Heimskringla - 15.08.1923, Qupperneq 1
VerðlaoB
gefb
fyrir
Coupooj
og
SendiTi eftir vert51ista til
Koynl ('rowii Soap Ltd.
664 Main St., Winnlpeg. (llTtbÚOÍr
Verðlaon
gefi»
fyrir
Coapoos
•?ueieftir verT51ista til
*»..>«( Cro« ii Soap Ltd.
v . *\ia.in St., Winnipeg.
XXXVII. ÁRGANGUR.
WINNIPEG. MANITOBA, MIÐVIKUDAGINN 15. ÁGÚ'ST, 1923.
NOMER 46
Ganada. <
Vínsalan.
Nú er búið að skipa alla í nefnd-
inp, sC:,i Sjá á um vínsöluna. R. D.
Waugh er formaður hennar. En
skutil-sveinar hans eru W. J. Bul-
man og W. P. Dutton. Eru þeir
báðir alþektir kaupsýslumenn
t»essa bæjar. ilin fyrnefndi er for-
maður Bulman Bros prentfélags-
ins, en hinn síðar taldi formaður
Dulton-Wall og Great West viðar-
félaganna. Kaup þeirra hvors um
sig er $5,000 á ári, en R. D. Waugh
$12,00. Er gert ráð fyrir að Waugh
einn vinni fullan tiina í nefndinni,
en hinir gegm sínum fyrri störf-
jafnframt Vínsalan byrjar 1. októ-
ber n. k. Waugh et enn yfir í Ev-
rópu, en býst við að verða kominn
hingað í lok þessa mánaðar. Um
verð á víninu er það að segja, að
pottflaskan af Rye eða skozku
Whiskey verður um $5.00. Skattur
á henni er um $2.50. Ivostar hún
þá að heildsöluverði viðlögðu $4.00
og ef stjórnin gerir ráð fyrir 25%
kostnaði, lætur nærri að það verði
$5.00 flaskan.
Ársreikningar fylkisins.
Ejárhagsár Manitoba-fylkis er út-
runnið við lok þessa mánaðar. Eft-
ir því sem stjórnar formanninum
John Braeken segist frá, er fjárhag-
urinn bærilegur og útgjöld hafa
hvergi farið fram úr því sem áætl-
að var. En tekjur hafa orðið minni
en ráð var gert fyrir í ýmsum grein
um. T. d. tekjur af kornsölu og gas-
olíuskatti, urðu meira en helmingi
minni en áætlað var, og svo er með
fleira. Vegna þessa er tekjuhalli
eins og við var búist l>etta árið svo
að nemur um $1,500,000. öll útgjöld
voru áætluð $11,400,134, en tekjur
$10,073,043. Á engri sérstakri trygg-
ingu hefir stjórnin þurft að halda
í ár, og er það í fyrsta sinni að
þess hefir ekki þurft með s. 1. 10
— 15 ár.
Deyr af víneitrun.
Einn af vinnumönnunuin á
Joihnny J. Jones sýninguni í Winni-
peg, fékk sér í staupinu meðan
hann stóð hér við. En svo “gör-
óttur” var drykkurinn, að maður-
inn veiktist af honum og var flutt-
ur á alfnenna sjúkrahúsið, og þar
dó hann af eitrinu, sem í víninu
var innan hálfrar klukku stundar.
KornsöluráS í myndum.
Eullyrt er að bænda-félagið í
Manitoba ætli að verða búið að
koma á fót sameignarfélagsskap um
það leyti er kornsala byrjar hér í
haust, eins og Vestur-fylkin, Al-
berta og Saskatchewan, til þess að
hafa kornsöluna með höndum.
Vinna byrjuS á H. B.
járnbrautinni.
Nokkrir menn eru byrjaðir á að
gera við það, sem aflaga hefir far-
ið á H. B. járnbrautinni norður af
Le Pas. Er sagt að setja eigi kraft
á það í haust, að ljúka við pað af
brautinni sem byrjað hefir verið á
að minsta kosti. Hópur manna er
að búa sig þangaö héðan úr Winni-
peg þessa dagana.
Burt meS “kúa-pólitíkina”.
Samuel Sims, sá er eftirlit hefir
haft með kaupum og sölu á kúm
fyrir Manitoba-stjómina, var vísað
frá því embætti nýlega af Bracken
stjórninni. Dessi stjórnarstarfsemi
verður lögð niður, og verður reynt
að innkalla útistandandi skuldir í
sambandi við hana. En þær nema
nú $264,477. Gangurinn í rekstri
þessum var sá, að kýr voru keyptar
af þeim dýru verði, sem með þær
kunnu að fara, og lánaðar þeim, er
ekki kunnu það. Eru þessir menn
því í skuld við fylkið. Hjálp sú er
með þessu átti að veita, hefir ekki
blessast, þvf menn þessir hafa ekki
enn kómist úr skuldum sínum, og
svo skuldar fylkið þeirra vegna.
