallið í þarfir góðs málefnis.
Vér vitum allir og gleðjumst af því, að
íslenzku hermennirnir munu reynast vaskir og
ötuiir, kappsamir og hugprúðir, og munu ekki
verða eftirbátar neinna annara.
-------o--------
Dauðahegning
Sú frétt kemur nú frá Rússlandi, að bráða-
birgðastjórnin þar hafi í hyggju að afnema
dauðadóminn. Œfilangt fangelsi, eða fang-
elsisvist í mörg ár, eigi að koma í staðinn.
Verði úr þessu, sem engum vafa virðist bund-
ið, þá hefir nú stjórnin á Rússlandi stigið risa-
skref í framfaraáttina. Er þetta ljós vottur
þess, að á bak við núverandi stjórn Rússlands
standa hugsandi og þroskaðir menn, sem er
ant um að rússneska þjóðin hefjist nú til
handa í allri framsókn og öllum framförum—
og skari jafnvel í sumu fram úr öðrum menn-
ingarþjóðum heims.
Það er sorglegt að hugsa til þess, að
dauðahegningin skuli enn þá viðgangast hjá
svo mörgum þjóðum heims, sem teljast þó
vera siðaðar menningarþjóðir. Dauðahegning
er þó engri siðaðri eða mentaðri þjóð sam-
boðin. Og einkennilegt er, að kirkjurnar,
sem eiga að vera ríki guðs á jörðunni, skuli
geta lagt blessun sína yfir annað eins. Dr.
Frank Crane, heimspekingurinn alþýðlegi,
segir þetta nýlega um dauðahegninguna með-
al annars:
“Dauðahegningin ætti ekki að eiga sér
stað í neinu siðuðu landi fyrir eftirfylgjandi
ástæður:
Hún kemur ekki að notum. Vinnur í
gagnstæða átt við tilgang þann, sem henni
er ætlaður. Á að fæla fólk frá manndrápum.
En ef sannleikann skal segja, örvar hún til-
hnegingu til glæpa. Morð eru tíðari í þeim
ríkjum, þar sem dauðadómurinn viðgengst.
en í þeim ríkjum, þar sem hann hefir verið
numinn úr lögum.
Dauðahegningin á að vekja meðvitund
glæpamanna fyrir helgi lífsins. Vinnur þó
alveg í öfuga átt. Sálarfræðisleg áhrif þessa
verða það gagnstæða. Þetta hvetur menn til
ofbeldisverka.
Mótstaða manna gegn dauðahegn’ng-
unni er sögð sprottin af viðkvæmni og tilfinn-
ingasemi. Það er ekki satt. Mótstaða þessi
er hin nothæfasta, bygð á sannleika, sögu og
vísindum.
Það er dauðahegningin sjálf, sem er til-
finning — grimm, sjúk og hættuleg tilfinn-
ing hefndarinnar.
Dauðahegningin er ekki réttlæti. Hún er
hefnd, endurgjald ills með illu. Ekki þarf að
hugsa til þess, að komið verði í veg fyrir
glæpi með hefndinni, — heldur verður slíkt
að gerast með skynsamlegri takmörkun á
frelsi einstaklinga, og breytingu á Iifnaðar-
háttum---------
-----Ríkið er ekki lífgefandi, og hefir
því ekki rétt til þess að taka neinn af lífi. —
— Guð einn gefur lífið; hann einn hefir rétt
til að taka það aftur.--
— Dauðahegningin er því gagnstæð heil-
brigðri skynsemi, gagnstæð sálarfræðinni,
gagnstæð vitinu, gagnstæð allri manngæzku,
gagnstæð anda siðmenningarinnar, og gagn-
stæð kenningu Krists.”
Þannig kemst þessi maður að orði, og
flestir hugsandi menn nú á dögum munu
verða meira og minna varir við sannleikann
í orðum hans. Og leitt væri að hugsa til þess,
að aðrar þjóðir heims, sem siðaðar og ment-
aðar þykjast vera, yrðu í þessum sökum á
eftir hinu unga og nýendurskapaða Rúss-
landi. ________q_______
Mannanöfn
Löng ritgerð um “Nokkur íslenzk manna-
nöfn,” eftir Kr. Ásg. Benediktsson, er nú að
birtast í blaðinu. Ritgerð þessi var tekin í
blaðið af því hve sterk-íslenzk hún er og af
því hún fjallar um efni, sem mjog lítið hefir
verið ritað um af Islendingum. Höfundurinn
hefir vandað mjög vel til ritgerðar þessarar
og mun hafa í hyggju að gefa hana út í bók-
arformi síðar.
