Heimskringla - 04.03.1925, Blaðsíða 2

Heimskringla - 04.03.1925, Blaðsíða 2
2. BLAÐSIÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 4. MARZ, 1925h Sœlueyjar. Svo mikiö hefir veriS talaö um Vestmannaeyjar nú undanfariö, vegna hins þjóösorglega manntjóns, að ég hefi einatt verið að spyrja mig sjálfan, hvort rétt væri af mér að þegja algerlega um hugmynd nokkra, sem ég gerði mér fyrir mörgum ár. ttm um hafnargerð við Eyjarnar. Eg ræð það nú af, að láta hana koma fram fyrir almenning, þrátt fyrir það þótt ég búist við því, að ekkert verði framkvæmanlegt í þá átt, fyrir ein.- hverjar þær orsakir sem ég hefi ekk> kunnað að íhuga. Eg verð fyrst aö segja tildrög nokkur til þess, aö ég fór að hugsa um þetta mál. Dybdal, fyrverandi skrifstofustjóri Islandsráðherra í K. höfn, bauð mér eitt sinn Vestmanna. eyjasýslu og hafnaði ég þvi að vísu, en sá svo mjög eftir því síðar, er ég kyntist betur hvernig til háttaði. Þegar ég svo varð sýslumaður Rang. æinga, kom mér í hug, að leggja það ti! við landsstjórnina, að eitt lögsagn. arumdæmi skyldi gera úr héraðinu og Eyjunum. En mjög lítið varð úr rekstri þess máls, því að skömmu síðar slasaðist ég í Markarfljóti og varð að segja af mér sýslunni. — En meðan ég var að byggja íbúðarhús mitt á Rangárvöllum, þar sem ég kyntist því, hve ágætt efni móbergið þar, — hið sama sem er í Vestmanna. eyjum — er til allskonar bygginga, flaug mér í hug, að hlaða mætti haf. garð úr heimakletti í mynni Eyjavík- urinnar með tiltölulega auðveldum og ódýrum hætti, þar sem hæð og efn. isríki bjargsins hvorttveggja virðist tala hátt á máli steinanna ttm það, að byggja heimshöfn fyrir fengsæl- ustu fiskistöð jarðarinnar. Eg átti tal um þetta síðar við verkfræðing ,einn, sem var hér í þeim erindum fyrir allmörgum árum, að gera áætl- un um Reykjavíkurhöfn, og lét hann vel yfir þessari tillögu. Samt varð ekkert úr því, að ég gerði neitt til þess að koma þessu málefni á fram. færi. En um leið og ég set nú loks þessa hugsjón mína fram fyrir almenning vildi ég réttlæta fyrirsögn þessarar greinar, þótt hún að vísu standi ekki í beinu sambandi við hið mikilvæga hafnarmál. — “Forsaga” Vest. mannaeyja er, eins og annað það er lýtur að elstu frásögnum um ísland, meðan það var nefnt Thule (á máli Landnámu Tíli) vanrækt, afbökuð og jafnvel vísvitandi falin þessari þjóð, sem er þó, og á að vera, fræg fyrir söguleg fræði. En enginn efi er um það, á hinn bóginn, að ást og stolt niðjanna yfir gamalli sögu ættar. stöðvanna er voldugur þáttur og frömuður alls framtaks og menning. ar meðal allra siðaðra þjóða. Olg frá því sjónarmiði er réttmætt að minnast þess, að sögugögn eru fyr. ir því, að gert hefir verið út skip ti! Vestmannaeyja á fyrstu eða annari öld rómverska keisaravaldsins, og eru nokkrar líkur ti! þess að ætla, að það hafi verið á keisaraárum Hadrians, með því að griskur nýlendumaður einn stóð fyrir förinni, en Hadrian var, eins og alkunnugt er, uppnefndur fyrir grískunám sitt — og rit Pythe. asar, sem fór til íslands á timum Al- exanders mikla, hafa sjálfsagt ver- ið kunn keisaranum. Grikki þessi lýs. ir jöklafýlunni af landi og talar, að þvi er mig minnir, um hafnleysi við Suðurlandi. Óhrekjandi skjalsannanir eru auðvitað ekki fyrir þekking elstu kristnialda um Island, en út i það verður ekki farið hér. Aðeins vil ég taka það fram, að efalaust má það teljast, að til Vestmannaeyja beri að rekja