Heimskringla - 11.04.1923, Blaðsíða 1
\
Sendtí efttr verttlista ttl
Kojnl Crown Soap Ltd.
6B4 Matn St„ Wlnnlpeg.
Verðlann
gefin
fyrir
Coupons
og
umbúðir
Verðlaun
gefin
fyrir
Coupons
SendltS eftir vertSltsta tt)
Royal Crown Soap Ltd.
umbúðir 66« Maln St„ Wlnntner
cm
XXXVII. ÁRGANGUR.
WINNIPEG, MANITOBA, MIÐVIKUDAGINN 11. APRIL, 1923.
NCMER 28
Canada.
/ ■ ■ ■
Manitobaþingið.
Forsætisráðherra Bracken skýrði
frá því s.l. föstudag i þinginu, að
Manitoba hefði heitið samibands-
stjðrninni samvinnu í því, að gera
frekari rannsóknir á kornverzlun
Canada. Sagði hann að fundur
yrði senn hafður, þar sem nefnd
manna yrði kosin til að hafa
rannvsóknina með höndum. í fundi
þessum taka öll vesturfylkin þátt
með sambandsstjórninni. Hverjir
í rannsóknarnefndinni verða, frétt
íst ekki fyr en eftir þenna fund.
J>etta virtist koma eins og þruma
úr heiðskíru lofti yfir suma þing-
mennina. og spurðu þeir, hver
væri valtlur að þessu, að fara nú
að leggja drög fyrir "ýja rannsókn
í kornverzlunarrekstrinum. En
þeirri spurningu var álitið óþarft
að svara.
Há var rætt um fjárveitingarn-
ar. Mr. Dixon lagði tii, að veit-
ing fyrir ýmsan kostnað við dóms-
máladeildina væri færður niður í
$15,000, úr $38,885. Hann vildi með
öðrum orðum lækka hana sem
nam því, er .T- B. Coyne lögmaður
gerir kröfur til í sambandi við
rekstur Kellymálanna. En það
var felt. Taylor foringi conserva-
t Jva gerði aðra breytingartillögu1
við þonna reikning, sem að því
I
laut að lýsa vantrausti á liberal-|
stjórninni fyrir, að gera þenna
reikning ekki úr garði sem aðra
reikninga. Hefði svona tillagai
getað komið sér illa fyrir Norris-
stjórnina, ef hún hefði verið við (
völdin, því hún var hrein og
bein vantraustsyfirlýsing. En Mr.
.Tacoh kom til bjargar liberal-
stjórninni sælu eigi að síður,
enda varð ekki slys neitt af
þessu!
Um ótal margar aðrar veiting-
ar urðu nokkrar umræður, en þær
voru að lokum flestar samþyktar
með litlum ibryetingum eða eng-
um.
Skipar að hegna lögbrjótum-
þarna gull í svona stórum stíl til
að byrja með.
Mikilsmetinn canadiskur efna
fræöingur.
Próf. W. Lashmiller, yfirmanni
efnafræðisdeildar háskólans f Tor-
onto, hefir verið boðið að halda
fyrirlestur við opnun hinnar nýju
efnafræðisstofnunar við Yale, og
er honum með því skipað á bekk
með heimsins mestu efnafræðing-
um.
Óttast vatnsgang í vor.
íbúarnir í grend við Emerson,
Man., hafa smíðað báta til þess
að greta haldið uppi ferðumhindr-
unarlaust í vor, ef mikið áflæði
verður og vatnagangur, sem þeir
búast. við.
Vínföng tekin.
Fylkislögreglan í Niagara Falls,
Ont., tók járnbrautarvagnhlass af
skozku Whisky í sínar hendur
s.l. miðvikudag. Það er metið
$9000. .Yaran kom austan að og
hét “molasjkur” á vöruskránni.
Fremur sjálfsmorð.