“Það þýðir ekki að þylja nöfnin tóm”,
sagði Þorsteinn Erlingsson. Margir hafa orð-
ið varir sannleikans í þessum orðum og við-
hafa þau oft og einatt. En maður má ekki
gleyma orðunum, sem á eftir koma hjá Þor-
steini: “en þjóðin mun þau annars staðar
finna.” Þetta er líka sannleikur. Þjóðin
finnur einhvers staðar, fyr eða síðar, nöfn
allra þeirra manna, sem einhverju miklu og
góðu starfi hafa afkastað fyrir hana. Og þá
ætti öllumi að vera skiljanlegt að mikið er í
það varið, að nöfn þessi séu vel valin, smekk-
leg og falleg!
Eg hefi aldrei kunnað við þann sið
margra íslenzkra foreldra, að skíra börn sín
enskum nöfnum og ýmsum óviðkunnanlegum
annara þjóða nöfnum. Það er eins og þessir
íslenzku foreldrar haldi, að mannanöfn ann-
ara þjóða hafi meira gildi en íslenzku nöfnin.
Mannanöfn gömlu norrænunnar, eru þó eins
hljómfögur eins og nöfn nokkurrar annarar
þjóðar. En til þess að velja þau vel, út-
heimtir töluverða þekkingu. Þekkingu í
þessa átt ætti ritgerðin, sem nú er að birtast í
blaðinu, að geta glætt, ef lesendur vilja færa
sér hana í nyt.
Nú er sem óðast verið að taka upp ætt-
arnöfn á Islandi. Margir góðir Islendingar
heima og eins hér í landi eru þessu þó mót-
fallnir og segja það óhæfu mikla. Vilja þess-
ir menn láta þann íslenzka sið haldast, að son-
urinn kenni sig ætíð við fyrra nafn föður síns.
En þessir menn hljóta þó að sjá það fyr eða
síðar, að mótspyrna þeirra í þessu máli kem-
ur að litlu haldi. Alt stuðlar til þess, að það
verði óumflýjanleg rás straumsins, að Islend-
ingar taki upp ættarnöfn, en Ieggi gamla sið-
inn niður.
Það er heldur ekkert út á þetta að setja,
þegar málið er brotið rækilega til mergjar.
Œttarnöfn tíðkast hjá mestu menningar-
þjóðum heims,— og vér íslendingar megum
ekki afkróa oss frá umheiminum með neinum
frábrugðnum siðvenjum eða sérvizkulegum
hugsunarhætti. Aðal-atriðið virðist mér
vera, að Islendingar velji ættarnöfn sín vel.
velji sterk-íslenzk nöfn af norrunum stofni.
Þá geta ættarnöfnin verið íslenzkt sérkenni
Islendinga engu síður en nöfn, sem enduðu á
“sonur” eða “dóttir”. En þau hafa það fram
yfir fyrri nöfnin, að þau eru ekkert afkára-
leg í augum annara þjóða.
Margir af fyrstu Islendingum hér í Iandi
tóku strax upp ættarnöfn. Mörg af ættar-
nöfnum þessum eru sterk-íslenzk og fara vel í
alla staði. En aftur á móti eru líka mörg af
ættarnöfnum þessum all-enskuleg—og stund-
um alveg ensk. Og með þessi ensku nöfn
verða svo n.iojarnir ao sitja, hvað
góðir fslendingar s em l>eir kunna
að vera.
fslenzkir foreldmr ættu að skíra
börn sín falenzkum nöfnum, og þeir,
sem taka upp ættarnöfn, ættu að
velja }>au eins sterk-íslenzk og Jæir
geta. Þá höldum vér áfram að vera
íslendingar.
-----r-0-----
urðu oftast þau, að Indíánarmr
urðiu að leggja á flótta.
