Heimskringla - 06.08.1924, Blaðsíða 1

Heimskringla - 06.08.1924, Blaðsíða 1
I VERÐLAUN GEFIN FYRIR COUPONS OG UMBUÐIR ROYAU, CROWH SenditS eftir verSlista tll Royal Crown Soap I.td.. 664 Main St. Winnipeg. VERÐLAUN GEFIN FYRIR COUPONS OG UMBUÐIR ROYAt, CROWN SendlTJ eftlr verTSlista til Royal Crown Soap I.td., 654 Main St. Winnipegr. XXXVIII. ARGANGUR. WINNIPEG, MANITOBA, MIÐVIKUDAGINN 6. ÁG-ÚST, 1924. NÚJVPJR 45. Kvæði, flutt á Islendingadeginum í Winnipeg, 2. ágúst 1924. Ávarp Fjallkonunnar. Hér sé guð, og gleði og friður, Góðan daginn. Þóknast yður, gestir, gefa hljóð? Konur, meyjar, menn og sveinar: meðan nokkrar ávarpsgreinar les — sem eru ljóð. Hingað bar mig hamför vona, hópinn finna dætra og sona hér á helgum stað. Sá eg mundi ei svoddan banna , sorgarleikur forlaganna, oss er skildi að. Nú er eg frjáls, sem nýkrýnd drotning, nú mér jafnvel sýnd er lotning. Breytt eru ragnaráð. Ekki lengur íklædd tötrum, ambáttar í þrælafjötrum, keypt af konungs náð. — Önnur lönd þó eigi meiri auð, og telji höfuð fleiri, annað var mér veitt. Börn á engi efnilegri, eða listamentir fegri, hvað sem helzt sSal þreytt. \ / Þér hafið sannað þráfalt líka þjóðum öðrum kosti slíka, mér til sæmdar mjög. Engum þarf að þykja miður, þó að eg sé stolt af yður, eru það eðlislög. Lítið yfir ljóð og sögur, listaverkin mörg og fögur, myndaskáldsins skrift. Hvað svo fanginn hugann tekur, hrifning og sem mestu vekur? — Islenzk andagift. Þarna situr mentamaður meðal hinna, fátalaður, gaman þá er glætt. Hæsta marki náms þó nær ’ann. — Náttúrlega verðlaun fær ’ann. — íslenzur að ætt. Allir dá þann ofurhuga, aldrei sem að náðu buga íshafs-byljabrek. Braut þá hjarns um hraun sér ruddi ’ann, hvað var það, sem leiddi’ og studdi’ ’ann? — íslenzkt þor og þrek. Kappi, leiks á sjónarsviðum sviftir niður eins og kiðum görpum glímuþings. Rver um annan er þeir detta, allir spyrja: “Hvað er þetta?” — Iþrótt íslendings. Þama unga sjáið sveina sund og aðra leiki reyna. •—Aðeins úrvalsmenn. — • Einn þar vinnur alt til þrautar. Öfundin í hljóði tautar: — “íslendingur enn.” Pleira þarf eg eigi’ að inna, auðlegð mín er stærri en hinna, — guðum fengin frá. — Mér þó væri í milli boðin miljón lönd í gulli roðin, skifti eg ekki á. Þér hafið öll, í orði’ og verki, upp mitt hafið sæmdarmerki frægðar framleið á. Hlýjan yl um hafsins geima, hefi eg fundið til mín streyma hugum flestra frá. Sérhvert ástarorð mér valið, og annað, sem ei verður talið, geymt en ekki gleymt. Svo af hjarta óska’ eg, yður öllum, framtíð brosi viður sæl og sigurtrygð. íslenzkt mál að ávalt geymið, aldrei nokkurntíma gleymið fomri drengskapsdygð. Ávarps lokið orðum hef eg. Öllum mína blessun gef eg. Þökk fyrir þenna dag. Svo til heiðurs samkomunni syngið nú með einum munni ílenzkt lofsöngslag. Þorskabítur. Minni íslands. «3 Vort land það er kalt í svölum sæ, en samt á það tign og unaðsblæ og blíðu, þá