uppruna nafnsins á “Sælueyj. um”, sem eru tiðnefndar í helgisögn. tim og gömlum fræðum. Til þess að mönnum verði þetta gleggra vil ég aðeins nefna einstöku meginatriði, sem kollvarpa hinum al. gengu kenningum “æsku” islenzkrar byggingar. Eg hefi sannað, að Grett. isbælin eru steinaldargrafir. Grettis. tökin eru og samkyns “mannvirki” frá e'dri forntíma, sem alkunn eru frá steinöldum ananra landa. Eg hefi sýnt fram á, að ýmsar jarðhvelfing. ar Suðurlands geta ekki verið frá svo. kölluðum “sögutíma” vorum. Eg hefi heldur engan efa um það, að fjölmörg mannvirki finnast órann. sökuð eða rangskírð viðsvegar um land, ævafornum öldum á undan land. námi Norðmanna (sbr. “göngugarð. ar”, “traðir”, vatnsveitingar t. d. á Rangárvöllum, sjá greinargerð mína í “ísafold” 1906 o. s. frv.). Vöntun viða í húsabyggingar hefir knúð menn til þess að nota hér grjót og jörð í hleðslur, sem Daniel Bruun tekur réttilega fram, að varðveitir enn mergð minnismerkja. En hér er ekki rúm til þess að fara út í langt mál um neitt. Einungis nefni ég ör.. fáar uppspunagreinar Landnámu. Faxi er enn í Vestmannaeýjum nafn á röst einni — og er ágætt rétt nefni, sem hefir orðið varðveitt fyr. ir málið. Maðurinn Faxi var fund. inn upp til þess, að útskýra upp- runa nafnsins á þeim flóa landsins, er átti helst skilið að nefnast eftir hin. um miklu straumamótum. Svo afar- ótrúleg er fjarstæðan um sjómann- inn er sá Snæfellsnes en hélt fjörð. inn þó vera fljót, að engan furðar á því, sem sagt er um þrælaflóttann til Vesmannaeyja til útskýringar þessu nafni. Sagan um skógarbjörninn sem aldrei hefir verið til á íslandi) er af líku tagi. En ef til vill hefir upphafsmanni þeirrar frásagnar ekki verið kunnugt um, að írar (“Vest. menn”) hafa komið til Eyjanna vit. anlega einni öld og sennilega mörgum öldum fyrir landnámstið. Þá er skýringin um það, hvernig Island fékk nafn sitt, ekki siður augljóslega til. hæfulaus uppspuni. Isufjörður á Vesturlandi bar nafn sitt með réttu, eins og flest sem landnámsmenn vor. ir sjálfir gáfu nafn. En Thule, is. land, (sbr. Tilinsel meðal Suðureyja) hefir af einhverri orsök verið rang. lesið, óviljandi eða vísvitandi, ef ti! vill í sambandi við óvild Noregs. konupgs gegn útflutningum hingað. Meira að segja er ekki ósennileg til- gáta, að þetta rangnefnj hafi á ein- hvern hátt getað slæðst inn frá “Croin”.land (Freraland, ísaland o. s. frv.), sem núnefnt Grænland hafði verið kallað af Kletum á undan land- námi. En vissulega er uppspuninn i sögunni augljós, þvi fremur sem ísa. lög koma þvi nær aldrei þangað. sem er sá hluti fjarðarins, er heitir nú Tsafjörður,, en á að bera réttnefn. ið Isufjörður. Eg hefi nefnt þessi örfáu atriði ti! þess ,ef verða mætti að einhver, sem ann sérstaklega sögu þessara merkilegu eyia, sem nú eru orðnar heimsfrægar fvrir fiskiföng og stór. úlgerð, gæti unnið að þvi, að rann. sóknir fornleifa i Eyjunum megi fara fram með þvi fyrir augum, að lik. legt er að þar finnist merki rnanna. vistar fyrir landnámstíð. Vestmanna- eyingar mega með réttu unna sinum fögru, fengsælu eyjum, ekki siður en hinir helgu menn, sem flúðu ofsóknir Rómverja gegn kristnum mönnum í Bretalöndum og fundu þar friðland ■ og auðvelt að afla viðurværis. Það- an mun nafnið Sælueyjar vera runn. ið. Þar áttu að vera sex — og svo eru og Vestmannaeyjar, sé alt rétt talið. Einar Benediktsson. — “Tíminn”. ------0----- Kirkjan. VIII. I