Heimskringla - 25.10.1917, Page 8
8. BLAÐSIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG. 25. OKT. 1917
fl
Halldór
Methusalems
býr til og selur
Swan Weather Sfarips
Swan Fnmiture Polbh
Einnig margar tegundir at
MYNDA UMGJ ÖRBUM
Selur stækkaSar- yjósmyndir f
eporbskju löguðum umgjörð-
um með kúptu gleri fyrlr eina
$5.00 til $8.00.
Alt verk vandað. Póstpant-
anir afgreiddar fljótt.
SWAN MANUFACTURING
Company
Tals. Sh. 971. 676 Sargent Ave.
ber, á allra h?ilagra messu, en ekki
að kveldi þann 31. okt., eins og á-
litiö hefir verið. Hafa menn orð
Lúters sjálfs íyrir þessu.
John Veum, kaupmaður f Foam
Lake, og Jóhanna Thordís Ólafs-
son, voru gefin saman í hjónaband
af séra Jakob Kristinssyni frá Wyn-
yard, laugardaginn 20. okt. síðastJ.
Fór hjónavfgslan fram á heimili
hinna mikiks virtu hjóna, Bjama
Jasonssonar og konu hans, sem
höfðu alið brúðurina upp að
miklu leyti. Gerðu þau veglega
brúðkaupsveizlu og buðu til vin-
um og nágrönnum. Var þar rausn-
arlega veitt að vanda og skemtu
menn sér lemgi nætur við samræð-
ur, söng og ræðuhöld. — Nýgiftu
hjónin tóku sér skemtiferð til
Winnipeg næsta dag.
Ur bæ og bygð.
Mánaðarfundur stúkunnar ísa-
fofdar I.O.F. verður haladinn á
venjulegum stað og tfma fimtu-
dagskvöldið í þessari viku.
Tvo sfðustu sunnudaga hefir ver-
íð prédikað í Tjaldbúðarkirkju um
Lúter og siðbótiima og verður því
haldið áfram tvo næstu sunnu-
daga.
Jakob Normann og Gyða Gísla-
aon voru gefin sarnan í hjónaband
af séra Jakob Kristinssyni, 31. ág.
«íðastl., að heimili brúðgumans við
Kristnes, Sawk., að viðstöddum
nánustu skyldmennum brúðhjón-
anna.
22. ágúst voru þau Thordur Au-
gust Björnsson, Kandahar, og Ing-
unn Bjarnason, Wynyard, gefin
saman í lijónaband af séra Jakob
Kristinssynl. Fór hjónavígslan fram
á heimi'li foreldra brúðarinnar,
Hjartar bónda Bjarnasonar og
konu hans, í viðurvist nokkurra
nánustu vandamanna og vina.
Jóns Sigurðssonar féiagið biður
biaðið að færa öllum þakklæti,
isem aðstoðuðu við söluna á laug-
ardaginn. Stúikunni “Heklu” sér-
staklega fyrir ágæta hjálp og Miss
Patrick fyrir að lesa í bolla. Fylk-
istjóri J. A. M. Aikins heiðraði sam-
sæti þetta með nærveru sinni og
eins Hon. T. H. Johnson.
Björn B. Jónsson frá Gimli var á
íerð hér f síðustu viku. Hann
stundar fiskrveiðar í all-stórum
sitýl í íéiagi með bróður sínum og
kom hingað tii þess að leita sér að
vinnumönnum til þess að vinna
hjá sér næsta vetur. Sagði hann
alt gott að frétba þaðan sem hann
víssi til í Nýja íslandi.
Syrpa, tímarit O. 8. Thorgeirs-
sonar, er nýkomin út (1. hefti 5.
árg.). Efni fjölbreytt og frágangur
hinn vandaðasti. — Saga byrjar i
| þessu hefti Syrpu, sem er eftir ensk-
| an höfund, Maurice Hewlett að
i nafni. Efni sögu þessarar er tekið
úr islenzku þjóðlífi á íslandi og
birtist saga þessi nú í ágætri ísl.