vetri er varpað á glæ og vorið með bjartar nætur sezt við fjallanna fætur, en himininn yfir bóndans bæ blikandi perlum grætur. Og mörg er þar sumarrík sólarhlíð með sælum minnum frá bernskutíð; þar greru blómin fjölmörg og fríð í frjósömum moldarbeði. , Þau veittu oss gaman og gleði. Þar var skjól fyrir hættum og hríð og hamingja barnsins geði. Minningin lifir þótt h'ði ár og leiðirnar skilji fjöll og sjár, þótt gangan þyngist og gráni hár, er gott til hins liðna að muna, þar löngum er ljúft að una, og heimsækja í anda eyjar blár og iðgræna fjallbrekkuna. Þar sem vor saga með gjöf og gjöld gróf í letri á tímans spjöld um baráttu vora öld af öld og alt sem vér máttum líða, við þrautirnar þungar stríða; hve hamingjan bar samt hærri skjöld í hryðjum liðihna tíða. Því allatíð menningarmerkinu hjá vér menn áttum þá, sem ei hopuðu frá. Þótt ljós væru fá, samt leyfðist að sjá lánið vor framundan bíða, ef þrek væri að þola og stríða. Þeir kendu með foringjans framsóknarþrá fólkinu skyldunni að hlýða. Og fyrir þeirra þrautseigju og lag nú þjóð vor við sjálfstæði unir í dag og trúir á vöxt sinn að vizku og hag. Hún vinnur að hamingju sinni, við strönd sem í afdölum inni. Hún vex að frelsis- og fegurðarbrag, með framkvæmd hins rétta í minni. » E. J. Melan. Hér á margur helgan reit, hér er moldin frjóvguð tárum; enginn telur, enginn veit öll þau spor í gæfuleit, sem hin fyrsta frónska sveit v framgjörn steig á liðnum árum Hér á margur helgan reit, hér er moldin frjóvguð tárum. Spyrji menn um björg og brauð, bendir gæfan þeim í vestur. Landið mitt á allskyns auð, — Enginn þyrfti að líða nauð — öllum heimi hingað bauð; hér sé enginn talinn gestur. Spyrji menn um björg og brauð, bendir gæfan þeim í vestur. Vesturlandið — landið mitt — landið ótal skipbrotsmanna; frelsið valdi fóstur þitt fyrir yngsta barnið sitt; sigurmerki sólskinslitt seldi í hendur smælingjanna. Vesturlandið — landið mitt — landið ótal skipbrotsmanna. Vesturlandið — landið mjtt — landið margra stórra vona; drottinn blessi búið þitt; bjart sé kringum nafnið þitt; fylgi séhvert fótmál þitt farsæld þinna dætra og sona. Vesturlandið — landið mltt — landið margra stórra vona. Sig. Júl. Jóhannesson. Þakka eg, börn mín, — öllum oft sem hafði mig í leynum dreymt, eg hefði heimt. einum, Minni Canada. Vesturlandið — landið mitt — landið margra bjartra daga; upp við blessað brjóstið þitt börn þín verma höfuð sitt; sumarklæði sólskinslitt sVeipar þína blómgu haga. Vesturlandið — landið mitt — landið margra bjartra daga. V estur-hlendingar. Sé eg fríða sveit Með fána bjartann Hafinn hátt við loft Af höndum styrkum: Er þar kona fríð Með faldinn hvíta, — Glóir gullið hár,--- Á grunni bláum. Sækir sveitin fram, Og sókn er margbreytt, Mitt í ógnar-þröng Ýmsra flokka: Girnist fjöldi fé, Og fjöldi menning, Aðrir óðöl víð, — En allir frama. En hin fríða sveit Með fánann bjarta