Heimskringla - 04.07.1923, Blaðsíða 1

Heimskringla - 04.07.1923, Blaðsíða 1
/ ROYAU, CROWN Senði'B eftir verBIlsta til Roynl Crown Soap L*t<t. 654 Main St., Winnipeg. Verðlaun gefui fyrir Coupons og umbúðir Verðlaun gefia fyrir 1 ROYAU 1 CROWNI Coupons SOAP OJ 8endl?5 eftlr ver?511sta tll Koyal Crown Soap Ltd. umbúðir «SUÍ?ln,st” XXXVII. ÁRGANGUR. WINNIPEG, MANITOBA, MIÐVIKUDAGINN 4. JCLI, 1923. NO'MER 40 Stofaþing, Stofnþing “Hins Sameinaða kirkju- Eéiag.s íslendinga í Norður-Ame- ríku” hófst sunnudaginn 24. júní s.I. í kirkju Samibandssafnaðarins í Winnipeg. Prestar og fulltrúar mœttu frá þeSsum söfnuðum: Sam- bandssöfnuði í Winnipeg, Árnes- söfnuði, Gimlisöfnuði, Árborgar- söfnuði, Grunnavatnssöfnuði og Quiil Lake söfnuði í Wynyard, Sask. Nöfn f'ulltrúaima og þrestanna hafa þegar verið hirt í Heimskringlu. Ennfreniur sóttu þessir iiienn þing- ið með fullum þingréttindum: iDr. Á. H. Bjarnason frá Rvik. S. S. Bergmann frá Wynyard. Joseph B. Skaptason frá Selkirk. Metúsalem ólason frá Akra. Séra Magnús J. Skaptason fra Hnausa, og Sigurður J. Yídal, einnig frá Hnausa. Átta fundir voru haldnir. Þegar í byrjun gerði þingið einróma yfir lýsingu um að það teldi rétt og heppilegt, eins og sakir stæðu hér vestan hafs, að mynda nýjan kirkju- legan félagsskap með hlutaðeigandi ifrjálstrúarsöfnuðum Vestur-fslend- inga. Og það várð. Prumvarp það til grundvallarlaga er Wynyardmótið afgreiddi s.l. des„ var samþykt því nær óbreytt. Sunnudagaskóla- og kenslumál voru mikið rædd. Samjþykt var svohljóðandi nefndartillaga: ‘Þing- ið skorar á stjórnarnefndina að annast um: 1) að ávalt séu nsffgar birgðir fyr- irliggjandi af barnabiblíum; 2) að samið verði kver, er taki við af stafrófskvcrinu og nota inegi \ ið sunnudagaskólakenslu; 3) að félagið taki-að sér að ljúka við útgáfu lesbókar þeirrar, er séra Eyjólfur J. Melan hefir samið og nú er f prentun.” Bauð séra E. J. Melan að gefa fé- laginu alt verk sitt og fyrirhöfn við bók þessa, og vottaði þingið honum þakkir. Samþytkt var að ‘helgisiðamálið skyldi falið prestum kirkjufélagsins til afgreiðslu fyrir næsta þing;. Samþykt var að gera engar sér- stakar tillögur um fjárframlög safn- aðanna í félagssjóð á næsta ári, en leita frjálsra samskota eftir þörf- um og kringumstæðum. Samþykt var að stjórnarnefndin skyldi sjá um, að hver islenzk bygð sem færi á mis við fasta prests- þjónustu, verði heimsótt af ein- hverjum presti félagsins á þessu ári, til þess að útbreiða stefnu fé- lagsins og leita henni styrktar. Annars bar töluvert á þeirri skoð un meðal fundarmanna, að félags- * skapnum lægi mest á fyrst um sinn, að styrkja sig innbyrðis, full- nægja þörfum sjálfra félagsmanna, koma sunnudagaskólum í viðun- andi horf o. s. frv. — miklu fremur en að eflast út á við að safnaða- ar utan Winnipegborgar voru gest- ir Sambandssafnaðarins meðan á þinginu stóð. Þegar fyrs.a þing- daginn (sunnud. 