þýðingu eftir séra Guðm. Árna-
son. I>ó ekkert annað hefði Syrpa
nú meðferðis en þetta, væri hún vel
þess virði að vera keypt og lesin.
Vigfús Guðmundsson kom hing-
að til bæjarins vestan frá Kletta-
tjöllum f byrjun síðustu viku. Er
hann á leið til Lslands, en bjóst við
að dvelja hér f bænum um tíma
áður en hann legði af 'stað heim.
Hann hefir dvalið um fjögur ár hér
i landi og kom hin.gað frá Noregi.
Samkoma Ú nítaras-afnaöari ns, er
getið v.ar um í síðasta blaði, verður
lialdin þann 8. nóv. n. k., en eigi
þann 11. eins og getið var um.
Meðai annara, sem sikemta þar, er
frægur enskur leikari, Mr. H. B.
Weston, C.E. Er hann búktalari
og getur látið mönnum heyrast
| eins og talað sé úti eða í öðrum
j enda hússins en þar sem ræðumað-
1 ur stendur. Ætlar hann að leika
ýmiskoinar smáleiki þannig og ætti
fólk ekki að miasa af þeirri skemt-
un.
Slys viidi til að Grmli f vikunni
sem leið. Sonur Sigurjóns ís'feld,
unglingspiltur, datt ofan úr vagni
og lærbrotnaði, en söfcum bráðrar
lœknishjálpar var hann talinn að
vera úr allri hættu þegar seinast
íréttist.
Meðtekið með þakklæti frá
Cloverdalc, Brit Col., eftirfylgjandi
samskot í jóiasjóð fslenzkra her-
mann.a: Mrs. Th. ísdal $1, Stefán
ísdal 50c., Thorey ísdial 50c, Rún
Ólafur Vopni, sem nú á .heima að
Wynyard og er þar hjá tengdasyni
sínum og dóttur, kom hingað til
bæjarins síðastliðna viku til að
heilsa upp á gamla kunmingja og
vini hér, enda eru þeir margir.
Hann lætur vel af öllu vestur frá,
segir þreskingu í þann vaginn lok-
ið og uppskera .sérlega góð.
Ingibjörg Árnason, systir Ástu
liúsamálara í Reykjavík, sem fór
vestur að hafi síðastliðið vor, hefir
ólfur Björnsson $1, ónefnd kona 501 skritað kunningjum sínum hér al-
c., ónefnd stúlka 50c. j veg nýverið. Hún er nýgift manni,
-------------- ! sem heitir John Wright. Pau eiga
S. D. B. St-ephanson, ráðsmaður heima í bænuin Kennett, skamt fyr-
Dánarfregn.
Þann 28. september lézt á sænska
spftalanum í Minneapolis, Minni,
húsfrú Jakobína Sigfúsdóttir, eftir
8 daga legu og uppskurð við inn-
vortis meinum; hún var kona Stef-
éns Pálssoniar, að 1007 24tJh Ave. N.
E. þar í borginni, sem var heimili
þeirra.
1 bréfi, sean ekkillinn sendi mér,
dagsett 13. þ.m., kemst hann svo að
orði:
“Útförin fór fram roánudaginn 1.
október, frá húsi Kristímar dóttur
hennar og Valda sonar míns; söng
séra Jón Clemens yfir henni og
mæltist ágætlega; hann talaði á
ensku, því þar var fjöldi af ensku
fólki, auk því nær allra landa í
bænum. Vandaðir blómkransar
komu úr öllum áttum, svo þau
huldu kistuna; auk þess kom frá
Soo (féiagi sem Stefán vinnur hjá)
blómapúði svo stór, að hann hefir
sjálfsagt kostað frá 10 til 20 doll.”
Jakobína, sem alla æfi var nefnd
Bina, var fædd í Gilsárbeigshjáleigu
í Eiðaþinghá í Suður-Múlasýslu, 6.
júlí 1864. Þar bjuggu foreldrar
hennar, Sigfús Rafnssoft og Sigur-
borg Gísladóttir. Húm var á barns-
aldri, er móðir hennar dó, sem var
gáfuð og góð kona. Ólst Bína að
mestu upp hjá vandalausum, en
aðallega á meiriháttar heimilum, t.
d. hjá Maddömu Guðríði Jóns-
dóttur á Ási í Fellum, ekkju séra
Vigfúsar Guttormssonar o. fl.