Ekki létu þessir harðfemgu að-
komumenn sér það lynda, að brjóta
vesalings Iindíánana á bak aftur,
heldur réðust þeir einnig á skóginn.
Fékk hann nú engu síður að kenna
á stóiihug þeirra og harðfengi. Tré
hans feldu þeir niður uinnvörpum,
og tók nú veldi skógarins óðum að'
skerðast. Stór og reisuleg hús risu
upp ihér og þar með skóginum og
alt annar bragur tók að færast yfir
landið.
Æskulýðurinn
Frumskógurinn.
Einu sinmi var skógurinn einvald-
ur hér f Jandi. Stríðsmenn menn-
ingarinnar 'höfðu þá ekki skorið
upp her-ör í ríki hans. Þá hafði
hann ekkert fengið að kenna á
hinum ægilegu vopnum þeirra, öx-
inni og eldinum.
Veldi skógarins var þá ós'kert og
“hélt hann sig’’ eins og sómdi sönn-
um konungi óbygðanna. Á vorim
og sumrin klæddi hann sig glitfögr-
um laufakyrtli, þegar veður var
hlýtt og fuglarnir sungu í greinum
hans. Á veturna klæddi hann sig í
gráan hrímkufl, iþegar veður var
kait og dýrin leituðu skjóls við
rætur hans.
Öll dýr eyðimerkurininar voru
þegnar hans, og reyndist hann þeim
ætíð samur og jafn. Á sumrin flýðu
þau undan brennandi hita sumar-
sólarinnar undir skuggasælu lauf-
þökin hans. Á veturna reyndi.st
hann þeim bezta skjólið gegn hin-
um napra norðanvindi.
Hérarnir litlu, hvítir á sumrin,
en gráir á veturna, hentust þá á
milli bjarkanna ungu og trjánina
risavöxnu og reyndu féánleika sinn
í sífellu. Birnirnir, svartir og gráir,
þrömmuðu þá seint og silalega til
og frá um skóginn, og skaif jörðin
undan þunga hraimns þeirra, ef
þeir börðu lionum niður í bræði
sinni. Hreinarnir, með fögru og
margbrotnu hornin, sem hvfsluðust
svo dásamlega yfir höfðum þeirra,
reistu sig þá upp hnarreistir við
minsta ]>yt vindsins f trjánum. Bærj
einhverja hættu að, voru þeir hoi-fn-
ir á hraða vindsins út f skóginn. Á
sumrin bygðu fuglarnir hreiður sín
í skógarliminu. Sátu þeir svo á
greinum trjánna og sungu þar ljóð
sín. Engum af þegnum sínum unni
skógurinn eins heitt og fugiunum.
Einu mannlegu verurnar, sem ]>á
höfðu í skóginn komið, voru Indí-
ánarnir. En þeir voru gamlir alda-
vinir skógarins frá ómunatíð. Þeir
voru riddarar og kappar skógarins.
Þeir reistu tjöld sfn við rætur hans,
og dönsuðu þar oft á kvöldin sina
ægilegu stríðsdansa. Yissi þá skóg-
urinn, að bardagi myndi vera í
nánd. Með hægum þyt í trjálimi
sfnu reyndi Skógurinn að sefa villi-
mennina, því iiann vildi ekki sjá ]>á
ber&st á banaspjótum, en þessar til-
raunir ihans voru allar til einskis.
Breyting var í nánd í skóginum.
Aðrir menn fóru &ð gera þar vart
við sig. Voru þeir hvítir á hörund
og ólíkir mjög Indíánunum. Full-
hugar mostu virtust menn þessir
vera. Þeir Iétu ekkert fyrir brjósti
brenina. indíánarnir reyndu að
veita þeim mótspyrnu, en máttu sín
lítils móti ofurhugum þessum. Leit-
uðu vesalings Indfánarnir undan
þeiin og flúðu lengst inn í sikóginn.
Skógurinn var eina athvanf þeirra,
þegar í orustu sló á milli þeirra og
hinna hvítu manna. Leikslokin
Ekki létu iheldur þessir harð-
snúnu aðkomumenn við svo búið
sitja; að sigra skóginn og tndíán-
ana var þeim ekki nóg. Þeir réðust
einnig hverjir á aðra, þegar frá leið.
