Heimskringla - 03.02.1926, Blaðsíða 5

Heimskringla - 03.02.1926, Blaðsíða 5
WlNNIPEC, 3. FEBR., 1926. HEIMSKRINGLA 6. BLAÐSÍÐA. ÞJER SEM NOTIÐ TIMBUR K A U P I Ð A F The Empire Sash and Door COMPANY LIMITED Birgðir: Hlenry Ave. East. Phone A 6356 Skrifstofa: 5. Gólfi, Bank of Hamilton VERÐ GÆÐI ÁNÆGJA. OH Haldið peningum yðar í Winnipeg Cooperi Institute of Accountancy AUGLYSA fyrirlestra og heimanáms kenslu í Bókfærslu Og Kaupsýslustjórn með sérstökum lexíum í Kornverzlunarbókfærslu Kensla byrjar næsta miðvikudag kl. 8. síðd. nemendur geta notið kenslu eitt eða tvö kvöld í viku Komið skrifið eða símið A 3507 eftir skilmálum. 301 Enderton Bldg., 334 Portage Ave., við Hardgrave WINNIPEG, Eavid Cooper C.A. Pyrirlesari CIERGES-SKRÝDD HitS allra nýjasta af skrýddum kert- um og án efa lang listfengasta. Snotur 24 þml. “Longfellow” kerti, lítiS eitt uppmjð. Mjúkar nýjar litskygglngar, sem hrífa og töfra. LITIRt Sólrauö, Blá, Gul, Bleik, Rósrauö, Jade Græn, Orange. 75c FARIÐ Þessi nýju kerti ætti aö nota í mjög gamaldags stjökum — 3 þml. háum. Vér höfum þá ágæta silfraöa á. $3<00 PARIÐ Dinqmall’s PORTAGE OG GARRY WINNIPEG BLUE RIBBON Bakinú Powder l > Why pay high prices for Baking Powder when a One Pound Tin of Blue Ribbon—the best Baking Powder made can he bought for ptRö% Blue Ríbbon is made by the same Company that packs the f amous Blue Rifobon Tea and Coffee ð í S Ml< Fyrir bænastað nokkurra vina blaðsins. Eftir Guttorm J. Guttormsson. Yatnaminni. Vatnabygð! þótt björg um þrotni, Batnar af þínu hreina vatni Öllum harmnr; í hríð og stormi Huggun er Ijós í vatnagluggum. Fegurð blárra vatnavoga Var hin fyrsta allra lista. Sálin, hennar faðmi falin, Flosnar ei upp af vatnakostum. Þegar sjónin þarf að mæna (Það er siður) út og niður, Hlægir mig að iiimnaspegill H,ér á jörð, er sérhver fjörður. Þar er framast sælusumar. Sérhvern glaðan dag í baði , Mynda kyngi, töfra tungu Túlkað af öldusilkistúlkum. Voldugir eru vatnagaldrar, Vatnatöfrar himinjöfra (Þeirra hirðir heiminn varða, Húmi tæma gjörvalt rúmið) ; Fyrir bakka sólir sökkva Sér í kaf og geislum stafa. Ljóssins dýrð og veldi verða Vatnáföll að silfurhöllum. Voldugir eru vatnagaldrar, Vatnatöfrar himinjöfra: Tandrauð afturelding kyndir Eld í hyl og straumaspili, Aftansólin myndir málar Mjúkum lit á bláa dúka, Blika, undir ópalþoku, öldubök á sumarkvöldum. Vatnaguð og veðradrottinn Vaki yfir krystalþaki Djúpra vatna víðra botna, Valdi mildir hlífiskildi! Aldrei haglið himnaspeglum Hríni á, en regnið skíni! Þar á ströndum þrumutundra- Þrymgjöll veki galdraspeki! Galdraspeki guða, vaki, Gangi í kring með sjónhverfingar! Sjónarvillur, sem vér köllum, Sjáum eru í raun og veru Dags og nætur dularhugsun, , Dýrust ljóð og æfintýri, Endurskin og undramyndir Annars heims — hins rétta og sanna. Ort í skóla. Dagur frá morgni er námskeið til nætur , Nóttin er framhald með stjarnanna glætur, Tunglskin og norðljósa tindrandi vönd. Dagurinn líður, sem kvikmynd, að kveldi, Kjarni hans máls er ritaöur eldi, Hvar sem við skýrum og skynjandi augum Skyggnum um himinn og lönd. Finnifm, nemum með næmum taugum! Morguninn hrindir ei skuggum í skyndi, Skugga hann sendir af lundi og tindi. Sólin um hádegi lýsir oss lengst. Þó var það einatt að sál vor sá við Sólglaða birtu ljóss, sem var dáið, Það sem í lifandi ljósi dulið Lá, þar sem útsýn var þrengst, Alteins og væri það húmi hulið. Lýsa oss vitar, sem kvöldið kyndir Kvöldroðans eldgullnu purpuralindir Himininn mála, unz húmar að. Sólroð, er hefst upp úr sálardjúpi. Sviftir af veröld hins innra hjúpi Myrkur og þokuskýs og skugga; Skín ihn í himinn það Eins og ljós út um guðshússglugga. Förum til náms inn í huliðsheima, Himininn opnum og nýja geima! Sálin á væng þar sem svefninn er. Alt, sem við nemum, er efni í drauma, óljósa hugmynd um lífsins strauma Sveipaða, lengra en loftin blána, Lengra en hugurinn sér, Birtu ljóss, jafnvel ljóssins dána. Ný íslenzk þjóðsaga, Til Winnipeg upp