Heimskringla - 20.09.1917, Blaðsíða 2

Heimskringla - 20.09.1917, Blaðsíða 2
HEIMSKRINGLA •WINNIPEG, 20. SEPT. 1917 «' Tildrög til stríðsins. Eftir síra F. J. Bergmann. i.iii ' —* III. 54. Mórocco-miáli'ð 1911. Engir miklir viðburðir, sem ger- ast, verða alt í einu. 3?að er ávalt svo og svo mikill aðdragandi að J>eim. Skuggans af þeim verður vart löngu áður -en þeir birtast. Svo var um stríðið mikla, sem nú geisar. Pylgi-voía þess hafði rekið fram ægilegt höfuðið hvað eftir anmað, áður gerninga-bylurinn brast á. í sambandi við alla mikla við- burði þykir ávalt mikils um það vert, að rekja tildrögin og gera sér grein orsakanna. Löngu eftir, að stríð þetta er urn garð gengið, verða menn að telja tildrög og or- •akir á fingrum sér. Eyrir því verður nú Jeitast við að gera þetta, »ð því leyti sem íöng eru til, eink- um að því er til býzkalands kemur. Árið 1911 lá við sjálft, að sú ítyrjöld brytist út með Norður- álfu-þjóðunum, sem drógst þangað til 1914. Það mátti þá engu muna. Orsök þess, að ekki varð af í það skifti, mun að lang mestu leyti hafa verið sú, að bjóðverjar þótt- ust enn eigi nógu vel við búnir. Misklíðin, sem þá reis upp, var á milli Erakklands og Þýzkaland^ Hún varð út af eignum og áhrifum Frakka í Suðurálfu. Þjóðverjar fundu sér það til, að þeir hefði beðið baga af áhrifum Frakka í Norður-Afriku. Þau hefði vaxið og breiðst út meira en góðu hófi gegndi og þrengt að Þjóðverjum. Fyrir það heimtuðu þeir beinar akaðabætur. Samningar höfðu verið gerðir um valdasvið Prakka og Þjóðverja í Norður-Afríku bæði 1906 og 1909. Samkvæmt þeim naut Frakkland þar einkaréttinda um íram aðrar þjóðir. En eftir því sem stundir iiðu atvikaðist það svo, að Frakk- ar þóttust til neyddir að auka þann liðsafla, er þeir höfðu þar í landi Þetta tóku Þjóðverjar sér afar- nærri. 1 júnímánuði 1911 gaf sendiiherra Þjóðverja í Parísarborg stjórninni frakknesku til kynna, að Þjóðverj- wm væri liald Frakka á Mórocco á inóti skapi og mótmælti því. Um leið gaf hann í skyn, að þetta mætti laga með því að gefa Þjóðverjum rétt til annarra svæða i Afríku. Stjórnin á Frakklandi fann ekki ástæðu til að taka mótmæli þessi íérlega mikið til greina. Samband- ið við Englendinga gerði hana ör- ugga og henni var ekki neitt sér- lega hugleikið, að bjóða Þjóðverj- um skaðabætur fyrir að nota þann rétt, er alþjóðasamningar veittu Frakklandi. Hún lekst ekki til að kannast við, að hún í nokkuru hefði farið út fyrir þau takmörk, er þessir samningar heimiluðu. Fyrir þvi varð heiminum heldur en ekki bylt við þær fréttir, sem bárust út skömmu síðar, 1. dag júlimánaðar, að þýzkt herskip, Panther, hefði verið sent til hafnar þeirrar í Mórocco, er Agidir neínist, nálægt mynni Sus fijótsins, i þeim tilgangi að vernda þýzka kaup- enenn í þeim hiuta Mórocco, þitlu síðar var sent þangð annað her- skip, beitiskipið Berlin. Blöðin á Þýzkalandi gerðu sitt til að gefa í skyn, að á bak við þetta væri stórvægilegar ráðagerð- ir. Bending var um það gefin, að þýzka stjórnin ætlaði sér að taka mogador, viggirt þorp i suður- hluta Mórocooc, og ná þeim hluta landsins á vald sitt. Menn létu sér skiijast, að Þýzkaland ætlaði sér «ð ógilda samningana, sem gjörðir hefði verið, tak,a Mórocco-málið til