Heimskringla - 15.04.1925, Blaðsíða 7
WINNIPEG, 15. APRÍL, 1925.
HEIMSKRINGLA
7. BLAÐStÐA
t-----------------
The Dominion
Bank
HORNI NOTRE DAME AVE-
oa SHERBROOKE ST.
Höfu'ðstóll uppb......$ 6,000,000
Varasjóður ...........| 7,700,000
APar eignir, yfir ....5120,0004)00
Sérstakt athygli veitt viðskift-
um kaupmanna og verzlunar-
ttlaga.
Sparisjóðsdeildin.
Vextir af innstæðufé greiddir
jafnháir og annarsstaðar við-
gengst
PHONE A 9253
P. B. TUCKER, ráðsmaður.
_______________________________-J
Manntjónið mikla á Isl.
(Framhald frá 3. síðu)
Því næst yar sunginn sálmurinn:
“Þín miskun ó guð er sem himinin
há”. Líklegast var, a5 ekkert óvana.
iegt væri með sönginn, ekkert ann-
að en oft og einatt og altaf er við
jarðarfarir. En hér var söngurinn
allur svo undurþýður, borinn fram af
djúpri og sannri hluttekningu í hin-
um geigvænlega harmi. Næst vai'
sunginn sálmurinn: “Þú guð ert
minn, ég á þig að”. Tekið var undir
sönginn hér og þar um alla kirkjuna.
Gerði það samúðaröldurnar sterkari.
Að þvi loknu hélt sira Bjarni Jóns-
son dómkirkjuprestur hjartnæma
ræðu.
Kirkjan var öll klædd svörtu klæði.
í FRfKIRKJUNNI
hófst athöfnin með þvi, að fyrstu
tónarnir af “Ora pro nobis” hljóm.
uðu undir hvelfingum kirkjunnar,
mjúkir og þýðir, .stiltu hugina til
samúðar og fyltu kirkjuna
þeim hátíðleik, sem hélst alla guðs-
þjónustuna út. Lék Bernburg á
fiðlu með kirkjuorgelinu.
Þá setti það og mjög svip á guðs-
þjónustuna, að framan við kórinn
hafði verið settur pallur, tjaldaður
svörtu, og á honum reist táknmynd
af legstað með minnisvarða, — brot-
inni, svartri súlu, og logaði ljós efst
á henni. Þá var og tjaldið með
svörtu klæði þar sem mætast kór og
kirkja.
A eftir forspilinu var sunginn)
mergðin: “Þú, guð, ert mikill,
mergðin englasveita”, og þar næst:
“A hendur fel þú honum”. Að þeim
sálmi loknum flutti séra Árni Sig-
urðsson áhrifamikla og hjartnæma
ræðu.
I Hafnarfirði var einnig haldin
minningarathöfn — lík þeirri er var
í Reykjavík.
— “Isafold”.
---------x----------
Skemtanir í sveitum
(Niðurlag).
VI.
sjónleikar og söngur.
Af nýtísku skemtunum langar mig
til að minnast nánar á æfðan söng
«g sjónleika.
Svo sem áður er á minst, var sung
ið í gamla daga, bæði heima og í
veizlum. En það var yfirleitt ó-
æfður söngur, þar sem hver söng með
sínu nefi. En þrátt fyrir það var
söngurinn oft góður, það sem hann
náði: Mest voru það sálmalög er
sungin voru í mínu ungdæmi. Litlu
síðar komu kvæðalögin til sögunnar.
Einsteka menn lærðu söng og orgel-
spil, og sumir þeirra æfðu söngflokk
tif að syngja í kirkjunni. — Af æfð-
um söngflokkum til sveita, er sungu
“fyrir fólkið” og mér eri kunnugt
um, er “karlakór” Skagfirðinga,
nafnkunnastur, og sá er getið hefir
sér, jafnvel beztan orðstír. I þeim
flokki eru ágætir söngmenn, enda
hafa þeir veitt mörgum ánægjustund
með söngnum. Söngur þeirra er yf-
irleitt ein sú bezta skemtun, er fólk
í sveitum getur átt kost á.