24. júní) bauð kvenfélag safnaðarins Jiingheimi og öllum utanbæjargestum þingsins til rausnarlegs kvöldverðar í sam- komusal kirkjunnar. Næsta dag, eftir kl. 2V4, létu safn- aðarmenn aka þingmönnum og gestum í bifreiðum. í þeim hópi voru meðal annars dr. Ágúst íi. Bjarnason og frú hans. Fyrsti á- fangastaðurinn var hið veglega þinghús Manitobafylkis. Þar tók á móti iandanum Black fjármálaráð- herra fylkisins, í fjarveru Brackens forsætisráðherra, — með mikilli prýði og lítillæti, og lét síðan sýna oss dásemdir þessa mikla stjórnar og laga-musteris. Að þessu loknu fylkti landinn sér utan dyra fyrir framan standmynd Jóns Sigurðs- sonar og lét af sér mynd taka. Eins og fyrirfram mátti vita, er það mynd mjög fögur. Þaðan var för- inni haldið áfram, margar mílur vegar. út að Rauðár-stíflunum miklu, þar sem lyftifevíin er fyrir skip þau, er eftir ánni ganga. Star- að var á stórvirkið, hvítir dúkar breiddir á græna grundina, kræsing ar etnar og kaffi drukkið: síðan haldið heim. Þetta kvöld flutti dr. Ágúst H. Bjarnason fyrirlestur í kirkju Sam- bandssafnaðar um Magnús Eiríks- son guðfræðing. Flestum þótti un- un á að hlýða. Þriðjudagskvöldið efndi svo söfn- uðurinn til samkomu þar sem sung- ið var og spilað og ræður haldnar. Þar talaði, auk annara, dr. Bjarna- scui. Taldi hann það Ijæði skemti- injtt og nauðsynlegt» ísleudingum. austan hafs og vestan, að “brúað yrði hafið” (sbr. ritgerð dr. Jóhann- esar Pálssonar í síðasta hefti Tfina- rits Þjóðræknisfélagsins), og að það væri verlcefni mentamannanna Benti ihann í því -sambandi á, að brúin þyrfti tvo brúarsporða, þ. e. a. s. tvo stúdentabústaði, hvorn sínu rnegin við hafið. Lýsti hann síðan hinni kappsainlegu viðleitni, sem nú er hafin hinumegin hafsins, til framkvæmda byggingu annars brú- arsporðsins, — nýs, myndarlegs stúdentaheimiiis í Reykjavik. — Að kvöldi næsta dags flutti séra Albert E. Kristjánsson fyrirlestur um “Kirkjuna og þjóðmálin” — að dómi undirritaðs mjög eftirtektar- vert og tímabært erindi. — Að því loknu fór fram síðasti fundur þingsins og stóð fram til kl. ellefu. Yms mál' voru þar rædd og a£- greidd og síðast fundargerð lesin og samþykt; þingi síðan slitið. Skildu menn sáttir og ánægðir; samvinn- an hafði tekist vel þessa daga, og menn virtust fúsir til þess að vinna saman framvegis. Friðrik Friðriksson skrifari. jæssu landi, að einn af sonum þess skyldi vera upjígötvarinn. J. S. Woodswortjh, verkamanna- fulltrúi, kvað ekkert meira vert en það að lina þjáningar sjúkra. Stálverksmiðju verkfallið. Það virðist vera farið að grána gamanið í Nova Scotia í sambandi við verkfallið í stálverksmiðjunum. Yerkamenn heimsóttu verk.siniðj urnar með grjóthr.íð s.l. sunnudag og brutu glugga og ollu öðrum skemdum. Nokkrir menn meiddust. Herlið var kallað út og fallbyssur sýndar, en það hafði ekki mikil á- hrif á verkamennina. T. F. Rout- ledge dómari byrjaði að lesa lögin um, hverju það varðaði að gera uppþot, en steinahríðin dundi þá yfir hann og gat hann með naum- indum lokið við þau. Þessum óróa þarna lauk þó brátt í þetta sinn. En aðgerðalausir eru verkamenn samt ekki, því tilraun er sagt að þeir hafi gert til að nífa upp sporin á brautunum frá Halifax til Sidney, en þaðan eru ihermenn á leiðinni