Innan við ibvítugt flubtist Bína til
Ameríku með Friðriki Guðmunds-
syni frá Eiðum og Guðnýju konu
hans; þau sebtust að Minnesota í
Bandaríkjunum, og þar var hún
um hríð. Ekki alllöngu síðar gift-
ist Bína Guðjóni Jónssyni úr
Vopnafirði; þau dvöldu lengst um
í Watertown í Suður Dakota, og
áttu saman þrjú börn, er tii aldurs
komust, einn son og tvær dætur,
mannvænleg og vel mentuð, nú
gift og í góðum stöðum.
Frá Watertow flutti Bína sál. tiJ
Minneapolis; þar giftist hún öðru
sinni 4. dag októbermánaðar 1911,
ekkjumanninum Stefáni Pálssyni
gáfuðum, vinsælum og góðum
dreng. Þeim varð ekki barna
auðið.
Bfna sáluga var sannnefnd merk-
iskona, vel gefin til sálar og líkama,
gáfuð, þrekimikil, góðsöm og hjálp-
arfús, ihver sem í hlut átti; hún var
góð eiginkona, ástrik og umihyggju-
söm móðir börnum sfnum. Henn
ar er því sárt saknað, fyrst og
fremst af sorgbibnum, öldruðum
ekbamaka og börnum hennar, en
auk þess af fjölda mörgum öðrum,
bæði fslendingum og annar.a þjóða
fólki, þvf hún var hvarvetna vin-
sæl og vel látin.
Ensku blöðin “Minneota Maseot'
og “Argus” minnast hinnar látnu
með lofsorði og 'hugðnæmri viður-
kenningu þess, er hún hafði verið
í mannfélaginu.
Blessuð veri hennar minning.
Winnipeg, 22. okt. 1917.
Sigmundur M. Long.
Til hluthafa í Eimskipafél. lslands. |
KRINGLUR.
ir sunnan San Francisco. Þar
vinnur hann við máhnbræðslu
Þau voru samán gefin í hæstarétt-
arsalnum í San Francisco af James
Heimskringlu, skrapp til Argyle
bygðar í vikuimi sem var og lcom
heim á laugardaginn. Lætur hann
mjög vel af ferð einnl og segir líð-
an góða ísiendinga þar. Hveiti-I O. Eslep dómara.
uppskeran var í rýrara 'lagi þebta |________________*
ár, en mátti þó heita fram yfir all-
ara vonir jafn ilt Og útlit var umi TOMBÓLA og DANS,
tíma — og munu Argylebúar hafa
fengið að meðaltali trá 10—12 bush
el af ekrunni.
sem að stúkan Skuld stendur fyrir,
Á sunnudaginn kemnr
messað f Únfbarakirkjunni kl. 3 e.
h. en ekki að 'kveldinu. Er ætlast
til að safnaðarfólkið reyni sem
ffest að kmna, þó messaín sé á ó-
venjulegum tíma. Messan er færð
til vegna þess, að þau tihnæli voru
jjjörð af enska Únítarasöfnuöinum
að sem flest af fslenzka safnaðar-
tólkinu vildi gjöra sér !þá ánægju
að vera við kirkju hjá sér að
kvöldinu. Er söfnuðurinn að minn-
ast 5. afmælis kirkju sinnar og við
það tækifæri prédikar séra Rich-
ard W. Boyseton frá Bulfalo, N.Y.
verður haldin næsta mánudag (29.
okt.) og byrjar kl. 7.30 að kvöldinu.
Ætlast er til að dansinn byrji kl.
verður| 9.30 0g gtýrir hr. Th. Johnsbon
li 1 j óðf æ raslæt t i nuim.