hini postullegu trúarjátningu er svo talið, að kirjan sé ein, almenn og heilög. Þó er kristin kirkja klofin í margar deildir. Svo hlýtur og að vera. Eðli þjóðanna og sérkenni einstaklinga veldur þvi. Siðbót Lúthers er ekki til komin af tilviljun. Þar rís germönsk sjálfstæðisþrá gegn rómverskri kúgun. Germanskar þjóð ir stofna þá þjóðkirkjur, en hinar rómönsku þjóðir halda fast við sinn sið. Rómversk-kaþólsk kirkja er arf. taki rómverska ríkisins. Páfadómur er þar kominn í stað keisaravalds, en agi og ágætt skipulag er sameigin. íegt. Þar gengur skipulagið á rétt einstaklir^ganna. Þá < kúgun gátu hinar germönsku þjóðir ekki þolað. Lúther er oddviti þeirra og vinnur líkt verk fyrir germanska menning og Armenius, þegar , hann stöðvar sigurför Rómaríkisins. Germanskt kyn er “protestaniskt” að eðlisfari, og af “protestöntum” munu Islendingar vera germanskastir. Á sama hátt og Rómaríki er enn við líði, þar sem er hin kaþólska kirkja, fgeymifst forn- germönsk menning með íslenzku þjóð inni. Tunga og bókmentir tengir oss óslitið við fornöldina. Heiðnin er hér ekki í fyrirlitningu, heldur er á henni gullaldarblær. Og svo römm var hin germanska taug í þjóðinni, að hér var lítil þörf siðbótarinnar móts j við það, sem var sunnar í álfunni. , Það kemur því ekki á óvart, þó hin höfðinglegu ummæli Lúthers eigi hér fastara fylgi en viða annarsstaðar, er hann á þinginu í Worms setti skynsemi sína og skýr rök hærra en valdboð kirkjunnar. Það er glæsi. legasta stundin í sögu siðbótarinnar, þegar hinn gráklæddi munkur stend. ur frammi fyrir öllum máttarvöldum sinnar aldar, furstum, páfalegáta og keisara, og neitar því að óhlýðn. ast boði sinnar eigin samvisku. Það gat varðað hann fjöri og frelsi. En sú hætta þótti honum lítil móts við það, að brjóta bág við samvisku sína og sannfæringu. Grár og grófgerður munkakuflinn verður glæsilegri i augum þeirra, sem á horfa aftur i aldirnar, er rauð klæði kirkjuvalds. ins og pell og purpuri keisarans. I stað þess að segja: “Þarna er mað. ur eftir mínu höfði, kastaði kirkjan Lúther út fyrir. Og þó verður kirkj an aldrei fullkristin fyr en hún td. ur þann mann meira virði en sín eigin kerfingargervi, sem er þess reiðubúinn að leggja nokkuð í söl- una fyrir sannjfæring sína. Slikra manna þarfnast kirkjan helst. Við siðferðisþrek og réttláta breytni ber að miða manngildið. Kristur hefir aldrei sagt: “Af trúarjátningunum skuluð þér þekkja þá. Sælir eru þar sem þekking er talin synd en fá- unnar og fella ekkert undan o. Sí frv.”. Og þó hafa lútherskir prestar til skamms tima og kaþólsk klerka- stétt alt fram á þennan dag, stilt sér í kirkjudyrnar og bandað með hend. inri^ þegar s^ámaðupirvn náíljgast. Hinn kirkjulegi embættishroki má öfunda Amasja prest af ríkiskirkju reigingnum, er hann vísaði Amos spámanni á bug með þessum orð. um: “Haf þig á burt, vitranamaður I I Betel mátt þú eigi framar koma fram sem spámaður, því að þar er konunglegur helgidómur og ríkis. musteri”. Þar sem þessari stefnu er fylgt, verður kirkjan að kredduklíku, þar sem þekking er talin synd en fá fræðin sáluhjálpleg, og hættan mesta, að hinn heilagi eldur kveiki í kirkj unni. Það er kirkjunnar rikasta þörf, að hið klerklega íhald sitji ekki eitt við stýrið. Hvert félag þarf spámann. legrar framsóknar við, svo það fúni ekki niður. Kirkjan er samtök þeirra, sem vilja feta í fótspor Krists. Það er meira virði að