til að halda verkamönnum í skefjum. — Frá Montreal, Quebec, Lohdon og Tor- onto er auk þessa von á hermönn- um til að gæta stálverksmiðjanna og ógna verkfallsmönnum með. Kvenfrelsi. “Innan 6 ára verða konur í öllum löndum heimsins búnar að fá at- kvæðisrétt,” segir Mrs. Bertha L. Stavert frá Calgary, sem nýkomin er heim af alþjóðaþingi kvenna, c’- lialdið var í Róm. Það var níunda ársþing kvenfrelsisfélaganna, og íblkt kveníóikinu svoha vel á útlit- ið, að því er sigur kvenfrelsismáls ins snerti. Sýning. Iðnaðarsýning Manitoba hófst s.l. inánudag. Braeken forsætisráð- liorra oiinaði sýninguna með hvatn- ingarræðu til íbúa fylkisins að / léggja rækt við iðnað þann, er með sýningunni væri verið að gera til- raun til að útbreiða. Þingi slitið. iSambandisþinginu var slitið sl. laugardag. Byng landstjóri stýrði athöfninni eins og lög gera ráð fyr- ir. 1 þingslitaræðu sinni gat hann ])ess, að eftir upjiskeruhorfum að dæma væri nú ástæða til að vera vongóður. Frumvörp, sem ekki urðu að lög- um, vegna þess að senatið setti sig upp á móti þeim, eru þessi: Um lagningu járnbrautastúfa (branch- es) á C. N. R. kerfinu; Lake of the Woods frumvarpið; um að endur- bæta vínibannslög landsins (snert- andi innflutning á áfengi til B. C.). Það sem þingið hefir aftur sam- þykt, er: Viðskiftasamningar við Frakkland og ítalíu; breytingar á eða fólksfjölda. Kosning embættismanna ''fyrir næsta ár féll sem hér segir: Forseti: séra Ragnar E. Kvaran, Winnipeg. Skrifari: Séra Friðrik Friðriksson Wynyard. Féhirðir: Hannes Pétursson, Win- nipeg. Varaforesit: Séra Albert E. Krist- jánsson, Lundar. Varaskrifari: Fred Swanson, Win- nipeg. Varafóhirðir: Guðm. Ó. Einarsson Áriborg. Gæzlumaður skólamála: S. Björg- vin Stefánsson, Winnipeg. Samþykt var að kirkjuþing skyldi haldið næsta ár síðari hluta júní- miánaðar, á þeim stað, er stjómar- nefndin tiltekur. Þingið fór ákjósanlega vel fram. Menn voru einhuga um stofnun þess og stefnu. Fulltrúar og prest# ------------x----------- Canada. Dr. Banting. í viðurkenningarskyni fyrir að hafa uppgötvað lækningu við sylc- urveiki (insulin) hefir sambands- þingið samþykt að veita dr. F. W. Banting í Toronto $7500 á þessu ári til þess að hann geti helgað starf sitt rannsóknum í lækningum. Forsætisráðherra King lagði það til að dr. Banting væri veitt þetta fé og kvdð hann það þakklætisvott frá fbúum þessa lands lækninum til handa. Meighen kvað upjrgötvun læknis- ins ómetanlega blessun inannkyn- inu til handa. Röbert Forke, leiðtogi bænda- flofcfesins, sagði að auk þess sem mannkynið hlyti gott af uppgötv- un dr. Bantings, væri það sómi bankalöggjöfinni (mjög lítil þó); smávægilegar breytingar við lögin um skatta og tolla, skipun nefndav til að hafa eftirlit með kornsölu og flutningi á korni (til að bæta úr ó- sköpunum, sem í frammi voru höfð af skipafélögunum gagnvart bónd- anum, en sem vafi er á að verði iæknuð með eftirlitsnefnd þessari.) um heilagfiskisamninginn við Bandagíkin. Þetta snerta helztu lögin, er samþykt ltgfa verið á þing- inu og hefir áður verið minst á þau mál. Hin