Miðvikudaginn 31. okt. hefir síra
F. J. Bergmann auglýst að hann
ætli að flytja erindi um Lúter í
Tjaldbúðarkirkju, kl. 8 að kveidi.l
Þá vikuna verður iferaldar afmæli j
siðbótarinin>ar haWið víðs vegar í I
mótmæienda heiminum. Siðbóbar-
dagurinn er alment talinn 31. okt. |
og siðbótar hábíð þá haWin á
Norðurlöndum og viða á Þýzka-
landi. Þó er hún ekki bundin
beint við þann dag en haldin ann-
að hvort sunnudaginn fyrir eða
offcir. Nú er það sarnt viðurkent,
að Lúter festi hinar 95 greinar sínar
upp á hallarkirkjudyrnar í Witten-
berg um miðjan dag fyrsta nóvem-
Fonstöðunefndinni hefir safnast
mjög mikið af verðmætum drátt-
um, enda hefir stúkunni Skuld á
valt tekist mjög vel með tomhólur
sinar og almenningur farið þaðan
ánægður.
Ágóðanum verður varið til hjálp-
ar v'eikum og fábækum á komanda
vetri. — Aðgangur að dansinun^ og
einn dráttur kostar 25c.
1L
Mórauða Músin
Þessi saga er bráðum upp-
gengin og ættu þeir, sem vilja
eignast bókina, að senda oss
pöntun sína sem fyrst. Kost-
ar 50 cent. Send póstfrítt.
I ■ ‘
Grunsemi ritstjóra Lögbergs, að
aðrir en ritstjóriim SK-ifi ritstjórn-
argreinar Heimskringlu, hefir ekki
við minstu rök að styðjast. Rit-
stjóri Heimskringlu skrifar sjáifur
allar sínar ritstjórnargreinar og
hefir engan annan til þess að lesa
prófarkir. — Hann sleppir aldrei
nöínum anmara manna né reynir
að tileinka sér annara inanrua rit-
gerðir, eins og ritstjóri Lögbergs
gerir, er hann birtir í tveimur
blöðuin ritgerðina “Drepsóttir” eft-
ir Steingrím Mattihíasson (Eimr. 3.
hefti) undir fyrirsögninni “Heil-
brigði” og án þess að segja með
einu orði hvaðan ritgerð þessi sé
tekin. Hvílfk blaðamensku ráð-
vendni!
Sjö prócent (7%) arður íyrir árið
1916 hefir verið ákveðinn á öllum
hlutaibréfum í ofangreindu félagi,
dagsettum 1. maí 1916 og þar áður;
hlutfallslegur arður verður borgað-
ur á hlutabréfum dagsettum eftir
áðurmefndan dag.
Hluthafar gjöri svo vel og sendi
arðmiða sína til undirritaðs, helzt
fyrir 15. nóvember næstkomandi,
og verður borgun fyrir þá send
með pósti, að frádregnum kostnaði
fyrir ávísun í sambandi við utan-
bæjar hlutabréf.
T. E. Thorsteinsson,
vestan hafs féhirðir,
e.o. Northem Crown Bank,
William Ave. Branch.,
Winnipeg, Man.
M. M. orti glymjandi kosninga-
brag nýlega. Rímskáldin mörg eru
gædd töluverðum spásagnaranda
og þóbtist M. sjá fram á öflugan
flokka bardaga — en þetta reynd-
ist falsspá, því miður.
Utsala
I^uigardaginn 27. okt„ byrjar kl.
2 ejm., verður uppboðssala að
466 Portage Ave.
á eftirfylgjandi
vörum og fleiru; — Fóðurfbætir
(Stock Foods), meðul fyrir alls^
konar veiki í hestum, gripum,
kindum, svínym og fuglum. Á-
reiðanlegar t-egundir að eins, —
veggjalúsa eitur (Jacksonian),
Cock Roaoh Exterrninator og
lykteyðandi lyf,—Nærri því ný
Chase prembpressa, 5x8, ein Neo-
style Rotary Copying Maehine,
báðar eins og nýjar; rafmagns-
nafnspjöld, skrifpúlt, Quehec
ofn og pípur. — 1% gal. Water
Still, hyllu hurðir, Linoleum og
Anticeptic Powder fyrir J. B. L.
Cascade. — Alt selt til hæst-
bjóðanda.
A year ago
he couldn’teat
Fyrir ári síðan gat hann ekki etið.