Það virðist sem enginn hafi auðg-
ast á þessum búhnykk liberal-
stjórnarinnar.
Strætisvagnaþjónar kærðir.
Þrír strætisvagnaþjónar í Winni-
peg hafa verið kærðir fyrir þjófn-
að. Félágið hefir komist að því, að
'Undanfarin tvö ár hafa faríniðar
(tickets) verið seldir í blóra við
það, og uppgötvað loksins, að vagn-
stjórar nokkrir höfðu náð farmið-
um úr kössum þeim er þeir eru
látnir í og vagnstjórar hafa. Þá
farmiða seldu vagnstjórar svo aftur.
Þrír þeirra hafa nú verið kærðir.
En þessi farmiða-þjófnaður hefir
þó á annan hátt einnig verið fram-
inn. Menn sem unnu á skrifstof-
um strætisvagna-félagsins hafa þar
náð í farseðla félagsins og selt
Vagnstjórum þá á laun. Er nú haf-
in rannsókn í þessu. Telur félagið,
að það hafi.með þessum liætti tap-
að $25,000 á vs. 1. tveim árum.
Önnur lönd
Bylting á Þýzkalandi.
Bylting virðist haíin á Þýzka-
laucU. Hún byrjaði s. I. föstudag
með1 því að vistalaust fólk ætti inn
í garða úti um sveitirnar og inn í
búðir í baejunum til þess að ná í
eitthvað til þess að slöggva með
liungur sitt. Skotum hefir lands-
lýðurinn skifst á og hafa allmargir
(frá 10 2". verið drepnir í liverj-
um hinna stærri bæja á dae síðan.
Og óspektirnar virðast fara vax-
andi. Cuno stjórnarformaður sagði
at' sér s. 1. laugardag, en við völduin
tók aftur Streseman, foringi Volks
(fólks) fiokksins. Rikisbankanum
hefir verið lokaö vegna peninga-
leysis og öllum bönkuin í Berlín.
Biöð hafa og flest hætt að koma út
í bæjunum vegna verkfalla. Leysa
nú 1,800,000 mörk út dollarinn. Búð-
um hefir og mörgum verið lokað,
enda höfðu þær orðið lítið að selja.
í sumum smærri bæjum og þorp-
um höfðu matvörubúðir hvorki
kjöt, smjör, svínakjöt, egg eða kart-
öflur í fórum sínum. Þar sem mjör
var fáanlegt, kostaði pundið mil-
jón inörk, smjörlíki 500,000 mörk og
svinslæri 900,000 mörk pundið. Var
auðvitað að ekki gæti lengi hald-
ið þaning áfram, því vttrkalaun
eru hlutfallslega ekkert borin sam-
an við þetta verð. Verkfallsmenn
11. d., sem voru préntarar báðu um
! 20 gullmörk á viku, sem er um
$3.80 eða sem næst 50 centum á dag
— rétt fyrir eitt smjörpuud á nú-
verandi verði þess. Af síðustu
fréttunt að dæma, virðist bylting-
in vera að breiðast út.
Skaöabótamálió.
Ekki greiðir það leiðina til sam-
koinulags í skaðabótamálinu,
livernig ástandið er að verða á
Þýzkalandi. En ennþá arg-vítugra
í augum Frakka er þó hitt, hvern-
ig Bretar taka orðið i það mál.
Þeir hafa nú obinberlega og ein-
dregið látið í ljósi, að innrás
Frakka í Ruhr-héraðið sé tarot á
samþyktum sanibandsþóðanna. Má
nærri geta hvílfkur snoppungur
þetta er á Prakka, þegar þess er
gætt, að Bretar eru öflugasta og
áh’rifainesta þjóð sambandsþjóð-
anna vestlægu. En forsætisráð-
herra Frakka, Poincare, er enn hinn
| svæsnasti á móti þessu og etjar og
j egnir þjóð sína til að halda kröf-
I um sfnum sleitulaust fram. Hann
kveður Erakka ekki hafa /haft
neina lögleysu í frammi með inn
rásinni í Ruhr, því í Spa sainn-
lngnum í júlí 1920, sé svo að orði
kveðið, að sambandsþjóðirnar verði
að taka lönd af Þjóðverjum, ef
þeir láti þær ekki hafa það af kol-
um sem ákveðið sé innan ákveðins
tíma. En í Versafia-samninginn
vitnar liann ekki, sem þó er aðal
samningurinn viðvíkjandi skaða-
bótunum. Annars hafa ræður
Poinoares sfðustu dagana meira
lotið að því, að lilása að haturs-
eidinum gegn Þjóðverjum en
nokkru öðru. Italía er með Bret-
um og Japan, og virðist sem Frakk-
land megi þá fara að vare sig, þó
aldrei nema að Belgía og Tyrkinn
só með því. Eitt með ö'ðru, sem
Frakkar láta sér um nrunii fara um
Breta, er það, að þeir séu búnir
að svíkja sambandsþjóðii sínar og
séu gengnir í lið með Þjóðverjum.