Burton L- Perry, 22 ára að^aldri,
og fyrrum í þjónustu Canadian
Bank of Commerce í Calgary, réði
sér bana, er lögreglan nálgaðist
gistlhúisið, er hann dvaldi á, til
þess að taka hann fastan fyrir
að lvafa gefið lit einkis verðar
liankaávísanir.
Olíugerð.
í Lethbridge, Alberta, á að
reisa $75,000 oiítigerðarhús á kom-
and’ sumri. Féð til fyrirtækteins
kemur frá Vanvouver og Leth-
briclge. Félagið á að heita Dom-
in’on Refineries Ltd. Efnið til
framleiðslunnar verður tekið úr
oiíulindunum á landamærum Al-
berta og Britisli Columbia. J. C.
Williamson frá Vancouver hefir
nmsjón verksins með höndum.
iliutir verða ekki seldir í félagi
þessu.
hann ennfremur, “er fyrir löngu
fær um að taka hlutina í sínar
hendur, og það miin sannast fyr
en seinna, að hann grípur valdið
og ráðin úr höndum auðkóng-
anna.”
Dómsmálaráðherra Hon. R. W. Gripakaupendur frá Englandi.
Craig hafði nýlega fund með dóm-
urmri og iögreglu Winnipegtoorgar
og Manitobafyilkis, viðvíkjandi
hegningu fyrir vfnbannslagalbrot.
Gaf hann þá skipun að fram-
fylgja lögunum nákvæmar en gert
liefir verið og leggja fangelsisvist
við fyrir fyrsta lagahrot. Lögin
ákvæðu það og það yrði að fgi'a
að framfylgja því ákvæði, ef lög- (
in ættu ekki með öllu að verða
fótunj troðin og virt að vettugi.
Eigendur hótelanna eru æfir út f
þetta, og segja það til þess gert
að sýna, að vfnbannslöggjöfin sé
áhrifameiri í augum alménnings,
sem bráðum á að greiða atkvæði ^
um hana, en haldið hafi verið.
Hér f bænum hefir þetta mjög!
takmarkað ef ekki með öllu tek-^
ið fyrir vínsölu.
Rice Lake gullnámuhérað.
Um $4000 dollara virði af gulli
hefir verið sent frá Rice Lak< |
héraðinu til peningasláttustofnun
ar stjórnarinnar í Ottawa, af
I
Kingtisher námafélaginu í Winni-
peg. Af þeirri upphæð þurfti fé |
lagið að greiða $106 f ' afgjald
(royalty) til stjórnarinnar- Félag
þetta hefir hlotið fyrsta (fjögra
kvarts) námuleyfi sambandsstjórn
arinnar. Og Rice Lake héraðið
er nú markað á kortinu sem gull-J
námnhérað, að skiptin stjórnar-^
innar. Ánægja er látin í ljós f
fregninni af þesu yfir því,, að það I
skyhli vera féiag, sem heima áttij
innan fyikisins (Manitoba), sem
fyrst varð til þess að framleiðal
Hér í Canada er staddur maður,
er Hiil Foster heitir, frá Norfolk
á Englandi, og er að kaupa naut-
gripi. Hann ætlar að kaupa um
20—30.000 nautgripi liér, ef hann
getur fengið þá. Maður fyrir
hans hönd I.jijaði að kaupa naui
pening f g 'ipagarðinum í St. B jf.i
face s. 1. laugardag.
4. júní helgidagur'
Dar sem fæðingardag konungs,
3. júní, ber upp á sunnudag, verð-
ur mánudagurinn 4. júní haldinn
helgur í CanaFa. Sambandsstjórn
in lýsti þessu yfir nýlega.
Bylting eina vonin.
“Það er aðeins eitt, sem sveigt
getur frnnska lýðveldið frá þeirri j
sbefnu, sem jiað hefir tekið gagn-!
vart Djóðverjum, og það er, ef J
vottaði fyrir hyltingu á býzka-
landi.” Dannig fórust Dr. Henri
Hauser, prófessor í þjóðmegunar-
fræði við hásköliann í Parfe, orð
á mentamálaþingi Oaniada, sem
nii stendur yfir í Toronto.