meðferðar, eins og aldrei hefði áð- »r verið um það samið og skifta landinu milli sín, Spánar og Þýzka- lands. Þetta var sú skýring á tiltektum Þjóðverja, sem ruddi sér til rúms bæði með stjórnum Frakklands og Englands og í almennings áliti landanna beggja. En 9. nóvember tók Bethmann-Holiweg, kanzlari, sig íyrst til og mótmælti hennl op- inberlega. Sendiherra Þjóðverja 1 Lundúna- borg var kunngert, að ráðuneytið yrði að taka þetta fyrir sem alger- iega nýtt mál. Bretar áliti sér málið skylt og Bretland myndi «»eita aigerlega að viðurkenna ookkurt samkomulag um mál þetta, sem gert væri að því forn- •purðu. Asquith tók það fram 6. júlí í parlamentinu enska, að i þessu máli myndi England haga •ér eftir samkomulagi við Frakk- land. Síðar komu skýringar fram um málið. Voru þær gefnar 9. nóvem- ber og 5. desember af Bethmann- r Hollweg fyrir hönd Þýzkalands og 27. nóvemlber af Sir Edward Grey fyrir hönd Englands. En þá var hernaðarvoðinn genginn um garð í bráð. Áður höfðu stöðug viðtöl átt sér stað milli stjórna Frakk- lands og Þýzkalands, og Frakk- lands og Englands. Og á meðan mátti svo sem enigu muna, hvort stríð eða friður yrði þyngra á metum. En það varð á eftir öldungis ljóst, einkum af þeim skýringum, er Sir Edward Grey gaf, að ekki hafði verið látið uppskátt í fyrstu, nema eins lítið og unt var, hvað Þýzkaland eiginlega ætlaði sér. Bendingar, sem þýzkúm blaða- mönnum höfðu verið gefnar og þeir látnir breiða út, sýndust sanna, að fyrirætlanir Þýzkalands hefði þarna verið, að taka hags- muni Englands og Frakklands fremur lítið til greina. 1 fyrstu fór Þýzkaiand fram á skaðabætur í löndum fyrir það tjón, sem þeir þóttust hafa beðið í Mórocco. Vildi stjórnin, að Frakk- ar léti af hendi allar eignir sínar i Kongó, ifrá ströndinni til Sanga- fljótsins. Hún fór einnig fram á, að henni væri veittur forkaups- réttur að eign Belgíu í Kongó. Enska stjórnin baðst eftir skýr- ingum í þessu sambandi í ákveðn-; um orðtækjum, um tilgang þýzku stjómarinnar, en því var hvað eftir annað enginn gaumur gefinn. Þóttist enska stjórnin þá skilja, að hana ætti ekkert að taka til greina í þessu sambandi. Þetta gekk svo, þangað tii 21. júlí. Afleiðingin af þessu var sú, að Lloyd George, í samráði við As quith og Sir Edward Grey, flutti ræðu f húsi borgarstjórans í Lund- únum, sem vakti feikna-'eftirtekt. Var það ekki sízt sökum þess, að ræðan var ílutt af þeim brezkum stjórnmálamanni, er áltinn hafði verið einna fylstur samúðar í garð Þýzkalands, en ákveðinn andstæð- fngur hervaldsins. í ræðu þessarri tók Lloyd George mjög greinilega fram, að ef um það væri að ræða, að Bretland ætti að leggja í sölur stöðu sína og áhrif í Norðurálfu, til að varðveita frið- inn, og taka ætti upp þann sið, að virða Bretland vettugi í ráðuneyti þjóðanna, þá yrði það þjóðinni ó- þolandi auðmýking. Annars var orðalagið svo, sjálfsagt af ásettu ráði, að skilja mátti að eins som þjóðræknisleg mæLsku-tilþrif í munni stjórnmálamanns á hvaða þingi sem verið hefði. Bethmann-Hollweg var nógu séð- ur til að skýra ummæli Lloyd George í því Ijósi, og sagði, að þau hefði alveg eins getað fram komið á þingi Þjóðverja. En ummælin voru gerð í þeim tilgangi, að gefa Þýzkalandi aðvörun. Bæði á