Bræðurnir í Borgarfirði með
Bjarna Bjarnason bónda á Skáney í
fararbroddi, er einnig ágætur söng-
flokkur. Þeir hafa oft sungið á
samkomum og mótum, og getið sér
góðan orðstír.
I Nauteyrarhreppi í Norður-tsa-
fjarðarsýslu er 12 manna — karla og
kvenna — söngflokkur. Veitir hon.
um forstöðu Sigurður Þórðarson frá
Laugabóli, maður mjög “musikalsk-
ur”. Enda er flokkur hans æfður og
syngur ljómandi vel.
Auk þessa eru í Dalasýslu 3 söng-
flokkar, í Saurbænum, Miðdölum og
LaxárdaL I Steingrímsfirði í
Strandasýslu er æfður flokkur. Sömu
leiðis einir 2—3 í Húnavatnssýslum
o. s. frv.
En það gerir sig ekki sjálft að
halda uppi söngflokk í strjálbygð-
um sveitum og æfa hann. Það kost-
ar þá sem taka þátt í söngnum,
mikið ómak og erfiði.
Ef nokkuð væri að athuga um þessa
söngflokka, þá kynni það helst að
vera þetta, að hitt fólkið hætti að
syngja. En það má ekki eiga sér
stað.
Þar sem sönglist dvin, er dauðans
ríki.
Um sjónleikana get ég verið fáorð-
ur. Ekki af þvi, að þeir séu ómerki-
legur þáttur í skemtunum sveita.
manna, heldur hitt, að þeir eru orðn.
ir kunnir í öllum sýslum landsins, og
eru vinsæl skemtun. Sjónleik sá ég
fyrst leikinn í sveit um 1890. Síðan
hafa þeir breiðst úr, einkum síðan
um aldamót. Þeir eru tíðast leiknir
í sambandi við aðrar skemtanir, svo
sem söng og dans. Enda eru það
oftast “smástykki” sem leikin eru,
bæði innlend og útlend. Sumir ráð-
ast þó að hinum stóru leikritum.
Skugga.Sveinn hefir verið leikinn til
sveita, svo og Nýársnóttin, Galdra-
Loftur, Tengdamamma, Æfintýri á
gönguför o. s. frv. — En skiljanlega
er leiklistinni víða ábótavant, “langt
upp í sveit”. Sumir leikendurnir
hafa aldrei séð leikið og tilsögnin oft
ófullkomin. Er þvi hin mesta furða,
hvað sumum tekst þarna að sýna góð
an leik.
Veturinn 1921—'22 sá ég Skugga-
Svein leikinn austur í Þykkvabæ.
Leiktjöld voru engin, og allur útbún-
aður fátæklegur og af skornum
skamti. En sumum leikendunum
fórst leikurinn vel. Eg hefi ekki oft
séð Skugga.Svein betur leikinn. Sum
staðar er leikið í tvennu lagi, annars.
vegar unglingar innan við fermingu,
og hinsvegar fullorðið fólk. Ungl-
ingunum tekst oft vel með sín hlut-
verk. Og ég skemti mér ekki minna
við að horfa á þá en hina eldri.
Annars eru þessir sjónleikar sak-
laus og góð skemtun, en þeir sem
taka þátt í þeim ættu að reyna að
vanda leik sinn sem bezt.
VII.
Niðurlag.
Hér hefir nú verið minst nokkuð
á skemtanirnar í sveitunum fyrrum
og nú. Verður ekki annað sagt, en
að þar kenni margra grasa. Skemt-
anirnar eru að jafnaði fábreyttar og
ódýrar. I fjölbygðum sveitum eru
oft 2—4 skemtanir yfir veturinn.