rétt sé stefnt, en að stefnuskráin sé nákvæm um hvert atriði. Kirkjan á að vera op- in öllum þeim sem leita guðs rí'kis og þess réttlætis. Líf og hreyfing e>' henni nauðsynlegt. öldur hins and. lega lífs risa þar og falla. Það er óþarft að kalla hverja ölduhreyfing fyrir sig hina sönnu kirkju. Kirkj an á að vera hvelfingin, sem hvelfist yfir allri andlegri viðleitni mann. kynsins. Ekkert mannlegt á að vera henni óviðkomandi. Jafnvel kaþólsk kirkja kemst ekki fram hjá því lög. máli, að öll menning hlýtur að ganga í öldum. Blærinn á trúar. og kirkjulifi br^itist eins og stíll hins ytra hjúps. T einn tima einkennir hinn þungi. jarðfasti rómanski hringbogi hið andlega líf. í annan tíma tekur mannsandinn á sig mynd hins gotneska oddboga, sem stendur fast á traustum súlum og teygir sig ti! himins. En hvorttveggja eru kirkjur, sú sem er reist i rómönsk- um stíl og hin, sem hefir á sér got. neskt snið. Og það er jafnvel fleira kristilegt en kirkjan hefir enn breitt væng sinn yfir. Margt af þvi, sem enn ber á milli austrænni og vest. rænni menning, er aðeins frábrugð. inn still, ólík tunga og annarlegt þjóð- erni. Deus og Allah þýðir hvort. tveggja: Guð. Andi guðs er hinn sami þó hann beri ólík nöfn á ýmsum tungum. Undir ýmsum búningi, orð- ttm og ytri táknum bærist hin sama þrá hjartans, er brýst fram í til. beiðslu og lotning fyrir þeirri göfgi í tilverunni, er vér nefnum eiginleika guðs. Glöggskygni á það, sem er sameiginlegt í andlegu lifi þjóðaana, er samboðin lærisveinum þess meist. ara, er sagði við rómverska her. manninn: “Ekki einu sinni í Israel hefi ég fundið slíka trú”. Það er engin þjóð útvalin guðs þjóð.' Vér trúum þvi ekki lengur að Zion sé miðdepill jarðar, né heldur að jörð. in sé miðdepill alheimsins. Það er ekki af vantrú, að vér erum horfnir frá hinni gyðinglegu þröngsýni, heldur vegna hins, að þekkingin hef. ir vaxið og trú vor um leið. Það er nú hærra undir himininn og við. ara milli endimarka jarðarinnar en á dögum Abrahams. Oss hættir því síður til ofmetnaðar en Gyðingum og krefjumst því engrar einokunar fyrir kirkjunnar hönd né óskeikulleika fyrir hönd hebreskra bókmenta. Það er mikil skammsýni að nefna það niðurrif, þegar fornfræði falla fyr- ir vaxandi þekkingu. Það er ekk. ert niður rifið þó sjóndeildarhring- urinn færst út. Alt, sem verðmæti hefir, felst í hinu nýja útsýni. Af því mun ekki einn stafkrókur líða undir lok. Vitið, víðsýnið og hinn spámann legi eldmóður rifur aldrei niður. Þaö heitir ekki að rífa niður, þó mok. að sé úr rústum fornum fúa — þó einhverjir eftirleguklerkar haldi fast við að kalla rústirnar kirkju. Það, sem fúnað hefir, og ræsta þarf burt, er ekki kirkja Krists. Kirkja Krists er það afl, sem sífelt byggir upp að nýju, það sem tímans tönn hefir unn. ið á. Kirkja Krists er hið skapandi afl, sem heldur síungum þeim boð. skap, er Kristur flutti það afl, sem leysir fagnaðarerindið úr álögum úr. eltra fræða og brennir haminn. Kirkja Krists er hærri til loftsins, en nokkur klerkakirkja, því hvelfing hennar er himininn, gólf hennar jarðríki og söfnuðurinn mannkynið. Þrengri getur guðs heilög kirkja ekki verið. Allir múrar, sem reistir hafa verið og gryfjur, sem hafa ver. ið grafnar, eru af manna höndum gert. Sumt af því hefir máske stund um gert gagn. En alt hverfur það, þegar horft er frá sjónarmiði eilífð. arinnar. Svokölluð kirkjusaga er ekki sama og saga guðs