smærri mál, er þingið af- greiddi, eru of mörg til þess að vera hér talin. Fylkisþingið kemur saman. Manitobaþingið kemur saman 25. júlí n.k. til þess að lögleiða frum- vprj) Moderation League um stjórn arsölu á áfengi. Búist er við aö þingið standi ekki lengur yfir en viku. Engin mál önnur en þessi vínlöggjöf og frumvarp Beer and Wineifélagsins, verða til meðferðai í þett.a sinn, nema ef vera skyldi um kaup lnngmanna. Því er lialdið fram að fyrir stjórhinni vaki að borgajfjpkkert fyrir þetta þingstarf. En það er samt hætt við, að allir þingmenn séu ekki ánægðir með það og þvf muni verða hreyft, með tillögu á þinginu, að þeim verði goldnir 200—300 dollarar fýrlr þetta aukaþingstarf. Atkvæöagreiðsla 11. júlú Næstkomandi miðvikudag fer fram atkvæðagreiðsla um frum-1 varp Beer and Wine félagsins. öll tilbögun á atkvæðagreiðslunni er hin sama og sú, sem viðhöfð var, er atkvæði var greitt um frumvarp Moderation League. Þeir sem eru með þvf að öl sé selt við máltíðir á ' hótelum, marka á atkvæðaseðilinn | fyrir aftan orðið YES, en þeir sem ; eru ekki með þeirri ölsölu, merkja j seðilinn fyrir aftan orðið NO. Það \ er talsvert undir ]>\i k'oinið, að seni; flestir greiði atkvæði þenna dag,! þó að atkvæðagreiðslan nýafstaðna færi eins og hún fór. Séra Crismas látinn. Séra Walter E. Clirismas, trúlækn- irinn alkunni, lézt snögglega að heimili sínu í Winnipeg 29. júní s.l., 72 ára að aldri. W. E. Chrismas er fæddur á bónda bæ á Englandi. Þegar hann var 19 ára fór hann til Bandaríkjanna að' reyna hamingjuna, eins og fleiri, og dvaldi þrjú. ár við veiðar í Ne- ■braska. Að l>eim tíma liðnum sneri hanþ aftur til Englands og starfaði ; L vndúnum. Snerist liann þar á sveif Sáluhjálparhersins og gerðist ötull starfsmað\ir þess fólags. Árið 1886 kom Chrismas í fyrra sinn til Winnipeg og prédikaði þá j undir beru lofti. Tveimur árum seinna fór hann aftur til Englands. en fluttist stuttu síðar til Halifax, N. S. 1889 fór hann til Ástralíu i sömu erindagerðum. 1892 kom hann aftur til Winnipeg. Keypti hann sér land í Saskatchewan, og frá þeim tima prédikaði hann stöðugt í Canada og Bandaríkjunum, þar til 1916, að hann kom alkominn til Winnipeg. Segir af sér þingmensku. F. J. Dixon þingmaður sagði af sér ])ingmensku í gær. Annir við önnur störf eru gefnar sem ástæðan fyrir því. ----------xx---------- IS L A N D. Rv. 19. maí. Signe Liliequist, söngkonan finska kom hingað á Islandi í gær. Hafði hún komið á Gullfossi til Vest- mannaeyja. Söng hún þar fyrir bæjarbúa og höfðu þeir orðið mjög hrifnir, sem ekki er furða, þar sem ungfrú Liliequist er meðal fremstu söngkvenna á Norðurlöndum. — Með ung.frú Liliequist er ungfrú von Kaulback, ágætis píanóleikari. Mun lnin láta sérstaklega til sín heyra auk þess sem hún spilar und ir með söngnum. Rv. 22. maí. Taugaveiki er komin upp í Vest- mannaeyjum á sex eða fleiri heim- ilum, og liggja um 20 manns. Marg- ir ætluðu héðan á Gullfossi til Eyj-- anna, en hættu við það, þegar þess ar fregnir bárust þaðan. Búist er við að sóttvarnarráðstafanir verði gerðar í Eyjunum