En þar sem strjálbygt er og erfitt
að sækja mannfundi, reyna menn að
komast af með eina eða tvær.
Fullorðna fólkið sumt og nokkur.
ir bændur kvarta stundum yfir skemt.
anafíkn unga fólksins og hafa jafn-
vel horn í síðu skemtananna. Segja
sem satt er, að þær taki oft upp mik-
inn tima, og vegna þeirra verði margt
að sitja á hakanum, sem nauðsyn-
legra sé en þær. Stundum rekur jafn
vel svo langt, að allir sem vetlingi
valda, fara að heiman ef skemtun er
i boði. Verða þá börn og gamal-
menni að annast um skepnur, fara í
fjós o. s. frv. eða þá, að maður af
næsta bæ er fenginn til þess. Af
ýmsum( ástæðum verður konan eða
húsfreyjan oft að hýrast ein heima
með krökkunum, og dæmist á hana að
gera það sem gera þarf á heimilinu
þann daginn.
En þótt skemtanirnar séu oft og
einatt bagalegur tímaþjófur frá
Öðrum gagnlegri störfum, þá mundi
það mælast illa fyrir, ef reynt yrði
að hefta þær eða banna. — Nú er það
kunnara en frá þurfi að segja, að
búandmenn kvarta alment um fólks-
leysi, bæði að þörfu og óþörfu. En
ekki mundi það bæta úr skák ef far.
ið væri að takmarka þar skemtanir
nokkuð að ráði. Það stöðvaði ekki
fólksstrauminn til bæjanna eða stemdi
á neinn hátt stigu fyrir honum.
Islendingum hefir verið borið það
á brýn, að þeir væru fremur þung-
lyndir, og það er í sjálfu sér ekkert
ónáttúrlegt þótt svo væri. Liggja
ýms drög að því, sem hér er of langt
að rekja.
En ef nú svo væri, að mönnum hér |
hætti til þunglyndis — og enda hvort
sem er — þá eru skemtanir og gleð- '
skapur þjóðinni nauösynlegar. Ann- ’
ars mundi of mikil deyfð, svefnmók
og sinnuleysi ásækja hana. Menn
eru nú einnig alment þapnig gerð-
ir, að þá langar til að “lyfta sér upp”
við og við. Fái þeir eigi leyfi til þess
með góðu, leitar fólkið þangað, sem
frjálsræðið er meira og auðsóttara
fyrir það að taka þátt í skemtunum.
Það sem mestu varðar er að skemt-
anirnar séu hollar og heilbrigðar.
I sambandi við þetta má nefna það,
að siðavandir menn hafa stundum
ýmigust á dansinum, og óttast að
hann hafi í för með sér, að þeirra á-
liti, miður holl áhrif, og jafnvel ó.
siðsemi. Um þetta má vitanlega deila.
Ef skemtanir eru notaðar í óhófi og
gáleysi, þá er það ekki gott. Alt óhóf
er synd.
Innansveitaskemtanir og yfir höf-
uð þessi algengu skemtimót til sveita
fara venjulega fram eftir ákveðinni
og áður gerðri skemtiskrá. Dansinn er
að vísu altaf með, öðrum þræði, en
sjaldgæft fremur, að hann sé eina eða
aðal skemtunin. Skemtanirnar fara
fram með “kurt og pí” og siðsemi,
eftir því sem ég þekki til. Þessi ótti
um sérstaka ósiðsemi, er því ástæðu-
lítill. i
Hitt þarf engan að hneyksla, þótt
ungu fólki þyki gaman að hittast á
þessum skemtimótum, talast við og
dansa. Eða þó að elskendur noti tæki-
færið til að finnast þegar svona ber
undir. Þeir sem fetta fingur út í
þetta, eru annaðhvort búnir að
gleyma sínum bernskubrekum eða
vilja ekki við þau kannast.
Á þessum sveitasamkomum er það
undantekning ef maður sést ölvaður.
