Heimskringla - 03.02.1926, Síða 1
Vel launuð vinna.
Vér viljum fá 10 íslendinga í
hreinlega innanhúss vinnu. Kaup
$25—$50 á viku, í bænum eSa í
sveitaþorpum. Enga æfingu, en vilja
og ástundun aS nema rakaraiðn. —
Staða ábyrgst og öll áhöld geíins.
Skrifið eða talið við Hemphill
Barber College, 580 Main St., ^Win-
nipeg.
Staðafyrir 15 Islendinga
Vér höfum stöður fyrir nokkra
menn, er nema vilja að fara með og
gera við bíla, batterí o. s. frv. Við-
gangsmesti iðnaður í veröldinni. —
Kaup strax. Bæklingur ókeypis. —
Skrifið eða talið við Hemphill
Trade Schools, 580 Main, Street,
Wininpeg.
XL. ÁRGANGUR. WIIMNIPEG, MANITOBA, MIÐVIKUDAGINN, 3. FEBR., 1926. ' NÚMER 18
A D A !
A mánudaginn var létu conserva-
tivar í Ottawa aftur sverfa til stáls,
en voru ofurliði bornir. Var breyt-
ingartillagan við hásætisræðuna
feld með 125 atkvæðum móti 115.
Engir greiddu atkv. meg till. nema
conservat., hinir allir með stjórninni.
Bar þá conservative þingmaður,
SutherLand frá Oxford North, fram
tillögu um að fresta umræðum til
miðvikudags síðdegis. Félst stjórn-
in á það, þvert á móti ætlun con-
servativa. En ekki ætla þeir að
hætta við svo búið. Hon H. H.
Stevens, þingmaður frá Mið-Van-
couver, hafði lagt fram þingsálykt-
unartillögu, er ásakaðji stjórnina.
harðlega fyrir slælegt eftirlit með
tollskrifstofum ráðuneytisins. Skal
hún nú -tekin aftur, en breytingartil-
laga við hásætisræðuna soðin upp
úr henni og borin undir atkvæði,
sem fyrst. Vænta conservativar
að það muni ríða Kingstjórninni að
fullu.
Eftir fregnum frá Otta.wa hefit''
stjórnin ákveðið að taka 3 menn inn
í ráðuneytið: Hon George Graham,
járnbrautarmála ráðherra., í sama
embætti fyrst um sinn; Dunning for-
sætisráðherra i Saskatchewan, sem
innflutningsmálaráðherra, og W. D.
Euler, frá Waterloo North, liklega
sem verzlunarmálaráðherra.
Sagt er að conservativar í Mani-
tobaþinginu hafi afráðið, að bera
fram va.nt r u stsy f irl ýsingu mjög
bráðlega á hendur Bracken forsæt-
isráðherra og ráðuneyti hans. Var
fyrst búist við að hún myndi komi
frá R. J. Willis írá Turtle Mounta-
in i enda athugasemda hans við há-
sætisræðuna, en nú mun afráðiö að
J. T. Ka-ig Winnipeg þingmaður
beri hana fram. ,
Um daginn fréttist að enginn
myndi sækja í Prince Albert kjör-
dæminu á móti forsætisráðherranum.
Eli nú er þar alt í einu komið óháð
þingmannsefni fram á vígvöllinn,
Mr. David L. Burgess, uugur bóndi
frá MacDowell þar í héraðinu Telja
liberalar víst að hann sé útsendur
af conservativum, þótt þeir neiti
því. Mr. Burgess sjálfur telur sig
fyllilega óháðan, og muni hann
verða það áfram, þótt hann verði
kosinn.
Sterkur orð.asveimur er um það i
Ottawa, að MacKenzie King hefði
boðið J. S. Woodsworth emjbætti í
ráðuneyti sínu, sem verkamálaráð-
herra. Ekki vita menn um sann-
indi i þessu máli, en svo mikið mun
víst, að Mr. Woodsworth fýsi ekki
í það embætti. — Annað mál er það,
að hæfari mann til þess getur tæp-
lega fyrir margra hluta sakir.