uni vegi, Sem voru’ ekki hér né þar, Hann ætlaði á einum degi Að utan frá Sandy Bar. Þar stóð hann á storðu frægri Og steig í sinn vinstri fót, Tók fram fyrir hann ’inn hægri Svo hart sem flýgi spjót. Svo hlaut hann ferðina að hefja Og hlaupa sem nú skal sýnt. Hann ætlaði ekki að tefja, Því erindið var svo brýnt; Og áfram og áfram hélt hann, Bem andi skilinn við lík. Og hundur, sem ætlaði að elta ’ann, Varð eftir í Breiðuvík. Og ár og lækir á leið hans Var líklegt að hefta ’áns för, En þraut sem á bökkum beið hans, Hún bara jók hans fjör, Og var ekki áð varpa öndu Af vandræðum hetja slík! Með stuttu stéli, en þöndu Hann stökk yfir Netley Creek. Af fótatökum svo fljótum, Sem framast á hann kaus, Hann sýndist á fjórum fótum Þar fljúga vængjalaus. Hann rann fram af Rauðár hakka Og risti djúpt í bað, Og án þess á ánni að smakka Komst yf’rum og svo af stað. Og Rauðskinnar ruku’ út úr tjöldum, Við Rauðár vatnagang, Og sáu þá upprísa af öldum Hinn ókunna ferðalang. Þeir héldu, er hlaupagestur Var hverfandi þeirra sjón, Að væri það vatnahestur, Sá vondi, eða ljón. Og Rauðskinnar riffli sér náðu, Sem rotaði ef hann sló, Og káinn nissisin kváðu Og kölluðu: Víttígó! Og búnir að bana gaupum Og björnum á ýmsan veg, Þeir skutu á hann, sem á hlaupum Fór harðast til Winnfpeg. Hann heyrði að baki sér braka, Og byltu fær eitthvað þar; Og fimtíu faðma til baka Hann fer til að sjá hvað það var. — t kúlunni var þessi kliður Og kom af því henni var sáð, .Tá, hún hafði hnigið þar niður Og honum ekki náð. o (D Hveitisamlagið. Samvinnumálin á bœndaþingimi. Hi?S 23. Arsþing- U. F. M., sem haldið var í Brandon 12—15 þ. m. mætti að réttu Iagi nefna^ samvinnu- þing, og stjórnarnefnd U. F. M. á miklar þakkir skilið fyrir að hafa útvegað einn fremsta fræðimann í samvinnumálum til að skýra sögu hagfræði og mannfélagslegt og sið- fræðilegt gildi samvinnuhreyfingar- innar. Prófessor Fay flutti fjögur erindi á þinginu í þessari röð: England nú á dögum og fyrir 100 árum síðan. Samvinna jarðyrkjumanna, allsherjar samtök, Samvinnufélagsskapurinn og sveitalánin; Fræðslusamtök um sveitamálin. I (yrsta erindinu fór próf. Fay all- mörgum orðurn uin iðnaðarhrun og þa.r af stafandi fjármálavandræði er fvlgdu Napoleonsklt styrjöldinni; um óánægju og umbótakröfur alþýðunn- ar út af fjárhagsástandinu, er lyktaði nieð stjórnarfarslegum breyt- ingurn og stofnun iðnaðarmanna fé- laga og samvinnukaupfélaga. í öðru erindinu, henti próf. Fa.y á að hið mikla gildj, ^amvinnufélags- skaparins væri ekki eingöngu innifal- ið í fjársparnaði með bættum rnark- aði, heldur og líka. að bættur mark- aður hefði aukið framleiðsluna, en hvorttveggja bætt lífskjör nianna og búskaparaðferðir. Hann áleit að samband ætti ávalt að vera á milíi þeirra sambanda. er vinna að endur- bótum á búnaði og samvinnu kaup- félaganna, er heimtuðu hærri vöru- gæði og meira vörutnagn. I fyrirlestri sínum um Samvinnu og sveitalán, lagði prófessor Fay aðal áherzluna á grundvallar nauð- synina í því að gjöra akuryrkjuna arðberandi . Sveitalánin væri aukatriði, því að aðal tilgangur lán- veitinganna væri sá að opna vegi fyrir bændtir, að ná meiri arði a.f búskapnum. Hinar stuttu lánveitingar taldi hann ekki eins æskilegar, eins og peninga verzlunina setn samvinnu- fyrirtækin hefðu komið á fót. Sam- Lags borganirnar til dærnis hafa gjört peninga verzlun mögulega árið um í kring. I loka fyrirlestrinum lagði próf Fay niður þessar fjórar meginregl- ur fyrir samvinnu félagsskapinn. 1. Hvorki leiðtogar eða félags- menn Samvinnufélagsskaparins ntega kvika frá því að standa einarðlega með félagsskapnum. Þeir verða að gjöra hann að ákvtðnu lífstak- marki sínu. 2. Flokka pólitik má aldrei koma nálægt samvinnufélagsskapnum. 3. Uppfræðingu um þessi efni rná aldrei linna.; en jafnt og stöðugt minna á hugsjónina sem í félags- skapnum felst. 4. Forgöngumenn og félagar verða sjálfir að hafa. trú á þessu málefni.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.