Öðru máli er að gegna um hin stóru,
fjölmennu mótin, íþróttamótin og
réttir að haustinu, þar sem koma
saman menn úr öllum áttum, þar á
meðal úr Reykjavik eða úr öðrum
bæjum. Ber þá oft á drykkjuskap og
annari óreglu. — En hvað er það þó
móts við ósiðsemina fyr á öldum t.
d. þegar Vikivakarnir voru í algleym
ingi hér á landi.
Það er fært í frásögn, að á síðustu
Jörfagleðinni, árið 1707, hafi 19 börn
komið undir, og ein af stúlkunum
sem varð barnshafandi, tilnefndi 18
menn, er hún skyldi feðra barnið.
Það sem mestu varðar um þess-
ar skemtanir, er það að þeim sé stilt
í hóf, og stjórnað, sem bezt, svo ekk-
ert reki sig á. Það er gott að muna
eftir heilræðinu, að “hætta skuli
hverjum leik þá hæst fram fer”, og
að “hóf er bezt að hafa á öllum
máta”.
Það þarf að vanda til skemtiskrár
innar, og velja aðallega þær skemt-
anir eða þá leika, er herða líkam-
ann og göfga sálina. Ef þess er gætt,
geta skemtanirnar í sveitunum — og
annarstaðar — stutt að aukinni og
bættri menningu, eins og Guðmimd-
ur próf. Finnbogason víkur réttilega
að í sitmi snjöllu ræðu á Álfaskeiði
1923, og prentuð er í Eimreiöinni
árið sem leið (Bls. 23).
Skemtanalöngun — og þörf —
fólksins verður ekki útrýmt. Og það
má ekki tortryggja ungt fólk um
skör fram, þó að það langi til að
leika sér og koma saman i þeim til-
gangi. Ofmikil tortrygni gerir menn
að lakari. Það þykir ilt að heita
strákur og hafa ekki unnið til þess.
Hitt hefir meiri þýðingu að leit-
ast sé við að gera skemtanirnar fjöl-
"breyttar, svo að allir, ungir og gaml-
ir, hafi þeirra not, og að heildará-
hrifin verði þau að hugsunarháttur
fólksins vitkist og göfgist.
Ritað um jólin 1924.
Sigurður Sigurðsson.
— “Lögrétta”.
---------x-------------
Þóra frá Háholti.
Á Stóra-Núpi andaðist 26. jan. i
vetur gömul kona, fluggáfuð, en fá-
tæk og umkomulítil alla æfi, átakan-
legt dæmi þess, hversu afburða-hæfi-
leikum er stundum þröngur stakkur
skorinn af atvikunum. Hún hét Þóra
og var Ólafsdóttir, bónda í Háholti í
Gnúpverjahreppi. Þar fæddist hún
16. des. 1833. Sjón hennar var svo
PILLS
GIIV PILLS hnfa læknnh l»(lHundlr af
bakverkjum, kvasrteppu e?5n þvaR-
mlMMÍ, ðhrelnindum f þvaKlnu ojs öhr-
um merkjum nýrnn ok blööruMjök-
dómn. GIX PILLS munu hjAlpa ytfur*
i»Oc hnukurinn 1 öllnm lyfja-
bfiöum ok lyfjaMÓlu verxlunum.
NATIONAL DRUG CHEMICAL.
Company of Canndn, Llmlted.
TORONTO, — — CANADA.
No. 80.
háttað frá barnæsku, að hún sá mjög
skamt frá sér, þekti jafnvel ekki kunn
ugan mann, þó að hann stæði rétt
fyrir framan hana, en hún las fram á
elliár gleraugalaust smátt Ietur við
lélega birtu, en þurfti þá að styðja
fingri utan á hægra augað, meðan
hún las. Hún taldi þetta bilun, er
stafaði af byltu á barns aldri. Sjón-
leysi þetta bagaði hana sva, að hún
var aldrei talin hlutgeng vinnukona,
en i sessinum var hún prýðilega vinn
andi og hög á hannyrðir. Hún ólst
upp í fátækum foreldrahúsum og var
látin ganga að allri vinnu, úti og
inni, þrátt fyrir sjóngallann, en það
var henni kvalræði, því að’ lundin var
stór og metnaðarfull og viðkvæm.