Mr. H. P. Hermanson, yfirráðsmað-
ur sænsk-ameríska skipafélagsins, er
nýlega kominn aftur frá Svíþjóð og
Norðurlöndum.
Mr. Hertnansson telur víst að inn-
flutningar til Canada frá Norður-
löndum muni fara mjög vaxa.ndi
úr þessu sökuni girðinganna, er
Bandaríkin hafa sett um heimatúnið.
Arlega flvtja út. um 9000 manns
frá Noregi og Svíþjóð. Er betur
farið að Canada byggist slíkum
mönnum, en stórborgaskrælingjum
frá Brétlandseyjum, eða annarstaðar
a.ð.
Sorgar thátíð hafa kaþólskir menti
boðið hér í St. Boniface, sérstak-
1ega Belgíumenn í tilefni af fregn-
inni um dauða kirkjuhöfðingjans
Mercier kardínála. Hann er einn
af mikilmennum kaþólsku kirkjunn-
ar, og varð heimsfrægur á ófriðar-
árunum fyrir kj.ark og karlmensku,
í viðskiftum sínum við Þjóðverja,
og óbilgirni hershöfðingja þeirra og
landstjóra er spentu Belgíu her-
greipum.
Dánarfregn
Nýlega er dáinn bóndinn Sigfús
Aíagnússoii í Elfrosbygð Sask. Hann
var Skagfirðingur að ætt og hét fað-
ir hans Magnús Pálsson, en móðir
Margrét Sigfúsdóttir. Hann misti
föðtir sinn ungur, og var þá tekinn
til fósturs og alinn upp af séra
Birni Jónssyni að Miklabæ; lauk
fullnaðarprófi við búna&arskolann
að Hjólum i Hjaltadal; fór til Vest-
urheims um aldamótin; kvtentist ár-
ið 1906 Ingibjörgu Agústdóttur, sem
nú lifir mann sinn; þeim varð 3
barna .auðið, sem lifa öll, og eru enn
á æskuskeiði. Mestallan búskap sino
bjuggu þau 5 mvlur norðaustur af
Elfrosbæ. Heilsugóður hafði Sig-
fús jafnan verið, þarrgað lil síðast-
liðið ár að hann kendi mikiilar van-
beilsu, og kom þá í ljós að hann var
'haldinn krabbameini. Eftir rniklar
og kostn aðarsa.mar lækningaleitir
beið hann bana síns, á heimili sínu
nokkra mánuði fram á morgun hins
hins 24. jariúar síðastliðinn. Jarðar-
förin fór fr.am þriðjudaginn 26. s.
m. að viðstöddu allmiklu fjölmenni
enskra og íslenzkra. Séra Frið-
rik Friðriksson aðstoðaði.
Sigfús heitinn var myndarmaður
til sálar og líkama, og áhuga- og
iðjumaður hinn mesti. Félagsmaður
var hann ekki kallaður. Þó vissu
þeir, er skildu hann bezt, að hann
bar áhuga fyrir félagslegum vel-
ferðarmálum og hugsjonum. Ein-
hvernveginn gat hann hinsvegar,
ekki troðift alfaraveginn með sam-
tíð sinni. Seni heimilisfaðir var
Sigfús að sögn, annara manna fyrir-
mynd.
íslenzkur íæknir.1 j
Dr. Paul Vídalín (Guðmundsson)
Jameson er fæddur í Spa’nish Fork,
Utah, í Bandaríkjunum 21. maí 1898,
sonur Guðmundar Eyólfssonar. Guð-
mundssonar frá Eyjabakka á Vatns-
nesi í Húna.vatnssýslu á Islandi , og
Ingibjargar Margrétar Jónatansdótt-
ur, Davíðssonar frá Hvarfi í Víði-
dal. Dr. Jameson ólst upp hjá
foreklrum sínum í Spanish Fork og
naut þár alþýðuskólamentunar sinn-
ar og að henni lokinni á gagnfræða-
skóla (high school) þar í Spanish
Fork og svo háskóla ríkisins, sem
hann útskrifaðist frá með ágætis
einkunn.
Að háskólanámi afloknu tók Dr.