ríkis á jörð- unni, heldur er öll saga saga guðs rikis, ef rétt er rituð. Gyðingar sögðu sina sögu að hætti trúaðra manna. Brot hennar hafa geymst oss i ritum Gamla testamentisins. En þar eru óþroskaðar trúarhugmyndir og þjóðarrembingur til mikilla lýta. Það er fágætt að saga sé sögð á síð. ari tímum, svo að sjá megi fingur forsjónarinnar í hverri línu. Og þó hefir Thomas Carlyle ritað sögu frönsku stjórnarbyltingarinnar svo, að ætíð er sami grunntónninn: trú- in á það, aí5 hinstu rök lífsins séu rétt læti, máttur og viska. Gladstone, hinn mikli skörungur enskra 4tjórnrrtála, vinnur alt sitt starf i þeirri trú. Lin. coln, forseti Bandaríkjanna, er eins og leiddur af æðri öflum. Enn eru æðri öfl að verki í sögu mannkyns. ins, ef ekki brestur hugarfar og sjón til að sjá fingur guðs í rás viðburð. anna. En síst má halda, að æðri öfl séu eingöngu að vérki innan þeirra félaga, sem kalla sig kristnu nafni. Viða getur kirkjan leitað aðdrátta, ef hún gætir þess að binda ekki ferð. ir sinar við þá staði eina, sem hún hefir sjálf helgað með vígslum og yfirsöng. Fegurð grískrar menning. ar, festa Rómverja og drengskapur germanskrar heiðni er kirkjunni ekki óviðkomandi. Þeir tímar eru undir lok liðnir, að almenningur fái ágæt- um “heiðingjum” daufiegan dvalar. stað hjá Helju, eins og Dante gerir í “Divina Comedia”. Það voru til menn eftir guðs hjarta áður en saga kirkjunnar hófst og utan hennar vé- banda, eftir að vald hennar óx. Kirkj. an á að vera svo víð milli veggja, að þeir rúmist í hóp helgra manna. Hún má engum perlum kasta, heldur safna öllu í sjóð sinn. Kirkjan verð. ur að njóta allra helgra manna. sem standa eins og fjallstindar úr hafi tim ans, og enn hefir ekki vantað yfir. iHin bezta stoð kirkjunnar eru helg- ir menn. Mannadýrkun er ekki hættu. leg, ef þeir menn ertt ágætir, sem lit. ið er upp til. Það eru mennirnir, sem eru innblásnir af guðs anda, en hvorki bækur né stofnanir, nema að svo miklu leyti, sem innblásnir menn eru þar að verki. Sýnir og vitran. ir hafa án efa átt ríkan þátt í að veita ýmsum ágætum mönnum þrek til að berjast hinni góðu baráttu. En þó mun flest opinberun hafa orðið með sama hætti og þegar hugsunum vorra hversdagsmannanna skýtur upp • úr djúpi sálarinnar. Innblástur og op- inberun verða ekki skýrð fyr en sú gáta er ráðin, hvernig hugsanir vorar verða til. Það er eins og elding slái niður eða ölht heldur Ijósi sé brugðið upp í sálu mannsins. En hvernig þetta verður, er hulinn leyndardómur. Hin hversdagslegustu fyrirbrigði sá.l arlífsins eru enn óskýrð, en þegar GIN PILLS Höfuðverkir, bakverkir, þvagteppa eða þvagmiss. ir eru viss merki um nýrnaveiki. Gin Pills lækna fljótt og vel. 50c hjá öllum lyfsölum og lyf sölubúðum. •'National Drug & Chetn. . Co. of Canada, Ltd. Toronto Canada gátur þeirra verða ráðnar, fæst um leið lausn á hinum háleitustu fyrir- brigðum trúarlífsins. Mannasetn. ingar verða ekki greindar frá guð. legri opinberun eins auðveldlega og kirkjan hefir oft haldið. Hjá hinum ágætustu mönnum rennur hið mann. lega og guðlega saman, svo ekki verð ur sundur greint, eins og grænka jarðarinnar rennur saman við bláma himinsins út við sjóndeildarhringinn. Göfgi mannanna er guðleg opinber. un. Helgir menn eru kirkjunnar sterkustu stoðir. En þá er ekki átt við helga menn í kaþólskum skiln. ingi. Vorflóð siðbótarinnar ,sópaði burtu fimm sakramentum, helgum dómum og