Síðan var hún hjá systur sinni, er bjó
í Háholti eftir foreldra þeirra. Var
henni úr þvi hlíft meir við útivinnu,
en innanbæjar féll henni sjaldan verk
úr hendi. Þá fékk hún og bráðum
nýtt verk að vinna, sem henni lét vel.
Það var að kenna börnum systur
sinnar. Unni hún þeim til æfiloka,
eis og hún væri móðir þeirra. Sjálf
var hún aldrei við karlmann kend.
Eftir það var og oft komið til henn-
•ar börnum, sem erfitt veitti að læra,
og gafst vel jafnan. Hún var barn.
góð og hafði yndi af að fræða. Náms
þorsti sjálfrar hennar óslökkvandi, og
lítt skiljanlegt, hversu mikið hún hafði
komist yfir að lesa og nema og skilja,
þiátt fyrir allar ástæður, efni engin
til bókakaupa og lítið tóm til að lesa.
Tíminn til þess var oft tekinn frá
svefninum; mörg bókin lesin meðan
aðrir sváfu, við kertisskar á rúm.
bríkinni. Hruni, Hrepphólar og síðan
Stóri-Núpur voru bjargarbæirnir.
Þaðan komu flestar bækurnar og —
mörg kertin. Það var hennar mesta
happ um æfina, er síra Valdimar
Briem varð prestur í Hrepphólum og
sóknarprestur hennar: hún var þá um
fertugt. Frú Ólöfu, konu hans, mun
henni hafa þótt vænst um allra
manna og mátti varla óviknandi á
hana minnast. Þóra las viðstöðulaust
bækur á öllum Norðurlandamálum, og
sóttist öllu fremur eftir fræðibókum
en skáldsögum. Ljóðum unni hún
mjög og var auðvitað hagmælt vel,
hafði mesta yndi af söng, og svo
söngvin var hún og söngfróð, að hún
hafði lært af bókum einum að syngja
eftir nótum. Hún var skepnuvinur
og þrátt fyrir sjóngallann hafði hún
yndi af blómum))g þekti jurtir furðu
lega margar. Svo segir systurdóttir
hennar, sem nú er kennari: “Alt hef-
ir það reynst mér hárrétt, er hún
sagði mér í æsku, hvort heldur það
var um líf dýra, heiti jurta eða gang
himintungla. Systir hennar lét af
búskap 1895, þá skaut síra Valdimar
skjólshúsi yfir hana, og var hún á
Stóra-Núpi upp frá því. Fyrir 4 ár-
um meiddist hún svo af byltu, að hún
steig ekki á fætur framar og mátti
ekki hrærast hjálparlaust; var hún
löngum þungt haldin, en hélt rænu og
minni og urðu, þá enn stundum ljóð
á munni, í gamni og alvöru, svo sem
þessi:
Látið Þóru liggja á ská,
því lýðum hjá
löngum hún viðutan var.
Alt af vildi hún eitthvað sjá,
en oft var dimt fyrir sálar skjá
og fjúkandi skýjafar.
Þegar hún var hálfáttræð, gerði
sira Valdimar nokkrar gamanvísur
til hennar. Þessi var síðust:
Enginn telji orð min bull,
ætla ég fast þau standi.
'Höfuðið ljós, en hjartað gull,
hitt úr teygjubandi.
M. — “Lögr.”.
-------0------
“Some reasons why”
(Stuttur kafli þýddur úr einum af
fyrirlestrum Roberts Ingersioll).