Jameson að lesa læknisfræði og
lauk því pámi síða.stliðið vor við
læknaskólann í Ohicago, einnig með
ágætis einkunn. Undir eins og
Dr. Tameson hafði lokið námi sínu
>KðSS0e>S00gOSSC0CC0ððOSOSO90S80ð06099905>Se0Seð0099ðM
Einveran.
Eftir Ella W. Wilcox.
Hlæðu’, og menn hópast af kæti,
Harma’, og þig enginn vil sjá,
Því heimur á leigu
Tók hamingju veig,
En hagstæðisleysiö hann á.
Syng, og þér öræfin anza,
En andvarp þitt týnist í geim,
Því bergmálin dansa’
Ut úr launskútum lands
Með léttúð, ei sorgarhreim.
Fagnaðu’, og fólkið þín vitjar,
En forðast ef syrgja þú mátt,
Því munað þinn flýja’
Ekki ’in mannlegu þý,
En mótlætið aleinn þú átt.
Gleðstu,’ og þér góðvinir fylgja,
Gráttu’, og þeir hverfa úr sýn;
IÞeir heimta sinn þátt
Af því æðsta’ er þú átt
En óhappadræsan er þín.
Veittu’, og þig heimurinn liyllir,
Hungra’, og hann svífur á braut.
Auðsældin ríf
Veitir unað og líf,
En einn berðu dauðans þraut.
Við ljóshaf í lystisölum
Sér leikur ’in mikla þröng,
En, sár og seinn,
Loks einn og einn
Má arka lífs þyrnigöng.
P. B. þýddi.
‘O®oooooooece®®®®ooooooooocooooccoeoecooc©ooooooooooos
við skólann, bauðst honum staða
við spítala í Salt Lake City, þar sem
hann nú er.
Á námsárumu sínum gat Dr. Jame-
son sér hinn bezta orðstír, bæði sem
námsmaður og áhugasamur félags-
maður og hélt því lengst af virð-
ingarstöðu á meðal skólabræðra
sinna og systra og félagi var hann
og er í tveimur félögum í sambandi
við mentastofnanir þær, er hann hef-
ir stundað nám við Phi Chi lækna-
félagið og Pi Kappa Epsilon honor-
ary national scholastic fel.
Eftir þeim upplýsingutn um þenn-
an landa vorn, sem vér höfum feng-
ið, er óhætt að segja að hann sé
bráðefnilegur maður og að framtíð-
iti lofi miklu um hann.
(Eftir Lögb.)
— Heimskringla hefir verið beðin
að birta grein þessa og myndina. af
Dr. Jameson og gerir hún það fús-
lega að fengnu leyfi blaðsins “Lög-
bergs.”
----------x----------
Orðsending.
Til Jóns Einarssonar.
I Lögbergi frá 14. jan. s. 1. las eg
grein eftir þig um ljóð hr. Péturs
‘ Sigurðssonar, og myndi eg hafa lagt
frá mér blaðið og — þagað, ef þú
hefðir ekki með lítilsvirðingu og að
óþörfu. dregið nafn þess manns inn
| í grein þína, er einna snildarlegast
hefir ljóðbundið íslenzkt mál, •—
nafn Þorsteins Erlingssonar.
Unimæli þín hljóða svo:—
“Herör’, bls. 7 og 8. er Ijóðraun og
hugrekkismál, tengt í hugðnæmt
gamblendi, næsta ólikt að efni og
eðli Sjóferðar-fargani Þorsteins Er-
lingssonar.”
Eg veit ekki hvort þú með þessum
orðum átt átt við "'Skilmálarnir”
eftir Þorstein, — man ekki eftir
neinu sérstöku sjóferðarkvæði eftir
hann, og hefi ekki “Þyrna” við
hendina. — enda skiftir það ekki
mestu máli. Hér hefir þú strandað
í þeirri andans raun að lofa svo einn
að þú lastir ekki annan, um leið og
það er ómaklegt að kasta. hrakyrð-
um að skáldskap Þorsteins og lífs-
skoðunum.