dýr?in(gum, Fyrjir ,það verður siðbótin ekki áfeld. Helgra manna sögur sannfæra lesandanna um það. Þar er sagt frá dýrlingum en ekki mönnum með holdi og blóði. Sumir eru einsetumenn, sem berjast við djöfla og gera kraftaverk svo und ursamleg, að * galdrasagnir heiðinna manna komast ekki í hálfkvisti við það. Aðrir eru riddarar, sem berjast við óvætti. Þar er blandað saman þjóðsögum og heiðnum goðsögnum. Dýrlingurinn dregpir að sér allar und- ursamlegar sagnir. Það hleðst utan á hann þar til ekki sést móta fyrir mann legum eiginleikum. Kynjasögur af einum dýrling eru færðar yfir á ann. an. Hver borg og hvert land vill gera sinn dýrling sem dýrlegastan. I frásögninni er venjulega lítil list og lélegt mál. Það er hreinsun að því þegar þessir trjámenn trúarlífs mið- aldanna sópast burtu með vorflóði sið bótainnar. En siðbótirj hefði mátt setja sanna menn í staðinn. Hún hefði átt að setja í kórinn ýmsa hina ágætustu fulltrúa heilagrar kristni. Það er ekki allra hæfi að vera steypt. ir í sama móti og hann. Trúareðli manna er með ýmsum hætti. Einn laðast að Lúther, annar að Melan chton, sá þriðji hefir mest uppáhald á Bernhard frá Clairvaux, hinn fjórði hyllir Thomas á Kempis. Lúth. ersk kirkja þarf að opna sal sögunn. ar fyrir börnum sínum. Þar er um auðugan garð að gresja. Eitthvað handa öllum. Mikilmenni kristninn. ar, innlend og útlend, þarf að draga fram í dagsljósið. Þeir eiga að standa inst í kórnum, en Kristur yfir altarinu. Jesús guðspjallanna er hin mikla uppgötvun siðari tíma. Á þeim grund. velli verður reist sú siðbót, er nú stendur fyrir dyrum. I trúar- og kirkjulifi Norðurálfunnar má sjá öll tákn nálægrar siðbótar. Fyrir- boðarnir eru nú jafnskýrir og á 15. öldinni. Hinum visindalega undir búningi er um það bil lokið. Vér bið- um hins spámannlega eldmóðs, er kveikti i tötrum gamallar trúfræði, sem enn hylja Kristsmyndina sjónum almennings. Siðbót Lúthers opnaði biblíuna fyrir alþýðu manna. Nútim. inn greinir milli hinna einstöku rita bibliunnar og setur guðspjöllin í önd. vegið. Kaþólsk kirkja horfir á Krist gegn um gleraugu háspekinnar Lúth- erska kirkja lagði höfuðáherslu á bréf Páls postula. Nútiminn leitar Jesú sjálfs eins og honum er lýst í guðspjöllunum eftir sögusögn hand. genginna lærisveina. Það var eins á- statt um Kristsmynd kirkjunnar og um helgra manna sögur miðaldanna. Siðbót Lúthers skolaði burtu dýrling. unum. Helgir menn kristninnar eiga því að geta staðið oss fyrir hugskots. sjónum eins og þeir voru i lifanda lifi. Sú siðbót, sem nú er undirbú- in og fyrir dyrum stendur, mun end- urnýja Kristsmynd kirkjunnar. Hin nýja Kristsmynd kirkjunnar verður altaristafla tuttugustu aldarinnar. Deil an um það þagnar, hvort Kristur hafi verið guð eða maður. Á þvi veltur alt, að menn hafi þroska til að sjá Krist eins og hann var. Hug— myndir manna um Krist fara eftir þeirra eigin sálarþroska, en ekki eft- ir þvi, hvað þeir kalla hann. Oftlega- hafa þeir, sem hylt hafa Krists fræði fyrri alda, þó dregið hann niður í undirheima meðalmenskunnar í ræð- um og riti. Þráfaldlega hafa þeir, sem kirkjulegri Kristsfræði afneita, haft háleitari hugmyndir um Krist- En undir því á kirkjan alt sitt, að Kristsmynd hennar, sem yfir altar- ínu hangir, sé göfug og tiguleg eins og lýsingar guðspjallanna. Um þá lýsing þarf ekki að bæta. Hún er sönnust mynd þeirrar göfgi, er vér þekkjum hæsta. Hún er sú opinber- un