“...... Við sköpum okkar eigin
Guð, og endurbætum hann dag frá
degi.
Það er margt ráðvant fólk, sem
trúir þvi, að mennirnir eigi Móses
að þakka skilning á jarðfræði og
Jósúa fyrir stjörnufræði og her-
kunnáttu, en Samson fyrir morðvopn-
in; einnig Daniel fyrir heilagar for-
mælingar. Já, og Salomon fyrir
kænsku í dómsmálayfirheyrslu, og
Jónasi fyrir vísindalegar siglingar. St.
Páli fyrir gufuskip og eimreiðar. Svo
egum við eflaust hinum fjórum guð-
spjöllum að þakka fyrir ritsímana
og saumavélarnar; svo St. Jóhannesi
fyrir vefstóla, sögunadmylnur og tal-
síma. Þar næst Fjallræðunni fyrir
kalk og þýzkar fallbyssur ...... ”.
“Okkur er sagt, að ómögulegt hafi
verið að siða nokkra þjóð án Biblí-
unnar ? ? ? — En Gyðingar höfðu
Biblíuna — þó krossfestu þeir alger.
lega saklausan mann....... Þeir hefðu
ekki framið stærra ódáðaverk, þó
þeir hefðu ekki verið biblíu-menn ....
.... Guð hefir hlotið að vita það fyrir
sex þúsund árum síðan. En þvi
leyfði hann nokkurri þjóð nokkurn-
tíma, að vera án hennar? (Því gaf
hann ekki Adam og Eveu fáein blöð
í garðinum Eden?)
Ekkert getur metist dásemlegra, en
sá tignarlegi mikilleiki, sem nefnist
orsök og afleiðingar. Þvi vit og sann.
girni hljóta að ráða úrslitunum.
Innblásin bók getur ekki staðið á
sama grundvelli, sem óhrekjanlegar
staðreyndir. Geturt nokkur maður
öðlast sína eilífðarumbun fyrir það
að trúa þvi, sem einhver hefir sagt
honum að trúa, eða einhverju því,
sem hann getur aldrei fengið neina
sönnun fyrir?
Skyldi sá maður, sem hefir mist-
an heila, hafa bezta tækifærið að kom
ast inn í himnaríki?
Hugsið ykkur himnaríki fult af
fólki, sem aldrei hefir reynt að
hugsa........
íEf svo væri, þá væri betra, að alt
tortímdist, og að Guð heföi aldrei
verið til ......
Betra væri að allar lindir upp-
þornuðu og öll frækorn visnuðu í
náttúrunnarriki. Betra að orsök og
afleiðingar hefðu aldrei átt neitt
skylt saman ........
Að alt líf breyttist í andlegan
dauða og þagnarauðn. Betur að
hver stjarna félli í óminnishaf eða í
myrkur tilveruleysisins, heldur en að
slík trúarbrögð væru alstaðar ríkj-
andi. Nei!
Framtiðar trúarbrögð munu byggj-
ast á sönnum manndómi, sem segir
við hvert mannsbarn: Þú hefir rétt-
inn til að hugsa og rannsaka. Ein-
ístaklings frelsið er þín trú.
Alt, sem er áreiðanlegt — gott of
fagurt, og allar sjálfsfórnir mynda
henni og hver stjarna er kapítuli.
bibliu. HVer stjarna er grein í
Hver ljómandi hnöttur er partur þar
af. Engar innskotsgtreinar koma(s(t
þar inn á milli.
Min biblia er alt háleitt, sem talar
til mannsandans. Hvert Fjólublað,
hvert strá, hvert tré, hver snækrýnd-
ur jökull, hvert himintúln sem blikar,
hvert kærleiks andartak, hvert heiðar-
legt verk, orð og atvik; alt, sem er
í virkileika gott, — er mín biblía, og
í því byggi ég trú, mína.”
Aths.: — Kristni heimurinn kall-
aði Robert Ingersoll heiðingja.