Eng- landi og Frakklandi var þeim fagnað, sem orðum í tíma töluðum. En á Þýzkalandi komu þau öllu í feikna uppnám og vöktu óvenju- mikinn biturleik. Á viðskiftin milli stjórnanna höfðu þau ’heppileg áhrif. Þau urðu vinsamlegri eftir en áður. En öðru máli var að gegna með þjóð- irnar sjálfar. Um þvert og endi- langt Þýzkaland sauð vonzkan til Englands og hvað 'eftir annað leit svo út, sem þetta ætlaði að verða friðinum að fótakefli. Þessi vonzka milli þjóðanna, Englands og Þýzka- lands, stóð í raum og veru ekki í sambandi við Mórocco-vandræðin. Fremur var það svo, að urnmæli Lloyd George hafi verið eins og eld- spýta, er kveikti í lofti, sem þegar var þrungið eldkveikju. Hvað var það, sem hafði myndað þetta loftslag, skapað eldkveikjuna? öf- und og grunsemi á báðar hliðar. En um fram alt sá ásetningur Breta, sem allir flokkar áttu jafnan hlut í, að líða ekki Þýzkalandi að kúga Frakkland í Morocoo- deilunni. Alt þetta varð til þess, að vekja kurr með þjóðunum og blása að þeim eldi á báðar hliðar. 1 stjórnum beggja landa voru þeir, sem bezt lag höfðu á að stjórna skapsmunum sínum. Sendi- herra Þjóðverja á Englandi lét Sir Edward Grey vita, að Þýzkaland ætlaði sér ekki að ryðja sér til rúms í Mórocco; það vildi miklu fremur slaka tll; þetta var 24. júlí. Og 27. júlí sendi þýzka stjórnin skeyti til Englands, sem fullvissaði um, að tilgangurinn hefði ekki verið að vinna Bretum tjóm Um lelð var látin í ljós von um, að fyrirhugaðir samningar við Frakka myndi koma í veg fyrir frekari ó- ánægju. Eftir þetta tóku samningar, sem út af þessu Móroccomáli risu, að ganga greiðlega, og skaðabæturn- ar, sem Þjóðverjar höfðu talað um, að fá meiri áheyrn, þótt stöðugt væri staðið á öndinni út af því, hvernig úr þessu kynni að ráðast. Loks voru tveir samningar undir- ritaðir af fulltrúum Frakka og Þjóðverja, 4. nóvember 1911. Annar þeirra viðurkendi yfirráð Frakka yfir Mórocoo. Hinn tók fram, að Frakkar skyldi láta af hendi hundrað þúsund fermilur lands 1 Kongó-dalnum. Eftirtektaverðast var, að enginn virtist sérlega ánægður með þessar m'álalyktir. Á Þýzkalandi virtust menn hafa átt von á landiflæmi miklu stærra en þetta. Nýlendu- ráðherra Þjóðverja sagði af sér em- bætti, til að lýsa yfir því áliti sínu, að þessar skaðabætur væri öldung- is ónógar; hann hét Herr Linde- quist. Og á Frakklandi urðu samn- ingar þessir stjórninni til falls. En friði hafði tekist að halda með heiðri, þótt ástæður væri næsta örðugar. Þýzkaland hafði komið þrætunni af stað, og aukið eignir sfnar sínar að miklum mun í Suðurálfu. Frakkland hafði nú eignast ófcvíræð yfirráð yfir Mór- occo, og voru þau svo mikils virði, að verðið var ekki úr hófi. Eng- land ihafði sýnt, að þjóðinni var full alvara með ensk-franska banda- lagið og ætlaði sér að halda því við, hvað sem kostaði. Þýzkaland hafði óneitanlega haft dálítið tii síns máls og að síðustu hafði það hlotið töluverfc meira pláz í sólunni. Hugmyndin um, að alt mætti bjóða Frakklandi og unt væri að kúga það eftir geðþótta, hlaut að hvenfa með Þjóðverjum. Af þessu hlutu þeir að sannfærast um, að bandalagið með Frökkum og Eng- lendingum stæði miklu fastari fótum, en þá hafði áður grunað. En við þetta sannfærðust Bretar um, hvarvetna