“Frakkland er enn hreyfiafl
trelsisins. Ef þýzkaland væri í
veruleika lýðfrjálst land, myndi
Fi-akkland og franska þjóðin kki
iiika við að fela stjórninni á hend
ur að gera friðarsamninga við
það nágranna lýðveldi. En Frakk-
land getur með engu móti samið
við hina harðsvíniðu auðvalds-
sinna, sem þar ráða nú lofum og
lögum.” sagði prófessorinn.
“býzki verkalýðurlnn," segir
Önnur ltfntf.
•‘Rommflotinn”.
Graham þingmaður frá Illinois
hreyfði því nýlega, að þeas yrði
ekki langt að bíða, að • stjórn
Bandaríkjanna fyndi sig knúða til
að senda sjóflota sinn út af örk-
inni, til þess að herja á “romm-
flotann” svokaliaða, sem út við
landhelgtemörkin fer á sveimi og
grípur hvert tækifæri sem gefst
til að smygla áfengi inn í Banda-
ríki.n. Vínsmyglun sú er orðin
þjóðinni til skammar og skaða
og verður að upprætast, segir
þingmaðurinn. Þess má geta, að
Graham þessi hefir mikið fylgi
hjá stjórninni, og er talinn lík-
legur til að verða leiðtogi repu-
hlika á næsta þihgi.
Sú átjánda.
Kona ein í Wilkes Barre í Penn-
sylvania, höfðaði nýlega má' á
móti manni sínum, Charles W.
Davis að nafni, og brá honum um
samúðarleysi og skort á heimilis-
skyldurækni. Dómslólarnir mrolt-
ust til þess að konan sýndi um-
burðarlyndi, því Davis væri 73
ára að aldri og svo væri hún átj-
ánda konan, sem hann hefði gifst
um dagana.
Pan-American félagiö.
Dr. L- S. Rovve, einn í Banda-
ríkjanefndinni á Pan-American
fundinum í Santiago í Chile, hefir
lagt til að .■ifarfssvið félagsins sé
víkkað svo, að það láti sig her-
mál skifta, eigi síður en verzlun-
ar- og mentamál.
Lamin svipum.
Mrs. Fredericka Pace frá New
York og Lynwood Bright frá Ma-
con, Georgia, voru á skemtigngu
í gre.nd við Macon nýlega, er
nokkrir dulklæddir menn gengu
fram á þau og .lömdu þau og
hýddu með hestasvipum. Brigjht
þessi hafði nýlega krafist skiln-
aðar frá konu sinni og var veitt-
ur liann. En málið vakti óhemju
æsingu, og kona hans nefndi þessa
Mrs. Bace sem orsök skilnaðarins
að nokkru leyti. Ku Klux Klan
er ltaldið að gefið hafi Bright og
Mrs. Pace þessa ráðningu.
Doyle kemur með nýjar sannanir.
Sir Arthur Conan Doyle kom
með skipinu Olympic til New
York s.l. miðvikudag. Hann hefir
nú með sér nokkur ný gögn við-
víkjandi sálarrannsóknum og ætl-
ar að leggja þau fyrir visTnda-
menn og láta þá skera úr, hvort
þau séu nokkur sönnun fyrir/skoð
unum sínum á tilveru lífsins eftir
dauðann.
I .
Kvarta undan valdi Frakka.
Verþamannasamtökin á býzka-
landi hafa sent verkamönnum
víðsvegar út um heim ávarp, sem
biður þá um að sporna af mætti
á móti valdi Frakka. Segjast
þýzku samtökin ekki gera þetta
vegna sjálfra sín, heldur vegna
allra verkamanna, því afleiðingin
komi öðrum við eigi síður en
þýzkum verkalýð-
Afnám fjölkvaenis.