Svona er sanngirnin mikil hjá
Frökkum. Sem stendur virðast
þeir ekki skeyta neitt um rauuir
og þjáðningar annara þjóða í Ev-
rópu. Ef Frakkland græðir á því,
að undiroka þær sem lengst, er
hugsjón Frakka fullnægt.
Kosningar á íriandi.
Kosningar til l»ingsins fara fratn
á Irlandi 27. ágúst n. k. Útnefn-
ingu þingmanna-efna á að vera lok-
ð 18 þ. m. Mælt er að áhugi inann, (
sé fremur daufur fyrir kosningunni.
Fri-ríkið eða stjórnar-flokkurinn er
talinn sterkastur. En samt er okki
gert ráð fyrir að hann nái nema
um 60'þingsætum af 153 alls. Næst-
ur honum er bændáflokkurinn,
sem ráð er gert fyrir að muni ná
40 sætum. Þá er verkamanna-
flokkurinn allsterkur, en tví-, eða
þrjskiftur; eru sumir þnirra óháð-
ir, aðrir fylgjandi stjórnarflokkn-
um, en mestur hluti þeirra þó
verkamannaflokkur og andstteoftr
stjórninni. Lýðfrelsisflokkur de
Valera er gert ráð fyrir að nú muni
ná 12 sætum. Bændur taka ef-
laust saman við Frí-ríkisflokkinn.
de Valera sjálfum er talið sæti sitt
víst. En svo er þetta auðvitað alt
spádórnur uin úrslit kosninganna
og er hér aðeins tekið fram til þess
að gefa yfirlit yfir styrkleik flokk-
anna og aðstöðu þeirra, eftir því
sém blöðin hér herma hana.
----------------x------------
Fréttabréf.
____ Jr
Markerville 2. ág. 1923.
Frá veðráttunni hér hjá Islend-
ingum er nú gott eitt að segja.
Eins og áður hefir verið frá sagt,
var veturinn einn með þeim beztu.
sem hér hafa komið yfir mörg ár.
Fóðurbyrðir reyndust nógar, og
allur kvikfénaður gekk vel undan
vetri. Vorið var mjög ískyggilega
þurt og kaTt, fram til 25. maí; þá
breyttist tíðárfarið algjörlega til
betra, svo hagkvæmnara varð ekki
ákosið;; blíðviðri með nægilegum
rigningum hélzt allan júnímánuð
og til nálægs tíma: að vísu gjörði
hét' nýlega storm-byl með nokkru
liagli, sem kann að liafa skemt á
stöku stað: einkum lagst niður af
veðurofsanum, þ* r sem þyngst er á
ökrum.
Aðfaranótt 1. 1». m. varð frost-
vart, sein þó mun lítið eða ekk-
ert hafa skemt. Akrar og gras-
hagi er vel gróðið, má segja í bezta
lagi, þegar þess er gætt, hve jörð
var orðin nfdd af lofþurkum ’og
yfirgangi næstl. tvö ár. Um 20.
f. m. var byrjað hér að heyja, þó
ekki alment; verði veðráttan hér
eftir iiagstæð og væg má vænta
góðs um alla uppskéru; þó er hætt
við, að akrar verði víða seint til,
undir slátt; akrar eru orðnir hér
umfangsmiklir og taka langan að-
vinnslutiipa.
Alment er hér góð líðan fólks og
heilsufar gott. Fyrir stuttu varð
hér hörmulegt slys. Unglings
piltur, fóstursonur þeirra Mr. og
lslendingadagskvæði flutt að Hnausui
2. ágúst 1923.
ÍSLANDS MINN!.
Ættarjörðin íss og báls,
Með ægisgjörð og faldinn fanna,
Frelsisvörður liugsjónanna,
Næturvörður norræns máls.
Bak við tjaldsins regin rök
Rúnir kaldar leiðir vísa,
Skautum falda elds og ísa
Útlent vald og heljartök.