guðdómsins, sem mannkynið hef- ir mesta hlotið. IX. “Þar sem góðir menn genga, ertr guðs vegir”. Kirkja Krists er hvar. vetna þar, sem kærleikurinn er a5' verki. Tími og rúm setja henni ekki takmörk. Hjún býr hvorki í turnháum húsum né þykkum bókum. Hún er ekki þess eðlis, að á hana verði bent. En þær kirkjur, sem kenna sig til nafns Krists, eru með ýmsu móti á- þreifanlegar. Þær halda vigða presta. reisa kirkjur og hafa skapað miklar bókmentir. En rúmbetri mega þær vera en guðsþjónustuhúsin og bóka- spjöldin, ef þær eiga að rísa undir nafninu. Kristur hefir sjálfur sagtr að það megi bíða hins efsta dags að skilja illgresið frá hveitinu. Oft hafa þó afskifti kirkjudeildanna hverrar af annari verið.í því einu fólgin, að setja innflutningsbann gegn öllum á- hrifum' og gera kínverska múra um lendur sínar. Á seinni árum hefir þó orðið mikil breyting í þessu efni. Samgöngur hafa jafnan aukið samúiS rneð mönnunum. Við nána viðkynn- ing víkkar sjóndeildarhringurinn. Hrikalegar kynjasögur um vantrú or grimd fjarlægra þjóða hjaðna fyrir áblæstri þekkingarinnar. Mætti uni það langt mál skrifa, hvílík áhrif bættar samgöngur, eimskip, járnbraut ir og sími, hafi haft á sambúð þjóð- anna í andlegum efnum. Og þó á I víðboðið e. t. v. eftir að hafa meiri áhrif i þessum efnum en allar sam_ göngubætur samantaldar, þó sumuni finnist ekki mega nefna slikt nýtisku J vantrúartæki i satnbandi við andleg . mál. öflug hreyfing hefir vaknað f þá átt, að kirkjudeildir kristninnar J sameinist í eina heild. En hætt er þ<» I við, að hægt miði að þvi marki. Enda et ekki alt undir því komið, að all- ar kirkjudeildir sameinist í eitt félag ttr.dir einn páfa. Það verður aldrei. En sameiningin getur orðið með þeim j hætti, að hver kirkjudeild rúmi inn_ ^ an sinna veggja allar aðrar kirkju- deildir. Það er svo margt sinnið sem skinnið, og trúareðli manna með ýmstt móti eins og kirkjudeildirnar. Það fer illa saman að mælast til vináttu við önnur trúarfélög og úthýsa um leið þeim, sem taldir eru að vera af öðrtt sauðahúsi. Það er mest um þá sameiningu vert, að gamlir múrar sétt rifnir niður og greitt fyrir góðum samgöngum. T þvi er enginn kristin- dómur, að alt komist undir einn hatt, heldur er það takmarkið, að allir starfi í einum anda. Hinar sjálfstæðu þjóðkirkjur ertt systur. Það er eng- in ein þeirra drotning og hinar am- báttir. Þjóðkirkja Islands er ein þeirra systra. Hún er sé itm svip og á að bera höfuðið hátt í hóp systra sinna. Islenzkur þjóðbúningur fer henni bezt. Það er engin nauðsyn að htjn fari á danskan búning. Hér hafa undanfarið verið talin nokkur ein- kenni hennar. Hún er engin annexía frá Danmörku. Hún getur ekki hælt sér af guðrækissamkomum og ræðu- fjölda. En óvíöa munu ræður að jafnaði betri en meðal islenzkra piesta. Þar sem ég hefi farið, heft ég enga þá hitt fyrir, er taki fram beztu prédikurum islenzkum. Góð- gerðastarfsemi er hér ekki skipulags. bttndin. En óviða mun meiri góð. gerðasemi en hér. Hér á landi géfa menn sjálfir. Er svo jafnan meðal fámennra þjóðflokka, þar sem allur almenningur skipar eina heild. Trúar. ofsi er hér enginn, en heilbrigt trúar. líf þar fyrir ekki minna en þar, sem ofsinn er meiri. Bókmenning þjóð. arinnar hefir haldið verndar hendi sinni yfir heilbrigðri skynsemi og þjóðsögur og dularfull atvik augun. um opnum fyrir leyndardómum til.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.