Mér skilst að sé ekki alllítill
vandi að ritdæma bækur, og að sá er
leggur á þann hála ís, verði að gæta
ströngustu varúðar og hófs í riti. —
Og hvernig nafn Þorsteins Erlings-
sonar gat komið í hug.a þinn, er þú
varst að skrifa um bók hr. P. S., er
mér ráðgáta, því sannast sagt finst
mér það ekki “hugðritemt sam-
blendi” .að bera skáldskap þeirra
saman. —
Að ýmsu leyti mun lífsskoðun
Þorsteins hafa verið ólik þinni, en
eg hygg, að hefðir þú þekt Þorstein
persónulega, þá væri sú minning um
hann og verk hans, eitt með því feg-
ursta og hugðnæmasta er liðin ár
hefðu !.agt í vitund þína. —
Þinn einl.
26 jan.. 1926 Asgeir I. Blöndahl.
----------x----------
Ur bænum.
Arsfundur Samba.ndssafnaðar
hefst næstkomandi sunnudag (þann
7. febrúar), verða þar lesnar upp
skýrslur hinna ýmsu embættismanna
og kosin fulltrúanefnd fyrir næsta ár.
Framhald fundarins verður svo hald-
ig - sunnudaginn (þann 14 febr).
Fundurinn byrjar eftir messu bæði
kvöldin.
Sökum þrengsla verður ýmislegt er
átti að birtast í þessu blaði að bíða
hins næsta.
Dr. Sig. Júl. Jóhannesson frá
Lundar, var staddur í bænum nú í
vikunni.
Menn eru beðnir að festa í minni,
að glímumót verður haldið i sam-
bandi við þjóðræknisþingið. Fer
það sennilega. fram að kvöldi hins
fyrsta fundardags. Verða þar
veitt þrenn verðlaun, og verða það
alt sérlega. vönduð úr, en þó misjöfn
að verðmæti, og nafn sigurvegar-
ans grafið á það er hann hlýtur.
Von er um að Jóhannes glímukon-
ungur komi hingað norður við það
tækifæri, en frá honum koma verð-
launin, sem kunnugt er.
Allir eru velkomnir afi keppa. E11
þcir scm þafi hafa í hyggju eru
bcðnir afi scnda nöfn sin til glúmu-
nefndarinnar, Box 3105 Winnipeg,
ckki síffar cn laugardaginn 20. þ. m.
Mr. Thorsteinn Thorsteinsson
fyrrum búsettur i Gardar bygð N.
Dak., dó úr lungnabólgu, að kvöldi
þess 29. jan. s. 1., að heimili sonar
síns Kristins 7555-19ave N. W.,
Seattre, Wash.
Þriðjudaginn i fyr*i viku fór Mr.
Charley Davidson, 816 Sargent,
héðan frá Winnipeg áleiðis til Osua-
burgh Post, þar sem ha’nn er ráðinn
til vistar næstu þrjú árin, hjá Hud-
son Bay félaginu. Er það skemti-
!egt líf fyrir ungan mann og röskan,
og ágæt framtíðarvon. Öskar Heims-
kringla honum farsældar í framtíð-
inni.
Kappræða fer fram meðal stú-
denta í fundarsal Fyrstu lút. kirkju
á Victor stræti, laugardaginn, 6.
febrúar, kl. 8,30 síðdegis. Kappræðu-
efni: Ætti afi brcyta innflytjenda-
lögum Canada þannig, aff leyfa inn-
flutning óbókfœrra (illillcrate)
mannaT
Jákvæðu hliðinni halda fram þeir
Heiðmar Björnsson og Stefán Stur-
laugsson. A móti mæla Heimir
Þorgrímsson og Astrós Johnson.
Menn eru beðnir að mæta stundvís-
lega. Allir eru velkomnir.
Ur bréfi frá Hallson.
”... Héðan er lítið að frétta.
tíðin er æskilega. góð og almenn
þeilbrigði og fremur góð líðan á
meðal fólks. Það hefir frést að
orðið hafi stórbruni í Grafton N.
Dak., þann 27. þ. m. enn hefir ekk-
ert frést greinilega, en þa.ð var ofsa-
1 veður á norðan og hefur eldurinn
því verið óviðráðanlegur.