Höfguni brám þá landið leit
Lyftast bárur veðrahranna,
Brunasárin böls og fanna
Bak við ár í hverri sveit.
Víst ei sefur vættur sands.
Vonin lifir lands í æðum,
Ljós því hefir sent af hæðuþi
Sá er gefur: Guð vors lands.
t
Frelsisroði um f jallsins brár
Framtak stoði landsins sona;
Legg þú boði lífs og vona
Líknar voð á Urðar sár!
Kennir saga lýðs og lands.
Skapalag í rúnum ristum
Renni dagur orku og listum
Við hjartaslag vors bræðrabands.
Hörpustrengur, hetjuljóð
Hljómi lengi um jörð og flæði,
Samantengi um grund og græði
Góða drengi, menn og fljóð.
íslands blær um árdags stund
Ennþá hlær í bernsku-lundi,
Hreinn og skær se m barn 'í blundi,
Blóm sem grær á frónskri grund.
Lifi ísland! íslenzk þjóð
Öflug rísi á kraftsins lindum;
Ætíð lýsi af lands vors tindum
Leiðarvísir, kærleiksglóð.
S. E. Björnsson.
MINNI NÝJA ÍSLANDS.
\
Þú Norðurland hins mikla meginlands!
Þitt minni, landnám hartnær fimtíu’ ára,
Við hefjum upp við ár og vatnaglans —
Hvort er hann bjarmi þinna gleðitára?
Hver sigur unninn þér á þinni braut
Með þrekraun vekur nýjan styrk í taugum
Og gefur allri giftu byr í skaut
Og glampar bjart í pínum vatnaaugum.
Og vera má að gleðivatnagler
Það glampi víðar undir sólarhjálmi,
En það sem okkur heldur föstum hér,
Er hlekkjatengsl úr þinnar námu málmi.
Á einum hlekknum öðrum meira ber,
Sem áttu, kæra bygð, í þinni festi,
Að einkum heima eigum við hjá þér —
Það eitt er nóg, þó gull og silfur bresti.
Því líði maður tjón á sinni sál,
Er sízt að ræða um bót að heimsins auði,
En þar sem yndi andans kyndir bál
Á eyðimörku, verður steinn að brauði.
Cutt. J. Guttormsson.
Mrs. J. Björnsson á Tindastól, fór
ríðandi seinni hluta dags skanit frá
heimili sínu, en fannst örendur;
stórkastJega skemdur, eftir langa
leit; ekki víst hvernig slysið vildi
til, en líkur eru, að hesturinn hafi
dottið og orðið drengnum að fjör-
tjóni. Hart átak var þetta, hin-
um öldruðu hjónum, er unnu
drengnum, sem sínu eigin afkvæmi.
Bændavörur eru hér í lágu verði,
hafa í seinnitfð lækkað að verði.
Innkaupsvörur eru enn i háu verði:
hafa sumar heldur hækkað.
íslenlingadagurin var hafður hér
Fj. júní;( ifra honum er lítið að
segja, helzt það, að þrfr prestar
töluðu þar og einn íslenzkur hálf-
ærður karl, sem aldrei hefir kveðið
mikið að á ræðupalli. Forseti
dagsins var ihr. Jón Ólson, sem
einnig stýrði söng á íslenzku og
ensku; hans flokjcur — Markeville
Band — spilaði á deginum. íþrótt-
ir voru sýndar þaii svo sem hlaup,
stökk, knáttleikur og fl. — og
síðast dans að kveldinu. *\
Af seinustu ísl. blöðunum, sem út
komu. sé eg, að ntt eigi að hefjast
handa, og setja í framkvæmd samn-
ing “Landnámu” Yestur ísléndinga:
en muna ættu'menn, að þetta er í
eðli sínu þjóðr. mál eitt af þeiin
þýðingarmeiri; það heyrir beint
undir þjóðr. félagið að hrynda því
í framkvæmd, tneð þeim liætti sein
yfirstjórn þess l»retti bezt við eiga.
Eg hefi áður sagt, að þetta verk
— landnámssagan —- væri hverjum
einuin manni oftak; það er mikið
vandaverk og hefir mikinn kostn-
að í för með sér. Þjóðr. fél. stend-
ur mun betur að vígi, en nokkur
einstakur maður; bæði hefir það
innan sinna vébanda, nokkra rit-
færustu rnenn og hefir betri bein í
hendi til að mæta kostnaðinum.
Því aðeins að saga sú verði vand-
lega af höndum leyst, er betur farið
en heima setið. Svo ekki meira
um það að sinni.
FréttarUari Heimskr.
Frá íslendingadeginum
að Hnausum 2. ágúst 1923.