um brezka veldið, að friðurinn léki á býsna veikum þræði. Það herti á bryndrekagerð beggja þjóðanna, bæði Breta og Þjóðverja; hvorug þjóðin gekk úr skugga um, að nú væri um yfirráð- in yfir hafinu að tefla. Þjóðverjar kiptust illa við dálítið seinna, ]>eg- ar er Winston Churchill lét sér þau ummæli hrjqta af vörum 9. fobrúar 1912, að brezki flotinn væri nauðsyn, en þýzki flotinn að eins munaður. Þá varð enska stjórnin að senda Haldane lávarð til Ber- línar til að lægja hafrótið, og varð þá nokkuð kyrrara um stund. 55. óstjórn í Elsass og Lotringen. Almennar kosningar fóru fram á Þýzkalandi 1912. Áður flýtti ríkis- þingið sér að samþykkja og af- greiða ný grundvallarlög handa Elsass og Lotringen. Yoru þessi héröð, sem tekin höfðu verið af Frakklandi 1871, þá fyrst gerð að sérstöku ríki í þýzka sambandinu. í sambandsráðinu — Bundesrat — m'áttu þeir hafa erindreka, en þeim erindrekum var enginn at- kvæðisréttur veittur. Gegn þessu hófu jafnaðarmenn eindregin andmæli um ait Elsass og Lotringen. Og á ríkisþingi urðu miklar ágreiningsumræður. Stjórn- in neyddist til að veita þessum héröðum, sem nú bættust eins og nýtt ríki inn í þýzka sainbandið, þrjú atkvæði í sambandsráðinu. Keisarinn er æðsti lávarður iands- ins. En undir honum stendur iandstjóri—Statthalter—, sem að- setur hefir í Strassburg og veitir stjórn landsins forstöðu. Lög öðl- ast gildi við samþykki keisarans og trveggja þingdeilda. 1 efri þing- deild eru skipaðir fulltrúar. Til neðri deildar eru erindrekar kosnir með leynilegri atkvæðagreiðslu og almennum kosningarétti. Ekki hafa þessir þrír erindrekar frá El- sass og Lotringen sömu réttindi og aðrir í sambandsráðinu. Sé um breyting á stjórnarskrá ríkisins að ræða, mega þeir ekkert atkvæði greiða. Og hve nær, er svo ber við, að afckvæði prússneskra erindreka, að viðbættum þessum þrem, mynda meira hluta í sambandsráð- inu, eru atkvæðin frá Elsass og Lotringen ógilt. Þessi lög gengu í gildi 31. maí 1911. Þangað til höfðu héröð þessi enga stjórnarskrá. Ríkisþing og sambandsráð skipuðu íyrir um alla stjórn þar eftir geðþótta. Sarnt höfðu þau haft erindreka á ríkisþingi frá 1871. Landstjórarnir, sem keisarastjórnin hafði sett þar, voru illa þokkaðir hver fram af öðrum og höfðu gfert samúðina við Frakkland meiri en ekki minni. Þeir höfðu heitið von Manteufel, prinz Hohenlohe, prinz Munster og Wedel greiíi. Höfðu þeir ýmist beitt mikilli harðýðgi eða afskifta- leysi. Hafði það ekki bætt ástand- ið. Ibúarnir eru Suður-Þjóðverjar, og eiga bágt með að fella sig við rostann í embættismönnum frá Norður-Þýzkalandi. Keisarastjórnin hefir leitast við, að efla iðnað í landinu. Einkum fást rnenn þar við vefnað og kola- gröft. Þessi iðnaðarlýður, sem hef- ir borgina Muelhausen að þunga- miðju, eru brennheitir lýðvalds og jafnaðarmenn í skoðunum. Efna- mennirnir og efri stéttirnar eru nátengdar Frakklandi bæði að skýldleik og trúarbrögðum. Borg- arastéttirnar eru Þjóðverjum and- stæðar, en fara hægt og gætilega. Einkum hafa þeir ímugust á þýzkri stjórn. Yinnulýðurinn er á móti stjórninni af hagsmuna- og félags-ástæðum. Bændur hafa lítil afskifti af stjórnmálum, en hugur þeirra stendur til Frakklands og eiga blöð landsins mikinn þátt í