Vil eg svo óska útgefendum
Kringlu góðs gengis á komandi ári,
Með vinsemd
/. K. Einarsson.
Áskorun.
Þegar eg ferðaðist um bygðina í
haust er leið í innköllunar erindum
fyrir Heimskringlu, loíuðust flestir
til að senda mér .borgunina fyrir
bl.aðið jáður en langtum liði, Nú
eru tveir mánuðir liðnir síðan, og að
eins einn sent mér borgunina. Nú
eru það vinsamlegust tilmæli, að
kaupendur sendi mér andvirði blaðs-
ins sétn fyrst. Það væri annars
fróðlegt að fá að vita ástæðuna fyrir
tregðu Islendinga á því að borga ís-
lenzku blööin, þar sem enskum blað 1
útgefendum er altaf skilvislega borg-
.að fyrirfram. H.vers eiga ís-
lenzku blöðin ag gjaldá? Er það fyr-
ofmikla þjóðrækni? Vídir P. O.
23. jan., 1926 Agúst Einarsson.
Innöllunartnaður Heimskringlu.
Það hefir verið ákveðið að söng-
samkoma sú, sem Mr. Björgvin
Guðmundsson er að undirbúa, verði
haldin 23. febrúar n. k. í Fyrstu
lút. kirkjunni . Victor stræti. — Nán-
ar auglýst siðar.
Þeir, sem senda blaðinu kvæði,
ritgjörðir eða greinar, eru vinsam-
legast beðnir að senda burða.rgjald
nteð, ef þeir óska að fá handrit sitt
aftur. Menn eru beðnir að leggja
þetta vel á minnið sér í hag, a.f því
að ómögulegt er að geyma handrit,
sem annaðhvort hafa verið prentuð,
eða einhverra. hluta vegna ekki kom-
ast í prentun.
Siðasta haustferming séra Frið-
riks Friðrikssonar að þessu sinni
fór fram í Wynyard 6 desember stð-
astliðinn. Þessi ungmenni voru
fermd:—
Aldís Valgerður Sigurðardóttir
Halldórsson.
Emily Geirfríður Jónsdóttir Berg-
mann.
Guðlaug Ingibjörg Jónsdóttir Hall-
son.
Jón Raguel Jónsson Bergmann
Jóhannes Wilhelm Björnsson Han-
sen.
Louis Clifford Jacobs.
Margrét Sigríður Valdimarsdóttir
Johnson.
Ralph Brandur Jónsson Berg-
mann.
Sigfús Þórhallur Sigfússon Berg-
mann.
Stefán Björnsson Hansen.
Iðunn komin,
Siðari helmingur 9. árgangs (2.
hefti). Verða þau send tafarlaust
til útsölumanna og kaupenda víðs-
vegar.
Eg vil um leið niælast til þess, að
allir “Eaupendur gjöri nú greið skil
og sendi ntér andvirði árgangsins
($1.80) tafarlaust, svo að hægt sé að
gjör,a. fulla skilagrein til útgefand-
ans sent bráðast. Kaupið “Postal
Note” eða “Money Order nú strax
og sendið mér með næstu póstferð.
M. ' Peterson.
313 Horace St.. Norwood, Man.
Sjöunda ársþing
Þjóðræknisfélags íslendinga verður haldið í
Goodtemlaraliúsinu í Winnipeg á miðvikudag,
fimtudag og föstudag 24., 25. og 26. febrúar
1926, kl. 2 e. h.
Þessi dagskrá hefir verið ákveðin;
1. Þingsetning
2. Skýrslur embættismanna
3. Bókasafnsmál
4. Bókasalan (tollmál)
5. Lesbókarmál
6. Tímaritið
7. íslenzkukenslan
8. íþróttir
9. Grundvallarlagabreytingar
10. Útbreiðslumál
11. Samvinnumál
12. Önnur ólokin störf
13. Ný mál
14. Kosningar embættismanna.
í umboði stjórnarnefndarinnar
Sigfús Halldórs frá Höfnum
ritari
(Þessi dagskrá verður ekki prentuð aftur.)
X-