—Nú getur hann borðað fullar
þrjár ináltíir á dag, því Chamber-
lains Tablets læknuðu magaveikl-
un hans og gáfu honum góða melt-
ingu.—Reynið þær, 25c. askjan. 1
lyfjabúðum eða með pósti.
■ CbuaUrUni Hxticiiu C«„ T.ruO
CHAMBERLAINS
. TABLETS .
Dr. /VI. B. Halldorsson
401 BOYD BL'ILDING
Talii. Maln 308S. Cor Port. & Eda.
Stundar einvörSungu berklasýki
og atSra lungnajsúkdóma. Er atJ
finna á skrifstofu sinni kl. 11 til 12
f.m. og kl. 2 til 4 «.m.—Heimili at>
46 Alloway ave.
GISLI GOODMAN
TINSMIÐIR.
VerkstœTJl:—Horni Toronto St. o*
Notre Dame Ave.
Pkonc
Garry
Helmllle
Garry HW
Þeir sem andstæðir eru banda-
lagsstjórninni eru flestir æstir
flokksdýrkendur, margir þeirra eru
liðleskjur fslackers) og ekki svo fá
ir af þeim eru stálefldir stjórnleys-
ingjar.
Ijandinn ýtist efst á tind,
óðar nýtur mergtsins;
írans>kri hnýtir friðarmynd
fremst á strýtur "Bergsins.”
Þetta er kannske þjóðmewning,
þvi sé vanski að granda,
eftir “danskan Islending”
að eignast franskan Landa.
Eftir >að munimirínn er skilinn
við heilann, stingur ritstjóri Lög-
bergs upp í sjálfan sig—þiba.
VANTAR RÁÐSKONU.
Duglegur kvenmaður getur feng-
ið ráðskonustöðu fyrir veturinn á
bóndabýli 3 mílur frá Árnes P.O.—
létt störf, að eins þrjú börn í heim-
ili, sem öll ganga á skóla.—Lysthaf-
endur snúi sér tafarlaust til
5—7
Guðna Oddson,
Nes P.O., Man.
Til bæjariits kom á mánudaginn
var Jón Veum kaupm. frá Foam
Lake. Dvelur hann hér nokkra
daga.
Heyr! Dauíirheira!
Enn er von fyrir heyrnardaufa.
The Mega-Ear Phone
Ekki málmur eða gúmmí — ekki
óviðfeldið, safnar og eykur hljóð
margfalt.
Ósýnilegt Heyrnar tski.
sem endurtekur hljóðið og marg-
faldar það svo daufir heyra sem
aðrir. Læknar veik eyru og bilaða
hlustar-lhimnu.
Bætir Eyma Suðu og
Skerpir Heyrnina.
Hver sem orsök heyrnardeyfu
þinnar er, og hvað gamall sem þú
ert, og hvað margar læknistilraun-
ir sem við þig hafa verið gerðar, þá
mun Mega-Ear Phone
Hjálpar þér
Sendið eftir myndabók með öll-
um upplýsingum —og sannfærið
yðnur sjálf.
Allar canadiskar pantanir af-
greiddar af
ALVIN SALES CO.
P. O. Box 56, Winnipeg, Man.
Verð $12.50—Tollur greiddur
G.H.Nitson
Kvenna og
karla
Skraddari
Stsrsta skraddarabúð Skan-
dinava í Canada. VandaS-
asta verk og ver?5 sanngjarnt
C. H. NILSON
208 LOGAN AVE.
aðrar dyr frá Main St.
’Phone: Garry 117
WINNIPEG
MAN.
Góð Tannlœkning
á verði sem léttir ekki vas-
ann of mikið—og endist þó
Gjöríð ráðstafanir að koma
til vor bráðiega. Sérstök
hvílustofa fyrir kvenfólk.
Dr. G. R. CLARKE
1 to 10 Dsminion Trust Bldg
Regina, Saskatchewan
SANOL
NÝRNAMEÐAL
HIN EINA
AREIÐANLEGA UKXNING
VIÐ
GALL STEINUM, NÝRNA
OG BLÖÐRUSTEINUM OG
ÖLLUM SLlKUM OG ÞVL
LlKUM SJÚKDÓMUM.