YNDO.
-------0------
Frá íslandi.
Fyrra sunnudag var L. H. Mull-
er i skíðaför á Mosfellsheiði, þar
sem hún er hæst, og sá þar þá þrjú
hreindýr og komst allnærri þeim. —
fyrir mörgum árum var nokkuð af
hreindýrum áReykjanesfjallgarði, en
margir munu hafa hugsað, að þau
væru nú horfin þaðan með öllu. —
ÚR SANDGERÐI.
(Eftir símtali 3. marz).
Síðastliðna viku var ágætisafli þar
syðra, enda gott sjóveður á hverjum
degi. Fengu bátar þetta 5—10 skp.
á dag, og er það ágætt talið. í fyrra-
dag var fremur slæmt sjóveður og
afli frekar lítill. I gær voru allir í
landi, því sjóveður var ekki.
Sjómenn og útgerðarmenn í Sand-
gerði voru orðnir fremur svartsýnir,
því ekkert fiskaðist og sjaldan gaf á
sjó. En síðastliðin vika hefir gert þá
bjartsýna aftur og er vonandl fið
sjóveður og afli haldist áfram.
Ur öðrifm verstöðvum sfðra er
sama að segja. Aflinn síðastliðna
viku var ágætur alstaðar.
FRÁ AKUREYRI.
3. marz.
I gær um nónbilið brann íbúðarhús
Rinriks Thorarensens læknis á Siglu-
firði ásamt prentsmiðju, er var í út-
byggingu. Innanstokksmunir brunnu
nær allir, lyf, læknisáhöld, prentáhöld
ÖIl og því nær fullprentuð lækninga-
bók, ásamt handriti. Kviknaði út frá
ofni í íbúðinni. Húsið var eign
Landsbankans. Innanstokksmunir voru
vátrygðir og húsið og pr'entáhöld eitt
hvað litillega, en annað ekki. Verður
Henrik Thorarensen fyrir stórtjóni.
FRA SEYÐISFIRÐI.
3. marz.
Síld er öðru hvoru hér í lagnet,
þegar góðviðri er. I Hornafirði var
fyrsti róður á föstudaginn, 3—6 skip-
pund, hæst 8 skpd., í dag 2—8, fisk-
ur er afar grunt og útlit um fiskafla
ágætt, verði gæftir. Loðnuveiði var
mikil á firðinum fyrir helgina. A
Djúpavogi var einnig róið, en aflað
var minna þar. Vélbátar eru að smá-
bætast við í þessar verstöðvar. —
Veðráttan sífelt óstöðug.
ÚR HAFNARFIRÐI.
27. febrúar vildi það hörmulega
slys til, að maður beið bana við
bryggjugerð Kveldúlfs þar í bænum.
Var verið að vinna að grjóthleðslu
úr stóru grjóti, og notaður til þess þrí
fættur grjótgálgi. En við notkun
grjótgálgans brotnaði hann, valt um
og ofan á einn manninn, sem var við
vinnuna. Meiddist hann svo mikið,
að hann beið bana af. Hann hét
Sigurður Jónsson, var nýlega giftur,
og átti heima á Kirkjuvegi í Hafn-
arfirði.
ÞJERSEMNOTIÐ y TIMBUR K A U P 1 Ð A F The Empire Sash and Door COMPANY LIMITED Birgðir: Henry Ave. East. Phone A 6356 Skrifstofa: 5. Gólfi, Bank of Hamilton VERÐ GÆÐI ÁNÆGJA.
* KOL! - - KOL! |
o
HREINASTA og BEZTA TEGUND KOLA. X
Bæði til HEIMANOTKUNAR og fyrir STÓRHÝSI. A
Allur flutningur með BIFREIÐ- X
Empire Coal Co. Limited
ími: N 6357—6358 603 Electric Ry. Bldg. V
|
T
T
T
T
T
T
T
T