Hófst nú ægiieg styrjöld þarna við
skóginn. Blóðug stríðsöld virtist
runnin þar upp. En ekki var
þessu þó þannig varið. Ófriði að-
komumaninanna tók að linna þegar
frá leið og þeir að sættast heilum
sáttum. Fögur friðaröld rann þá
upp í Skóginum, og hinir vösku og
hugprúðu aðkomumenn fóru að
snúa huganum eingöngu að því, að
yrkja jörðina og ryðja skóginn
Menningarbragur tók þá óðum að
færast yfir landið. Stórar borgir
riisu upp hér og þar. Járnbrautir
voru lagðar í allar áttir út frá borg-
um þessum og brunuðu eimlestim-
ar eftir þeim daglega og færðu
menninguna lengra og lengra inn í
landið.----
Lengst inni 5 landinu, þar sem
skóguriinn var enn ]>á óruddur og
stórtré hans mændu við himin,
skeði )>á merkilegur atburður. Af-
ar einkenniiegir menn tóku að gera
þar vart við sig. Menn þessir virt-
ust koma úr einhverjum stað óra—
óralangt í burtu, sem skógurinn og
frumherjar hans, Indíánarnir, vissu
ekki minstu deili á. Hvítir á hör-
und voru menn þessir, sem hinir
fyrri aðkomumenn, en harðla ólíkir
voru þeir þeim þó í fasi og klæða-
burði.
En það, sem sérstaklega einkendf
menn þessa, var hvað friðsamlega
þeir fóru að öliu strax í byrjun.
Þeir höfðu byssur meðferðis, engin
vopn af neinu tagi. Stórir og föngu-
legir voru menn þessir f sjón og
virtust vera mestu fullihugar. Þeir
kinkuðu kolli brosandi framan f
Indíánana og virtust ekki óttast þá
hið minsta—þó Indíánarnir gi-ettu
sig í framan og gerðu sig eins hræði-
lega og þeim var framast unt.
Umdir eins tóku aðkomumenn
þessir til starfa, því ekki voru þeir
erindisleysu f þenna afskekta stað
komnir. Fyrsta verk þeirra var að
ráðast á skóginn.—Það var skógur-
inn, er fékk að kenna á orku þeirra
og harðfengi. Þeir byltu stórtrjám
hans niður unnvörpum, bútuðiz
þau svo sundur og tegldu þau til,—
og ekki leið á löngu áður margir
reisulegir bjálkakofar risu upp
þarna við skógiinn.----
Og ekki var von, að Indíánarnir
gæti rent grun í hvaðan þessir ein-
kennilegu aðkomumenn væra
komnir; þeir voru komnir svo langt
að—alla leið frá landinu litla “fjærst
í úthöfum”—sem ísland nefnist. —
Þetta voru íslendingar.
En bygðin litlá, sem hófst þarna
við frumskóginn, biómgaðist og
dafnaði með ári hverju. Nú eru
bjálkahúsin þar óðum að leggjast
niður, en stór og reisuleg skraut-
hýsi að koma í staðimn. Yið bjálka-
kofana gömiu eru þó tengdar rnarg-
ar ljúfar endurminingar. Endur-
minningar frá hinuin löngu vetrar-
(Framh. á 5. bls.)
Sendið Heimskringlu
til hermanna á
Englandi og Fraklandi
K0STAR AÐ EINS 75 CENTS I 6 MANUÐI
eða $1.50 I 12 MANUÐI.
Þeir, sem vildu gleðja vini sína eða vandamenn í skot-
gröfunum á Frakklandi, eða í herbúðunum á Englandi,
með því að senda þeim Heimskringlu í hverri viku, ættu
að nota sér þetta kostaboð, sem að eins stendur um stutt-
an tíma. Með því að slá einum fjórða af vanalegu verði
blaðsins, vill Heimskringla hjálpa til að bera kostnaðinn.
Sendið oss nöfnin og skildingana, og skrifið vandlega
utanáskrift þess, sem blaðið á að fá.
THE VIKING PRESS, LIMITED.
P.O. Box 3171. 729 Sherbrooke St., Winnipeg
>
T
>