og er landlæknir farinn út þangað i þeim erinda- gerðum. Söngpróf var haldið í Mentaskól- anum á laugardaginn, undir stjórn Sigfúsar Einarsonar. Var flokkur- inn með langstærsta móti og kom fjoldi manna til að hlusta á. Var söngnum tekið með miklu lófa- klappi. Veðreiðar voru þreyttar á skeið- vellinum í gær að viðstöddu fjöl- menni. Fyrstu verðlaun fyrir stökk hiaut Sörli, eign Ólafs Magnússon- ar ljósmyndara. — Nánar verður skýrt frá veðreiðunum í næsta blaði. Rv. 25. maí. Bánarfregn. — Látin er hér í bæn- um 22. þ. m. frú Steinunn Eiríks- dóttir, ekkja séra Páls prófasts Pálssonar, síðast prests í Þingmúia en móðir Geirs Pálssonar. Séra Guðmundur Einarsson, pró- fastur í Ólafsvík, hefir verið kjörinn prestur að Þingvöllum, lögmætri kosningu. Ferðamannaskip kemur hingað 2. júlf í sumar, og fer héðan aftur 3. júlí. Skipið heitir “Araguaya”. Stærðin er 17,500 smálestir. Af- greiðslumaður verður Helgi Zoega. Skip þetta er frá sama félftgi sem skip það, sem kom í fyrra. Þuríður formaður. — Sögufélagið hefir látið prenta inynd af Þuríði iformanni, sem Finnur Jónsson á Kjörseyri teiknaði fyrir mörgum ár- um. Nokkur eintök af þessari mynd iverða seld og fást í bókabúðum. Ættu þeir að bregðast við, sem vilja eignast myndina, því að upp- lagið er- lítið. Taugaveikin var komin í 13 hús í Vestmannaeyjum í gær. Tveir eða þrír sjúklingar eru mjög þungt haldnir, en engir Ihafa dáið. Sjúkra- húsið er nú fullskii>að. en Good- temjilarahúsið er notað í stað sjúkrahúss og ráðgert að ílytja nokkra sjúklinga í barnaskólann. Horfurnar þykja ískyggilegar. Um upptök sýkinnar vita menn ekki gerla, en stimir kenna óþrifnaði í sjóbúðum og er nú verið að hreinsa l)ær í óða önn. — Síðari fregnir herma, að tekist hafi að hefta frek- ari útbreiðslu veikinnar. k Rv. 28. maí. ísafregnir. — Símað er í gær til veðurstöðvarinnar, að hafís hafi sést á reki norður af ísafjarðar- djúpi, og austur á móts við horn. Var hann á reki að landi. Hafræna heitir bók, sem dr. Guð- mundur Finnbogason prófessor hef- ir gefið út. Það er safn sjávarljóða og siglinga, alt frá elztu tímum til vorra daga. Ágæt bó>k. Nýtt blað. — Axel Thorsteinsson. sem um skeið dvaldi hér vestra og gaf hér út ritið Rökkur, hefir stoifn- að nýtt blað í Reykjaidk, sém hann kallar Sunnudagsblaðið og kemur út á hverjum sunnudegi. Gefur hann það út í stað Rökkurs, er hann hefir lagt niður. Stefnan heitir nýtt tímarit sem kemur út í Reykjavík, og virðist að- al stefna þess vera að berjast á móti bændum og verkamönnum. Rit- stjóri þess er steinn Emilsson. Gestir á Kolviðarhóli. — Hvergi mun vera jafn gestkvæmt á íslenzk utn sveitabæ sem á Kolviðarhóii. Síðustu tíu árin hafa þar gist 40,830, en 37,429 máltíðir hafa verið seldar á þeim tíma. Til jafnaðar hefir verið gestlaust 14 nætur á ári. Allir lofa gestrisni bóndans, Sig- urðar Daníelssonar,. og er tekið á móti gestum nætur sem daga. Dánarfregn. — 22. þ. m. andaðist frú Vilborg Sigurðardóttir, kona Péturs Hafliðasonar beykis. Rv. 29. maí. Einar Viðar kaupmaður andaðist í gær að heimili sínu hér í bænum. Hann