Verndar hreinleik hans Á hverju sviði. Hefur hæzt mót sól Svo heimur sjái Tignar-fagra mynd Fjallkonunnar. Og við dáðrík verk Og drengskap allann Stígur leiftur skært Svo ljómi fagur Sveipar mæra mynd, — Og mörgum skýrist Áður ó-kent nafn: “íslendingur”. Heill þér, fríða sveit Pjallkonunnar! Gjör þú nafn hennar í nýrri álfu Frægt sem heiti það Er hreinleik tákni, Háar hugsjónir Og heilagt þor! Jakobína Johnson. Sorglegt slys. iFlestum Mikleyjingum mun verða minnisstæður sunnudagurinn 13. júlí síðastliðinn; því þann dag vildi það slys til þar, að tvær stúlkur, er voru ásam,t fleiri stúlk- um að baða sig, druknuðu þar Slysið vildi til í svonefndri Melstað arvík, norðanvert við tanga þann er Hölstangi nefnist. Snögg breyt- ing á dýpt vatnsins frá þrem fetum í átta feta dýpt, átti sér þar stað; hefur það að líkindum verið slysinu valdandi. Líklegt er, að önnur stúlk an hafi fengið krampa. — Jafn skjótt og slysið vildi til, var brugð- ið við að gera björgunartilraunir, r.áðist annað líkið eftir nærfelt hálf- tíma, en hitt vist nærri klukku- tíma síðar. Stúlkurnar voru þær Sólveig Grímólfsson og Unnur Eggertsson. / Sólveig Grímólfsson var fædd í Mikley, þann 27. marz, 1909. Hún var dóttir þeirra hjóna Jóhannesar Grímólfssonar og konu hans Sig- ríðar Kristjánsdóttur, Hafliðason- ar. Sólveig var mannvænleg, fjörug og velgefin; er því sorg foreldranna sár, og stórt skarð höggið í þeirra efnilega barnahóp. Unnur Eggertsson, var fædd í Selkirk, Man., 5. marz, 1909. Hiún var dóttir Inga Eggertssonar (Ey- dal), ætt föður hennar mun vera úr Fnjóskadal; og konu hans, Guð- laugar Eggertsson, er hún dóttir Ó- lafs heitins Torfasonar er áður fyr bjó í Selkirk. Unnur var mjög efnileg, átti mik- ið þrek, bæði til sálar og líkama. Unnur var næst elzt dætra Mrs. Eggertsson, er sjálf, ásamt dætrum sínum, var sjónarvottur að slys- inu. Hefur því móðir hennar sem einstæðingur, mist einkar efnilegt bam við iát Unnurar. Þær leiksysturnar voru jarð- sungnar frá Mikleyjarkirkju, að við- stöddu fjölmenni, föstudaginn, 18. julf. Yoru þær jarðaðar í sömu gröf, hvíla þær nú saman, eins og þær, hlið við hlið, mættu aðkomu dauðans. Mjög var hluttekning í sorg þessari almenn; iét fóik í ljósi samúð og- hluttekningu á margan og mismunandi hátt. Votta hlut- aðeigendur hjartans þakklæti sitt, alúg og kærleika sveitunga sinna, sem hefur verið styrkur og huggun, mitt í sorg þeirra. Þær voru kallaðar tourt árla að sumri til, þessar ungu vorrósir. Minningin um þær mun lengi lifa f hjörtum ástvina og þeirra er til þektu. Þær em kvaddar með ísl. orðum skáldsins. “Bláliljan unir ein á fjörusandi. Árdaggir vorsins ljúft á blöðum titra. Hún er að gráta lík, sem bar að landi, ljómandi tár í daggarperlum glitra. Grátin hún segir: Vinir vors og ljóða, Velkomnár heim, til föðurlandsins góða”. Sig. ólafsson. / *

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.