Múhameðstrúarmenn f Albanfu
höfðu nýlega þing með sér í Tir-
ana. Var h»r santþykt að afnema
fjölkvæni og skylda konur ekki
til að bera blæjur fyrir andliti á
opinberum stöðum, livað sem kal-
ífa-reglan segði um það.
Cornarvon jarl dáinn.
Carnarvon jarl, sá er fyrir leit-
inni í gröf Faraós Tut-ankt-amen
;stóð á Egyptalandi, lézt s.l. mið-
vikudag. Dauðamein lians \iar
blóðeitrun, sem stafaði af biti eit-
ur skorkvikindis. Carnarvon hafði
liaJdið uppi leitinni eftir þessari
gröf á Egyptalandi í 7 ár og hafði
varið til þess utn $100,000 úr eigin
vasa. S.l. desember datt hann
loks ofan á hana. Jarldóminn
erfði hann eftir föður sinn 1890.
en hann var fjórði jarlinn af Car-
narvon, merkur maður og var
nýhnduritari í stjórnartíð Der-
bys. Hann var og annar flutn-
íngsmaður North American ný-
lcndulaganna í brezka þinginu.
Móðir þessa nýlátna, eða fimta
jkrls af Carnarvon, var komin af
rott Chesterfields lávarðar, stjórn-
málamanns mikils.
Fimti jarlinn af Carnarvon var
fæddlir. 26. júní 1866. Árið 1895
giftist hann Almina W'omhwell-
Hún erfði mikið af auði Roth-
childs, auðmannsins mikla. Hún.
ásamt dóttur þeirra og syni, Port-
chewster lávarði frá Indlandi, voru
við dánarbeð hans.
Eins og við er að búast, halda
margir á Egyptalandi, að dauði
Carnarvons jarls hafi komið sem
hogning frá Faraó gamla fyrir að
raska ró hans í gröfinni. bykjast
margir þess fullvtesir, að karlinn
hafi liaft eiturefni með sér í gröf-
ina til þess að hegna þeim, er
þangað leituðu. Og að jarlinn af
Carnarvon hafi snert þessi eitur-
cfni og blóðeitrunin liafi stafað
af þvf, finst þeim auðsær hlutur.
En vfeindameinn telja ekkert eit-
urefni hafa getað ha.ldið áhrifum
sínum svo lengi í gröfinrti, þó trú-
in um það, að Faraó hafi látið
eitthvað af þeim fylgja sér, væri
á einhverju bygð.
Cecil lávaröur og Bandaríkin.
Robert Cecil lávarður frá Eng-
landi hefir verið í Bandaríkjunum
undanfarið. Hann hefir afdráttar-
laust talað um þörfina á því, að
Ba/ndaríkin gerðust félagi í þjóða-
sambandinu, til þeas að hjálpa Ev-
rópu til að komast sem fyrst aftur
á fæturna. Að Bandaríkin taki
sig út úr og láti sig engu skifta,
hvernig alt gengur í Evrópu, á-
lítur hann ólofsverða stefnu. beg-
ar hagur Evróþu batnar, hafa
Bandarfkin hag af því sem önnur
lönd og bera sig eftir viðskiftun-
um. Hví draga þau sig nú f hlé,
þcgar þau geta orðið Evrópu til
svo mikils góðs? Hann heldur
])ví fratn, að það sé einhliða inni-
lokunarstefna, sem Bandarfkin
veifa fyrir sig.
Hvort sem Cecil lávarður hefir
rétt fyrir sér í þessu eða ekki, er
það að verða ro ljósara og ljósara,
að í Bandaríkjunum er að vakna
taiteverð hreyfing í þessa sömu
átt um afstöðu Bandarfkjanna og
Cecil heldur fram. Því itefir ver-
ið lýst yfir skýrt og skorinort af
mörgum, að aðalmálið f næstu
kosningum skuli verða um af-
stöðu Bandaríkjanna í Evrópu-
eða utanríkismálum. Og forseta-
kosning fer fram að ári liðnu. Að
ferð Cecils hafi nokkur áhrif á
þær, er því all-lfklegt.