því. Óánægjan var mikil í landinu og hver ný afchöfn þýzka valdsins, sem eitfchvað var venju fremur ó- heppileg, var eins og olía, sem helt var í eldinn. Dálítill bær í Elsass heitir Zabern á þýzku, en Saveme á frönisku. Þar eru um átta eöa níu þúsund fbúar og prýðilega í sveit komið, þar sem bærinn ligg- ur við rætur Vogesa-fjalla, rétt við skurðinm mikla milli Rínar og Marne-fljófcsins. í bæ þessum voru tvær herdeild- ir, sem heyrðu til 91. herd. þýzka fótgönguliðsins, og foringjar þeirra. Nafn fyrirliðans var von Reuter, og í foringjahópnum var lautinant að nafni Forstner, ung- ur maður rétt um tvítugt. Hann var mjög drengjalegur útlifcs og sökum þess kom það fyrir, að skólabörn og drengir, sem unnu í járnverkstæðunum þar í grend- inni, gátu ekki á sér setið, nema henda gaman að honum. Það batnaði heldur ekki, er sú saga breiddist út, að Forstner hefði smánað framska fánann, eitt sinn er hann var að æfa menn sína. Lfka barst það út, að hann kallaði nýliða frá Elsass: vöggur (wackes), auknefni, sem þar er títt og merk- ir: þöngulhaus og oft er notað í gamni af fólkinu í Elsass og Lot- ringen, sfn á milli. En sé það við- ihaft um það af öðmm, íbregzt það illa við. Enn fremur barst það út, að hann hefði heitið að gefa hverj- um manna sinna, sem felt gæti (Fr»mh. á 3. bl&) KAUPIÐ Heimskringlu Blað FÓLKSINS of FRJALSRA skoðana of elsta fréttablað Vestnr-Islendiaga Þrjár Sögur! og einn árgangur af blaðinu fá nýir kaupendur, sem senda oss fyrirfram eins árs andvirði blaðsins. — Fyr eða síðar kaupa flestir Islendingar Heismkringlu. — Hví ekki að bregða við nú og nota bezta tækifærið? — Nú geta nýir kaupendur valið þrjár af eftirfylgjandi sögum: “SYLVIA.” “HIN LEYNDARDÓMSFULLU SKJÖV’ “DOLORES.” “JÓN OG LÁRA.” “ÆTTAREINKENNIÐ.” “HVER VAR HÚN?” “LÁRA.” “LJÓSVÖRÐURINN.” “KYNJAGULL.” “BRÓÐUR- DÓTTIR AMTMANNSINS.” Sögusafn Heimskringlu Þessar baeknr fást keyptar á skrifstofa Heimskringlu, meðan upplagitS hrekkur. Ehginn auka kostnaður vi?S póst- gjald, vér borgum þann kostnatf. Syhna ........................ .................... ^0.30 Bróðurdóttir amtmannsins _______________ 0.30 Dolores ............................. 0.30 Hin leyndardórosfulki skjöl_____________ 0.40 Jóa og Lira----------------------------- 0.40 Ættarewkennið ......................... 0.30 Lára —_________________________________ 0.30 Ljóevör&urim .......................... 0.45 Hver var kún?__________________________ 0.50 KyajaguB_______________________________ 0.35 Forlagaleikurnut........................ 0.50 Mórauða músin .......................... 0.50 Spellvirkjarnir ...................... 0.50 Ljóraandi Fallegar SftUripjötlur. kfl »ð bú» tll úr rúmábreiður — “Cr»»y Patchwork”. — Btórt úrval »f atórum sllki-adklippum, hentug- »r 1 ábrelður, kodd», seeeur og tl. —ötór “pakki” á 26c., fímm fyrir $1. PEOPLE’S SPECIALTIES CO. Dept 17. P.O. Box 1836 WINNIPEG TH. JOHNSON, Úrmakari og GulIsmiSur Selur f IftfnfaleyfkibréL ■érstakt aUirsll valtt Hilaiva oe TtSeJðrSun útan af laa«l. 34« Maia It. . Fhons M. MM *■ *■ tvaawa M. «. niarllm.a J. J. SWANSON ðc CO. rismtsAiALAa s« Talafaal MaAa SSTT Omr. Partaea »4 Starry. WtaaSq ly MARKETHOTEK M* rrtmr tm IttrM S »Stl a.rkrtlm TtafSae. vtaSVar tf a* hlyalae e«v. lalaakor ▼•ItJaiM aaaVor lC KallStraan. MnJi •r Sal.aSlaeaaa. p. rc*miBu Mearti Aral AaA«n« |. p. ftarlaað GARLAND ðt ANDERS0N iMriMims. Pkaaa Mata 1M1 Wá nwtrk Raltway tkiabirs. Talalatl: Mala Utl. Dr. J. Q. Snidal TAHHUEKMIR. S14 SOHIRMT ILK. Partaea Avaana. WXTHvmia Dr. G. J. Gisfason Pkyalataa ■■• l.ftui Atkyjll raltt Aaeaa, Kyraa ae Kr.rka ■|úk4ða>uu. Asaaat laavortla ajSkSéaaaat »c ayy- akarSl. 