tók lungnabólgu fyrir rúm- um þrem vikum síðan, og varð hún honum að bana. — Hann var sonur Indriða Einarssonar fyrv. skrif- stofustjóra, fæddur 1887, og var tæpra 36 ára, er hann andaðist. Kvæntur var liann Katrínu dóttur Jóns sál. Norðmanns. — Einar va.' hinn mesti ágætis maður, og mun hans sárt saknað af öllum, er kynni höfðu af honum. Aldarafmæli Níelsar sál. Eyjólfs- sonar frá Grímsst^ðum, var 22. þ. m. og hittust þá Ixjrn hans öll hér í bænum til þess að minnast afmæl- isins. Tvö systkinanna eru hér í bænum, prófessor Haraldur og frú Þuríður, kona PálS' skólastjóra, en hin hafa öll verið í sömu sveit til þessa: Guðný á Valshamri, Sveinn í Borgarnesi, Marta í Álftanesi, Hallgrímur á Grímsstöðum og Sess elja í Borgarnesi. Hið elzta þeirra systkina er nú 67 ára, en hið yngsta 53 ára. Nýtt vikublað er farið að korna út hér í bænum. Það heitir “Vörð- ur og er ritstjóri þess Magnús Magn ússon cand. jur. Blaðið er gefið út af stuðningsflokki Jóns Magnús- sonar á Alþingi, og er stefnuskráin vel rúmgóð. Rv. 2. júní. Hafís er nú sagðdr um 6 kvart- mflur út af Súgandafirði. Isinn sést frá Hesteyri og hindrar róðra frá Aðalvík. v ~ Norskt ferðamananskip á að koma hingað í lok júnímánaðar; leggur af stað frá Bergen þann 22. Rv. 4. júní. Lcikfimissýning var á íþróttavell- inum í gær, og þrátt fyrir súldina var þar mikill fjöldi áhorfenda. — Leikfimi sýndu karlar og konur, og tókst vel. Þá var sýnt kartöflu- hlaup, eggjahlaup og pokahlaup og þótti það góð skemtun. Hafíshroði var við Horn í fyrra- kvöld, samkvæmt skeytinu til veð- urathugunarstöðvarinnar. — Frá Siglufirði var símað í gær, að skip úr Hafnarfirði væri pú komið þang að vestan fyrir Horn, og ferð þess gengið greiðlega. — Er augljóst, að hér er ekki um neinn samfeldan ís að ræða, heldur aðeins íshroða. Hann kann að geta tept skipaferð- ir öðruhvoru, en þéttist þá og gisn- ar á víxl. Út af Dýrafirði hefir einn ig sést til fss, en lengra undan landí. Þýzka stjórnin hetfír nýlega skij)- að Sigfús Blöndahl aðalræðismann Þýzkalands hér á landi. Vilja þe.’r með því sýna viðurkenningu sína á fullveldi íslands. \ Sex-lembd ær. — I Vatnsfirði við ísafjarðardjúp átti ein ær 6 lömb í vor: fimm þeirra komu lifandi, eu eitt dautt. Tvö drápust skömmu eff- ir burðinn. Þrjú vógu 2 kg. hvert, en hin \y2 hvert, eða 10y2 kg. öll. Rv. 6. júní. Helgi H. Eiríksson námafræðing- ur er nýkominn til bæjarins úr eft- irlitsferð frá silfurbergsnámunni f Helgustaðafjalli. Vísir hitti hann að máli í gær, og sagði hann, að unnið hefði verið í námunni í vetur og eru hingað komnir 11 kassar af silfurbergi, sem unnust þar í vetur. ’Allmiklu fé hefir verið varið til að vinna námuna ,en úr þessu ætti að koma nokkuð í aðra hönd. Háskólapróf. — Þessir læknanem- ar hafa lokið prófi í efnafræði: Kristján Sveinsson I. ág. einkunn; Lárus Einarsson, Gísli Pálsson, öl- afur Helgason, Jens Jóhannesson, allir með I. eink., .Tón Nikulássou og Bjarni Bjarnason frá GeitaJbergi II. eink. betri. ----------xx-----------

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.