Veðrið var hið ákjósanlegasta
frá morgni til kvölds. Samkvæin-
isstaðurinn eflaust einhver sá allra
fegursti, sem finst á vesturströnd
Winnipeg-vatns — óbrotin iðgræn
smáragrund. Á þrjá vegu sveipa
frumskógajaðrarnir þennan indæla
reit, alt frá Hnausabryggjunni, og
hinu veglega heimili frú Valgerðar
Sigurðsson og sona hennar — að
sunnan og á að gizka fjórðung mílu
norður, en vatnið bindur að aust-
an. Lítið eitt mun blettur þessi
mjórri frá austri til vestur. Fyrir
sundfólk liygg eg torvelt að finna
ákjósanlegri stað til þess að njóta
íþróttar sinnar, en þar frá vatns-
ströndinni.
Fólkið streymdi að úr öllum átt
um, frá þvf litlu eftir kl. 9 árdegis,
þvf að eins og auglýst hafði verið,
byrjuðu hlaup og stökk fyrir unga
og gamla kl. 10 árdegis, og var þar
að vinna til 50 verðlauna. Svo hélt
fólkið áfram að streyma að á mót-
orbátum, bifreiðum og járnbrauta-
lestum þar til kl. 2.30 síðdegis; þá
byrjuðu ræðuhöld, og var þá sam-
kvæmt seldum aðgöngumeðum,
fólk töluvert á annað þúsund sam-
ankomið.
H erra Sveinn Thorvaldsson kaup-
maður í Riverton og sveitar-odd-
viti í Bifröst, var forseti dagsins, og
fór honum sá starfi prýilega úr
hendi, og furðaði enginn sig á
slíku: því að honum hefir farist svo
margt vel úr hendi í NýjaJslandi.
Hornleikaraflokkurinn frá River-
ton spilaði við hátíðarhaldið, og
söngflokkurinn sömuleiðis frá Riv-
erton, söng “Ó guð vors lands”, og
aðra íslenzka þjóðsöngva við þetta
tækifæri, á milli þess að ræður
voru fluttar og unnu hvortveggja
flokkarnir sitt iflutverk af mikilli
snild og kunnáttu.
Forsetinn ávarpaði fólkið með
stuttri og snjflllri ræðu. Þar á eft-
ir kallaði hann séra Hjört Leo M. A.
fram með minni íslands í óbundnu
máli.
Þá flutti dr. S. E. Björnsson
kvæði, og var það líka fyrir minni
íslands. Þá kallaði forseti séra
Jóhan Bjarnason fram með minni
Canada; þá Jón Runólfsson og
flutti hann tvö kvæði úr Land-
nema og landmuna ljóðabálki sín-
um. Þá mælti capt. Sigtr. Jónasson
fyrir minni Nýja-íslands. "Þa flutti
Gutt. J. Guttormsson skáld kvæði
og var það einnig fyrir minni Nýja-
íslands, og fylgir það með línum
þessum.d nýkominni Heimskringlu
les eg kvæði: “Landnemamir”, er
flutt bafði verið í Wpg. eftir sama
höfund, og hefði eg bezt trúað því,
að Agli hefði þótt Guttormur
snjall, ef hann hefði mátt líta upp
úr gröf sinni og leggja eyra við
þá er Jætta kvæði Guttorms var
flutt. — Afsakið að þetta er inn-
skot).
Fyrir íþróttir voru gefnir $175.00
í verðlaun fyrir utan tvo bikara og
skjöld. Fyrir að synda fjórðung
mílu, hlaut Stefán ólafsson í River-
ton bikar, sem Hnausa Community
Club gaf. Kaðlatog var háð milli
þessara bygðarlaga:
Víðis, Arborgar, Geysis á aðra
hlið, en Hnausa og Riverton á hina.
Vesturbygðirnar unuu Rirerton
bikarinn.
iGlímuskjöldinn frá Arborg vann
Þorsteinn Jóhamjpsson í Framnes-
bygð. Knattleikinn milli Árborg
og Riverton unnu Riverton knatt-
leikararnir.
Auk þeirra, sem á skemtiskránni
stóðu, flutti skáldkonan Margrét
Sigurðson mjög hugþekkar vísur til
íslands. — Dansverðlaun hlutu
Miss Guðný Daníelsson fyrstu v«rð
laun, Mrs. M. Jónasson önnur og
Miss Guðrún Stadfeld þriðju verð
laun.
Hin ýmsu bygðarlög f norður
hluta Nýja(4fslands sameinuðu sip
um þetta hátíðarliald, og virðisl
alt mæla með því,.að það verði ár
leg venja. x
J. R.