Gömul stytta fundin.
f Mesopotamíu hefir nýlega s
fundist stytta, sem haldið er að'
sé 5200 ára gömul- Hún var fund-J
in af leiðangri, sem gerður var út j
af háskólanum í Pennsylvania og,
brezka safninu sameiginlega. Það
var í Kaldeu, Úr megin, er verið
var að grafa, er styftan fanst.
Hún er haldin að vera af Ennan-
tum konungi f Lagash, sem ríkti
3200 árum fyrir Krists burð. Stytta
þessi mun vera ein sú elzta, sem
til er. Hún er öll þakin með
sögulegri áritun, sem eflaust er
hm mikilsverðasta fyrir söguleg-
ar rannsóknir þessara fyrri alda.
,á Dominion verzlunarskólann í vet-
ur. fóru s.l. laugardag til Riverton
og munu dvelja þar i sumar.
Winnipeg.
Thqrvaldur Thorsteinsson frá
Keewatin, Ont., seni ásamt dóttur
sinni, Mrs. Fraser, Hefir um tveggja
vikna tíma dvaliö hér vestra, í Sel-
kirk og Wininpeg, hjá kunningjum
og venzyafólki, iagði af stað heim-
leiðis aftur s.l. laugardag.
Bótnar við vísuhelmingana í seÍR-
asta blaði hafa margir borist og
verða þeir geymdir og birtir í næsta
blaði, ásamt fleiruni, er berast
kunna.
Misprentun varð á aðgöngumiö-
um að afmælisfagnaði Samtbands-
safnaðar; þar stóð “marz”, en átti
að vera af>ríl. Þetta eru menn
beðnir að athuga.
Bjarni Sveinsson frá Howard-
ville, Manitoba, er oss sagt að ætli
að flytja búferlum í lok þesSa mán-
aðar til Iveewatin í Ontario.
Leikmannafélag Sambandssa f naö -
ar er að undirbúa skemtisamkomu,
sem haldin verður seint í þessum
mánuði eða í byrjun ma'í. Góðir
ræðumenn verða fengnir til að kapp
ræða þar um vínbannsmálið; einnig
upplestur, söngur og fleira verðuc
þar til skemtunar. SkemtiskráÍR
verður auglýst s’ðar.
Isleifur Johnson frá Hove var
staddur í bænttm s.l. fimtudag.
Hann kvað líðan Islendinga þar í
bygð góða.
Mr. og Mrs. Elías Elíasson £rá
Westbourne, Man., voru stödd hér í
bænum um páskana. Þau brugðu
sér norður til Selkirk til að heim-
sækja skyldfólk sitt þar, en héidtl
heintleiðis s.l. mánudag.
Jónas Hall frá Edinburgh, N. D.,
var staddur í bænunt yfir páskana.
Hann var að leita sér lækninga við
augnveiki. Af viðtali við hann,
meðan hann stóð við inni á skrif-
stofu Heimskringlu, duldist það ekki
að hann er enn sem fyr ungur í
anda og athitgull.
Halldétr Daníelsson frá Langrutlt
leit inn á skrrfstofu Heintskringiu
s.l. miðvikudag. Hann stóð stutta
stund við, en hafði frá niörgu
skemtilegu að segja, enda er hann
þiilur í íslenzkum fræðum. Hann
var þingmaður um eittskeið heima
á Islandi.
Samkoma til hjálpar nauðstaddri
fjölskyldu vetrður haldin næsta
mánudagskvöld (16. þ. m.) í Sam-
bandskirkjunni á horni Sargent og
Banning stræta. Þar flytur séra
Rögnv. Pétursson stutta ræðtt. og
söngvar verðá þar ntargir og góð'r.
og þarf ekki nema benda á nöfn
þessara. er þátt taka í þeini: Mrs.