Tilbúið úr
JURTUM og JURTA8EYÐI
The Proprietory or Patent
Medicine Act No. 2305
VERÐ: $1.00 FLASKAN
Burðargj. og stríðask. 30c.
The SAN0L MANUFACTUR-
ING CO. OF CANADA
614 Portage Ave.
Dept. “H” WINNIPEG, Man.
Fiskimenn I
flpartn kf InÍBf ppnflnfa yVar
of kaaplð Konkrlt Neta Hökkar
MJA
THE OONCRETE SINKER 00.
696 Simcoe St., Winnipeg.
Gall Steinar
Læknaðir á
24 kl. tímnm
án alls sársauka
Með Marlatts Specific fyrir Gall-
steina og Botnlangabólgu.
Meltingar, maga og lifrar kvillar,
botnlangabólga og nýrnasteinar
orsakast oft frá Gallsteinum, sem
er hættulegur sjúkdómur og kem-
ur fólki oft til að trúa að það hafi
inagakvilla, magakvef og meltingar-
leysi, en þegar sárir gallsteina verk-
ir þjá fólkið finnur það fyrst hvað
hvað það er. Nfutíu af hverjum 100
fólks veit ekki að það hefir gall-
steina. Fáið meðul í dag og forð-
ist þannig uppskurð.
Fæst alstaðar á $5.35, sent frítt
um öll vesturfylkin af Alvin Sales
Co., Dept. “K”, P. O. Box 56, Win-
nipeg, Man. Búið til af
J. W. MARLATT & CO.
581 Ontario Str., Toronto, Ont.
Bf eitthvað gengur að úrinu
þínu, þá rr þér beat að aenda
það tU hans G. THOMAS. Hann
er í Bardals byggingunni og þú
mitt trúa því, að úrið kastar olli-
belgnum i hðndunnm á honum.
Miljónir fólks deyr á ári hverju
úr tæringu. Miijónum hefði mátt
bjarga, ef rétt varnarmeðul ihefði
verið brúkuð í fyrstu. — Andar-
teppa, háksbólga, lungnabólga, veik
lungu, katarr, hósti, kvef og alls-
konar veiklun á öndunarfærunum,
—alt leiðir til tæringar og berkla-
veiki—Dr. Strandgard’s T. B. Medi-
cine er mjög gott meðal við ofan-
nefndum sjúkdómum. Veitt gull-
medalía fyrir meðul á þremur ver-
aldiarsýningum—London 1910, Par-
is 1911, Brussels 1909, og í Rotter-
dam 1909. Skrifið eftir bæklingi.
Bréfum fljófct svarað.
Jr.STRANDGARD’S MEDICINE Co.
263 266 Tongo St., Toronto.
Látið oss búa til fyr-
ir yður vetrarfötin
Besta efni.
VandaB verk og sann-
gjarnt verö.
H. Gunn & Co.
nýtízku skraddarar
370 PORTAGE Av»„ Winnipeg
Phon* M. 7404
The Mega-Ear Phone Co.
(Incorporated)
724 Pcrry Bldg„ Dept. “H’’
Philadelphia, Pa.
Marte/’s Studio
264 1-2 PORTAGE AVE. Upppi yfir 5,10 og 15c búðinni.
LÁTIÐ 0SS TAKA UÓSMYND
AF YÐUR NÚ!
Þá fáiS J>ér myndirnar í nægan tíma til þess aS
senda þær til vina ySir fyrir jólin.
Vér gefum eina málaða ljósmynd, 5x8, frítt
með hverri tylft, sem þér kaupið. Alt verk ábyrgst.
Vér höfum 15 ára reynslu í ljósmyndagerS í
Winnipeg.
Myndastofa vor er opin á kvöldin til kl. 9. —
Myndir teknar á kvöldin eins og á daginn.
Vér stækkum myndir af öllu tagi — í öllum
stærðum.
SÉRSTAKT VERÐ A MYNDUM TIL JÓLA
Martel’s Studio 2641/s PORTAGE AVENUE