1S lutk M St, •»>< Part-a. Jt.D. Dr. J. Stefánssoo M1 BOTD ■CaBIKS Maral Parta*. Ava. •* Hantn 8t. ■t*«4ar .taeSae* aae*a, ayraa, Vf *varka-aJ4k44aaa. Mt aS fcltta frá kl. 14 tll 1S f.fc. •* fcl. 1U1| a.fc. Phone: Main 3188. artaslll: 1M OMrta DL Tala O. SSIS V4r fcSfua fallar fclr»«tr fcrvta- •ata lyfja *( aa.Sala. K*kIS *rt lyf.aSla y*ar klaeaS, v4r |ir«a aaafculla itkraalin tftir 4vl«aa lukalatas. V4r ataauaa • taa.T.lta aSataaaaa a.ljaaa Clftlaealayfl. : : : : COLCLEUGH 41 CO. Nfltre ék Ikffbrvflk* Kflk Phflifl Oátrrr MM-2191 A. S. BARDAL aalur llkklatur «e aaaait aas 4t- farlr. Allur 4tk4aa*ur .4 fcaatl. ■aafraaaur aalar fcaaa all.kaaar aalaai.rarfca •■ I.*.t«lma- : sis •■sniooKi rr. 4L nn wirmpae AGKIP AF KEGLUGJÖO an yaÍflittiiM I Cami* •C (khnlduAB. Mrer fJ«lflkyldufaSlr, <St fcv*r karl- aiaDur aem er 18 4ra, >ta aar brazkar þ«*n 1 byrjun stríbslns e* fcaflr Tertfc þab slTlan, eba sem er þ«*a Dandaþjófc- anaa eba dh&brar þjóbar, ealar tekífc kelailllsrétt 4 fjórbunc 4r saetlon af 4- teknu stjórnarlandl í Maaltaba, Saa- katchawan eba Alberta. Thusiekjanlft Terbur sjélfur afc koma 4 laadskrlf- stofu stjórnarlnnar eba aadlrskrlfstofn h.nnar I þvl hérabl. 1 aaafcaVI annara mt taka land undir vissuaa skllyrbufca. Skyldur: Sex mánaba lb4V •* rsektáa landslns af hverju af þreaatre irum. t vlssum hérubum *•!■> fcver lanð- nemi fenelb forkaupsréM 4 fjór*- un*l sectlonar meí fraaa fcaadt slna. Verb: |3.00 fyrir hverja ekra. Skyldur: Sex mánaHa ábúb á fcverja hlnna nsestu þrlegja ára eftlr fcaan heflr hlotlb eienarbréf fyrlr fcelasllisréttar- landl sinu og auk þeso xsektah H ekrur á hlnu selnna landl. Porkaups- rétt&r bréf getur landneml leaeló uta leih oe hann fær helmlllsréllarhréflV, en þó meh vissum sklIyrfcoaA______________ Landnemt, sem feneH fcalW fcelmllls- réttarland, en eetur akkl fea*I* for- kaupsrétt, (pre-emptlon). »etar keyfct helmlllsréttarland I vlssoaa áérnUuo. VerTS: $3.00 ekran. Verlai a* búa 4 landlnu sex mánuhl af kreijt af þreaa- ur árum, rækta 50 ekrur e* fcyggja húei sem sé $300.00 virSI. Þelr sem hafa skrlfafc st» fyrlr fcetm- Ulsréttarlandl, geta unalfc laadhúna*- arvlnnu hjá bændum I Cfcaada árW 1917 eg tlml sá relknast ueas skylda- tlml á lándl þelrra, undtr vlvsaiu skll- yrhum. Þegar stjórnarlðnd er« aoglýst e*« tllkynt á annan hátt, geta bthnkomulr hermenn, sem verlfl hafa I fcarþjónustu erlendls og fenglh hafa fcslharlegfc lausn, fenglh elns dags forgangsréM tll ah skrifa slg fyrlr belnalltsréttar- landl á landskrlfstofu hérahslas tea ekkl á undtrskrlfstofu). Itaoanarbréf verhur bann ah geta sýat afcoKstofia- stjéraaaaa. W. W. COfcfc, Depaty Mlnlst** tt laierlar. SK«. sem flytja aaglýaMkent |tssa 1 fcafcodMaleyxl, tá aapfc fciijái íyrlr.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.