I’. S. Dalmanrt. Mrs. Alex Johnson.
séra Ragnar E. Kvaran, Arthur
Furney og Mrs. C. Brown. Svo
hefir og ung stúlka Jiar upplestur.
Samkoman byrjar kl. 8.15 að kvöld-
inu. Inngangur 25c.
Jóhannes Johnson frá Mikley
var stadur í bænum s.l. fimtudag.
Hann var að sjá fiskiviðskiftamenn
, . . ' . i
stna í Selkirk og brá sér til W-nnt-
peg um leið.
Mrs.' Sigurborg Haligrímsson að
Glenboro, Man., lézt mánttdqginn 2.
apríl s.l.
Jón Reykjaltn frá Selkirk var
staddur í bænuim í gær.
Brynjólfur Þorláksson eöngkenn-
ari kom nýlega til bæjarins. Hann
hefir verið noröur í Arborg um
tíma við söngkenslu og við að stilla
hljóðfæri. Hann hygst að dvelja
hér, til loka þessa mánaðar og gefur
sig við að stilla hljóðfæri þann
t'ma. Vér viljum benda þeim Islend
ingum á það, sem þttrfa að láta
stilla hljóðfæri sin, að Mr. Þorlaks-
son er þaulvanur þvi verki. og er
kunnur að vandvirkni. Hann er að
hitta daglega að 631 Victor St.
Sími N 6549. Sjá auglýsingit á
öðrum stað í blaðintt.
Kriðrik Guðmundsson frá Mozart,
Sask., var staddur hér í bænum t
vikunni sem leið. Hann hélt vestur
aftur á föstudag.
Sttnnudagaskóli Sainliandssafnað-
ar byrjar framvegis kl. 11 f. h., í
stað kl. 2 e. h., eins og áður var.
Foreldrar þeir, er senda börn á
skólann eru beðnir að athuga þetta.
Einar Þorgr'tmsson frá Amaratith
var staddur i bænurn s.l. mikviktt- j
dag.
Árni G. Johnson frá Vogar, Man.
var staddur i bænum s.l. miðviktt-
dag. Hann fór út til Langruth og
bjóst við að dvelja þar mánaðar-
tíma.
Steinunn Jónsson frá Hnausum
kom til bæjarins s.l. miðvikudag. ;
Hún fór dagin neftir út til Lundar i
til að heimsækja systur sina Kat-
rinu, og dvelur hjá henni nokkra j
daga. |
Séra Albert Kristjánsson kom til
bæjarins á þriðjudaginn í síðustu
viku. Hann kom til þess að jarS-
syngja Mts. G. Mathews, er jarð-
sett var þann sama dag.
Mrs. G. Hansson og sonur hennar
Ingi Hansson, sem gengið heftr hér
Þá hefir Manitoha þingið sam-
þvkt að veita áfengisfélaginu hérna
(Moderation League) ósk sína, og
láta ganga til atkvæða á næsta
sumri, liklega í ' byrjun júní, um
það. hvort vinbanniö skuli halda á-
fram í Manitoba eða ekki.
Við Goodtemplarar vonum, að all
ir bindindisvinir beiti áhrifum stn-
um og atkvæðum þannig, að vín-
bannið verði samþykt á ný með
meiri atkvæðamun en áður.
En þetta strið, sem við erum nú
neyddir tjt i, kostar okkur meiri
peninga en við höfum ráð á. Þess
vegna var kosin nefnd í stúktmni
Heklu til þess að safna fé, ‘ og sú
nefnd hefir nú samþykt að 'eita
samskota í þeirri von og trú, að því
verði vel tekið af öllum þeim, sem
unna vínbanninu sigurs á ný. Hvort
þeir eru i Winnipeg eða öðrum
bæjum og bygðum, nær eða fjær,
öll hiálp i þessu efni verður þakk-
samlega meðtekin og kvittað fyrir.
B. M. Long.
620 Alverstone St., WinRÍpeg.